Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 7.–10. febrúar 201438 Lífsstíll
Á
þessu ári ætlar Ferðafélag Ís-
lands að halda úti röð göngu-
ferða undir heitinu: Geng-
ið á góða spá. Eins og nafnið
ber með sér byggir þessi hug-
mynd á því að þegar veður spá er góð
skuli haldið til fjalla en kúrt heima í
sófa þegar regnið bylur á þakinu eða
stormurinn hvín.
„Okkur langar til þess að þetta
séu fjölþætt verkefni,“ segir Rósa Sig-
rún Jónsdóttir, fararstjóri hjá Ferða-
félagi Íslands, en hún og Páll Ásgeir
Ásgeirsson hafa umsjón með göngu-
ferðum þar sem gengið er á góða spá.
Boðað í göngur eftir veðurspá
„Við sjáum fyrir okkur að þetta
verði ekki einungis fjallgöngur
heldur einnig gönguferðir á vit sér-
stakra sögustaða, gamlar þjóðleiðir,
fjörugöngur, skíðagöngur, tunglskins-
göngur og miðnætursólargöngur,
allt eftir því hvert hugur okkar stefnir
hverju sinni.“
Eðli málsins samkvæmt er ekki
hægt að gefa út fyrirfram prentaða
dagskrá fyrir góðviðrisgöngurnar en
Rósa segir að þeir sem áhuga hafi á
að koma með og fylgjast með geri
rétt í því að láta skrá sig á póstlista hjá
Ferðafélaginu eða vakta heimasíðu
félagsins og Facebook-síðu.
Fyrirkomulag ferðanna verður
með þeim hætti að þegar umsjónar-
mönnum líst vel á veðurspá t.d.
um helgi þá er ákveðið að boða til
göngunnar eigi síðar en hádegi á
fimmtudeginum. Þá er tilkynning um
áfangastað, tímasetningu, verð og
annað sem menn þurfa að vita, sett
inn á heimasíðu FÍ, sem er www.fi.
is. Samhliða þessu verður fagnaðar-
erindið boðað á Facebook og tilkynn-
ing send út á póstlista félagsins.
Í heimsókn hjá Óskari og Blómey
Um síðustu helgi var fyrsta gangan
undir þessu kjörorði farin. Veðrið
var blanda af nokkrum vindi af norð-
austri, vægu frosti en björtu og úr-
komulausu. Gott veður er ávallt
matsatriði en séu menn klæddir í
skjólfatnað og viðbúnir vetrarveðri
bjátar ekkert á og svo var um þenn-
an hóp.
Gengið var frá Skíðaskálanum í
Hveradölum en þangað komu menn
á eigin bílum. Síðan var haldið austur
með Reykjafellinu sem rís fyrir ofan
skálann og gengið upp á topp þess
til þess að átta sig á landslagi Hellis-
heiðarinnar. Þaðan gekk hópurinn til
austurs niður að rústum Garðstungu
þar sem Óskar Magnússon og Blómey
Stefánsdóttir bjuggu fjarri heimsins
glaumi á Hellisheiði fram á tíunda
áratug síðustu aldar. Óskar og Blómey
fengust við listvefnað og varð sérstak-
lega Óskar nokkuð þekktur fyrir verk
sín og var oft kallaður Óskar vefari.
Þau hjónin bjuggu á heiðinni við
erfiðar aðstæður í rösk 20 ár og við
rústirnar settust göngumenn niður,
fengu sér af nestinu og fararstjórar
rifjuðu upp sögu Óskar og Blómeyjar.
Til eru ýmsar sögur af sérvisku Ósk-
ars sem hafa ratað á prent og koma
bæði listfræðingar og blaðamenn þar
við sögu.
Skriðið undir leiðslur
Þessu næst var gengið yfir í Hellis-
skarð sem liggur milli Reykjafells og
Skarðsmýrarfjalls. Um það lá vörðuð
þjóðleið um aldir, líklega í 1.000 ár
eða svo. Vörðulínan sést vel þegar
snjór er annars yfir og hópurinn
ákvað að fylgja hinum fornu vegvís-
um niður að Kolviðarhóli. En þá kom
babb í bátinn ef svo má að orði kom-
ast því um Hellisheiðina hlykkjast
„spagettí“ af leiðslum sem flytja gufu
úr borholum til Hellisheiðarvirkjun-
ar. Á endanum skreið allur hópur-
inn undir leiðslurnar en sumt af því
sem var sagt um Orkuveitu Reykjavík-
ur er varla eftir hafandi. Þegar fram í
Hellisskarðið kom var aftur skriðið
undir leiðslur og svo haldið niður
að Kolviðarhóli. Einhver hafði á orði
að sjaldgæft væri að finna fyrir inni-
lokunarkennd í fjallgöngum en slík
kennd hefði einmitt sótt á hann und-
ir leiðslunni. Ferðafélagar mannsins
hugguðu hann eftir megni.
Þar sjást nokkur ummerki eftir
búskap og rekstur því Kolviðarhóll
var fjölfarinn áfangastaður um ára-
tugaskeið. Þar er velhirtur heimagra-
freitur þar sem Sigurður Daníelsson
og Valgerður Þórðardóttir, síðustu
gestgjafarnir á hinum forna Kolviðar-
hóli, eru jarðsett ásamt Davíð syni
sínum.
Grafreiturinn er hellulagður og í
ljósi þess að þarna hvílir fólk sem tók
á móti gestum alla ævi, settist hópur-
inn niður í grafreitnum í nestis tíma og
sögustund þar sem víða var komið við.
Svo var gengið undir gufustrókum
Hellisheiðarvirkjunar og rýnt eftir
vangasvip Matthíasar Jochumssonar
utan í Reykjafellinu sem allir ferða-
menn þekktu fram til 1958 þegar veg-
urinn um Svínahraun var færður og
prófíllinn hætti að blasa við. En hann
er þarna enn.
Gangan endaði á teygjuæfingum
við Skíðaskálann í Hveradölum
og hvarf svo hver til síns heima
með rjóðar eplakinnar eftir svalan
norðanvind og tilhlökkun í hjarta
eftir næsta ævintýri þar sem gengið
verður á góða spá. n
Gengið á góða spá
Fara saman á fjöll og í áhugaverðar sögugöngur þegar veðrið er gott
Kúra inni þegar það er kalt Páll Ásgeir
Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir stjórna
gönguferðum fyrir Ferðafélag Íslands þar sem
gengið verður á góða spá og reynt að vera úti
þegar veðrið er gott en kúra heima í sófa þegar
veður eru slæm. Mynd Rannveig TRauSTadÓTTiR
„Okkur
langar til
þess að þetta séu
fjölþætt verkefni
góð ganga Hér má sjá hópinn sem fór í fyrstu gönguna. Mynd PÁÁ
Fyrsta gangan Hópurinn sem mætti í fyrstuna gönguna á góða spá á vegum
Ferðafélags Íslands. Mynd PÁÁ
Góð þátttaka
í fjallaverk-
efnum FÍ
Ferðafélag Íslands heldur úti
nokkrum skipulögðum göngu-
verkefnum á þessu ári líkt og
undanfarin ár. Boðið er upp á
eitt eða tvö fjöll á mánuði og eitt
fjall á viku. Þessir þrír valkost-
ir njóta vinsælda og er þátttaka
allgóð. Verkefnin eru komin
vel af stað og hafa gengið vel
frá áramótum því færi til fjalla
er ágætt og veður hafa verið
þokkaleg um helgar.
Sérstakt verkefni fyrir
Hvannadalshnúk eða
Hrútfjallstinda
Hjalti Björnsson mun stýra sér-
stöku verkefni sem hefst í næstu
viku á vegum Ferðafélags Ís-
lands og hefur
fengið yfir-
skriftina Alla
leið. Boðið
verður upp
á fjallgöng-
ur, æfingar og
undirbúning
fyrir þá sem vilja
ganga á Hvannadals-
hnúk í vor.
Þátttakendur geta valið
um Hvannadalshnúk eða
Hrútfjallstinda og verður
ekki farið á bæði fjöllin sömu
helgina svo þeir sem eru sérlega
áhugasamir geta einsett sér að
ganga á bæði þessi tignarlegu
fjöll í Öræfajökli.
allir á
brodda
Svokallað-
ir hálku-
broddar eða
smábroddar
njóta sívaxandi
vinsælda meðal útivistarfólks.
Um er að ræða brodda sem fest-
ir eru með teygjum á skóna og
eru 1–2 sentimetrar að lengd.
Þessir broddar duga vel í hálku
og verja fólk falli. Ekki er rétt að
nota þá í mjög bröttum brekk-
um og harðfenni þar sem þörf
er á fullvöxnum jöklabroddum,
ísöxi og kunnáttu í að beita
þessum tækjum rétt.
Einhver orðaði það svo að
hálkubroddarnir væru ágæt-
ir upp að Steini í Esjunni en
ef maður vildi fara hærra ættu
stærri broddar að vera skilyrði.
Umræddir hálkubroddar fást
í flestum útivistarverslunum
frá nokkrum framleiðendum.
Spyrjið vana fjallamenn hvað sé
best að kaupa.
Hvað er
vinsælast í
sumar?
Nú liggja
áætlanir
ferðafélag-
anna fyrir
og á mörgum
heimilum er verið
að bollaleggja um gönguferð-
ir eða sumarleyfisferðir kom-
andi sumars. Heyrst hefur að
Hornstrandir séu vinsælli en
nokkru sinni fyrr og útlit sé fyrir
meiri aðsókn á þessar heillandi
strendur en áður hefur sést.