Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Qupperneq 26
26 Umræða Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Engin leiðindi Umsjón: Henry Þór Baldursson Fiskskiptavild S varthöfði veit að græðgi er góð. Hún er forsenda ný- sköpunar. Þetta er ekki ein- göngu kjarngóður sannleik- ur, sem birtist honum sjónum síðla kvölds og snemma morgna, þegar hversdagsleikinn víkur í stundar- korn fyrir heimspekilegum þanka- gangi, því þetta er einnig boðskap- ur Jesú. Sumir kommúnistar væru ekki sammála þessu en Svarthöfði getur vitnað í heilaga ritningu máli sínu til stuðnings, ólíkt Maó formanni og Kim Jong-Un. Margir þekkja söguna af því þegar Jesús mettaði fimm þúsund almúgamenn með sjö brauðhleif- um og nokkrum smávöxnum fisk- um. En fáir þekkja nákvæmn- isatriðin á bak við söguna, sem Svarthöfði hefur rambað á í gegn- um rökhugsun eina og sér. Villtar sálir telja stundum að sagan sé um nægjusemi. Nei, því þetta er saga af viðskiptavild. Þegar Jesús fékk nokkra druslu- lega fiska í hendurnar sá hann strax tækifæri. Innyflin voru ekki mjög lystileg en með réttum sambönd- um má gera kraftaverk. Jesús hafði strax samband við Seðlabankann í Jerúsalem. Þrjú hundruð grömm af fiskinnyflum voru strax grundvöll- ur fyrir nokkurra silfurpeninga láni. Þá notaði hann til að kaupa ger sem hann lánaði vel völdum almúga- mönnum, fékk meira lán frá Seðla- bankanum á grundvelli téðra út- lána, svo koll af kolli og voilá; fimm tonn af brauði. Honum óx fljótt fiskur um hrygg enda var auðvelt að selja Seðla- bankanum viðskiptavildina sem hann var með í höndunum. Fimm þúsund gulltryggða kúnna sem þráðu lítið annað en smá fiskslor. Seðlabankinn lánaði honum fyrir gommu af hrognum sem hann not- aði til að setja á stofn … fiskeldi! Svona gekk þetta koll af kolli; fólkið fékk smá brauð, smá fisk, og bransinn stækkaði; viðskiptavildin blómstraði. Síðan, áður en Tómas – sem hafði látið Jesú fá fiskinn og brauðið; nestið sitt; til að byrja með – og hinir lærisveinarnir vissu af, var Jesús stunginn af til Magadan á nýja hraðbátnum, með farmfylli af ítölsku fjallabrauði og eðal kavíar. Og lýðurinn, hann var auðvitað ekki svangur lengur, því brauð- molaslóðin var bæði viðamikil og löng. n Svarthöfði Hjartað í hverfinu F áir blettir í borgarlandinu eru jafn vel nýttir og lóðir í kringum leik- og grunnskóla. Á daginn iða þær af lífi og leik, námi og fræðslu. Að skóla loknum eru nýju skólalóðirnar hugsaðar og hannaðar sem skemmtileg útivistarsvæði fyr- ir börn og eiga að geta verið áfram í fullri nýtingu. Eldri börn heimsækja gömlu leikskólalóðina sína sem líka er vel nýtt af foreldrum ungra barna í næsta nágrenni. Á kvöldin er spark- að í bolta fram á kvöld á sparkvöllum sem nú er að finna á 75% skólalóða í borginni. Skólalóð er kennslustofa Skólalóð er ekki lengur bara hugs- uð sem staður til leikja í frímínút- um. Útinám er til staðar í öllum leik- og grunnskólum í einhverjum mæli, bæði inni á skólalóðinni sjálfri sem og í næsta nágrenni við skólana. Úti- eldun, ræktun matjurta, trjálund- ir og margt, margt fleira er að finna bæði á grónum lóðum gamalla hverfa, sem og nýjum lóðum í hverf- um sem liggja í útjaðri borgarinnar í nálægð við náttúru og græn svæði. Skólalóðir eru útivistarsvæði Þarfir skólanna varðandi nám og kennslu hafa verið hafðar í huga við útfærslu lóðanna, ýmsar nýjungar í hönnun og leiktækjum einkenna margar lóðirnar, hreystibrautir, að- staða til leiksýninga og margt, margt fleira er að finna á mörgum lóðanna í dag. Ástæða er til að hvetja borg- arbúa til að heimsækja nýju skóla- lóðirnar og njóta þeirra. Af mörgum góðum leik- og grunnskólalóðum er vert að minnast sérstaklega á Fella- skóla, Hólabrekkuskóla, Hamra- skóla, Árborg, Langholtsskóla, Norð- lingaskóla, Seljaskóla, Laugasól og Réttarholtsskóla. Í ár er svo ráðgert að hefja framkvæmdir við Stakka- borg, Árbæjarskóla, Breiðholtsskóla, Fossvogsskóla og Ölduselsskóla. Endurgerð fyrir 1,5 milljarða króna Á síðustu árum hefur myndarlega verið staðið að endurgerð þessara vinsælu og fjölsóttu almennings- svæða sem skólalóðir leik- og grunnskóla eru. Á 5 ára tímabili (2010–2014) nemur upphæðin 1,5 milljörðum króna. Við endurgerðina er haft samráð við skólana og for- eldrafélögin og íbúar hafa einnig lagt hugmyndir í púkkið í gegnum samráðs- og hugmyndavefinn Betri Reykjavík. Stefnt er að því að hina sí- vinsælu sparkvellir verði alls staðar að finna við grunnskóla borgarinnar. Góð fjárfesting Fjárfesting borgarinnar í skólalóðum er bæði fjárfesting í lýðheilsu og lífs- gæðum enda gegna þær mikilvægu og margþættu hlutverki. Börnin okkar þurfa að hreyfa sig meira og spennandi skólalóð er sannkallað hreyfiafl. Þær eru aðstaða barna og ungmenna til leikja og útivistar yfir daginn á starfstíma skóla, þær eru kennslustofa og uppspretta marg- víslegs náms, þær iða af lífi í frí- stundastarfinu að skóla loknum, þær eru fjölsóttar til frjálsra leikja fram á kvöld og á sumrin nýtast þær í sumarstarfi frístundamiðstöðva sem og fyrir alla íbúa hverfisins, unga sem gamla. Skólalóðir eru hjartað í hverju hverfi og vert að hvetja börn á öllum aldri til að nýta þær sem allra best. n Höfundar eru formenn borgar­ ráðs og skóla­ og frístundaráðs Kjallari Dagur B. Eggertsson og Oddný Sturludóttir „Á kvöldin er spark- að í bolta fram á kvöld á sparkvöllum sem nú er að finna á 75% skólalóða í borginni. Mest lesið á DV.is 1 Þau eru í haldi vegna dauða Hoffmans Tveir karlar og ein kona hafa verið úrskurðuð í gæslu- varðhald vegna rannsóknar á dauða leikarans Philips Seymor Hoffman. Talið er að Hoffman hafi látist af of stórum skammti af heróíni og þremenningarnir taldir hafa útvegað honum efnin. 21.345 hafa lesið 2 Skrópað í nefndum Íslands yngsti þingmaður, Jóhanna María Sigmundsdóttir, er með flestar fjarvistir þeirra þingmanna sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd, eins og fram kom í DV. Hún hefur ekki mætt á 12 fundi og ekki kallað inn varamann. Unnur Brá Konráðsdóttir er með næstslökustu mætinguna en hún mætti ekki á níu fundi nefndarinnar í haust. 5.845 hafa lesið 3 Máli skólastjórans sem lagði kennara í einelti ekki lokið Hæstiréttur Íslands hefur sent Grindavíkurbæ bréf þar sem samþykkt er leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í eineltismáli sem átti sér stað innan veggja Grunn- skóla Grindavíkur. Grindavíkurbær var á síðasta ári dæmdur til að greiða kennara við Grunnskóla Grindavíkur miskabætur fyrir einelti sem hann varð fyrir af hendi Páls Leós Jónssonar, sem þá var starf- andi skólastjóri grunnskólans. 5.234 hafa lesið 4 Þessir kunna að klæða sig Flestir eiga sér einhverjar tískufyrirmyndir til að líta upp til þegar kemur að fatavali, hárgreiðslu og öðru. Fræga fólkið er vissulega allt með stílista á sínum snærum en sumir eru þó alltaf betur klæddir en aðrir. DV birti nöfn þekktra stjarna sem kunna að klæða sig betur en aðrir, meðal þeirra má nefna Bradley Cooper, Kanye West og David Beckham. 4.794 hafa lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.