Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Síða 11
Fréttir | 11Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
Niðurfelling á tekjuskatti lögaðila samkvæmt lögum um greiðsluuppgjör á opinberum
gjöldum nr. 24/2010.
Alþingi samþykkti þann 18. desember 2010 lög sem heimila Tollstjóra að fella niður hluta tekjuskatts
lögaðila að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Tollstjóra er heimilt að fallast á beiðni um niðurfellingu tekjuskatts að hluta, enda telji Tollstjóri hags-
munum ríkissjóðs betur borgið með slíkri niðurfellingu. Athygli skal vakin á því að umsækjandi niður-
fellingar skal vera í skilum með skatta og gjöld sem falla ekki undir greiðsluuppgjör. Fallist Tollstjóri á
niðurfellingu hluta tekjuskatts munu eftirstöðvar hans ásamt öðrum skattskuldum sem falla undir
greiðsluuppgjör samkvæmt lögum 24/2010 verða settar á skuldabréf. Skuldabréfið er til 5 ára með
mánaðarlegum afborgunum og verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs en án vaxta. Fyrsta afborgun
af skuldabréfinu er 1. júlí 2012.
Á vef Tollstjóra eru ítarlegar upplýsingar um niðurfellingu tekjuskatts lögaðila ásamt umsóknareyðublaði.
http://tollur.is/greidsluuppgjor/nidurfelling
NIÐURFELLING TEKJUSKATTS LÖGAÐILA
TOLLSTJÓRI, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, sími: 560 0300, fax: 551 6620, vefur: www.tollur.is
Greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum einstaklinga og lögaðila sem eru og hafa verið í
atvinnurekstri
Alþingi samþykkti þann 18. desember 2010 lög sem breyta skilyrðum þess að einstaklingar og lög-
aðilar geti sótt um greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum samkvæmt lögum nr. 24/2010. Sjá VI. kafla
laga nr. 165/2010.
Skilyrðum laganna hefur verið breytt á þann veg að nú geta lögaðilar og einstaklingar sem eru eða
hafa verið í atvinnurekstri sótt um greiðsluuppgjör á virðisaukaskatti, staðgreiðslu tryggingagjalds,
staðgreiðslu opinberra gjalda og þing- og sveitarsjóðsgjöldum sem gjaldféllu fyrir 1. janúar 2010.
Athygli skal vakin á því að umsækjandi greiðsluuppgjörs skal vera í skilum með skatta og gjöld sem
falla ekki undir greiðsluuppgjör.
Í greiðsluuppgjöri felst að gjaldandi fær frest til greiðslu þeirra gjalda sem undir greiðsluuppgjörið
falla til 1. júlí 2011. Gjöldin bera ekki dráttarvexti á freststímabilinu 1. janúar 2010 til 30. júní 2011.
Að uppfylltum skilyrðum, sem fram koma í lögunum, getur gjaldandi skuldbreytt vanskilum gjalda sem
undir greiðsluuppgjörið falla þann 1. júlí 2011, með því að gefa út skuldabréf til greiðslu vanskilanna.
Skuldabréfið er til 5 ára með mánaðarlegum afborgunum og verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs
en án vaxta. Fyrsta afborgun af skuldabréfinu er 1. júlí 2012.
Á vef Tollstjóra eru ítarlegar upplýsingar um reglur og skilyrði greiðsluuppgjörs ásamt umsóknareyðublaði.
http://www.tollur.is/greidsluuppgjor
GREIÐSLUUPPGJÖR OPINBERRA GJALDA
TOLLSTJÓRI, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, sími: 560 0300, fax: 551 6620, vefur: www.tollur.is
sýna alvarlegan hegðunarvanda sem
eiginlega enginn ræður almennilega
við og þurfa þess vegna að fá sérúr-
ræði. En þetta eru kannski örfáir ein-
staklingar á hverjum tíma fyrir sig.“
Hann segir þessa umræðu oft
hafa komið upp, hvort setja eigi upp
stofnun sem væri á vegum Barna-
verndarstofu en í náinni samvinnu
við geðheilbrigðiskerfið, en bendir á
að það væri þá mjög dýrt úrræði þar
sem manna þyrfti mjög mörg störf
fyrir örfáa einstaklinga. „Þessi stofn-
un er ekki til í dag en í staðinn reyna
menn að skraddarasníða fósturúr-
ræði, það er styrkt fóstur með auk-
inni mönnun, eða þá að þessi börn
eru vistuð á meðferðarheimilum
Barnaverndarstofu til lengri tíma.
Dýrt úrræði
Ólafur segir að velferðarráðuneyt-
ið mætti skoða hvort ekki borgaði
sig að koma á fót langtímaúrræði í
samvinnu barnaverndaryfirvalda og
Barna- og unglingageðdeildar fyr-
ir allra verstu tilvikin. „Það er ljóst
að svoleiðis stofnun yrði örugglega
eitt dýrasta úrræðið í kerfinu og ekki
endilega efst á forgangslistanum.
Það er því skiljanlegt að stjórnvöld
stígi varlega til jarðar með að setja
upp nýja stofnun sem yrði mjög dýr
miðað við fjöldann sem nyti þjónust-
unnar.“ Hér eftir sem hingað til þurfi
starfsmenn Barnaverndar, fötlunar-
þjónusta sveitarfélaganna, Barna-
verndarstofa og BUGL að vinna sam-
an að því að koma upp viðunandi
ummönnun og meðferð í hverju til-
viki þegar um er að ræða alvarlega
andfélagslega hegðun og þroska- og
geðraskanir.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á
BUGL „Þessi stofnun er ekki til í dag en í staðinn
reyna menn að skraddarasníða fósturúrræði.“
Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislega misnotkun:
Fimm mánaða fangelsi
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
45 ára karlmann fyrir kynferðislega
áreitni síðastliðinn miðvikudag.
Brotið átti sér stað aðfaranótt 19. júní
í fyrra.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
snert kynfæri konu innanklæða í
kjallaraíbúð í Reykjavík. Maðurinn
kveðst hafa talið að hún væri því
samþykk og neitaði að um kynferð-
isbrot hefði verið að ræða. Maðurinn
sagði að samskipti þeirra um nóttina
hefðu verið með þeim hætti að hann
hefði talið að „eitthvað væri komið í
gang“ á milli þeirra. Hann hefði talið
að hún væri að reyna við sig og hon-
um ekki fundist hann þurfa að spyrja
hvort hann mætti snerta hana með
þeim hætti sem hann gerði.
Nefndi hann í þessu sambandi
ýmis dæmi um kynferðislegt tal og
látbragð sem konan hefði viðhaft um
nóttina. Konan lýsti því fyrir dómi
að hún hefði farið í teiti með mann-
inum ásamt annarri konu eftir lok-
un skemmtistaða. Þau hefðu setið
að drykkju þegar hann sýndi þeim
klámmynd í tölvu sinni. Konan segist
hafa sofnað í sófa mannsins en vakn-
að við að hann var að þukla á klofi
sínu. Konan lýsti því að sér hefði ver-
ið mjög brugðið og misboðið og hún
stöðvað manninn. Hún hefði síðan
hringt í Neyðarlínuna og beðið um
aðstoð. Í upptökunni af símtalinu við
Neyðarlínuna mátti heyra að konan
var í miklu uppnámi.
Dómnum fannst ekki líklegt að
konan hefði gefið til kynna að hún
hefði áhuga á kynferðislegu sam-
bandi við manninn. Fór svo að hann
var dæmdur í fimm mánaða fangelsi,
skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var
honum gert að greiða konunni 300
þúsund krónur.
hanna@dv.is
Erfið mál Ólafur segir að stundum
hafi foreldrar miklar áhyggjur af því
hvar börnin eigi að vera. Þeir treysti
sér ekki til að hafa þau heima vegna
erfiðleika. MYND SIGTRYGGUR ARI