Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Side 44
Helgarblað 7.–10. febrúar 201436 Lífsstíll
Katrínaræði
í Bretlandi
Snjallsímaforrit og vefsíður tileinkaðar henni
K
atrín Middleton, hertoga-
ynja af Cambridge, er gríðar-
leg tískufyrirmynd í Bret-
landi. Fylgst er með hverju
fótmáli hennar og eru fjöl-
margir sem reyna að líkja eftir útliti
hennar og fatastíl en áhrif Katrínar
eru í raun svo mikil að tískubylgj-
an hefur hlotið heitið „The Kate
Middle ton effect“.
Kórallitaðar gallabuxur
„The Kate Middleton effect“ er
heiti yfir þau gríðarmiklu áhrif sem
Katrín hefur á aðra þegar kemur að
tísku, útliti og lífsstíl. Allt frá náttúru-
legum fæðingum yfir í kóral litaðar
gallabuxur tilheyra tískubylgjunni,
en eftir að Katrín var mynduð þar
sem hún lék hokkí íklædd kórall-
ituðum gallabuxum í mars 2012
urðu slíkar buxur að algjöru tísku-
æði í Bretlandi og seldust upp á
aðeins nokkrum vikum. Hárgreiðsla
Katrínar hefur auk þess vakið mikla
athygli og hefur ófá konan reynt að
líkja eftir hennar fallegu, fáguðu lið-
um. Þá hefur augnmálningin sem
gjarnan einkennir útlit hertogaynj-
unnar einnig vakið athygli, en Katrín
skartar yfirleitt dökkum augnblýanti
meðfram neðri augnhárunum.
Möguleg lýtaaðgerð
Katrínaræðið einskorðast þó ekki
við fatnað og hárgreiðslu því eftir
brúðkaup hennar og Vilhjálms
Breta prins spruttu upp miklar
vangaveltur um hvort Katrín hefði
farið í lýtaaðgerð fyrir stóra daginn,
en sumir þóttust sjá mun á nefi og
barmi hertogaynjunnar. Þetta hef-
ur aldrei fengist staðfest en bresk-
ir miðlar fluttu þó fljótt fréttir af því
að nýjustu rannsóknir sýndu fram
á að gríðarleg aukning hefði orðið
á því að væntanlegar brúðir legð-
ust undir hnífinn fyrir brúðkaups-
daginn í kjölfar frétta af mögulegum
aðgerðum Katrínar.
Vefsíður og snjallsímaforrit
Þrátt fyrir að Katrín hefði verið undir
smásjá breskra fjölmiðla í nokkur ár
sem kærasta Vilhjálms var það ekki
fyrr en eftir að tilkynnt var um trúlof-
un parsins sem Katrínaræðið hófst
fyrir alvöru. Fjölmiðlar hófu að elta
hana á röndum og skrifa um allt sem
hún gerði og fataframleiðendur létu
framleiða föt sem líktust þeim sem
hún klæddist. Æðið fyrir hertogaynj-
unni teygði anga sína fljótt út fyrir
Bretlandseyjar og samkvæmt banda-
ríska tímaritinu Newsweek gæti „The
Kate Middleton effect“ verið virði allt
að einum milljarði punda, eða um
189 milljóna króna, fyrir breska tísku-
iðnaðinn.
Í mars 2011 fór vefsíðan What Kate
Wore í loftið, en þar birtast myndir
af öllu því sem Katrín klæðist ásamt
umfjöllun um fatnaðinn og hönnuði
flíkanna. Í ágúst 2012 var svo snjall-
símaforritinu Kate‘s Style List kom-
ið á fót en þar geta aðdáendur nálg-
ast yfirgripsmikinn lista yfir allar þær
flíkur sem hertogaynjan hefur klæð-
st ásamt upplýsingum um hvar má
kaupa þær til að gera almenningi
kleift að líkja eftir stíl Katrínar. n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Kórallitaðar buxur Katrín var mynduð
við spila hokkí íklædd kórallituðum buxum
og vakti það mikla athygli.
Doppótti kjóllinn
Katrín þótti afar falleg í
ljósbláum, doppóttum kjól
þegar hún og Vilhjálmur
frumsýndu frumburðinn.
Ólétt og glæsileg Ýmsir
framleiðendur meðgöngufatnaðar
kepptust við að senda Katrínu föt
þegar hún var ólétt að Georgi prins.
Með hatt Katrín
kann að líta vel út með
stóran hatt á höfði.
Glæsileg
Þessum kjól
klæddist
Katrín á
BAFTA-
verðlaun-
unum árið
2011.
Transfólk í auglýsingum Barneys
B
andaríski tískufataframleið-
andinn Barneys ákvað að fara
nýjar leiðir í auglýsingum
sínum fyrir vor- og sumar-
línuna 2014 en auglýsingarnar
prýða eingöngu transfólk. Auglýs-
ingaherferðin var mynduð af Bruce
Weber og ber heitið „Brothers,
Sisters, Sons & Daughters“. Hún á
að sýna fram á fjölbreytileika samfé-
lagsins þegar kemur að kyni og voru
því fengnir 17 einstaklingar, sem
allir eru trans, til að sitja fyrir. Auk
þess að sitja fyrir á myndunum segja
fyrirsæturnar einnig sögu sína sem
transfólk og fylgja þær með mynd
hvers og eins.
Líkt og flestum er kunnugt er afar
sjaldgæft að transfólk sé fengið í
auglýsingar eða tískuþætti hjá stór-
um merkjum í tískuiðnaðinum og
höfðu sumar fyrirsætanna í auglýs-
ingu Barneys aldrei setið fyrir áður.
Dennis Freedman, yfirhönnuður
hjá Barneys, sagði í viðtali við New
York Times að hugmyndin með
auglýsingaherferðinni sé að vekja
fólk til umhugsunar um réttindi
transfólks sem, að hans mati, hefur
orðið út undan í jafnréttisbaráttu
hinsegin fólks. Auk auglýsinga-
herferðarinnar mun Barneys svo
gefa tíu prósent af allri sölu í stærstu
búðum sínum þann 11. febrúar
næstkomandi til National Center
for Transgender Equality og LGBT
Community Center.“ n
horn@dv.is
Vilja vekja fólk til umhugsunar
Öðruvísi auglýsingar
Edie Charles var ein þeirra sem
sat fyrir í auglýsingu Barneys.
Heimur
Hendrikku
„Gerðu það sem þú vilt við líkama
minn en ekki snerta við sál minni.
Ó, je þú kynþokkafulla dræsa,
komdu til pabba og leyfðu mér að
snerta þig.“
Þetta hljómar kannski
sakleysis legra á enskri tungu.
Þetta er dæmi um týpískan texta
við erlend dægurlög sem börn og
unglingar hlusta á.
Hvað í helvítinu er verið að
spila daginn út og inn fyrir eyrum
barna okkar? Síðan byrja þessi
litlu saklausu grey að raula á leið
í skólann á morgnana: „Oh yeah
yeah you sexy thing, I wanna suck
you and touch you all day long.“
Prófið að færa þetta yfir á íslensku!
Þetta er ekkert nema við-
bjóðslegt KLÁM!
Klám er bannað innan
ákveðins aldurs og ofbeldiskvik-
myndir eru líka bannaðar börn-
um. Af hverju eru ekki textar og
tónlistarmyndbönd ritskoðuð?
Tónlistarmyndbönd eru ekki við
hæfi neins sem hefur
snert af siðgæði!
Já, þessi ógeðs-
legu skilaboð sem
eru rekin í andlit
og eyru okkar dags
daglega, hafa áhrif
á hvað við teljum vera
normið. Hvar eru mörkin spyr ég
sjálfa mig? Hvenær er ég tepra og
hvenær er ég með eðlileg mörk?
Ekki halda í eina sekúndu að
ég sé klædd í mussur og síð pils
dagsdaglega. Né geng ég í líf-
rænt ræktuðum bambusbrjósta-
haldara. Sumir virðast halda að
klæðnaður viðkomandi segi til um
hversu villtur hann er í kynlífinu.
Ég er kona sem klæðist oftast í
þrönga kjóla og stundum sýni ég
skoru. Það þýðir ekki að ég vilji
vera ríðandi, sjúgandi og sleikj-
andi allan liðlangan daginn.
Gullna sturtan, eða að láta
pissa á sig eins og það þýðir, er
alveg að gerast hjá „venjulegu“
fólki. Maður hefur nú lent í einu
og öðru en mörkin dreg ég við
allt sem heitir að létta á sér á við-
komandi bólfélaga. Já, það er ansi
margt sem fólk virðist leggja á sig
til að örva kynhvöt annarra.
Ég er ekki yfirlýstur femínisti
og finnst ekkert að því að konur
klæði sig á ögrandi hátt ef þeim
líður vel þannig. En aldrei sér
maður karlmann í g-streng að
jugga sér utan í konu sem er full-
klædd og slefandi yfir kynþokka
hans!
Finnst ykkur skrítið að raun-
veruleikinn sé þannig að stelp-
um er byrlað nauðgunarlyf í
miklu meiri mæli en áður. Getur
verið að fjölmiðlar beri einhverja
ábyrgð? Brjóst, rassar, tungur og
klof er eðlilegur hlutur … en það
er EKKERT eðlilegt að troða þeim
framan í litla saklausa drengi
sem verða síðan ungir menn með
brenglaða sýn eftir þennan sora
sem þeir hafa alist upp við.
Hvernig væri að kíkja reglulega
og þá helst á hverjum degi á það
sem barn þitt er að horfa og hlusta
á í símanum eða tölvunni. Vertu
óþolandi foreldri og fylgstu vel
með öllu sem barn þitt gerir. Það
mun skila sér á góðan hátt þegar
fram í sækir.
Gerðu það
sem þú vilt við
líkama minn
Nema kannski pissa á hann