Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 7.–10. febrúar 201428 Fólk Viðtal É g held að ég eigi metið – að enginn annar hafi verið jafn lengi í útvarpinu með sama þátt á sama tíma. Maður er að verða eldri en handritið,“ segir Ívar Guðmundsson, útvarps­ maður og dagskrárstjóri Bylgjunnar, sem mun fagna 25 ára starfsafmæli sínu í haust. Lét kaupa handa sér útvarpsstöð Alveg frá því Ívar man eftir sér ætlaði hann að verða útvarpsmaður. „Ég hafði mikinn áhuga á amerísku út­ varpi og æfði mig með því að kynna ameríska listann heima í stofu. Svo fór ég að vinna sem plötusnúður í fé­ lagsmiðstöðvum þrettán ára. Þegar frjálsu stöðvarnar komu reyndi ég að komast þar að en þar sem ég hafði enga reynslu var ekk­ ert pláss fyrir mig. En ég var staðráð­ inn og fékk því Hreiðar Svavarsson í Smiðjukaffi og Pizzusmiðjunni til að kaupa FM957 eingöngu til að ég gæti verið í loftinu. Þetta var ákveðin eig­ ingirni; að fá manninn til að kaupa handa mér útvarpsstöð en hann byggði stöðina upp með son sinn sem framkvæmdastjóra; þetta var gullöld FM957,“ segir Ívar og bætir við að hann hafi um leið sagt upp starfi sínu sem sölumaður. „Ég lækk­ aði í launum um helming en mér var alveg sama og fór að sendast með pítsur um helgar samhliða.“ Enn að þroskast Árið 1995 fór Ívar yfir á Bylgjuna þar sem hann hefur verið síðan. „Björg­ vin Halldórsson var útvarpsstjóri og réð mig í vinnu. Fyrir það er ég hon­ um ævilega þakklátur. Á þessum tíma var mig farið að langa til þess að vaxa meira í starfi og þar sem Bylgjan hef­ ur alltaf verið stærsta frjálsa stöðin í landinu horfði ég þangað. Ég hef sýslað margt á Bylgjunni en þó reynt að losna við allt nema útsendingarnar. Það er það allra skemmtilegasta, að kynna tónlist og ræða við fólk. Þar liggur minn áhugi,“ segir Ívar sem hefur aðallega stjórnað léttum þáttum þar sem tónlistin fær að njóta sín. „Þetta form hentar mér best. Ekki að mér þyki talmálsþættir leiðinlegir, ég fylgist með þeim öllum en þeir heilla mig ekki sem útvarps­ mann. Kannski vex ég einhvern tím­ ann þangað. Ég er enn að þroskast og batna. Eða ég vona það því um leið og þú heldur að þú sért orðinn góður í þessu þá er best að hætta þessu. Þá ertu hættur að þróast.“ Leikur ekki útvarpsmann Leyndarmálið að góðum útvarps­ manni segir Ívar einlægni. „Aðal­ atriðið er að tala við fólk, ekki tala til fólks; tala við hljóðnemann eins og hann sé vinur þinn. Það tók mig mörg ár að ná einhverjum tökum á þessu. Ég vil ekki leika útvarpsmann eins og svo margir gera – fara í karakt­ er. Ég gerði það í gamla daga, ég heyri það þegar ég heyri gamlar upptökur af sjálfum mér. Þetta er eitthvað sem kemur með reynslu og þroska og sumir eru fljótari að ná en aðrir.“ Aðspurður hvað hann væri að gera ef hann hefði ekki komist að í útvarpi hugsar hann sig um. „Það var aldrei inni í myndinni að gera eitt­ hvað annað. Jú, jú, sennilega hefði maður drullast til að klára mennta­ skóla og læra eitthvað sem hefði nýst manni. Ég hef alltaf haft áhuga á markaðsmálum og slíku og finnst líklegt að ég væri að sýsla við eitthvað þess háttar.“ Hræddur um að fólk fái leiða Þrátt fyrir árin 25 þvertekur Ívar fyrir að vera kominn með leiða á vinnunni en viðurkennir að hann óttist að hlustendur fái nóg af hon­ um. „Auðvitað hræðist maður mest að fólk fái leiða á manni. Þess vegna er gott að hafa góða yfirmenn sem sparka í mann ef þeim finnst mað­ ur vera að sofna á verðinum. Það er nefnilega auðvelt að komast létt út úr þessu starfi ef maður heldur sér ekki á tánum. Í gegnum tíðina hef ég feng­ ið uppbyggilega gagnrýni frá mínum yfir mönnum þar sem farið er yfir þáttinn og það sem betur má fara,“ segir hann og bætir við að hann taki gagnrýni vel. „Ég átti erfiðara með það þegar ég var yngri. Í dag tel ég að ég verði að þroskast og þróast til að hafa sjálfur áfram gaman af þessu. En svo verður maður að muna að það er ekki hægt að gera öllum til geðs.“ Missti föður sinn tólf ára Ívar er fæddur og uppalinn í Reykja­ vík. „Ég hóf lífið í Vesturbænum en flutti sex ára í Breiðholtið. Ég var einn af þessum Fellavillingum, eins og við vorum kallaðir. Það var alltaf mikill hasar í kringum mann, maður stopp­ aði lítið. Ég var enginn engill. Þetta var kynslóðin sem kom aldrei inn og maður hefði örugglega verið greind­ ur ofvirkur í dag. Það hugtak var bara ekki til í þá daga. Annars átti ég ótrú­ lega fína æsku og þótt ég sé ekki kom­ inn af efnafólki fannst mér mig aldrei skorta neitt,“ segir Ívar sem er yngstur þriggja systkina. Þó var æska Ívars ekki bara dans á rósum en hann var ekki nema tólf ára þegar faðir hans, Guðmundur Dalmann Ólafsson, lést aðeins 46 ára að aldri. „Pabbi fæddist með hjarta­ galla. Það var gat á milli hjartahólfa; galli sem þykir ekki mikið mál í dag að laga og sést strax á meðan barnið er enn í móðurkviði. Árið 1972 var þetta þó nokkuð stór aðgerð. Pabbi var orðinn veikur en valdi að fara ekki í aðgerð. Hann óttaðist að lifa ekki af svæfinguna en hjartað hélt ekki leng­ ur en sex ár í viðbót. Í dag geri ég mér grein fyrir því hversu mikið þrekvirki móðir mín vann með því að sjá um okkur þrjú ein. Hún vann láglaunastörf allt sitt líf en var ekkert að velta hlutunum fyrir sér. Þetta var bara lífið; að vinna. Hún missti manninn sinn ung og var ein eftir það og tók uppeldið alvarlega. Þetta er kynslóðin sem byggði upp landið og sætti sig við mun minna en við gerum í dag. Hún kvartaði aldrei.“ Móðir Ívars, Soffía Jóhannesdóttir, býr enn í Fellunum. „Mamma er orðin 80 ára, er eldhress og býr rétt hjá þar sem við ólumst upp. Að fara til hennar er eins og að koma heim.“ Bróðir gekk honum í föðurstað Ívar segist hafa tekist á við sorgina sem fylgdi föðurmissinum hægt og rólega. „Það situr alltaf í mér að hafa misst pabba svona snemma og ég gleymi aldrei þeirri stund þegar við fylgdum honum til grafar. En ég var heppinn að eiga bróður sem er fjór­ um árum eldri en ég. Hann steig inn í föðurhlutverkið og er þar líklega ennþá, þótt við séum og höfum alltaf verið miklir vinir. Ætli hann hafi ekki tekið ábyrgð á mér upp frá þessu,“ segir Ívar og á þar við athafnamann­ inn Hermann Guðmundsson, fyrr­ verandi forstjóra N1. „Við Hermann höfum alltaf verið bestu vinir. Ég hef alltaf horft upp til hans, sérstaklega þegar kemur að því að framkvæma og búa til. Hans velgengni er sjálf­ sprottin; hann kom sér sjálfur áfram. Hann er mun jarðbundnari en ég sem get flogið hátt og því er gott að fá hans álit á hlutunum. Hann er minn besti ráðgjafi.“ „Dauði hans breytti mér“ Ívar er 47 ára í dag og viðurkennir að margt hafi farið í gegnum hugann þegar hann varð jafn gamall föður sínum þegar hann féll frá. „Ég gerði mér grein fyrir hvað hann var í raun­ inni ungur þegar hann lést. Þegar maður er tólf ára eru allir sem eru komnir yfir fertugt háaldraðir. Pabbi var í rauninni í blóma lífsins. Við tveir vorum rétt að byrja að verða félagar. Þetta var á þeim árum sem við vorum að þróa með okkur vinskap úr því að vera einungis fað­ ir og sonur. Ég hef reynt að hugsa til tímans með honum með hlýju og ein af hefðunum í kringum jólin er að fara í kirkjugarðinn. Það hefði verið gaman að geta eytt meiri tíma með honum en það þýðir ekkert að dvelja of mikið við það. Að missa hann kenndi mér samt margt, eins og að njóta dagsins og þess sem maður er að gera í dag. Að lifa í núinu en ekki í morgundegin­ um eða í framtíðinni. Dauði hans breytti mér, hugsunin breyttist.“ Byrjaði þrítugur að drekka Ívar segist hafa verið erfiður ungling­ ur. „Ég var heppinn að ég leiddist ekki út í drykkju og slíkt. Ég hafði óbilandi áhuga á öllum ökutækjum og var kominn á skellinöðru tveim­ ur árum áður en ég mátti taka prófið. Ég hef nefnilega alltaf átt erfitt með að bíða eftir hlutunum. Samt sem áður slapp ég við allt sem heitir slys en ég veit að mamma var oft með líf­ ið í lúkunum.“ Ívar snerti ekki við áfengi fyrr en hann varð þrítugur. „Það var ekki meðvituð ákvörðun, ég bara missti af því að byrja. Ég var alltaf á skellinöðr­ unni eða að spila í félagsmiðstöðvum þar sem þótti ekki við hæfi að vera að drekka. Ég missti því af partíun­ um þar sem jafnaldrar mínir byrjuðu að fikta og fór ekki í framhaldsskóla og komst þannig yfir aldurinn þegar mesti þrýstingurinn er í gangi. Seinna fór ég að íhuga hvort ég ætti nokkuð að prófa þetta enda öfgamaður í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég fer alltaf „all in“; eins og sést í líkamsræktinni. En svo tók ég ákvörðun að fá mér í glas í þrítugs­ afmælinu mínu og athuga hvort ég yrði nokkuð mjög leiðinlegur. Ef ég hefði ekki höndlað það hefði ég ekki gert það aftur en ég varð mér ekki til skammar. Ekki eftir því sem ég best veit,“ segir hann brosandi. „Ég var enginn engill“ Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson var að- eins tólf ára þegar faðir hans lést vegna meðfædds hjartagalla. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Ívar um 25 ára starfsferilinn, útvarpsstöðina sem hann lét kaupa fyrir sig svo hann gæti látið drauminn ræt- ast, vaxtarræktina, erfiðan skilnaðinn og bróðurinn sem gekk honum í föðurstað. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is „Við eyddum bara ekki nægum tíma í að hlúa að hjónabandinu á meðan við vor- um að koma okkur upp þaki yfir höfuðið og ala upp börnin Fráskilinn á fimmtugsaldri Ívar segir skilnaðinn hafa verið eitt af því erfiðasta sem hann hafi reynt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.