Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað Sjö bjargvættir út- nefndir Skyndi- hjálpar- menn ársins hjá Rauða krossin- um voru vald- ir síðastliðinn föstudag. Ólafur Guðnason var valinn skyndi- hjálparmaður ársins en auk hans fengu sex aðrir viðurkenningar. Ólafur bjargaði lífi sonar síns þegar þeir feðg- ar lentu í umferðarslysi þann 27. júní í fyrra en sonur Ólafs sofnaði undir stýri. Honum tókst á ótrú- legan hátt að stöðva mikla blæð- ingu úr höfði sonar síns og telja læknar það ganga kraftaverki næst að hann skyldi ekki hafa slasast meira, jafnvel lamast. Sonur minn er tif- andi tímasprengja Móð- ir fimmt- án ára drengs lýsti yfir mikl- um áhyggjum af syni sínum sem er greindur með geðrask- anir og þroska- frávik. Sonur hennar tekur reglulega æðisköst þar sem hann eyðileggur allt sem á vegi hans verður og hefur ótal sinn- um beitt fólk sem kemur að hans málum ofbeldi, hvort sem um er að ræða móður hans, kennara, starfs- menn Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) eða sam- nemendur í skóla. Gagnrýndi móðir hans úrræðaleysi yfirvalda gagnvart börnum sem glíma við mikil andleg veikindi. „Mamma var að bjarga okkur“ „Ég veit að ég er bara 13 ára strákur en ég hef upplifað meira en börn eiga að þurfa að upplifa,“ segir í bréfi sem sonur Hjördísar Aðalheiðardóttur skrifaði. Hjördís tapaði í síðustu viku máli fyrir Hér- aðsdómi Austurlands sem fyrrver- andi eiginmaður hennar höfðaði á hendur henni. Hjördís hafði flúið frá Danmörku þar sem hún bjó með dönskum eiginmanni sínum og tekið þrjár dætur sínar og mannsins og son úr öðru sambandi með sér til Íslands. Þarf hún nú að fara með dæturnar aftur til Danmerkur. Í bréfinu grátbað drengurinn um aðstoð en hann sendi bréfið til allra þingmanna. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Verð 32.750 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Withings WiFi vogin • Fyrir allt að 8 notendur • Skynjar hver notandinn er • Skráir þyngd, fituhlutfall og vöðvamassa • Þráðlaus samskipti við tölvu og smartsíma • Fæst í hvítum lit eða svörtum „Eitthvað heillandi við hafgoluna“ „Við hjónin keyptum okkur grásleppu- bát og ætlum að reyna að húkka í nokkrar grásleppur,“ segir Lýður Árna- son, læknir og kvikmyndagerðar- maður. Lýður er ekki þekktur fyr- ir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Nýlegt dæmi sýnir það en hann og kona hans hyggja á grá- sleppuveiðar í mars. Með þeim, til halds og trausts, verður Vestfirðing- urinn Ólafur Ragnarsson, sem marg- ir þekkja betur sem Óla popp, en gert verður út frá Flateyri. „Þetta verða dagtúrar hjá okkur. Það er sett út net, svo hafa menn held ég sextíu daga og vitja neta á átján daga fresti. Svo set- ur maður þau aftur út á sama stað eða annars staðar,“ segir Lýður sem hlakk- ar mikið til að halda á vit ævintýranna. Óöryggi hjá hinu opinbera Lýður starfaði áður sem læknir á Flateyri en hann hefur ekki unnið sem slíkur síðan í maí í fyrra. Eigin- kona hans Íris Sveinsdóttir var áður heilsugæslulæknir í Bolungarvík og segir hann hugmyndina að grá- sleppuveiðunum hafa kviknað þeg- ar þau hjónin voru að störfum fyrir vestan. Þar hafa þau hafa fylgst með ýmiss konar útgerð í gegnum tíðina og fundist það spennandi og líklega skemmtilegt viðfangsefni. „Það er eitthvað heillandi við hafgoluna,“ segir Lýður og bætir við: „Það má líka segja að ástæðan sé sú að það er svo mikill niðurskurðarhnífur í þessum opinbera geira alls staðar og við fórum ekki varhluta af því. Þetta er kannski tilraun til þessa að reyna að ráða lífi manns að einhverju leyti sjálfur. Þegar maður er að vinna sem læknir þá er maður yfirleitt að vinna hjá hinu opinbera og það er ekki mikið öryggi í því. Maður veit aldrei hvenær einhverjum dettur í hug að gera hitt eða þetta, þarna er kannski meiri möguleiki að geta ráðið sér sjálfur. Það er ekki nema að maður þurfi að glíma við veðurguðina.“ Aldrei verið á sjó Hann segist ekki hafa reynslu af sjó- mennsku nema þá helst í gegnum kvikmyndagerð. „Maður hefur að- eins kynnst sjómennskunni í gegnum kvikmyndagerðina en það er oft mik- ið volk sem henni fylgir. Maður þarf að fá óveður og svoleiðis, en nei, ég hef ekki verið sjómaður. Þess vegna er Óli popp nú á bátnum. Hann er van- ur því.“ Grásleppu má veiða án kvóta og segir Lýður að þau hafi séð tækifæri í því. Hann segist spenntur fyrir veið- unum sem hefjast 10. mars. „Maður eins og ég er alltaf spenntur fyrir öllu sem maður tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er læknisfræðin, kvik- myndagerðin eða eitthvað annað.“ Aðspurður hvort hann ætli að snúa alfarið baki við læknisstörfunum til að gerast sjómaður segir hann erfitt að svara því. „Ég veit ekki hvað verður mitt aðalstarf. Það er allt á huldu með það eins og er,“ segir Lýður að lokum. n Læknir keypti grásleppubát með konu sinni n Vill geta ráðið sínu lífi sjálfur n Lítið öryggi í að vinna hjá hinu opinbera Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is „Maður eins og ég er alltaf spenntur fyrir öllu sem maður tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er læknisfræðin, kvikmyndagerðin eða eitthvað annað. Grásleppuveiðar Lýður ætlar að hefja grásleppuveiðar frá Flateyri í mars ásamt konu sinni og Óla popp. Láta draum Péturs rætast: Safna fyrir kvikmynda- tökuvél „Eftir að hafa lesið viðtalið ákváð- um við að setja af stað söfnun til að kaupa slíka vél handa Pétri,“ seg- ir á vefsíðunni framtak.is. Forsvars- menn síðunnar, þar á meðal Bene- dikt Finnbogi Þórðarson, hafa farið af stað með söfnun fyrir myndavél handa Pétri Kristjáni Guðmundssyni sem lamaðist fyrir neðan mitti þegar hann féll niður kletta í Austurríki um áramótin. Söfnunin fer fram í gegn- um vefsíðuna Framtak sem er félags- skapur sem hyggst einbeita sér að ljósmyndatengdum góðgerðamálum í framtíðinni. Pétur Kristján sagði í viðtali ný- verið að hann stefndi að því að eign- ast ákveðna kvikmyndatökuvél til að vera betur búinn í kvikmyndagerð- inni, sem hann hefur mikinn áhuga á. Hann og kærasta hans, Anna Ósk Stefánsdóttir, segjast vera með spennandi kvikmyndaverkefni í bí- gerð og mun vélin því eflaust koma sér vel. Parið hefur ákveðið að láta breyttar aðstæður ekki stöðva sig í að láta drauma sína rætast. Myndavélin sem verið er að safna fyrir heitir Can- on EOS 5D Mark II og verður gefin með linsu. „Eftir að hafa lesið viðtalið ákváð- um við að setja af stað söfnun til að kaupa slíka vél handa Pétri. Við erum fullvissir um að með slíkri vél sé hann betur búinn í kvikmyndun sinni og að það muni hjálpa honum til bata að hafa eitthvað til að stefna á. Við opnuðum styrktarreikning og við hvetjum alla til að gefa þó ekki sé nema lága upphæð því margt smátt gerir eitt stórt,“ segir um söfnunina á vefsíðunni Framtak. Um verkefni Framtaks segir á heimasíðunni: „Við sem stöndum á bakvið Framtak erum ungir pilt- ar sem vilja láta gott af okkur leiða. Við byrjuðum samstarf okkar í kring- um skipulagningu á Help-Portrait deginum á Íslandi sem er alþjóðleg- ur dagur þar sem ljósmyndarar og áhugaljósmyndarar taka sig saman og halda fríar myndatökur fyrir þá sem minna mega sín.“ Fyrir þá sem vilja styrkja verk- efnið er reikningsnúmerið 1161- 15-200400  og kennitalan er 300592- 2019. solrun@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.