Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Side 6
6 | Fréttir 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
n Jóhannes S. Ólafsson fékk rúmlega tveggja milljarða króna lán hjá Landsbankanum n Hann
er eiginmaður Herdísar Þórðardóttur, fyrrverandi þingkonu n Seldi útgerðarfyrirtæki árið 2007
ENGAR EIGNIR TIL UPP Í
1.200 MILLJÓNA SKULDIR
Skiptum lauk í þrotabúi Fjárfestinga-
félagsins Ness á miðvikudaginn. Eng-
ar eignir fundust upp í 1.200 milljóna
króna skuldir félagsins. Kröfuhafinn
var Landsbankinn sem lánaði félaginu
til hlutabréfakaupa fyrir bankahrun-
ið. Eigandi félagsins er Jóhannes S. Ól-
afsson, fyrrverandi útgerðamaður og
faðir Þórðar Más, fyrrverandi forstjóra
Straums-Burðaráss og Gnúps.
Talið er að Jóhannes hafið not-
ið óeðlilega mikillar lánafyrirgreiðslu
innan Landsbankans. „Ég tjái mig
ekkert um félagið,“ segir Jóhannes S.
Ólafsson í samtali við DV. Hann vildi
heldur ekkert tjá sig um það hvort
gjaldþrot Fjárfestingarfélagsins Ness
hefði einhver áhrif á félagið Jóhannes
S. Ólafsson ehf. sem er í eigu hans og
eiginkonunnar Herdísar Þórðardótt-
ur, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins. Jóhannes vildi ekki upp-
lýsa um það hvernig lánveitingin frá
Landsbankanum kom til.
Herdís þriðja skuldhæsta
Í rannsóknarskýrslu Alþingis kem-
ur fram að lánafyrirgreiðslur tengdar
Herdísi Þórðardóttur hafi verið þær
þriðju hæstu til stjórnmálamanna fyrir
hrun. Var langstærsti hluti þeirra lán-
veitinga til eiginmanns hennar. Námu
lánveitingar til hans hæst rúmlega ein-
um milljarði króna í apríl árið 2006.
„Stærstu lánin voru í gegnum fram-
virka samninga um íslensk hlutabréf,
svo sem hlutabréf FL Group, Lands-
bankans, Straums Burðarás og Acta-
vis,“ segir í rannsóknarskýrslunni.
Einnig gerði félagið Jóhannes S. Ólafs-
son, sem er í sameiginlegri eigu hjón-
anna nokkuð af framvirkum samning-
um árið 2005.
Í rannsóknarskýrslunni er Fjárfest-
ingarfélagið Nes flokkað sem óskýrt fé-
lag. Var það fimmta skuldsettasta fé-
lagið í rannsóknarskýrslunni í þeim
flokki með 1.375 milljóna króna skuld-
ir í lok árs 2007. Ef það hefði ekki ver-
ið gert má telja líklegt að lánveiting-
ar tengdar Herdísi hefðu verið hærri
en þær sem tengdust Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur, þingmanni Sjálf-
stæðisflokksins. Lánveitingar til Kristj-
áns Arasonar námu 1.683 milljónum
króna samkvæmt rannsóknarskýrsl-
unni. Sólveig Pétursdóttir bar þó höf-
uð og herðar yfir þær Herdísi og Þor-
gerði. Lán tengd Kristni Björnssyni,
eiginmanni Sólveigar námu 3,6 millj-
örðum króna.
Halda rekstrinum
Þau Jóhannes og Herdís ráku útgerð-
ar- og fiskverkunarfyrirtækið Jóhann-
es S. Ólafsson ehf. frá árinu 1979 og
þar til þau seldu það vorið 2007. Fjár-
festingarfélagið Nes var dótturfélag
útgerðarfyrirtækisins. Þrátt fyrir að
dótturfélagið hafi skuldað Landsbank-
anum um 1.200 milljónir króna vegna
hlutabréfakaupa hefur það lítil áhrif á
hitt félagið. Jóhannes S. Ólafsson ehf.
greiddi út 40 milljónir króna í arð á ár-
unum 2005 og 2006.
Græddi vel fyrir hrun
Eins og segir í rannsóknarskýrslunni
virðist Jóhannes persónulega hafa
staðið í töluvert miklum hlutabréfa-
viðskiptum á árunum 2005 og 2006. Á
þeim tíma varð mikil hækkun í þeim
fyrirtækjum sem hann fjárfesti og því
líklegt að hann hafi hagnast vel á þess-
um viðskiptum. Einnig seldu hann og
Herdís útgerðar- og verkunarfyrirtæk-
ið sitt vorið 2007 sem átti meðal ann-
ars þónokkurn kvóta. Þannig að þrátt
fyrir að Fjárfestingarfélagið Nes skilji
eftir sig 1.200 milljóna króna skuldir
er Jóhannes líklega enn stórauðugur.
Fjárfestingarfélagið Nes virðist hafa
fengið lán til hlutabréfakaupa árið
2008 þar sem ekkert kemur fram um
þau í ársreikningi félagsins árið 2007
sem er síðasti ársreikningurinn sem
félagið skilaði.
Landsbankinn lánaði
mörgum í útgerð
Lánum Landsbankans til Fjárfestingar-
félagsins Ness svipar mjög til annarra
lána sem veitt voru á síðustu mánuð-
unum fyrir efnahagshrunið. Lán með
takmarkaðri ábyrgð eiganda og ein-
ungis tekin veð í hlutabréfunum sjálf-
um. Eitt af því sem nú er til skoðunar
hjá sérstökum saksóknara er meint
markaðsminotkun Landsbankans
með eigin hlutabréf. Þess skal þó get-
ið að sérstakur saksóknari er ekki að
skoða málefni Fjárfestingarfélagsins
Ness.
Jóhannes S. Ólafsson og Her-
dís Þórðardóttir voru ekki eina fólkið
tengd útgerð sem naut mikillar lána-
fyrirgreiðslu hjá Landsbankanum
vegna hlutabréfakaupa. DV hefur áður
fjallað um lánveitingar Landsbankans
til útgerðarfyrirtækis Soffaníasar Cec-
ilssonar hf. á Grundarfirði. Útgerðafyr-
irtækið hefur stefnt bankanum vegna
hlutabréfakaupa sinna en félagið var
einn stærsti hluthafi bankans fyr-
ir hrun með 0,72 prósenta hlut. Guð-
mundur Kristjánsson í Brimi átti 0,85
prósent í Landsbankanum í gegnum
útgerðafyrirtækið Línuskip. Magn-
ús Kristinsson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum átti 2,3 prósent í Lands-
bankanum í gegnum félagið Smáey.
Einnig var Jakob Valgeir Flosason stór-
tækur í gegnum eignarhaldsfélag í eig-
in nafni. Allir þessir aðilar hafa fengið
að halda útgerðarfyrirtækjum sínum
eftir bankahrunið þrátt fyrir að skuld-
ir þeirra vegna hlutabréfakaupa nemi
tugum milljarða króna.
Hlutabréfakaup útgerðarmanna í Landsbankanum frá maí 2007 og fram að hruni:
Nutu góðs af greiðvikni Landsbankans
Dags Nafn Upphæð (m.kr.)
2.5. 2007 Línuskip ehf. 1.624
3.5. 2007 Línuskip ehf. 951
21.8. 2007 Jakob Valgeir ehf. 600
21.8. 2007 Soffanías Cecilsson ehf. 500
11.12. 2007 Jakob Valgeir ehf. 733
28.12. 2007 Smáey ehf. 2.130
28.12. 2007 Jakob Valgeir ehf. 710
21.1. 2008 Smáey ehf. 3.513
21.1. 2008 Smáey ehf. 1.661
6.2. 2008 Smáey ehf. 1.050
27.6. 2008 Smáey ehf. 2.130
Samtals: 15,6 milljarðar
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Vill ekki tjá sig „Ég tjái mig ekkert um
félagið,“ sagði Jóhannes þegar DV bar málið
undir hann. MyND SkeSSUHorN
eiginmaður Herdísar Jóhannes er eig-
inmaður Herdísar Þórðardóttur, fyrrverandi
þingmanns Sjálfstæðisflokks.
„Það er að öllum líkindum leki á
einum olíutanki,“ segir Ólafur Willi-
am Hand, forstöðumaður markaðs-
og kynningarmála hjá Eimskip en
á fimmtudagskvöld greindu norsk-
ir fjölmiðlar frá því að gámaskipið
Goðafoss hefði strandað fyrir utan
Fred rikstad í Østfold. Í samtali við
DV á fimmtudagskvöld sagði Ólafur
William að Goðafoss hefði verið að
sigla frá Fredrikstad þegar skipið tók
niðri og sat það fast á skeri þegar DV
fór í prentun.
Erfitt var að meta skemmd-
ir á skipinu og umfang olíulekans
á fimmtudagskvöld þar sem niða-
myrkur var á svæðinu. Unnið var að
því að meta aðstæður og ekki hafði
verið tekin ákvörðun um hvort skipið
yrði dregið af strandstað með drátt-
arbátum sem biðu átekta í námunda
við skipið, eða hvort það yrði látið
bíða.
„Veðrið er mjög gott og menn eru
öruggir. Skipstjórinn metur hættuna
þannig að ekki sé ástæða til að rýma
skipið,“ segir Ólafur í samtali við DV.
Samkvæmt vefsíðu norska dag-
blaðsins Dagbladet tók Goðafoss
niðri um hálf níuleytið að staðartíma
og er haft eftir sjónarvotti að mikill
hvellur hafi heyrst þegar gámaskipið
strandaði. Skipið var á leið frá Fred-
rikstad til Helsingborgar í Svíþjóð
þegar það strandaði.
Goðafoss er smíðaður árið 1995.
Skipið er 165,6 metrar á lengd, 28,6
metrar á breidd og 14.664 tonn.
Olía lak úr gámaskipi Eimskips:
Goðafoss strandaði
Tók niður við Noregsstrendur Gámaskipið Goðafoss tók niðri við Noregsstrendur á
fimmtudagskvöld. Þessi mynd var tekin á vettvangi. MyND SkJáSkoT af DaGbLaDeT.No
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað
Næsta listmunauppboð 7. mars
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg