Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 20
20 Fréttir Erlent Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 S prengingin var gríðarlega öflug. Tveimur bílum, full- um af sprengiefni, hafði verið lagt við fangelsis- múrana. Sprengingarn- ar rifu múrana í sundur og í gegn streymdu tugir manna vopnaðir AK-47 árásárrifflum. Þeir hlupu um ganga fangelsisins, skutu upp lásana á klefunum og á stuttum tíma hafði þeim tekist að frelsa um 500 félaga sína. Fangelsið sem um ræðir er að- alfangelsi Bagdad, það sem einu sinni hét Abu Graib og var vett- vangur risastórs hneykslis hjá bandaríska hernum, þar sem bandarískir hermenn pyntuðu og niðurlægðu írakska fanga, eft- ir innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003. Þeir sem sprengdu sig í gegn með þessum hætti, en áður hafði sprengjum rignt yfir fangelsis- garðinn, eru liðs- og fylgismenn Abu Bakr al Bagdadi, sem sam- kvæmt ítarlegri úttekt tímarits- ins Time, er einn af hættulegustu hryðjuverkamönnum heimsins um þessar mundir. Nafnið sem hann notar er stríðsnafn hans, hann heitir í raun öðru nafni, sem er bæði langt og erfitt í framburði. Talið er að Abu bakr hafi allt að 7.000–10.000 manns undir vopn- um um þessar mundir og hann hefur í raun stofnað nýtt ríki, sem hefur meðal annars blandað sér í hin hryllilegu átök í Sýrlandi. Ríki þetta kallar hann Islamic State of Iraq and Greater Syria, eða Hið ís- lamska ríki Íraks og Stór-Sýrlands (ISIS). Þessi samtök, ISIS, leysa í raun af hólmi al-Kaída-samtökin í Írak. Brjótum múrana Frelsunaraðgerðin mikla hlaut mjög litla athygli í fjölmiðlum víða um heim, en yfirleitt er sagt frá frels- un fanga af þessari stærðargráðu. Þessi aðgerð jók hins vegar mjög á hróður Abu Bakr, sem er eins og skugginn, enda er hann kallaður „Draugurinn“. Hins vegar var hann bara að standa við það sem hann hafði lofað, því nokkrum mánuð- um fyrr hafði hann gefið út yfir- lýsingu þess efnis að hann hygð- ist hefja herferð sem hann kallaði „Brjótum múrana“. Þetta var að- eins önnur opinber yfirlýsing sem hann hefur gefið frá sér, frá því að hann komst til hæstu metorða inn- an al-Kaída-hryðjuverkasamtak- anna. Eins og margir kannski vita var þeim stýrt af Osama bin Laden sem var myrtur af bandarískum sérsveitum í Pakistan í byrjun maí 2011. Sá atburður var uppistaðan í hinni margverðlaunuðu kvikmynd Zero Dark Thirty. Fjöldi sprengjuárása Á undanförnum mánuðum hefur Abu Bakr staðið fyrir tugum sprengjuárása í Írak, en landið hef- ur rambað á barmi borgarastyrj- aldar undanfarna mánuði. Gríðar- leg spenna hefur verið á milli tveggja helstu trúarhópa landsins, sjíta og súnníta. Súnnítar, sem eru minnihluti í landinu, voru við völd í landinu fram að falli Saddam Hussein. Sjítar hafa hins vegar ver- ið að reyna að auka áhrif sín með virkum hætti, dyggilega studdir af stjórnvöldum í Íran, nágranna- ríki Íraks og helsta andstæðingi. Löndin háðu grimmilegt stríð á árunum 1980–1988, þar sem um milljón manna féll. Dýr skyldi Abu allur! Abu Bakr al Bagdadi er lýst sem leyndardómsfullum leiðtoga sem forðast kastljós fjölmiðla og athygli. Aðeins eru til um tvær myndir af honum og í umfjöllun Time er önnur þeirra birt (og við notum hér). Á þessari mynd virð- ist hér um ósköp venjulegan mann að ræða. Það eru hins vegar 10 milljónir dollara, rúmur milljarð- ur króna, lagðar til höfuðs hon- um og það er bandaríska leyni- þjónustan sem gerir það. Um er að ræða sömu upphæð og sett var til höfuðs Osama bin Laden. „ Verðmiðinn“ á þessum mönnum er því sá sami. Abu Bakr, sem er súnníti, hefur einnig hótað Bandaríkjunum: „Þið munuð sjá okkar heilögu stríðs- menn á ykkar landsvæði … stríð okkar gegn ykkur er rétt að byrja,“ sagði hann í hljóðritaðri tilkynn- ingu sem Sydney Morning Herald endursagði í frétt um miðjan jan- úar. Bandaríkjamenn eru vanir að taka orð sem þessi mjög alvarlega. Eftir dauða Osama bin Laden hót- aði Abu Bakr einnig Bandaríkja- mönnum öllu illu. Bandaríkja- menn hafa þekkt til hans í um áratug og árið 2005 gerði banda- rísk herflugvél árás á hús þar sem talið var að frammámenn innan al-Kaída væru, þar á meðal Abu Bakr. Bandaríkin höfðu þó ekki er- indi sem erfiði í þetta sinn. Á fullu í Sýrlandi Liðsmenn ISIS og Abu Bakr virð- ast ekki vera í neinum vandræðum með að fá liðsmenn í baráttu sína og átökin í Sýrlandi lokka til sín fjölda stríðsmanna. Reyndar má segja að bardagamenn hafi streymt til Sýrlands. Liðsmenn Abu Bakr hafa til dæmis tekið borgina Rakka í Sýrlandi, þar sem milljón manns búa, og þeir stjórna landamæra- stöðvum að Tyrklandi. Þá hafa þeir einnig náð olíulindum og olíuhreinsunarstöðvum á sitt vald. Áhrif þeirra eru einnig mjög mikil í tveggja milljóna borginni Mosul í Norður-Írak, á svæði sem einnig er kallað Kúrdistan. Þá er talið að ISIS sé að verða mjög áhrifamikið í Anbar-héraðinu í Írak, sem þek- ur stóran hluta Íraks og liggur að Jórdaníu. Vesturlönd næst? „Þeir eru að tala um aðgerðir er- lendis, álíka hluti og leiddu til 11. september.“ Þessi orð lét Mike Rogers, formaður voldugrar þing- nefndar í bandaríska þinginu sem fer með öryggismál, falla á fundi í nefndinni í október síðastliðn- um. „Það eina sem kemur í veg fyrir að eitthvað slíkt gerist er að það eru deilur innan al-Kaída,“ sagði Rogers enn fremur. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um þykir Abu Bakr hafa seilst til of mikilla valda og áhrifa inn- an al-Kaída með herskárri stefnu sinni. Það þykir því líklegt að leið- ir skilji og í nýlegri grein á vefsíðu Time er því einnig haldið fram að klofningurinn geti í raun virkað eins og olía á eld og gert málin enn verri. Bræðravíg eru einnig mjög heiftúðug. Sjálfsagt gera aðilar innan leyni- þjónusunets Bandaríkjanna allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hafa hendur í hári Abu Bakr al Bagdadi. Miðað við þær lýsingar sem finna má af honum og hans verkum að undanförnu er nefni- lega ljóst að hér er á ferðinni einn hættulegasti hryðjuverkamaður heims um þessar mundir. n Sá hættulegasti Gunnar Hólmsteinn Ársælsson n Frelsaði 500 al-Kaída-liða í alræmdri sprengjuárás n Vill stofna nýtt stórveldi múslima Slæmt ástand Ástandið í Írak að undanförnu hefur verið slæmt. Abu Bakr hefur staðið fyrir fjölda sprengjuárása í landinu þar sem margir hafa fallið. Heimsveldi múslima Abbasid-kalífadæmið, stóð frá 750–1258 e. Krist og nær eins og sjá má frá Túnis í Norður-Afríku til Afganistan. Abu Bakr al Bagdadi dreymir um að stofna ríki sem þetta. Hættulegur Tíu milljónir dala hafa verið lagðar til höfuðs al Bagdadi. Bandaríska tímaritið Time fjallaði ítarlega um hann á dögunum. Vill stofna kalífadæmi Abu Bakr al Bagdadi er fæddur í bænum Samarra í Írak árið 1970 og er því 44 ára. Hann telur sig vera kominn í beinan legg af sjálfum Múhameð spámanni. Hann lauk doktorsprófi i íslömskum fræðum frá háskólanum Bagdad og hann vill stofna sitt eigið kalífadæmi. Fyrir- myndin er sótt til Abbasid-kalífadæmis (eins mesta heimsveldis múslima), en það var við lýði í Mið-Austurlöndum í ýmsum myndum á árunum 750–1258 eftir Krist. Kalífi er það nafn sem notað er yfir æðsta yfirmann samfélags múslima, umma. Kalífar eru taldir fá vald sitt frá Allah, guði múslima. Kalífa- dæmum er stjórnað með sjaría-lögum og þar sem Abu Bakr al Bagdadi hefur komist til áhrifa hefur hann innleitt slík lög. „Þið munuð sjá okkar heilögu stríðsmenn á ykkar land- svæði … stríð okkar gegn ykkur er rétt að byrja,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.