Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 40
Helgarblað 7.–10. febrúar 201432 Fólk Viðtal
„Ég brosti
ekki í mánuð“
Þ
að verður enginn ríkur sem
töframaður á Íslandi,“ seg-
ir Einar Mikael Sverrisson,
betur þekktur sem töframað-
urinn Einar Mikael sem, þrátt
fyrir ungan aldur, hefur átt mikilli vel-
gengni að fagna. „Mér finnst gaman
að gleðja fólk og koma því á óvart og
er ótrúlega þakklátur fyrir viðtökurnar
sem ég hef fengið. Ég vissi í rauninni
ekkert hvernig fólk myndi taka mér.
Það getur samt enginn orðið atvinnu-
töframaður hér á landi og ég vinn
við þetta samhliða öðrum verkefn-
um,“ segir Einar Mikael sem er með
sveinspróf í húsasmíði og hefur unnið
sem smiður síðustu átta, níu árin.
Gleðigjafi með athyglisþörf
Einar Mikael fæddist í Keflavík árið
1986 en leiðir foreldrar hans skildi
þegar hann var fimm ára. „Pabbi
er frá Keflavík en mamma frá Vest-
mannaeyjum. Við mamma höfum
víða búið en ég hef búið í fjórum
löndum utan Íslands. Lengst af hef ég
búið í Reykjavík svo ég myndi segja
að ég væri borgarbarn,“ segir Ein-
ar sem á eina hálfsystur sem er 15
árum eldri en hann. „Ætli ég sé samt
ekki nokkurs konar einbirni. Alla-
vega fékk ég mikla athygli frá báðum
foreldrum. Mamma segir að ég hafi
fæðst glaður og brosandi; gleðigjafi
með mikla athyglisþörf,“ segir hann
brosandi en þegar Einar var 13 ára og
bjó úti á Flórída kynntist hann töfra-
manni. „Eftir það hef ég haft nánast
stjórnlausan áhuga á töfrabrögðum.“
Smíðar og box
Einar bjó hjá móður sinni til 15 ára
aldurs en var einnig í sambandi við
föður sinn. „Hver og einn á sína
hetju þegar hann er ungur og pabbi
var hetjan mín. Hann var bæði stór
og sterkur og ég ætlaði að verða ná-
kvæmlega eins og hann þegar ég
yrði stærri, bara uppfærð útgáfa af
honum. Ég vildi líkjast honum sem
allra mest enda góður maður sem
hefur kennt mér mikið. Þrettán ára
fór ég að vinna með honum í öll-
um mínum frítíma. Pabbi var svona
týpískur íslenskur iðnaðarmaður og
ég kynntist honum best eftir að ég fór
að vinna með honum. Síðan hef ég
unnið myrkranna á milli. Ég var bara
alltaf að vinna. Í framhaldsskóla vann
ég með skólanum sem boxþjálfari og
hef örugglega þjálfað 300–400 manns
í boxi. Nú er ég hættur að boxa enda
er ég þannig maður að ég er „all in“ í
öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ef ég
get ekki gert hlutina vel bíð ég frekar
með þá.“
Drukkið fólk man ekkert
Einar Mikael er ókvæntur og barnlaus
en segist stefna á að eignast fjölskyldu
þegar tími gefst. „Það er svo mikið að
gera hjá mér og þetta er það sem ég
vil gera núna. En svo mun ég draga
mig í hlé og vonandi stofna fjölskyldu.
Þessi bransi, skemmtanabransinn, er
ekki beint fjölskylduvænn. Ég þarf að
eiga tíma fyrir mig til að gíra mig upp
fyrir sýningar og svo er maður and-
lega þreyttur á eftir. Ein sýning get-
ur verið eins og tíu tíma vinnudag-
ur. Þegar ég var að byrja stóð ég varla
í fæturna á eftir, titraði allur, en í dag
gæti ég tekið margar sýningar í röð.
Nú hef reynsluna og veit hvernig ég
næ mér niður og díla við þetta.
Mig langar að eignast tvö börn,
stelpu og strák, enda hef ég gaman
af börnum og veit ekkert meira gef-
andi en að skemmta krökkum,“ segir
Einar Mikael og bætir við að hann
hafi skemmt á mörgum stærstu árs-
hátíðum landsins. „Það finnst mér
bara ekki nógu gefandi. Drukkið fólk
man ekkert eftir þér daginn eftir svo
þú getur sýnt sömu brögðin aftur og
aftur og það verður alltaf jafn hissa.
Töfrabrögð gefa börnum hins vegar
svo mikið, þau kenna þeim mannleg
samskipti og auka sjálfstraust. Það
vilja allir geta gert ótrúlega hluti.“
Missti allt í hruninu
Einar Mikael segir að þótt foreldrar
hans séu hans mestu stuðningsmenn
í dag hafi það ekki alltaf verið svoleið-
is. „Pabbi spurði mig lengi vel hvort ég
ætlaði ekki að fá mér alvöru vinnu og
stríðir mér stundum á því ennþá. Þau
voru skeptísk í byrjun enda var þetta
erfitt í upphafi,“ segir Einar Mikael
sem ákvað, eftir að hafa lent illa fjár-
hagslega í hruninu, að taka u-beygju í
lífinu. „Mér finnst alltaf jafn leiðinlegt
þegar fólk talar um „hrunið“ því að
mínu mati var þetta stærsta og besta
tækifæri sem við höfum fengið. Ég
hafði alltaf haldið rétt á spöðunum,
aldrei skuldað neitt og hafði unnið
mig næstum til dauða í tvö ár áður en
ég fjárfesti í íbúð árið 2007. Að vera
23 ára og missa allt sem þú ert búinn
að vinna markvisst að í sex, sjö ár var
mjög erfitt. Í marga mánuði hafði ég
unnið í 300 klukkustundir og þegar
allt hrundi átti ég erfitt. Ég hef aldrei
verið þunglyndur en þarna held ég að
ég hafi farið mjög nálægt því. Ég brosti
ekki í mánuð, sat bara í sófanum og
horfði á Youtube-myndbönd. Þegar
ég sá myndband með Lance Burton,
sem er að mínu mati einn besti töfra-
maður mannkynssögunnar, ákvað
ég að fara á fullt í þetta. Ég vil meina
að það ráði ein tilfinning í hjartanu,
hvort sem það er hamingja, gleði eða
hatur, og þarna ákvað ég að setja fulla
gleði í hjartað á mér.“
Reiður út í allt og alla
Einar Mikael stóð upp úr sófanum
og gekk niður í miðbæ þar sem hann
þræddi skemmtistaðina og sýndi fólki
töfrabrögð. „Ég labbaði bara um og
kom fólki á óvart. Fyrst og fremst til að
gleðja sjálfan mig og lyfta mér og öðr-
um upp enda held ég að öllum hafi
liðið hálf illa á þessum tíma.
Ég var svakalega reiður eftir
hrunið, reiður út í allt og alla. Eftir
þrjá slæma mánuði ákvað ég að ég
ætlaði ekki að standa í þessu lengur
heldur byrja upp á nýtt og gera eitt-
hvað spennandi. Þess vegna vil ég
ekki kalla þetta „hrunið“. Þetta var
besta tækifæri lífs míns. Síðan hefur
ekkert haldið aftur að mér.
Ég held að það sé tvennt sem við
eigum öll sameiginlegt; að vilja láta
okkur líða vel og vera frjáls. Það er
ekki hægt að ná þessum atriðum
nema geta haft stjórn á tilfinningum
sínum. Ég byrjaði því alla morgna á
að lesa kafla úr sjálfshjálparbók. Ég
breytti umhverfi mínu og hætti að
umgangast fólk sem mér fannst halda
aftur af mér. Mér finnst oft vanta að
fólk samgleðjist öðrum. Ef þú ferð á
hausinn ertu bara auli. Málið er hins
vegar að því fleiri mistök þú gerir og
lærir af þeim því lengra kemstu. Það
nær þessu enginn rétt í fyrsta skiptið.“
Ótti heldur aftur af fólki
Aðspurður bendir hann fólki á að
skrifa niður markmið sín vilji það
láta drauma sína rætast. „Fyrstu þrjú
markmiðin mín, árið 2009, voru þau
að láta mér líða betur, verða betri
töframaður og sinna fjölskyldunni
betur. Í fyrra setti ég mér 22 háleit
markmið og ég náði þeim öllum. Og
í ár eru þau enn stærri. Markmið er
bara hugmynd í hausnum á manni
þar til það er komið niður á blað.
Svo er ég með 20 blaðsíðna bók sem
ég hef klippt og límt inn í myndir og
setningar. Í hverst skipti sem ég fletti
henni loka ég augunum og sé fram-
tíðina fyrir mér. Sumir hafa enga trú
á þessu en þetta virkar. En fyrst og
fremst verður maður að hafa trú á
sjálfum sér og þora. Ótti heldur aft-
ur af svo mörgum. Bara gera þetta;
hoppa í djúpu laugina.“
Talar fólk í kaf
Það hefur líklega ekki farið fram hjá
neinum sem hitt hefur Einar Mikael
að þar fer mikill karakter. „Galli minn
er sá að þegar ég stefni að einhverju
set ég alla mína orku í það atriði en
fórna öðru. Mér er alveg sama um allt
annað á meðan ég er að einbeita mér.
Ég get líka verið mjög ákveðinn, svo
ákveðinn að sumir verða hreinlega
hræddir við mig. Líklega geta ekki all-
ir höndlað mig of lengi; ég sprengi af
mér jákvæðni og gleði. Ég er bara svo
mikill orkugjafi.
Ég er vanur að standa á sviði með
alla athygli á mér og hef lent í því að
tala fólk í kaf þegar ég kem niður. Þá
er ég bara að skemmta mér, sprella
og gantast og fatta ekki að bremsa
mig af. Þetta gerist alveg óvart. Ég
er að vinna í þessu. Þetta er eitt af
markmiðum mínum, að geta brems-
að mig af svo fólk fái ekki nóg af
mér. Maður getur ekki verið góður
í öllu,“ segir hann brosandi og bæt-
ir við að hann hafi oft verið spurður
hvort hann hafi ekki áhuga á leiklist.
„Töfrabrögð og leiklist eiga lítið sam-
eiginlegt. Sem töframaður þarftu að
hafa meiri trú en allir aðrir á það sem
þú ert að gera. Þú verður eiginlega að
trúa þessu sjálfur svo bragðið líti út
fyrir að vera kraftaverk. Þótt svo það
hafi afar einfalda skýringu.“
Elskar dúfurnar sínar
Einar Mikael segist ekki hafa verið
nörd í æsku. „Ég held ég hafi bara ver-
ið þægilegur og skemmtilegur á milli
þess sem ég var að sprella með fé-
lögunum. Ég held líka að orðið nörd
sé misskilið. Hver og einn er nörd í
sínu fagi. Það hafa allir sín áhuga-
svið. Mér finnst hlutir skemmtileg-
ir sem öðrum finnst ekki. Ég er bara
stoltur af því að hafa svona mikinn
áhuga á því sem ég er að gera,“ segir
hann og bætir við að félagarnir sýni
honum skilning. „Ég gef þeim ekki
mikinn séns á öðru. Minn áhugi er
svo brjálæðislegur og það smitar út
frá sér,“ segir Einar Mikael sem hefur
tileinkað líf sitt faginu. „Ég drekk ekki
né reyki heldur lifi fyrir töfrabrögð og
sjónhverfingar. Það er það eina sem
kemst að í mínu lífi. Þetta er ofboðs-
lega gaman og ég held að það séu
fáir sem fá að sinna áhugamáli sínu
svona mikið. Ég vakna snemma en
morgnarnir eru heilög stund hjá mér.
Þá fer ég út og gef dúfunum. Þann
hálftímann er ég ekki með símann
á mér heldur einbeiti mér að þeim,
spjalla við þær, gef þeim að borða og
baða þær. Þær eru alltaf í góðum gír
og í miklu stuði snemma á morgn-
ana. Ég elska dúfurnar mínar meira
Einar Mikael Sverrisson segist hafa verið
fæddur til að skemmta fólki og gleðja. Indíana
Ása Hreinsdóttir ræddi við Einar Mikael um erfiða
æsku, athyglisþörfina, hrunið sem breytti öllu og
dúfurnar sem hann elskar meira en allt annað í lífinu.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Gömul sál Einar Mikael segist gömul sál en hann hefur upplifað ýmislegt þrátt fyrir
ungan aldur. MynDIR SIGTRyGGuR ARI
„Ég get
líka verið
mjög ákveðinn,
svo ákveðinn
að sumir verða
hreinlega
hræddir við mig.