Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 58
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Þegar snjórinn tekur götuskilti í gíslingu É g er ekkert sérstaklega ratvís, ónei. Eftir áralanga baráttu við að reyna að lesa kort hef ég eiginlega bara gefist upp og fer nú flestar ferðir mínar á innsæinu. Þið getið ímyndað ykkur hvernig það gengur. Það kemur sér þess vegna ágætlega að vera mið­ bæjarrotta með fjölskyldu í Hafnarf­ irði. Ég rata þangað, fram og til baka. En þetta „ratleysi“ getur komið sér mjög illa. Mér var til dæmis boð­ ið í dásamlegt matarboð á fimmtu­ daginn í síðustu viku. Sem ég sat og lagði lokahönd á grein fyrir helg­ arblaðið þá leit ég út um gluggann og sá snjókomu. Svo snjóaði örlítið meira og svo bætti í. Þegar ég lagði af stað í þetta góða boð var eiginlega kafaldsfærð og umferðaröngþveitið eftir því. Þar sem ég hætti mér yfir­ leitt ekki mikið í efri byggðir Reykja­ víkur var þetta þess vegna frekar taugatrekkjandi, það er að segja, ókunnugar slóðir (eða svoleiðis) og frekar erfið færð. Á Sæbrautinni varð mér ljóst að ég var búin að sitja í umferð í hálftíma, á leið sem yfir­ leitt er keyrð á 10 mínútum. Ég átti eftir að koma við í búð og koma mér upp í Norðlingaholtið. Ég kall­ aði á æðruleysið og ákvað að þetta myndi allt ganga upp. Ég yrði bara örlítið sein. Í Ártúnsbrekkunni fæ ég það oft á tilfinninguna og samferða­ fólk mitt sé að reyna að drepa mig. Það er vond tilfinning og þetta kvöld hafði engin breyting orðið á því. Ég sá einbeittan brotavilja í aksturslagi annarra bílstjóra sem voru staðráðn­ ir í að þvinga mig út af veginum. Í Ár­ túnsbrekkunni var ég meðvituð um að ég þyrfti að komast yfir á frárein svo leið mín í Norðlingaholtið gæti gengið hratt og örugglega fyrir sig. Það mistókst, en vegna færðar, get­ um við sagt, missti ég af fráreininni. Nú var ég skyndilega á leið í Mos­ fellsbæ. Það er svo sem ekkert hræði­ legt, en dálítið úr leið svona í ljósi að­ stæðna. En þar sem ég á vinkonur og frænku sem búa í Grafarholtinu kunni ég leið út úr þessum ógöng­ um. Skyndilega lá leið mín aftur í átt að Reykjavík, en nú var að komast í Norðlingaholt. Í stuttu máli tókst mér aftur að taka vitlausa beygju. Nú var ég á leið í átt að Hesthálsi. Þang­ að ætlaði ég mér alls ekki. Þá stopp­ aði ég bifreiðina og velti því fyrir mér hvort það væri yfirhöfuð óhætt að leyfa mér að ganga lausri, svona rugluð ætti engin að vera. Beygð en ekki buguð ákvað ég að reyna aft­ ur. Skyndilega var ég komin í átt að Norðlingaholti og allt virtist betra. Þangað til að ég var komin í Norð­ lingaholtið og áttaði mig á því að þessi fallegi jólasnjór hafði ákveðið að taka öll götuskilti gíslingu. Ég sá hvorki, né vissi hvert ég var að fara. Fyrir þá sem ekki vita er virki­ lega fallegt að keyra um Norðlinga­ holtið – það er krúttlegt hverfi sem verður afskaplega sætt í jólasnjó. Hins vegar var ég orðin svo skelfi­ lega rugluð, áttavillt og svöng að ég hafði nákvæmlega engan húmor fyrir þessu. Þegar ég loksins komst á leiðarenda, klukkustund og korteri eftir að ég lagði af stað frá miðbæn­ um reyndi ég að segja fólkinu frá þessum hrakförum mínum og var við það að fara að skæla. Heim­ ferðin gekk áfallalaust fyrir sig, eitt­ hvað sem við getum öll verið þakk­ lát fyrir. Næst bið ég um far. n „Ég sá hvorki, né vissi hvert ég var að fara. Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport H öfundar hinna geysivinsælu gamanþátta How I Met Your Mother sögðu frá því á dögunum að kanadíska leikkonan Cobie Smulder hafi ekki verið sú sem upphaflega var valin í hlutverk Robin Scherbatsky. Það hafi nefnilega verið engin önnur en Jennifer Love Hewitt sem ráðin var til verksins, en hún hætti við á síð­ ustu stundu til að leika í dramaþátt­ unum The Ghost Whisperer. Þeir Craig Thomas og Carter Bays eru höfundar gamanþáttanna um Ted Mosby og bestu vini hans fjóra og á mánudaginn var gátu notendur vefsíðunnar Reddit spurt þá félaga spjörunum úr. Ýmis­ legt fróðlegt kom í ljós, svo sem að áhorfendur þáttanna muni að öll­ um líkindum gráta í lokaþættinum og að hluti af lokaþættinum hafi verið tekinn upp árið 2006. Hewitt er þó ekki sú eina sem hafnaði hlutverki í þáttunum á síð­ ustu stundu því bandaríski leikar­ inn Scott Foley átti upphaflega að leika sjálfan Ted Mosby. Foley hætti þó við á endanum og leikur nú meðal annars í sjónvarpsþáttunum Scandal. n horn@dv.is Ákvað frekar að leika í The Ghost Whisperer Hewitt átti að leika Robin Sunnudagur 9. febrúar Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (11:26) 07.04 Tillý og vinir (11:52) 07.16 Ævintýri Berta og Árna 07.21 Múmínálfarnir (38:39) 07.30 Hopp og hí Sessamí 07.54 Sara og önd (20:40) 08.01 Kioka 08.08 Kúlugúbbarnir (10:20) 08.31 Hrúturinn Hreinn 08.39 Disneystundin (5:52) 08.40 Finnbogi og Felix (5:26) 09.03 Sígildar teiknimyndir 09.10 Vetrarólympíuleikar - Snjóbretti 10.30 Herkúles (5:21) 10.52 Chaplin (33:52) 11.00 Sunnudagsmorgunn 12.15 Vetrarólympíuleikar – Gönguskíði 14.20 Vetrarólympíuleikar - Skíðaskotfimi 16.20 Söngvakeppnin 2014 (2:3) e 17.40 Táknmálsfréttir 17.50 Poppý kisuló (47:52) 18.00 Stundin okkar 888 18.25 Basl er búskapur (Bonderøven) 19.00 Fréttir 19.20 Veðurfréttir 19.25 Íþróttir 19.40 Landinn 888 20.10 Brautryðjendur 888 (1:8) (Katrín Þorkelsdóttir og Dóra Hlín Ingólfsdóttir) 20.40 Saga Eimskipafélags Íslands (2:2) (Seinni hluti) Saga Eimskipafélags Íslands er samofin þjóðar- sögu Íslendinga. Stofnun þess var þáttur í sjálfstæð- isbaráttunni og starfssaga félagsins endurspeglar þróun atvinnulífs á Íslandi. 21.20 Erfingjarnir 7,8 (6:10) (Arvingerne) Glæný, dönsk þáttaröð um systkini sem hittast eftir margra ára aðskilnað og verkefnið er að gera upp arf eftir móður sína, en það sem í fyrstu virðist tækifæri til sameiningar breytist í uppgjör leyndar- mála og lyga sem tengjast lífi þeirra í nútíð og fortíð. 22.20 Vetrarólympíuleikar - Listdans á skautum 00.25 Sunnudagsmorgunn e 01.40 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok 09:10-16:40 Ólympíuleikarnir 16:40 Ólympíuleikarnir - Luge sleðabrun 18:25 Ólympíuleikarnir - Skíðastökk 19:10 Ólympíuleikarnir - Íshokkí kvenna 21:25 Sportspjallið 22:00 Ólympíuleikarnir 22:35 Ólympíuleikarnir - Listhlaup á skautum 08:20-00:40 Premier League 2013/14 00:40 Premier League 2013/14 08:50 The River Why 10:35 Last Night 12:05 The Young Victoria 13:50 Story Of Us 15:25 The River Why 17:10 Last Night 18:40 The Young Victoria 20:25 Story Of Us 22:00 Djúpið 23:30 The Lincoln Lawyer 01:25 Red Dawn 02:55 Djúpið 16:10 H8R (3:9) 16:50 Þriðjudagskvöld með Frikka Dór 17:20 The Amazing Race (10:12) 18:05 Offspring (8:13) 18:50 Mad 19:00 Bob's Burgers 19:25 American Dad 19:50 The Cleveland Show (2:22) 20:10 Unsupervised (4:13) 20:35 Brickleberry (4:10) 20:55 Dads (13:22) 21:20 Mindy Project (22:24) 21:40 Do No Harm (10:13) 22:25 The Glades (6:13) 23:10 The Vampire Diaries (22:22) 23:50 Bob's Burgers 00:15 American Dad 00:40 The Cleveland Show (2:22) 01:00 Unsupervised (4:13) 01:20 Brickleberry (4:10) 01:45 Dads (13:22) 02:10 Mindy Project (22:24) 02:30 Do No Harm (10:13) 18:00 Strákarnir 18:25 Friends (23:24) 18:45 Seinfeld (7:22) 19:10 Modern Family 19:35 Two and a Half Men (14:22) 20:00 Viltu vinna milljón? 20:45 Krøniken (14:22 ) 21:45 Ørnen (14:24) 22:45 Ally McBeal (15:23) 23:30 Without a Trace (20:23) 00:15 Viltu vinna milljón? 01:05 Krøniken (14:22) 02:05 Ørnen (14:24) 16:00 Hrafnaþing 17:00 Stjórnarráðið 17:30 Skuggaráðuneytið 18:00 Árni Páll 18:30 Tölvur,tækni og kennsla 19:00 Fasteignaflóran 19:30 Á ferð og flugi 20:00 Hrafnaþing 21:00 Auðlindakistan 21:30 Fiskikóngurinn 22:00 Hrafnaþing 23:00 ABC Barnahjálp 23:30 Eldað með Holta 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Strumparnir 07:25 Villingarnir 07:45 Waybuloo 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Könnuðurinn Dóra 08:30 Brunabílarnir 08:55 Ofurhundurinn Krypto 09:15 Latibær 09:40 Kalli litli kanína og vinir 10:00 Grallararnir 10:25 Tom and Jerry 10:30 Ben 10 10:50 Victorious 11:15 Nágrannar 11:35 Nágrannar 11:55 Nágrannar 12:15 Nágrannar 12:35 Nágrannar 13:00 Mikael Torfason - mín skoðun 13:50 Spaugstofan 14:20 Spurningabomban 15:10 Heilsugengið 15:35 Um land allt 16:05 Á fullu gazi 16:35 The Big Bang Theory (5:24) 17:00 Eitthvað annað (7:8) 17:35 60 mínútur (18:52) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (24:30) 19:10 Sjálfstætt fólk (21:30) 19:45 Ísland Got Talent 20:35 Breathless (6:6) Dramat- ískir þættir um lækna og hjúkkur á spennandi tímum. 21:25 The Following 7,7 (3:15) Nýr sértrúarsöfnuður er að myndast og leiðtogi hóps- ins er jafnvel hættulegri en Carroll. 22:10 Banshee (5:10) Önnur þáttaröðin um hörku- tólið Lucas Hood sem er lögreglustjóri í smábænum Banshee. 23:00 60 mínútur 7,9 (19:52) Glænýr þáttur í virtustu og vinsælustu fréttaskýringa- þáttaröð í heimi þar sem reyndustu fréttaskýrendur Bandaríkjanna fjalla um mikilvægustu málefni líðandi stundar og taka einstök viðtöl við heims- þekkt fólk. 23:45 Mikael Torfason - mín skoðun Þjóðmálaþáttur í umsjá Mikaels Torfasonar, aðalritstjóra fréttamiðla 365 í opinni dagskrá. 00:30 Daily Show: Global Edition 00:55 Nashville (5:20) 01:40 Mayday (2:5) 02:40 American Horror Story: Asylum (4:13) 03:25 Mad Men (6:13) 04:10 The Untold History of The United States (6:10) 05:10 Ísland Got Talent 05:55 Fréttir 06:00 Pepsi MAX tónlist 12:45 Dr. Phil 13:30 Dr. Phil 14:15 Once Upon a Time (5:22) 15:05 7th Heaven (5:22) 15:55 Family Guy (15:21) 16:20 Made in Jersey (2:8) 17:10 Parenthood (5:15) 18:00 Friday Night Lights (5:13) 18:45 Hawaii Five-0 (13:22) 19:35 Judging Amy (2:23) 20:20 Top Gear (4:6) Bílaþáttur- inn sem verður bara betri með árunum. Tilraunir þeirra félaga taka sífelldum breytingum og verða bara frumlegri, og skemmtilegri. 21:10 Law & Order (1:22) Spennandi þættir um störf lögreglu og saksóknara í New York borg. Verð- bréfamiðlari er myrtur á hrottafenginn hátt en brátt taka böndin að berast að ólöglegum bardagaklúbbi. 22:00 The Walking Dead 8,8 (6:16) Þættir sem hafa slegið öll fyrri áhorfsmet áskriftarstöðva í Banda- ríkjunum. Rick Grimes og félagar þurfa að glíma við uppvakninga utanfrá og svikara innanfrá í þessum hrollvekjandi þáttum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma. Það er vægast sagt erfitt að lifa lífinu í stanslausri hættu. Smátt og smátt molnar undan samtöðunni í hópnum. 22:50 The Biggest Loser - Ísland (3:11) Stærsta framleiðsla sem SkjárEinn hefur ráðist í frá upphafi. Tólf einstaklingar sem glíma við yfirþyngd ætla nú að snúa við blaðinu og breyta um lífstíl sem felst í hollu mataræði og mikilli hreyfingu. Umsjón hefur Inga Lind Karlsdóttir 23:50 Elementary 8,0 (5:22) Sherlock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. 00:40 Scandal (4:22) Olivia heldur áfram að redda ólíklegasta fólki úr ótrú- legum aðstæðum í skugga spillingarstjórnmálanna í Washington. 01:30 The Walking Dead (6:16) 02:20 The Bridge (5:13) 03:10 Beauty and the Beast (12:22) 04:00 Pepsi MAX tónlist SkjárGolf 06:00 Eurosport 2 13:20 Hollenska knattspyrnan 2014 15:30 Hollenska knattspyrnan 2014 17:30 Eurosport 2 23:30 Eurosport 2 Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Helgarpistill Jennifer Love Hewitt Hewitt ákvað frekar að leika í The Ghost Whisperer en How I Met Your Mother. Seinni undankeppnin Fimm lög keppa um að komast í úrslit í Söngvakeppninni 2014 Á laugardaginn fer fram önnur og seinni undankeppnin fyrir Söngvakeppni sjónvarpsins 2014. Í kvöld keppa fimm lög um það að komast áfram í úrslita­ keppnina sem fram fer þann 15. febrúar en aðeins tvö komast áfram. Lögin sem keppa þetta kvöldið heita Lífið kviknar á ný eftir Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Ol­ geirsson en Sigríður flytur einnig lagið, Til þín eftir Trausta Bjarna­ son í flutningi Guðrúnar Árnýjar Karlsdóttur, Þangað til ég dey eftir hljómsveitina F.U.N.K. sem flytur einnig lagið en hana skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finn­ bogason, Lárus Örn Arnarson, Eg­ ill Ploder Ottósson, Hörður Bjarka­ son og Valbjörn Snær Lilliendahl, Aðeins ætluð þér eftir Maríu Björk Sverrisdóttur í flutningi Guðbjargar Magnúsdóttur og Enga fordóma eftir hljómsveitina Pollapönk sem flytur einnig lagið en hljómsveitina skipa Heiðar Arnar Kristjánsson, Harald F. Gíslason, Arnar Gíslason og Guðni Finnsson. Lögin Von og Eftir eitt lag komust áfram á fyrra undanúrslita­ kvöldinu. Það er Greta Mjöll Sam­ úelsdóttir sem flytur lagið Eftir eitt lag og Gissur Páll Gissurarson sem flytur lagið Von. Keppninni er að þessu sinni skipt í tvö undanúrslitakvöld þar sem tvö lög komast áfram úr hvorri keppni auk þess velur dómnefnd tvö lög til viðbótar.. n viktoria@dv.is Kynnarnir Þær Ragnhildur Steinunn og Guðrún Dís kynna keppnina. RÚV Íþróttir 06.50 Vetrarólympíuleikar – Brun karla 09.50 Vetrarólympíuleikar – Gönguskíði (Cross country, men's 2 x 15 km) 15.00 Vetrarólympíuleikar – Listdans á skautum (Figure skating, team competition) 19.45 Vetrarólympíuleikar – Skíðaskotfimi (Biathlon, women's 7,5 km) 21.45 Vetrarólympíuleikar – Snjóbretti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.