Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Side 50
Helgarblað 7.–10. febrúar 201442 Skrýtið Sakamál
A
ð kvöldi dags, 1. febrúar
2002, skellti Brenda Van
Dam sér út á lífið með
nokkrum kunningjum
sínum í San Diego í Kali-
forníu. Eiginmaður Brendu, Damo,
ákvað að vera heima og hafa auga
með börnum þeirra þremur; Dani-
elle, sjö ára, og bræðrum hennar
tveimur.
Damon kom börnunum í hátt-
inn um hálf ellefu leytið og sofn-
aði síðar svefni hinna réttlátu og
svaf til klukkan tvö eftir miðnætti
er Brenda kom heim, ásamt fjórum
vina þeirra hjóna. Sexmenningarn-
ir mösuðu í um hálftíma, vinirnir
fóru og Brenda og Damon tóku á sig
náðir. Um morguninn var Danielle
hvergi að sjá og eftir að hafa leitað
af sér allan grun hringdu hjónin í
lögregluna, full örvæntingar.
Lögreglan hafði samband við
nágranna hjónanna og í ljós kom
að tveir þeirra voru að heiman
þennan laugardagsmorgun; David
nokkur Westerfield og annar sem á
ekkert erindi í þessa frásögn.
Ferð í fatahreinsun
David kom ekki heim fyrr en í
morgunsárið á mánudeginum
og þaðan í frá beindust sjónir
lögreglunnar að honum. Hann
fullyrti að hann vissi ekkert um
Danielle, en hann hefði aftur á
móti verið á sama bar og Brenda
á föstudagskvöldinu – hann hefði
meira að segja dansað við Brendu.
Brenda staðfesti frásögn Davids en
neitaði að hafa dansað við hann.
Vitni sögðust þó hafa séð þau tvö á
dansgólfinu saman.
Tveimur dögum eftir að Dani-
elle hvarf hafði David farið í fata-
hreinsun með sitt lítið af hverju,
þar á meðal jakka. Síðar átti eftir
að finnast blóð úr Danielle á þeim
jakka. Lögreglunni fannst grun-
samlegt að David hefði ekki minnst
á fatahreinsunina í fyrsta viðtalinu,
og einnig að hann hafði látið þrífa
bifreið sína rækilega þegar hann
snéri heim eftir helgina. Svo því sé
haldið til haga kom upp úr kafinu
að David hafði, þremur dögum fyrir
hvarf Danielle, keypt smákökur af
henni og móður hennar og boðið
þeim inn til sín við það tækifæri.
Frá 4. febrúar fylgdist lögreglan
með ferðum Davids allan sólar-
hringinn.
Lífsstíl foreldranna kennt um
Það var þó ekki fyrr en 22. febrúar
sem David Westerfield var hand-
tekinn vegna hvarfs Danielle – blóð
úr henni hafði fundist á fatnaði
hans og heimili. Lík Danielle fannst
fimm dögum síðar.
David lýsti sig saklausan við
réttarhöldin, sem hófust 4. júní,
og verjendur hans ýjuðu að því
að lögreglunni væri mikið í mun
að leysa málið og hefði því aldrei
kannað aðra möguleika en David.
Barnaklám fannst á tölvu Davids
og gáfu lögfræðingar hans í skyn
að sonur hans, Neal, bæri ábyrgð
á því. Til að bæta gráu ofan á svart
gerðu verjendur Davids lífsstíl Van
Dam-hjónanna að umtalsefni; þau
væru frjálslynd hvað varðaði kyn-
líf með öðru fólki og lífsstíll þeirra
kynni að hafa opnað heimili þeirra
fyrir þeim sem nam Danielle á
brott.
Verjendur Davids sögðu enn
fremur að ekkert sýndi fram á að
hann hefði nokkurn tímann kom-
ið inn á heimili Danielle; „ekki hár,
ekki fingraför, ekki fætaþræðir, ekki
neitt“. Ákæruvaldið tefldi þá fram
rannsakendum sem gátu tengt ör-
fína þræði sem fundust á líki Dani-
elle við mýmarga eins, sem fundust
á heimili Davids.
Klám eða ekkert klám
Að sögn verjenda Davids hafði
lögreglan á einhverjum tíma gefið
út að ekkert barnaklám hefði fund-
ist á tölvum Davids, en samkvæmt
sérfræðingi ákæruvaldsins fund-
ust um 100.000 myndir á tölvun-
um. Þar af voru um 8.000 til 10.000
nektarmyndir og 80 þeirra gátu
talist barnaklám. Einnig var um að
ræða myndskeið sem sýndi nauðg-
un á barnungri stúlku.
David fullyrti að umrætt efni
hefði ekki verið honum til ánægju-
auka; hann hefði verið að safna efni
sem hann gæti síðar sent til löggjaf-
arþings Bandaríkjanna sem dæmi
um þann viðbjóð sem væri að finna
í netheimum.
Samningur í burðarliðnum
Í janúar 2003 var David Westerfield
dæmdur til dauða og hann færður
í San Quentin-fangelsið. Að rétt-
arhöldum komst á kreik sá
orðrómur að lögfræðingar Davids
hefðu verið hársbreidd frá að ná
samkomulagi um að hann vísaði á
lík Danielle gegn því að sleppa við
dauðarefsingu.
Áður en til þess kom gekk hóp-
ur óbreyttra borgar fram á líkið af
ungu stúlkunni og samkomulagið
féll um sjálft sig.
Hvorki verjendur né ákæru-
valdið vildu tjá sig um sannleiks-
gildi þess orðróms.
Árið 2003, eftir að David hafði
verið sakfelldur, skrifaði James
nokkur Selby orðsendingu til lög-
reglunnar og játaði á sig morðið á
Danielle. Hans hafði verið leitað
vegna nauðgunar í San Diego árið
2001 og fyrir að hafa, árið 1999, í
skjóli nætur, numið á brott níu ára
stúlku úr svefnherbergi hennar og
nauðgað henni.
Lögreglan lagði ekki trúnað á
játningu James Selby, taldi enda
fullvíst að hann hefði verið í Tuc-
son í Arizona þegar Danielle hvarf
og var myrt.
David bíður nú örlaga sinna í
San Quentin-fangelsinu. n
MYRT SJÖ ÁRA
Danielle var sjö ára þegar hún var numin á brott í skjóli nætur„… ekki hár,
ekki fingra-
för, ekki fæta-
þræðir, ekki neitt.
Danielle Van Dam Danielle náði ekki átta ára aldri.
Sakfelldur
David Allan
Westerfield
var sakfelldur
fyrir morðið á
Danielle.
Banað með
rafbyssu
Sjötíu og tveggja ára kona í Sví-
þjóð hefur verið ákærð fyrir að
hafa, fyrir tuttugu árum, orðið
eiginmanni sínum að bana.
Ákæra var gefin út í vikunni en
samkvæmt henni barði hún
eigin mann sinn ítrekað í andlit
og brjóst áður en hún skaut hann
með rafbyssu. Eiginmaður kon-
unnar, sem þjáðist af hjartasjúk-
dómi, lést í kjölfarið.
Málið þykir allt hið óvenju-
legasta enda játaði konan að
hafa orðið manni sínum að bana
í innhringitíma útvarpsþáttar
árið 1997. Lögreglan rannsakaði
málið en niðurstaðan var sú að
gefa ekki út ákæru í málinu. Árið
2012 tók deild innan sænsku lög-
reglunnar, sem rannsakar gömul
óupplýst sakamál, upp rannsókn
málsins. Lögmaður konunnar
segir við sænska fjölmiðla að
skjólstæðingur hans sé saklaus.
Skaut
kærastann
Það borgar sig að svara í símann
þegar konan hringir. Það fékk
ungur maður í Flórída í Banda-
ríkjunum að reyna á dögunum
en kærasta hans var handtek-
in eftir að hafa skotið manninn
sinn með rafbyssu. Parið, sem
á von á barni, hafði verið að ríf-
ast vegna þess að hann hafði
ekki svarað símtölum frá henni.
Konan var ákaflega ósátt við
það, greip til rafbyssunnar og
lét vaða í síðu síns heittelskaða.
„Hún hélt áfram að skjóta hann
á meðan fórnarlambið reyndi
veikum mætti að komast í
burtu,“ segir í lögregluskýrslu
um atvikið. Konan var handtek-
in fyrir misbeitingu vopnsins en
engum frekari sögum fer af sam-
skiptum þeirra. Orange News
greinir frá þessu.
Vilja greiðslur
frá Guantanamo
Meðlimir kanadísku iðnaðarra-
frokkhljómsveitarinnar Skinny
Puppy hafa krafið Bandaríkja-
her um eins konar stefgjöld fyrir
notkun hans á lögum sveitarinn-
ar. Hljómborðsleikarinn Cevin
Key segir í samtali við BBC að
fangavörður við Guantanamo-
fangelsið hafi greint honum frá
því að lög sveitarinnar hafi ver-
ið spiluð af miklum styrk – til að
pynta fanga. „Ég er ekki aðeins
mótfallinn því að lögin skuli vera
notuð til að valda vanlíðan held-
ur er ég líka ósáttur við að þau
skuli vera spiluð í heimildarleysi,“
hefur BBC eftir honum. Sveitin
hefur sent reikning upp á rúm-
ar 75 milljónir króna. Talsmaður
Bandaríkjahers vildi ekki kannast
við að reikningurinn hafi borist.