Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 7.–10. febrúar 201444 Menning
„Þurfum að læra
að axla ábyrgð“
Páll Skúlason heimspekingur ræðir um eðli stjórnmála, stöðuna á Íslandi fimm árum eftir hrun og hvað sé til ráða
E
f einhver íslensk rödd á tilkall
til þess að kallast rödd skyn-
seminnar gæti það verið sú
sem tilheyrir Páli Skúlasyni,
prófessor í heimspeki og fyrr-
verandi rektor Háskóla Íslands. Radd-
blærinn sem hefur í rúm 40 ár leikið
um ganga Háskólans og á stundum
hljómað úr útvarpstækjum lands-
manna kveikir hugrenningatengsl við
visku forfeðranna, í henni er endur-
ómur aldanna, sambland íslenskrar
menningar og vesturevrópskrar
heimspekihefðar.
Páll Skúlason fæddist árið 1945
á Akureyri og ólst þar upp fram til
tvítugs. Snemma kynntist hann
heimspeki og eftir stúdentspróf við
Menntaskólann á Akureyri hélt Páll
til náms við Kaþólska háskólann í
Louvain (Leuven) í Belgíu. Frá árinu
1971 hefur Páll starfað innan veggja
Háskóla Íslands, þar sem hann var
rektor á árunum 1997 til 2005. Fyrir
utan að leiðbeina heimspekinem-
um, flytja fyrirlestra í útvarpi og sitja
í siðanefndum, stjórnum stofnana
og ráða, hefur hann kennt ótal nem-
endum úr öllum deildum háskólans
heimspekileg forspjallsvísindi.
Rétt fyrir síðustu jól gaf Páll út sína
tólftu heimspekibók, Ríkið og rökvísi
stjórnmálanna. Bókin er safn níu rit-
gerða sem eru skrifaðar á tímabilinu
1993 til 2013, en allar eiga þær það
sameiginlegt að fjalla um eðli stjórn-
mála. Ég mælti mér mót við Pál til að
ræða um efni bókarinnar, stöðu sam-
félagsins fimm árum eftir hrun og
hvað sé til ráða.
Uppeldisfræði og
frönsk heimspeki
Áhugi Páls á heimspeki kviknaði í
æsku. „Það fyrsta sem ég man eftir að
hafa verið að pæla tengdist uppeldi
og kennslu. Þegar ég var lítill þá rakst
ég á Uppeldið eftir Bertrand Russell
og var að reyna að skilja þetta,“ seg-
ir hann og hlær. „Á menntaskólaár-
unum kynnist ég frönskum höfund-
um – ég sökkti mér ofan í verk Alberts
Camus og einnig Jean-Pauls Sartre –
og svo verkum Sigurðar Nordals sem
höfðu mikil áhrif á mig. Hann opn-
aði augu mín fyrir því að okkur skortir
raunverulega heimspeki hér á Íslandi.
Ef við ætluðum að móta nútímasam-
félag þá yrðum við að tileinka okkur
heimspekilega hugsun.“
Páll telur þörfina á því hugsa heim-
spekilega ekki síst mikilvæga í stjórn-
málum. „Menn þurfa heimspeki til
að móta góða stjórnmálastefnu. Einn
helsti vandinn við íslensk stjórnmál
er að þau hvíla ekki á nægilega al-
mennum og skýrum skilningi á sam-
félaginu og þeim samfélagsvanda
sem við stöndum frammi fyrir.“ Hann
viðurkennir að heimspekingar hafi
sjaldan verið áberandi í íslenskri
umræðu; „það tengist því að heim-
spekingar eru taldir eiga að fjalla um
grundvallaratriði og í hinu daglega
lífi eru menn ekkert að hugsa um
þau. Menn eru bara á bólakafi í til-
teknum málum sem eru efst á baugi
á hverjum tíma. Það er þá helst þegar
mikil áföll dynja yfir sem fólk fer að
spyrja slíkra grundvallarspurninga
eins og var áberandi í kjölfar banka-
hrunsins.“
Einstaklingar hugsa um hag
samfélagsins
Heimspekileg hugsun Páls hefur
snúist mikið um siðfræði og stjórn-
mál og hann hefur með ýmsum hætti
lagt sig fram við að efla heimspeki-
legar samræður meðal Íslendinga.
Hann hefur fengist við að greina eðli
ríkis og stjórnmála svo við getum átt-
að okkur betur á þessum viðfangsefn-
um. Ein þeirra hugmynda sem hefur
verið leiðarstef í skrifum Páls í gegn-
um tíðina er að mikilvægt sé að líta
á ríkið sem skynsamlega leið samfé-
lagsins til að taka ákvarðanir um sam-
eiginleg málefni – þetta kallar hann
skynsemisviðhorf til ríkisins – en ekki
einungis sem tæki sem valdamikl-
ir einstaklingar eða stéttir berjast um
til að beita í þágu ýmissa sérhags-
muna – það sem hann kallar tækni-
legt viðhorf til ríkisins.
„Ríkið sem stofnun hefur tvær
hliðar, það er ákveðið form eða
skipulag sem heldur utan um sam-
skipti okkar, og það er einnig vald eða
afl til að koma hlutum í framkvæmd.
Formið felst í lögum og reglum sem
eiga að halda utan um samfélagið
og gera okkur kleift að taka ákvarð-
anir í okkar sameiginlegu málum.
Aflið er fyrst og fremst fólgið í opin-
berum stofnunum sem hafa burði til
að framfylgja ákvörðununum. Svona
kerfi hefur þróast í öllum samfélögum
í einni eða annarri mynd. Þetta sýnir
okkur náttúrlega eitt um manneskj-
una, eða okkur sjálf, en það er að við
hugsum ekki bara fyrir sjálf okkur sem
einstaklinga heldur sem eina heild.“
segir Páll. „Síðan þróast allt samfélag
í átökum – það er barátta milli hópa
og stétta um margvísleg gæði og við
sem borgarar í tilteknu ríki þurfum að
sjá til þess að þessi barátta fari ekki úr
böndunum. Þannig er hlutverk ríkis-
ins og þar með okkar sjálfra sem ríkis-
borgara að vinna markvisst að því að
réttlæti ríki í samfélaginu.“
Rökvísi markaðarins
Í nýju bókinni sinni setur Páll fram
þekkta greiningu sína á mannlífinu
í þrjú mismunandi svið: hið and-
lega, hið stjórnmálalega og hið efna-
hagslega. Hvert þessara sviða hefur
sín eigin lögmál og innri rökvísi en
kenning Páls er að ójafnvægi eigi til
að myndast milli þessara sviða, en
þá er rökvísi eins sviðs þröngvað yfir
á hin sviðin. Í slíkum tilvikum verður
samfélagið óskynsamlegt. Þetta hefur
oft átt sér stað í gegnum söguna, til
dæmis breiddu trúarlegar hugmyndir
kirkjunnar úr sér á miðöldum, stjórn-
málaleg hugmynd um þjóðina varð
allsráðandi á fyrri hluta 20. aldarinn-
ar, en í dag er það efnahagsleg rök-
vísi markaðarins og hagfræðinnar
sem er talin geta útskýrt virkni hluta
á öllum sviðum mannlífsins. Þetta
telur Páll vera varhugaverða þróun.
„Í efnahagslífinu erum við sífellt að
reyna að efla ákveðnar leiðir í fram-
leiðslu og sölu, og svo keppa auðvit-
að sumir að því að verða ríkari og rík-
ari. Við hrærumst að sjálfsögðu öll á
einn eða annan hátt í efnahagslífinu.
En ef við hugsum bara eftir braut-
um þeirrar rökvísi sem þar er um að
ræða þá skiljum við ekki samfélag-
ið, hvorki stjórnmálin né hið and-
lega líf sem að endingu skiptir okkur
mestu sem hugsandi verur. Það er því
mjög hættulegt ef sá hugsunarháttur
verður ríkjandi að efnahagsleg gæði
séu það eina sem máli skipti, eins og
þegar fólk hugsar „Ég læri bara til þess
að fá gráðu sem að gefur mér góða
vinnu og há laun.“ Líka sú vafasama
hugsun að öll menntun eigi að vera í
þágu efnahagslífsins eða atvinnulífs-
ins. Þetta er afskaplega þröngur hugs-
unarháttur og veldur því að menn
misskilja, mér liggur við að segja,
bæði sjálfa sig og samfélagið.“
Verkefni stjórnmálanna
„Verkefni stjórnmálanna er að setja
lög og reglur til að halda utan um sam-
félagið og sjá til þess að það fari ekki
úr böndunum. Oft myndast spenna
milli viðskiptalífsins og stjórnmál-
anna, löggjafans. Í viðskiptalífinu vilja
menn hafa sem minnst af reglum og
höftum, en löggjafinn vill tryggja
með viðeigandi lögum og reglum
að ekki sé haft rangt við. Í efnahags-
lífinu verða oft til ákveðin öfl sem
reyna að hafa áhrif á stjórnmálin og
stjórnmál hafa að miklu leyti verið
sérhagsmunabarátta. Flestir stjórn-
málaflokkar voru upphaflega stofn-
aðir til að verja hagsmuni ákveðinna
stétta, eins og bændastéttar, verka-
fólks eða verslunarmanna. Við vissar
aðstæður getur sérhagsmunabarátta
haft verulega spillandi áhrif á stjórn-
málin, vegna þess að þá er ekki verið
að hugsa um heildarhag. Stjórnmál-
in eiga að snúast um ákvarðanir sem
varða hagsmuni allra – þau eiga að
vera skynsamleg umræða um hvað
samfélaginu sem heild er fyrir bestu.
En um leið þarf að sjálfsögðu að taka
tillit til sérhagsmuna af ýmsu tagi, en
gæta þess þó umfram allt að sérhags-
munir skaði ekki almannaheill,“ segir
Páll.
„Sem dæmi um sameiginleg
grunngæði, þá eru stofnanir samfé-
lagsins eitthvað sem við eigum öll
aðild að, það eru dómstólarnir, lög-
regla, heilbrigðiskerfið, skólarnir og
svo framvegis. Góðar grunnstofnanir,
sem vel er hugsað um, eru forsenda
fyrir góðu samfélagi. Sú hætta er sí-
fellt fyrir hendi, eins og við höfum
fengið að reyna, að tiltekin sérhags-
munaöfl komi máli sínu þannig fyrir
borð að stjórnvöld skeyti ekki sem
skyldi um opinberar stofnanir og al-
mannaheill.“
Nýja-Ísland
Páll hefur talað um að í kjölfar áfalls
gerist það oft að heimspekin blóm-
stri, en hefur sú orðið raunin á Íslandi
í kjölfar umróts síðustu fimm ára?
„Já og nei. Mér fannst eins og mörg-
um strax eftir hrun að þjóðin hefði
orðið fyrir andlegu áfalli, reynslu sem
myndi taka mörg mörg ár að vinna úr.
„Kerfið eins og það
er kallar á fólk sem
hefur unun af valdi og
þráir að beita völdum.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is Rödd skynseminnar Ef einhver íslensk rödd
á tilkall til þess að kallast rödd skynseminnar
gæti það verið sú sem tilheyrir Páli Skúlasyni,
prófessor í heimspeki og fyrrverandi rektor
Háskóla Ísland. MyNd KRiStiNN iNGVaRSSoN