Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Qupperneq 17
Nærmynd | 17Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Mazda 3 fólksbifreið,
beinskiptur. Nýskr.
06/2006, ekinn aðeins 75
þús. Álfelgur, sumar- og
vetrardekk, skoðaður
til 2011. Aðeins einn
eigandi. Dekurbíll á góðu
verði. Aðeins 1.250
þúsund kr.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður í síma 867-9880.
Frábær kaup!
Fljótur upp stuttan
metorðastigann
þig á kinnina á sama tíma og hann
setur hnífasettið í bakið á þér.“
Reykjavík Energy Invest
Björn Ingi komst í meirihlutasam-
starf með sjálfstæðismönnum eft-
ir sveitarstjórnarkosningarnar árið
2006. Hann myndaði óvænt meiri-
hluta með þeim eftir að hafa átt í
viðræðum við hina borgarstjórnar-
flokkana. Samstarf hans við sjálf-
stæðismenn sprakk svo í loft upp
eftir að í ljós kom að kaupréttar-
samningur hafi verið gerður við
nokkra starfsmenn Orkuveitunn-
ar í þá nýja fyrirtækinu Reykjavík
Energy Invest, REI, sem átti að sjá
um útrásarverkefni Orkuveitunnar.
Stjórnir Reykjavík Energy Invest og
Geysis Green Energy undirrituðu
samkomulag um sameiningu félag-
anna undir merkjum REI. Ætlun-
in var að skapa leiðandi fyrirtæki á
heimsvísu í fjárfestingum og þróun á
sviði jarðvarma. Ekki voru allir á eitt
sáttir við vinnuhætti Björns Inga og
Vilhjálms og var mikið kvartað und-
an upplýsingaskorti í aðdraganda
sameiningarinnar.
Björn Ingi lýsti því yfir þremur
dögum áður en hann sprengdi meiri-
hlutann að hann væri undrandi á því
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þá-
verandi borgarstjóri, kannaðist ekki
við samningana. Tveimur dögum
eftir þá yfirlýsingu Björns kaus hann
með minnihlutanum í borgarstjórn
um að ekki ætti að selja REI eins og
sjálfstæðismenn vildu gera. Daginn
eftir þá kosningu, 11. október 2007,
mætti hann svo ekki á fund meiri-
hlutans sem haldinn var í Höfða um
ýmis borgarmálefni, eins og fjár-
hagsáætlun borgarinnar. Þess í stað
fundaði hann með Degi B. Eggerts-
syni, Svandísi Svavarsdóttur og Mar-
gréti Sverrisdóttur og myndaði nýtt
meirihlutasamstarf. Svandís hafði
aðeins nokkrum dögum áður farið
fram á afsögn Björns og Vilhjálms úr
borgarstjórn.
Kröfu Svandísar var mætt nokkr-
um mánuðum síðar þegar borgar-
stjórnarmeirihlutinn, sem oft hef-
ur verið kallaður Tjarnarkvartettinn,
sprakk. Ólafur F. Magnússon kom úr
veikindaleyfi og tók sæti Margrétar
Sverrisdóttur, sem hafði verið vara-
maður hans, í borgarstjórn. Hann
ákvað að gera tilkall til borgarstjóra-
stólsins og fór í samstarf með sjálf-
stæðismönnum.
Stofnaði sinn eigin fjölmiðil
Eftir að hafa unnið á nokkrum fjöl-
miðlum eftir brotthvarf sitt af sviði
stjórnmálanna hóf hann eigin rekst-
ur. Hann stofnaði vefmiðilinn Press-
una sem í dag er einn mest lesni
vefur landsins. Þegar rannsóknar-
skýrsla Alþingis kom út kom í ljós
að Björn Ingi hafði fengið hundruð
milljóna að láni hjá íslensku bönk-
unum og varð það til þess að hann
hvarf úr ritstjórastóli Pressunnar.
Við starfinu tók þá gamall samstarfs-
maður Björns Inga úr Framsóknar-
flokknum, Steingrímur Sævarr, sem
áður hafði gengt starfi fréttastjóra á
vefmiðlinum.
Björn Ingi fór þó ekki langt. Hann
varð útgefandi miðilsins og settist í
stól stjórnarformanns Vefpressunn-
ar, sem á og rekur Pressuna. Eftir það
hefur Pressan sótt í sig veðrið, sem
og útgáfan Vefpressan. Útgáfan hef-
ur síðan stofnað veðmiðilinn bleikt.
is og vefverslanirnar mona.is, sem
selur hjálpartæki ástarlífsins, og but-
ik.is, sem selur alls konar vörur.
Í samtali við Viðskiptablaðið á
fimmtudag sagði Björn Ingi að Vef-
pressan væri farin að skila hagnaði og
að erfiður rekstur á fyrsta ári Press-
unnar hefði verið eðlilegur. Pressan
var rekin með um 30 milljóna króna
tapi fyrsta starfsárið. „Fyrsta árið
þurftum við að fara í töluverða upp-
byggingu og stofnkostnað og töpuð-
um um 30 milljónum króna á fyrsta
rekstrarárinu. Það þætti flestum ansi
vel sloppið og hefði verið óhugsandi
fyrir hrun,“ sagði hann við blaðið.
Ekki liggur ljóst fyrir hvernig þessi
stofnkostnaður var fjármagnaður, en
skuldir Björns Inga hlaupa á hundr-
uðum milljóna króna.
Auk Björns Inga Hrafnssonar
eru eigendur Vefpressunnar Arnar
Ægisson, Salt Investment, Vátrygg-
ingafélag Íslands (VÍS), Ólafur Már
Svavarsson, Steingrímur S. Ólafs-
son, Guðjón Elmar Guðjónsson og
Verksmiðjan Norðurpóllinn. Fyrir-
tækið Salt Investment er svo í eigu
útrásarvíkingsins Róberts Wess-
mann og VÍS er í eigu Exista, sem
er svo meðal annars í eigu útrás-
arbræðranna Lýðs og Ágústs Guð-
mundssona.
Með hálfan milljarð að láni
Björn Ingi hóf fjárfestingastarf-
semi þegar hann var aðstoðarmað-
ur Halldórs Ásgrímssonar. Hann
græddi tugi milljóna á viðskiptum
með hlutabréf í íslenskum bönkum
og öðrum fyrirtækjum. DV greindi
frá því 30. janúar árið 2009 að Björn
Ingi hefði fengið 60 milljóna kúlulán
frá KB banka árið 2005 til að kaupa
hlutabréf í bankanum. Hann var þá
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar forsætisráðherra. Björn Ingi
seldi hlutabréfin í bankanum og
græddi meira en 20 milljónir sam-
kvæmt heimildum blaðsins. Á þeim
tíma þegar hann var aðstoðarmaður
Halldórs, og eftir að hann fór sjálfur
út í pólitík, hafði hann háleitar hug-
myndir um að Ísland yrði að alþjóð-
legri fjármálamiðstöð.
Þegar rannsóknarskýrsla Alþing-
is um málefni tengd bankahrun-
inu kom út kom í ljós að Björn Ingi
var einn þriggja fjölmiðlamanna
sem hafði fengið óvenjulega háar
lánagreiðslur úr gömlu bönkun-
um. Hann fékk 563 milljóna króna
kúlulán frá Kaupþingi til hlutabréfa-
kaupa. Lánið gjaldféll og sat Björn
Ingi uppi með skuldirnar í félaginu
Caramba – Hugmyndir og orð ehf.
sem í fyrirtækjaskrá er skráð sem út-
gáfufyrirtæki án prentsmiðju. Félag-
ið hefur ekki skilað ársreikningi síð-
ustu ár og er staða fyrirtækisins óljós.
Skuldirnar virðast samt ekki sligandi
fyrir Björn sem er einn fárra hluthafa
og stjórnarformaður í Vefpressunni
og nokkrum vefmiðlum.
„Lán til Björns Inga Hrafnsson-
ar voru öll veitt af Kaupþingi banka
hf. Annars vegar voru lánin til Björns
beint en þau voru hæst í lok septemb-
er 2008, rúmar 100 milljónir króna.
Hins vegar voru lán veitt til félags í
hans eigu, Caramba-hugmyndir og
orð ehf. Þau lán voru því sem næst
öll í formi framvirkra samninga um
hlutabréf. Þau hlutabréf sem hæstu
samningarnir voru um voru í Kaup-
þingi, Exista, Bakkavör og Spron. Þá
vekur athygli að í september 2008
gerði félagið nýja samninga um kaup
á hlutabréfum Exista, sem námu um
230 milljónum króna. Við gerð þeirra
samninga ríflega tvöfölduðust skuld-
ir félagsins,“ segir um lánveitingar
íslensku bankanna til Björns Inga í
skýrslunni. Caramba hefur ekki skil-
að ársreikningi síðan árið 2007.
Ekki var einungis fjallað um lán-
veitingar bankanna til Björns Inga
í skýrslunni og fékk hann raunar
nokkuð slæma útreið í skýrslunni.
Í kaflanum um styrki og fríðindi til
stjórnmálaflokka og stjórnmála-
manna segir að íslenskir stjórnmála-
menn virðist ekki hafa þegið boðs-
ferðir frá bönkunum í miklum mæli
en að Björn Ingi Hrafnsson hafi þó
flogið til London, gist á Radisson
Edwardian í byrjun árs 2007 og ver-
ið í veislu á Claridge’s Hotel vegna
Kaupthing Singer & Friedlander.
„Björn Ingi Hrafnsson veiddi líka í
boði Glitnis í Laxá í Leirársveit dag-
ana 10.-11. júlí 2007, sem stjórnar-
maður í Orkuveitunni,“ segir í skýrsl-
unni.
n Var farinn að skrifa fyrir Morgunblaðið 11 ára gamall n Hætti sem þingfréttaritari
og gerðist stjórnmálamaður n Fékk hundruð milljóna lánuð frá bönkunum og byggði
upp fjölmiðlaveldi n Gamall félagi segir hann hafa meiri metnað en hugsjónir
„Hann græddi
tugi milljóna
á viðskiptum með
hlutabréf í íslenskum
bönkum og öðrum
fyrirtækjum.
Tjarnarkvartettinn Björn Ingi myndaði meirihluta með Vinstri grænum, Samfylk-
ingunni og F-listanum og sameinaði þar með gamla Reykjavíkurlistann í meirihlutasam-
starfi. Mynd SIGTRyGGuR ARI JóHAnnSSon
Samstarfsmenn í REI-málinu
Björn Ingi og Vilhjálmur, fyrrverandi
borgarstjóri, voru hart gagnrýndir fyrir
vinnubrögð sín í kringum REI-málið.
Mynd GuðMunduR VIGFúSSon
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað