Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 29
Vetrarsport
„Ekki hægt að líkja
þessu við neitt“
Þ
etta er miklu meira en
bara skemmtilegt. Þetta er
sjúkdómur,“ segir Þröstur
Jón Sigurðsson, vélsleða-
kappi með meiru. Þröstur
eignaðist sinn fyrsta vélsleða fyrir
25 árum og hefur síðan þá farið í
ótalmargar vélsleðaferðir um allt
land og segir ómögulegt að hætta.
„Algjört frelsi“
„Ég og bróðir minn erum aldir
upp fyrir norðan og ólumst bara
upp við þetta,“ segir Þröstur,
spurður hvað hafi orðið til þess
að hann fór út í þetta sport. Hann
segir að það sé einfaldlega ekki
hægt að hætta.
„Þetta er alveg skelfilegt. Mann
langar eiginlega bara að kasta öllu
frá sér þegar það kemur gott veður
og maður veit af snjó einhvers
staðar,“ segir hann.
„Vandamálið er það að þeir sem
prófa þetta einu sinni eiga mjög
erfitt með að hætta þessu. Þarna
ertu kominn út í náttúruna og það
er algjört frelsi. Það er ekki hægt að
líkja þessu við neitt annað.“
Fer til Bandaríkjanna
En hvar er hægt að fara á vélsleða?
„Alls staðar þar sem við finnum
snjó. Við förum á Lyngdalsheiði,
Landmannalaugar, Bláfjöll,
Hengil, Akureyri, Austurland, Vest-
firði og Tröllaskagann allan. Það er
bara farið þangað sem snjór er og
gott veður,“ segir Þröstur, en hann
nýtir hvert tækifæri sem gefst til að
fara á vélsleða auk þess sem hann
flýgur stundum til Bandaríkjanna
og fer á vélsleða í Klettafjöllum.
„Þetta er mjög ólíkt sport hérna
heima og úti. Í Bandaríkjunum
ertu yfirleitt að keyra inni í skógi í
tveggja metra djúpum púðursnjó
en hér eru náttúrlega engin tré svo
þú ferð bara upp í fjöll og firnindi
og ert yfirleitt í vindbörðum snjó.“
Stórhættulegt sport
Þröstur segist þó lítið fara á
vélsleða upp á jökul. „Ég fer frekar
sjaldan upp á jökul. Maður er svo
hræddur við jöklana því þeir eru
svo sprungnir. Þeir eru náttúrlega
svo sléttir líka að það er miklu
meira gaman að vera í giljum og á
fjöllum.“
En það er fleira en jöklasprung-
ur sem vélsleðakappar þurfa að
hafa í huga.
„Þetta er stórhættulegt sport
ef ekki er farið varlega og þessir
sleðar eru orðnir svo gríðarlega
öflug tæki að þetta er engin spurn-
ing um hvort þeir komast upp
fjöllin og brekkurnar heldur er
það bara spurning um hvað haus-
inn leyfir þér að fara langt. Og svo
er snjóflóðahættan orðin talsvert
mikil í dag svo það þarf að hafa
hana vel í huga.“ n horn@dv.is
n Þröstur segir frelsið á vélsleða algjört n „Stórhættulegt sport“
7. febrúar 2014
U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n / b a l d u r @ d v . i s
„Mann langar
eiginlega bara
að kasta öllu frá sér
þegar það kemur
gott veður.
Kúnstir Þröstur
leikur listir sínar.
Vélsleðagarpar
Í góðra vina hópi.
Skemmtilegt en hættulegt „Þetta er
stórhættulegt sport ef ekki er farið varlega.“
m
y
n
d
ir
ú
r
e
in
K
A
SA
Fn
i