Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 31
Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Vetrarsport 3
„Sport fyrir fjölskylduna“
Þ
etta er eitthvað sem er búið
að aukast mikið síðustu ár.
Þetta er skemmtilegt sport
fyrir alla fjölskylduna,“ seg-
ir Jónas Halldór Jónasson hjá versl-
uninni Veiðivörum. Jónas er einn
þeirra Íslendinga sem stunda ís-
dorg en vinsældir þess konar veiði
hafa aukist undanfarin ár. „Við erum
búin að vera að þessu í nokkur ár,
höfum verið að skjótast eina og eina
ferð,“ segir Jónas. Hann segir þau
helst hafa farið upp á Langavatn og
Kringluvatn en hann er búsettur á
Akureyri og því stutt að fara.
Aðstæður þurfa að vera góð-
ar þegar fólk vill dorga í gegnum ís.
Passa þarf að ísinn sé vel frosinn í
gegn, svo ekki skapist hætta. „Við
erum að bora í gegnum 20–30 senti-
metra ís og stundum alveg upp í
hálfan metra,“ segir hann. Til þess er
notaður ísbor. „Við erum með stór-
an handbor, það er gott að eiga hann
en sumir pjakka sig í gegn með öðru,
svo þarf að eiga dorgveiðistöng,
ausu til að ausa krapi sem myndast
stundum í holunni, síðan þarf að
eiga sérútbúna króka sem eru mikið
notaðir erlendis og svo auðvitað hlý
föt,“ segir hann. Það getur orðið tölu-
vert kalt að bíða eftir að fiskurinn bíti
á og segir Jónas mikilvægt að vera
vel klæddur. „Búningarnir sem við
erum í þola allt að 30 gráðu frosti og
stígvélin eru líka sérútbúin.“
Jónas tekur fram að ísdorg sé fjöl-
skyldusport. „Þetta er ekki eins og
með til dæmis stangaveiði, sem get-
ur verið krefjandi og maður þarf að
kunna mikið á græjurnar. Þegar fer
að vora þá tökum við með okkur
grill og gerum góðan skemmtidag úr
þessu.“
Jónas segir hægt að stunda ísdorg
frá um miðjum desember og fram í
apríl. „En það fer auðvitað allt eftir
veðri, það getur verið hægt að byrja
fyrr og stunda ísdorg lengur.“ Hann
segir sportið ekki hættulegt. „Þetta
er bara eins og í öllu, menn þurfa
alltaf að fara varlega en þetta er
alls ekki hættulegt enda fer maður
aldrei nema ísinn sé mjög þykkur og
þéttur.“ n viktoria@dv.is
Fjölskyldusport Jónas segir ísdorg
vera kjörið fyrir alla fjölskylduna.
Jónas Halldór Jónasson dorgar í gegn um ís og veiðir í soðið
Mikill uppgangur á milli ára hjá Skíðagöngufélaginu Ulli
Með fjöl-
skyldunni
Halldór
með
fallegan
urriða.
Hundasleðar
Það er ekki einungis á Grænlandi
sem að feikiöflugir hundar draga
eigendur sína á eftir sér á snjó-
sleðum. Í Alaska-fylki
Bandaríkjanna er
íþróttin stunduð af
kappi og árlega er
haldið sleðakapp-
hlaupið Iditarod,
sem tekur tíu til ell-
efu daga og spannar
átján hundruð kílómetra. Keppn-
in hefst í Anchorage í Alaska-fylki
og endar í Nome. Þá er íþróttin
stunduð víðs vegar um heim og
meðal annars á Íslandi. Eigendur
öflugra sleðahunda, til dæmis af
husky-tegundinni, þurfa einung-
is að fjárfesta í sleða og tygjum og
þá er hægt að halda í leiðangur
hvert sem færðin leyfir.
Skíðahjól
Skíðahjólið (e. skibob) hefur lengi
verið til og á rætur sínar að rekja
aftur til nítjándu aldar. Það var
hins vegar ekki fyrr en
árið 1954 sem fyrsta
alþjóðlega skíða-
hjólreiðakeppn-
in var haldin. Frá
árinu 1967 hefur
Alþjóða skíðahjóla-
sambandið FISB (fr. Fé-
dération Internationale de Skibob)
staðið fyrir heimsmeistarakeppni
í íþróttinni. Þeir allra færustu – og
huguðustu – geta náð rúmlega 190
kílómetra hraða á skíðahjólum, en
þá einungis í þeim brekkum sem
aðstæður eru mjög góðar.
Ís-kart
Þeir stunda ís-kart í Finnlandi, að
minnsta kosti í bænum Kuusamo.
Fyrirtækið Ruka Adventures hefur
sett upp braut á frosnu
vatni nærri bænum
þar sem fólki gefst
kostur á að aka og
jafnvel vinna til
verðlauna, standi
það sig vel. Notast
er við go-kart bíla en á
hálum ísnum er aksturstilfinn-
ing allt önnur en á sérhönnuðum
brautum sem oftast eru innan-
dyra þegar skilyrðin eru erfið úti
fyrir.
Skijoring
Hver segir að þú þurfir sleða til
að láta hundinn draga þig? Ski-
joring er íþrótt sem stunduð er
víðs vegar um heim-
inn og sérstaklega í
Norður-Ameríku.
Í henni felst að
skíðakappi er dreg-
inn áfram af hund-
um, hesti eða jafnvel
vélknúnu ökutæki. Skíðin eru
iðulega kyrfilega vaxborin til að
tryggja að ekkert hefti förina.
Fyrsta keppnin í skijoring er þó
talin hafa verið haldin á Norður-
löndum en uppruni nafnsins er
úr norska orðinu skikjøring, sem
þýðir „skíðaakstur.“
Óvenjulegar
vetraríþróttir
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
ct
av
is
3
1
1
1
2
0
Göngum frá
verknum
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir okki lya sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við
vægum til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem
fengið hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða blæðingum
í maga eða smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalya, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar eða oftar, með
alvarleg lifrar-, nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar blæðingar
(blæðingar í heila meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdóma,
arfgengan sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra maga-
eða þarmasjúkdóma, truanir á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdóma í
öndunarvegi, blóðrásarkvilla í slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyð. Meðganga/brjóstagjöf: Íbúprófen
má ekki taka á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erðara með að verða
þungaðar. Þessi áhrif ganga til baka þegar hætt er að taka lyð. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yrleitt ekki að hætta meðan á
skammtíma meðferð stendur. Ef lengri tíma meðferð er áætluð, ætti að meta hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð
uppköst (sár í meltingarvegi með blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir, meltingartruanir, truanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og
harðlí, sáramyndun í meltingarvegi með eða án rofs, þarmabólga og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða stlar),
smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta leitt til blóðleysis, sára og bólgu í munni, höfuðverkur, sya, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni.
Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára (≥ 40 kg): 200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dagsskamm-
tur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg,
1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 800 mg á dag. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í
samráði við lækni. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lynu. Október 2013.