Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Page 12
12 | Úttekt 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
Hannes Smárason, þáverandi stjórn-
arformaður FL Group, bað undir-
mann sinn hjá FL Group, Einar Sig-
urðsson, að stofna reikning hjá
Kaupþingi í Lúxemborg örfáum dög-
um áður en þrír milljarðar króna voru
millifærðir af reikningi FL Group í
Landsbankanum til Lúxemborgar í
apríl 2005, samkvæmt heimildum DV.
Millifærslan átti sér stað án vitneskju
þáverandi forstjóra FL Group, Sigurð-
ar Helgasonar, verðandi forstjóra fé-
lagsins, Ragnhildar Geirsdóttur, sem
og stjórnar félagsins.
Einar, sem var framkvæmdastjóri
rekstrarstýringar og viðskiptaþróunar
hjá FL Group, varð við beiðni Hann-
esar enda var hann starfandi stjórn-
arformaður og stærsti hluthafi fé-
lagsins. Nokkrum dögum síðar fóru
milljarðarnir þrír út af reikningi FL
Group í Landsbankanum án vitn-
eskju annarra stjórnenda eða stjórnar
FL Group. Upphæðin nam á að giska
um helmingi þeirrar innistæðu sem
var inni á reikningi FL Group í Lands-
bankanum á þessum tíma. Reikning-
ur FL Group í Lúxemborg virðist því
hafa verið stofnaður í þeim eina til-
gangi að taka við umræddum fjár-
munum og bar stofnun hans brátt að.
Afdrifarík millifærsla
Umrædd millifærsla Hannesar
Smárasonar fram hjá helstu stjórn-
endum og stjórn FL Group varð meðal
annars til þess að þrír stjórnarmenn í
FL Group, Inga Jóna Þórðardóttir, Árni
Oddur Þórðarson og Hreggviður Jóns-
son, sögðu sig úr stjórn FL Group í lok
júní sama ár og annar stærsti hlut-
hafi félagsins, Saxbygg, seldi nærri 27
prósenta hlut í félaginu í byrjun júlí til
aðila tengdum Baugi. Deilurnar um
millifærsluna marka því upphafið að
yfirtöku Baugs og tengdra aðila á FL
Group. Millifærslan varð meðal ann-
ars einnig til þess að trúnaðarbrestur
varð á milli Hannesar og Ragnhild-
ar, sem tók við starfi forstjóra þann 1.
júní 2005, og hætti hún hjá félaginu í
október sama ár. Áhrifin af millifærslu
Hannesar til Lúxemborgar voru því
umtalsverð.
Hannes yfirheyrður – ekki vitað
hvað varð um peningana
Millifærslan til Lúxemborgar hef-
ur verið til rannsóknar hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra frá 2009.
Talið er að millifærslan geti flokk-
ast sem fjárdráttur og þar með brot á
auðgunarbrotakafla hegningarlaga
en FL Group var almenningshlutafé-
lag á þeim tíma sem hún átti sér stað.
Nýju blóði var hleypt í rannsóknina í
fyrra þegar nýtt vitni gaf sig fram við
efnahagsbrotadeildina og gaf vitnis-
burð sem hjálpaði embættinu að ná
betur utan um málið. Rannsóknin á
millifærslunni er nú í fullum gangi hjá
efnahagsbrotadeildinni samkvæmt
heimildum DV.
Meðal þess sem gerst hefur í rann-
sókninni upp á síðkastið er að Hann-
es Smárason hefur verið yfirheyrður
vegna málsins, líkt og Viðskiptablað-
ið greindi frá í byrjun þessa mánað-
ar. Yfirheyrslan yfir Hannesi fór fram
í síðasta mánuði. Eitt af því sem verið
er að skoða í málinu er hvað varð um
peningana eftir að þeir fóru af reikn-
ingi FL Group í Lúxemborg. Þetta at-
riði hefur aldrei verið upplýst þó nærri
sex ár séu liðin frá því millifærslan átti
sér stað.
Heimildir DV herma að Einar Sig-
urðsson hafi ekki verið yfirheyrður í
rannsókninni á málinu. Ef rætt verður
við hann má ætla að hann verði vitni í
málinu þar sem aðkoma hans að því
mun eingöngu hafa verið sú að stofna
áðurnefndan bankareikning í Lúx-
emborg. Einar kom því ekkert að því
að millifæra milljarðana af reikningi
FL Group á Íslandi og til Lúxemborg-
ar. Svarið við spurningunni um af-
drif peninganna eftir að þeir fóru inn
á reikninginn í Lúxemborg liggur því
væntanlega ekki hjá Einari þó hann
búi yfir upplýsingum um aðdraganda
þess að reikningurinn var stofnaður.
Ragnhildur sagði Fons hafa
fengið peningana
Ragnhildur Geirsdóttir bar því reynd-
ar við í yfirlýsingu í fyrra að hún hefði
séð Excel-skjal frá Kaupþingi í Lúxem-
borg á þessum tíma sem skilja hefði
mátt sem svo að peningarnir hefðu
verið millifærðir til Fons, eignarhalds-
félags Pálma Haraldssonar. Ragn-
hildur sagði í yfirlýsingunni: „Hvar
voru svo peningarnir niður komnir?
Stjórnarformaður FL Group [Hannes
Smárason, innskot blaðamanns] gaf
aldrei viðunandi skýringu á því, að
mínu mati. Hins vegar barst á þess-
um tíma útprentun úr Excel skjali frá
Kaupþingi í Lúxemborg þar sem fram
komu upplýsingar sem mátti skilja
sem svo að að peningarnir hefðu á
einhverjum tímapunkti, í einhverjum
tilgangi, verið millifærðir á Fons. Stað-
festingu á því hef ég hins vegar aldrei
fengið, hvorki hjá stjórnarformannin-
um, bankanum né öðrum aðilum.“
Sú kenning, að Fons hafi feng-
ið milljarðana þrjá, gengur út á það
að fjármunirnir hafi með einum eða
öðrum hætti verið notaðir til að fjár-
magna kaup Fons á danska lággjalda-
flugfélaginu Sterling fyrir 4 milljarða
króna í mars árið 2005. FL Group
keypti Sterling svo aftur, ásamt flug-
félaginu Maersk Air, fyrir 15 milljarða
króna í október sama ár.
Pálmi segist ekkert vita um málið
Pálmi segir aðspurður að peningarnir
hafi ekki komið inn á reikning í sinni
eigu eða félaga sem tengjast honum.
„Þessir peningar hafa aldrei kom-
ið inn á minn reikning eða reikning
neinna félaga sem tengjast mér,“ segir
Pálmi sem ekkert segist vita um málið.
Hann segir jafnframt að hann hafi ekki
verið boðaður í yfirheyrslu hjá efna-
hagsbrotadeildinni í rassíunni í mál-
inu sem nú stendur yfir. Þó Pálmi segi
þetta þá útilokar svar hans ekki þann
möguleika að peningarnir hafi með
einum eða öðrum hætti verið notað-
ir til greiða fyrir kaup Fons á Sterling.
Ein skýring á þessu gæti meðal annars
verið sú að peningarnir hafi haft við-
komu á öðrum reikningi áður en þeir
fóru inn á einhvern annan reikning
sem hugsanlega tengist Pálma Har-
aldssyni eða félagi í hans eigu.
Ástæðan fyrir því að ekki er vit-
að hvað varð um peningana er með-
al annars sú að Ragnhildur fékk eng-
ar upplýsingar um millifærsluna frá
starfsmönnum Kaupþings í Lúxem-
borg þegar hún leitaði eftir þeim.
„Hins vegar neitaði Kaupþing í Lúx-
emborg ítrekað að gefa mér og öðrum
stjórnendum FL Group upplýsing-
ar um peningana og bar við banka-
leynd,“ sagði í yfirlýsingu Ragnhildar
í fyrra.
Ragnhildur sagðist í yfirlýsing-
unni hafa fengið upplýsingar um
millifærsluna um það leyti sem hún
tók formlega við af Sigurði Helgasyni
sem forstjóri FL Group í byrjun júní
2005. Í kjölfarið lét Ragnhildur ein-
staka stjórnarmenn í FL Group vita
af millifærslunni en hún hafði þá gert
árangurslausar tilraunir til að fá upp-
lýsingar um millifærsluna frá Hannesi
Smárasyni og krafist þess að pening-
arnir skiluðu sér aftur inn á reikning
FL Group með vöxtum. Ragnhildur
ræddi málið fyrst við Hreggvið Jóns-
son, varformann stjórnar FL Group,
og svo við aðra stjórnarmenn koll af
kolli.
Hótað með efnahagsbrotadeild
Eftir að stjórn FL Group fékk vitn-
eskju um millifærsluna og að pen-
ingarnir hefðu horfið út af nýstofnuð-
um reikningi FL Group í Lúxemborg
reyndu Ragnhildur og einhverjir af
stjórnarmönnunum að fá Hannes til
að sjá til þess að peningarnir skiluðu
sér aftur til FL Group. Á endanum var
sagt við Hannes að efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra yrði bent á
MILLIFÆRÐI
MILLJARÐA Á
NÝJAN REIKNING Í LÚX
n Undirmaður Hannesar Smárasonar stofnaði bankareikninginn í Lúxemborg í apríl 2005
n Þrír milljarðar af fé FL Group voru millifærðir inn á hann n Hannes Smárason hefur verið
yfirheyrður n Efnahagsbrotadeild rannsakar millifærsluna sem meintan fjárdrátt n Talið
að milljarðarnir hafi verið notaðir til að fjármagna kaup Fons á flugfélaginu Sterling
Segist ekki kannast við milljarðana
Pálmi Haraldsson segist ekki kannast við að
hafa tekið við þremur milljörðum króna sem
millifærðir voru af reikningum FL Group til
Lúxemborgar í apríl árið 2005.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is