Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 45
Lífsstíll 37Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
Fann frelsi
í sjósundi
Heimir Örn á metið í Vestmannaeyjasundi
É
g var keppnismaður í sundi um
árabil, en hætti og byrjaði svo
síðar í sjósundinu. Í sjósund-
inu fann ég gríðarlegt frelsi. Að
vera ekki lengur að synda bara á
milli bakka,“ segir Heimir Örn Sveins-
son sjósundskappi. Hann er í hópi
þeirra sem stunda sjósund hér á landi
af miklu kappi. Sjósund er flokkað
sem jaðarsport og nýtur ár frá ári vax-
andi vinsælda.
Byggir upp kuldaþol
Í árferðinu sem er núna er sjórinn oft
í kringum eina til tvær gráður og jafn-
vel kaldari og því færri sem hætta sér
til sunds, fara styttri ferðir og þurfa
að vera betur búnir til sundsins en
annars. Frá vori og fram á haust er þó
mikill fjöldi sem mætir í sjósund enda
aðstæður betri og boðlegri.
„Ég er ekki með neitt alltof mikla
fóðrun á mér, ég er bæði hár og grann-
ur svo það er kannski ekki hagstætt,“
segir Heimir aðspurður hvort hann sé
virkur í sundinu á vetrarmánuðum.
„En það er hægt að byggja upp kulda-
þol þrátt fyrir það. Ég syndi á háu
tempói til að vega á móti hitatapinu,“
segir Heimir. „Það segir mér að það
geti hver sem er stundað þetta.“
Á metið
Heimir hefur bæði tekið þátt í ýmsum
sjósundsverkefnum, en einnig komið
að skipulagningu þeirra. Þá lagði
hann til dæmis Benedikt Hjartarsyni
lið þegar hann synti yfir Ermarsund-
ið árið 2008 og árið 2012 var hann
fararstjóri boðsundshóps sem synti
sömu leið. „Við höfum verið nokkrir
saman sem höfum brallað ýmislegt í
þessum efnum,“ segir Heimir. Síðasta
verkefnið sem þeir fóru í var Loch
Ness-sundið síðastliðið haust sem var
mjög skemmtilegt að sögn Heimis, en
það hefur verið kallað skrímslasund í
skírskotun til þeirrar veru sem talin er
búa í Loch Ness.
Sjálfur á Heimir svo metið í Viðeyj-
arsundi. Sú leið er 4,3 kílómetrar og er
sundleiðin frá Viðey, oftast frá Viðeyj-
arbryggju og inn í Reykjavíkurhöfn, yf-
irleitt flotbryggjuna við gamla slipp-
inn. Metið setti Heimir í júní árið 2009
og synti á milli á einni klukkustund og
einni mínútu. Sjálfur segist lengst hafa
synt, hér á landi, í Nauthólsvík í rúma
tvo klukkutíma. „Það var í svona fjórt-
án gráðu heitum sjó,“ segir hann en til
viðmiðunar má hafa í huga að keppn-
islaugar í sundi eru um 26 gráðu heitar
sem þykir með kaldara móti til sunds.
Ögrandi
Sjósund er skemmtileg og ögrandi
skemmtun að sögn þeirra sem það
stunda. Sjósunds- og sjóðbaðs-
félag Reykjavíkur stendur fyrir Ís-
landsmeistaramóti og hefur gert
undanfarin fjögur ár. Á heimasíðu
félagsins, sjosund.is, má finna leið-
beiningar fyrir byrjendur, sem og
lengra komna. Þar er að auki bent
á mikilvægi þess að hafa stöðugt
í huga öryggi iðkenda í sjósundi.
„Þeir sem þetta sport stunda þurfa
þó á stöðugri áminningu um ör-
yggi að halda og það er auðvelt að
gleyma sér í „hita“ leiksins og synda
of langt út og hyggja ekki að öryggi
sínu. Sjósund er frábær skemmtun
og ögrandi áhugamál, en sé óvar-
lega farið, getur þessi skemmtun
breyst í sára reynslu okkar allra, ef
alvarlegt slys myndi eiga sér stað
eða hreinlega drukknun,“ segir á
vef félagsins þar sem brýnt er fyr-
ir áhugasömum að huga að öryggi
sínu og annarra. Fólk ætti ekki að
vera eitt á sundi í sjónum og vera
vel búið.
Markmiðin leyndarmál
Aðspurður um næsta verkefni hans
segist Heimir ekkert gefa upp um
það. „Ég segi það ekki, það verð-
ur bara að koma í ljós,“ segir hann
og hlær. „Sjósund er þannig sport
að það er svo margt sem maður
ræður ekki við. Það er bæði við að
berjast veður og sjávarfar. Aðstæð-
ur þurfa að vera mjög góðar, en eru
það yfir leitt ekki. Þetta getur verið
óútreiknan legt og það er svo margt
sem spilar inn í. Ef maður er að setja
sér markmið að synda ákveðin sjó-
sund þarf að gera ráð fyrir því að
það geti misheppnast, ekki vegna
þess að maður klikki sjálfur heldur
vegna þess að utanaðkomandi að-
stæður spila inn í,“ segir Heimir og
heldur því næstu markmiðum bara
fyrir sjálfan sig. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Á sundi Heimir hefur stundað
sjósund um árabil og tekið þátt í
mörgum verkefnum. Hann gefur
þó ekkert upp um hvað næsta
áskorun felur í sér. Mynd HeiMir Örn
SveinSSon
viðeyjarsund Heimir á metið í Viðeyjarsundi. Hann hefur raunar sett tvisvar sinnum met, árið 2008 og 2009. Mynd HeiMir Örn SveinSSon
Í sjónum Hér sést Heimir koma að landi
eftir Viðeyjarsund. Mynd HeiMir Örn SveinSSon
Kuldi Heimir segist synda
hratt til að vega upp á móti
hitatapi. Mynd HeiMir Örn SveinSSon
„Sjósund er þannig
sport að það er
svo margt sem maður
ræður ekki við.
Góð ráð fyrir
fólk sem hatar
líkamsrækt
n ekki setja of háleit
markmið
Það vill oft verða þannig þegar
fólk byrjar í líkamsræktarátaki
þá setji það sér of háleit mark-
mið. Í stað þess að ætla fara
alla daga í ræktina settu þá
niður nokkra fasta daga fyrstu
vikurnar sem þú ætlar að mæta
í ræktina. Ef þú ferð oftar en þú
ætlaðir þér þá er það bara stór
plús. Það er líklegra að þú getir
haldið þig við markmið sem er
ekki of háleitt og minni líkur á
að þú hættir.
n Haltu dagbók
Það getur verið áhrifaríkt að
halda dagbók. Skrifa niður
hvað þú gerir á hverjum degi,
hvað þú borðar og hvort þú æfir
eða ekki. Ef þig vantar hvatn-
ingu og stuðning þá getur líka
verið sniðugt að fá vini þína til
að fylgjast með. Til dæmis með
því að stofna lítinn hóp á Face-
book fyrir þá sem eru í sömu
sporum og þannig getur fólk
innan hópsins spjallað sín á
milli um átakið.
n Farðu þótt þig langi ekki
Stundum langar mann bara alls
ekki í ræktina. Ekki láta undan
letinni heldur farðu af stað.
Þótt þig langi ekki neitt þá áttu
eftir að verða ánægð/ur að því
loknu. Þótt þú sért ekki nema
hálfan tíma þá fórstu samt og
það er líka líklegra að þú farir
aftur daginn eftir.
n Jákvæðni
Það þýðir ekkert annað en að
temja sér jákvæðni. Þú kemst
ekkert áfram á neikvæðninni.
n Gerðu æfingarnar
skemmtilegar
Það skiptir máli að gera hluti
sem þér finnst skemmtilegir.
Ef þú átt börn, farðu þá með
þau í gönguferðir og hjólaferð-
ir. Farðu frekar fótgangandi út
í búð heldur en að keyra. Taktu
stigann í stað lyftunnar. Það eru
líka litlu hlutirnir sem skipta
máli.
Settu smjör í kaffið
S
mjörkaffi er nýjasta æðið í
hinum svokallaða „high fat
diet“ sem, líkt og nafnið gefur
til kynna, gengur út á það að
borða mikið af fituríkum matvæl-
um. Þrátt fyrir að hljóma framandi
í eyru margra Vesturlandabúa hef-
ur smjör verið notað út í te og kaffi
víða í Suðaustur-Asíu og Afríku um
langt skeið, sér í lagi á svæðum sem
eru í mikilli hæð yfir sjávarmáli.
Eftirfarandi uppskrift að smjör-
kaffi var gerð af Dave Asprey,
eiganda heilsu- og lífsstílsvefsíð-
unnar The Bulletproof Executive.
Asprey komst upp á lagið með
smjörkaffi og -te eftir að hafa dval-
ið í 5.500 metra hæð yfir sjávarmáli
nálægt Kailash-fjalli í Tíbet. Þar
drakk hann gjarnan te með bráðnu
smjöri út í og ákvað í kjölfarið að út-
búa sína eigin uppskrift að smjör-
kaffi sem nú hefur farið sem eldur í
sinu um netheima vestanhafs.
Setjið tvær matskeiðar af ósölt-
uðu smjöri, eina teskeið af pálma-
olíu og kókosolíu (báðar innihalda
miðlungs fitusýruhlekki og eru því
hollari en aðrar olíur) og einn bolla
af kaffi í blandara og hrærið saman
þar til blandan verður létt og freyð-
andi. Drekkið svo með bestu lyst, en
að sögn Asprey er þessi drykkur full-
komin byrjun á deginum og gefur
bæði orku og eykur einbeitingu. n
horn@dv.is
Góð og öðruvísi byrjun á deginum
Smjörkaffi Víða í Suð-
austur-Asíu og Afríku setur
fólk smjör út í kaffi og te.