Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 54
54 | Fólkið 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
Lýsið er
lykillinn
Kolbrún Ýr Sturludóttir, sautján ára mær úr
Garðabæ og sigurvegari Ford-keppninnar á
dögunum, er í viðtali í nýjasta hefti Monitor.
Aðspurð þar um sitt helsta fegurðarleynd-
armál bendir Kolbrún á gamla og góða
íslenska vöru. „Mitt helsta trikk er að taka
lýsi. Húðin mín verður allt önnur þegar ég
tek lýsi. Annars er ég þurr og ómöguleg í
húðinni en lýsið gerir hana mjúka og fína.
Það skiptir máli að hugsa vel um sig að
innan til að líta vel út,“ segir Kolbrún í
viðtalinu. Kolbrún mun keppa í aðalkeppni
Ford í júlí en þar mætast Ford-stúlkur frá
fjörutíu löndum.
Dreymir Kiljuna
Andri Freyr Viðarsson er gæddur ýmsum
hæfileikum en útvarpsmaðurinn sagði frá
því í Morgunútvarpinu á Rás 2 á fimmtudag
að hann hefði dreymt fyrir því sem gerðist í
Kiljunni, bókmenntaþætti Egils Helgasonar.
Andra dreymdi Egil á dögunum þar sem sjón-
varpsmaðurinn hafði lagt mikið af. „Munið þið
eftir draumnum sem ég sagði ykkur frá með
Agli Helga?“ sagði Andri við þáttarstjórnend-
urna Frey Eyjólfsson og Guðmund Pálsson, en
Andri stýrir þættinum Virkir morgnar sem eru
næstir á dagskrá á Rás 2. „Hann var hel-fitt og
koma að mér. Ég spurði hvort hann væri bara
að hverfa og þá sagði hann: „Það er jóga.“ Það
var svo jóga í þættinum í gær,“ sagði Andri og
bætti því við að hann dreymdi yfirleitt það
sem gerðist í Kiljunni.
Við byrjuðum saman 14. nóvember og hættum sam-an nákvæmlega fjórum
mánuðum síðar. Það var bara
eins og þetta hefði verið ákveðið
fyrir okkur,“ segir fyrirsætan og
stílistinn Kristrún Ösp Barkar-
dóttir sem hætti með kærastan-
um, Stefáni Lárusi Reynissyni, á
Valentínusardaginn. Kristrún,
sem var lengi í sambandi með
knattspyrnukappanum Dwight
Yorke, gaf glamúrlífið upp á bát-
inn til að byrja með Stefáni en nú
er það búið.
„Ég sé ekki eftir að hafa far-
ið í þetta samband. Við áttum
skemmtilegar stundir saman en
ég áttaði mig á því sem ég hafði
alltaf vitað. Ég þarf alvöru karl-
mann og get ekki sætt mig við
neitt minna. Auðvitað er samt
erfitt að hætta í sambandi en það
er kannski betra að láta sér ekki
líða illa vegna einhvers sem hefði
aldrei gengið upp,“ segir Kristrún
Ösp.
Aðspurð um ástæðu sam-
bandsslitanna svarar Kristrún:
„Tölvuleikjaspil er stór hluti af
þessari ákvörðun. Hann fór líka
mjög vitlaust að hlutunum en
það var kannski ekki við neinu
öðru að búast. Hann er nú bara
nítján ára,“ segir Kristrún sem
sjálf er tveimur árum eldri.
„Mér finnst allt í lagi að
strákar spili tölvuleiki svo lengi
sem prinsessan þeirra er ekki
hjá þeim. Þegar við kannski
áttum loks heila helgi saman
hékk hann bara í tölvunni. Það
var frekar leiðinlegt.“
Kristrún segist hafa saknað
Dwight Yorke mikið en þau hafi
rætt saman reglulega allan
tímann sem hún var með Stef-
áni. Hún segir Dwight sakna
hennar einnig mikið og hlakk-
ar hún til að sjá knattspyrnu-
hetjuna aftur.
„Það hefði kannski verið fínt
að hætta saman örlítið fyrr því
þá hefði ég og besti vinur minn
Hermann Óli farið út í risastóra
veislu sem Dwight hélt í Abú
Dabí. Stefnan er að fara út að
hitta hann á næstu dögum. Reyna
að slappa aðeins af og hafa það
gott í sólinni,“ segir Kristrún Ösp.
Á dögunum fékk Kristrún sér
sitt fjórða húðflúr en í þetta skipt-
ið lét hún lét flúra á sig setning-
una „The greatest pleasure in life
is doing what people say you can-
not do“ niður alla síðuna. Hún er
ánægð með útkomuna. „Mér hef-
ur alltaf fundist þessi staður mjög
flottur til að fá sér húðflúr á. Þessi
setning hefur líka verið í miklu
uppáhaldi hjá mér,“ segir Krist-
rún Ösp Barkardóttir.
tomas@dv.is
n Kristrún Ösp hætti með kærastan-
um á Valentínusardaginn n Sinnti
tölvunni betur en ástinni n Saknar
Dwight Yorke og hlakkar til að hitta
hann aftur n Ánægð með nýtt húðflúr
eyðilögðu ástina
Laundromat-Café verður opnað 5. mars
í Austurstræti. Staðurinn er að fyrirmynd
Laundromat-staða Friðriks Weisshappel í
Kaupmannahöfn og er hann staddur hér
á landinu að útfæra hugmyndir sínar með
þeim sem reka staðinn. Friðrik segir stað-
inn verða í mjög svipuðum anda og stað-
ir hans í Kaupmannahöfn, litir, lógó, borð,
stólar og skipulag staðarins verður með
svipuðum hætti. Þvottahús verður á neðri
hæð og þar verður líka stærðarinnar leik-
svæði fyrir börn. Á efri hæðinni rúmast
stór matsalur og stór borð með bekkjum
sem henta fjölskyldum vel. Matseðillinn
verður með svipuðu sniði með nokkrum
frávikum og á sunnudögum verður sann-
kölluð fjölskyldustemning.
„Matseðillinn verður eins og úti í Kaup-
mannahöfn fyrir utan fimm rétti. Einn af
þeim er tilkominn vegna hugmyndar sem
rithöfundurinn Andri Snær Magnason
laumaði að mér. Hún er sú að hafa hrygg
með sósu og meðlæti á sunnudögum fyr-
ir fjölskylduna. Staðurinn er auðvitað af-
skaplega hentugur til að framkvæma góða
hugmynd eins og þessa og ég kann hon-
um góðar þakkir fyrir. Þá má panta hrygg
um þrjúleytið og hann er tilbúinn um
kvöldmatarleytið. Þá getur fjölskyldan eytt
sunnudeginum í annað en eldamennsku
og komið svo og notið þess að borða hefð-
bundinn, íslenskan sunnudagsmat eins og
hann gerist bestur. Án fyrirhafnarinnar.“
Hryggur með brúnni sósu og með því á Laundromat:
Andri Snær stakk upp
á sunnudagssteik
Sunnudagsfjölskyldustemning í mið-borginni Andri mælir með sunnudagshrygg.
Friðrik Weisshappel Tók vel í að bæta hrygg á matseðilinn. Mynd RóbERT REyniSSon
Tölvuleikir
„The greatest pleasure in life is doing what
people say you cannot do“ Kristrún er ánægð
með húðflúrið sem er hennar fjórða. mYnDir SigTrYggur ari
Fer aftur að hitta Dwight Yorke Upp úr
slitnaði á milli Kristrúnar og Stefáns Lárusar
því hann spilaði svo mikið af tölvuleikjum.