Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 35
Vetrarsport 7Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
Y
ngsti skíða- eða brettaiðk-
andinn í fjallinu þarf tíma
til þess að læra hvernig best
sé að koma sér niður brekk-
una. Foreldrar eða forráða-
menn verða að sýna mikla þolin-
mæði því athygli barnanna er oft lítil.
Því er gott að ætla þeim ekki of mikið
í hvert sinn, heldur taka sér klukku-
tíma eða tvo í minnstu brekkunni.
Bæði í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli eru
svokölluð töfrateppi, færibönd sem
auðvelt er að standa á og fara ekki
langt upp. Best er að byrja á þeim og
kenna barninu hvernig skíðin eða
brettið hegðar sér þegar búið er að
festa það á sig.
Börn á skíðum þurfa að læra að
setja skíðin saman fremst í það sem
er kallað plógur eða pítsusneið.
Best er að gera slíkt á jafnsléttu, efst
í brekkunni áður en farið er af stað
niður. Þeir sem eru góðir á skíðum
geta skíðað með börnin afturábak,
en aðrir geta líka notað stafi eða
stangir sem börnin halda í og þannig
má halda hraðanum niðri.
Plógur orðinn að pítsusneið
„Það mikilvægasta er að börnin læri
að stoppa. Fyrst þurfa þau að byrja
að læra það, áður en þau fara í eitt-
hvað annað. Þá er pítsusneiðin, eða
plógur, fyrsta mál á dagskrá,“ seg-
ir Linda Björk Pálsdóttir, skólastjóri
Skíðaskólans í Hlíðarfjalli. „Börn-
in vita hvernig pítsusneið lítur út,
þau vita auðvitað ekkert hvað plóg-
ur er. Ef þau fá góða og rétta kennslu,
þá ættu þau ekki að vera lengi að ná
þessu. Fimm til sex ára börn ættu að
geta náð grunnatriðunum nokkuð
fljótt en þau yngri hafa kannski ekki
sömu athyglina, þau eru kannski
frekar að leika sér. Á meðan þau geta
ekki stoppað sjálf, þá þurfa þau að
vera á öruggu svæði.
„Þegar þau hafa náð tökum á því,
er gott að fara með börnin í diska-
lyftuna. Börnin fara þá að æfa sig í
því að stýra hraðanum með beygjum
og ná góðu öryggi á skíðunum. Eftir
þá þjálfun er komið að stólalyftunni,“
segir Linda Björk. Fyrir brettakrakka
gilda svipaðar reglur, en þau geta
reyndar farið beint af töfrateppinu í
stólalyftuna. Mun auðveldara er fyr-
ir þau að fara í stólalyftu en diska-
lyftu, auk þess sem erfiðara er að fara
hratt.
Fór að æfa eftir skíðaskóla
Auður Brynja Sölvadóttir hóf skíða-
feril sinn í skíðaskólanum hjá Lindu
en hún er nú í íþróttaskóla í Noregi
þar sem hún getur æft sig af kappi
á skíðunum. „Ég flutti frá Reykja-
vík til Akureyrar þegar ég var fimm
ára og þar sem fjallið er svo nálægt
kom ekki annað til greina en að
prófa skíði. Linda hjálpaði mér mik-
ið, ég fór í skíðaskólann og svo einka-
tíma hjá henni og lærði mikið, var í
raun mjög fljót að ná tökum á þessu.
Tveimur árum síðar fór ég að æfa og
hef ekki litið til baka síðan þá,“ segir
Auður Brynja. n
Í skíðaskóla Margir foreldrar
kenna börnum sínum sjálfir á
skíði og byrja snemma. Skíða-
skólar eru einnig í boði á mörg-
um skíðasvæðum landsins.
n Svona kennirðu barni á skíði n Þurfa að tileinka sér „pítsusneiðina“
Þurfa að geta stoppað
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Börnin
vita hvernig
pítsusneið lítur
út, þau vita
auðvitað ekkert
hvað plógur er Keppt með
frjálsri aðferð
Á Vetrarólympíuleikunum sem
eru í Sochi í Rússlandi verður í
fyrsta skipti á ólympíuleikunum
keppt í íþróttinni „freeskiing“,
sem segja má að sé nýtt afbrigði
íþróttarinnar með frjálsri aðferð,
sem stunduð hefur verið á Íslandi
um nokkurt skeið. Þetta nýlega
afbrigði snýst um að íþróttamað-
urinn sýnir tækni sína á ýmist
slám, kössum eða öðrum hindr-
unum. Sérstök skíði eru nauðsyn-
leg til að stunda íþróttina og má
kaupa þau búðum svo sem Ever-
est, Skíðasport og Útilífi.
Endurkoma
snjóskautanna
DV fjallaði um á dögunum
endurkomu snjóskauta en þeir
voru seldir á Íslandi á níunda
áratug seinustu aldar. Ekki stend-
ur til að flytja inn skautana til
Íslands en hægt er að panta
skóna á heimasíðu fyrirtækis-
ins sleddogsskates.com og kosta
þeir um þrjátíu þúsund krónur
með öllum gjöldum. Ingi Freyr
Sveinbjörnsson, sem er einn
fremsti íþróttamaður heims á
skautunum, segir að upplifun við
að renna sér á skautunum niður
hlíðar sé eins og að vera á línu-
skautum í snjó.
FXNytro M-TX árg. 2014
Verð nú frá 2.690.000
VERÐLÆKKUN!
Vegna styrkingar krónunnar
býður Arctic Trucks nú hina
áreiðanlegu og eyðslugrönnu
FXNytro M-TX sleða með 100
þúsund króna afslætti!
www.yamaha.is
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900
Vetrar- og útivistarhátíð
á Akureyri
13.-16. febrúar
/eljagangurwww.eljagangur.is
Lj
ós
m
yn
d:
©
A
xe
l Þ
ór
ha
lls
so
n
Fylgstu með Él
jagangi
á sjónvarpsstö
ðinni N4!
skíði - bretti - sleðar - s
leðahundar
þyrluskíði - sleðaspyrna
- ístölt
gönguskíði - fjallganga -
brettasession
námskeið - sýningar - m
enning
... og hellingur í viðbót!
Skoðaðu dagskrá og viðbu
rði á