Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Síða 18
18 | Erlent 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
Julian Assange, stofnandi og aðalrit-
stjóri uppljóstrunarsíðunnar Wiki-
leaks, hefur gripið til þess ráðs að ráða
til sín lögfræðinginn Alan Dershowitz,
einn þekktasta málafærslumann síð-
ari tíma. Það þykir koma mjög á óvart
að Dershowitz hafi samþykkt að ganga
til liðs við lögfræðingateymi Assange,
sérstaklega í ljósi þess að hann hefur
opinberlega tekið undir með Hillary
Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, um að alþjóðasamfélaginu staf-
aði hætta af Wikileaks. Dershowitz
hefur þó aldrei verið hræddur við að
taka erfiða slagi í réttarsalnum, en
frægasta málið sem hann hefur unnið
er sennilega mál fyrrverandi ruðning-
skappans O.J. Simpsons sem var sýkn-
aður af ákæru um að hafa myrt fyrr-
verandi eiginkonu sína og ástmann
hennar.
Ráðinn sem ráðgjafi
í Bandaríkjunum
Dershowitz var ráðinn af Assange sér-
staklega til varnar stefnu bandaríska
dómsmálaráðuneytisins um að fá
uppgefin samskipti Assange á Twitter-
samskiptasíðunni. Íslendingar ættu
að kannast vel við málið því í sömu
stefnu er farið fram á að Twitter láti af
hendi öll gögn sem tengjast samskipt-
um Birgittu Jónsdóttur, þingmanni
Hreyfingarinnar. Málið er tekið fyrir í
Virginíu-ríki, en þangað mun Assange
ekki fara. Hann er enn að bíða réttar-
halda í Bretlandi, þar sem tekin verð-
ur til umfjöllunnar beiðni sænskra yf-
irvalda um að fá hann framseldan til
Svíþjóðar þar sem Assange er grunað-
ur um kynferðisglæpi.
Vill vernda frjálsa fjölmiðlun
Dershowitz hefur verið prófessor í lög-
fræði við Harvard-háskóla síðan 1967,
en hann var aðeins 28 ára gamall þeg-
ar hann var skipaður prófessor – sá
yngsti til að hljóta þann heiður í sögu
skólans. Hann hefur ætíð lagt mikla
áherslu á að vernda og upphefja fyrstu
stjórnarskrárbreytingu (first amend-
ment) bandarísku stjórnarskrárinnar,
sem kveður meðal annars á um mál-
frelsi og frjálsa fjölmiðlun. Dershowitz
sagði í viðtali við vefsíðuna politico.
com: „Ég vinn að þessu máli því ég tel
að til að vernda fyrstu stjórnarskrár-
breytinguna sé nauðsynlegt að vernda
nýja rafræna miðla af fullum krafti.“
Dershowitz vakti mikla athygli á 7.
áratug síðustu aldar þegar hann tók
að sér að verja klámmyndaleikarann
Harry Reems sem var ákærður fyr-
ir að dreifa ósiðlegu efni – sem í hans
tilfelli var hin fræga klámmynd Deep
Throat. Reems var sakfelldur í Hæsta-
rétti Bandaríkjanna en Dershowitz
tókst hins vegar að fá dómnum hnekkt
á grundvelli tjáningarfrelsis.
Frægir skjólstæðingar
Þeir félagar O.J. Simpson og Harry
Reems eru ekki einu skjólstæðingar
Dershowitz sem má kalla nafntogaða.
Dershowitz tók einnig að sér mál Patty
Hearst, erfingja Hearst-fjölmiðlaveld-
isins, sem er ef til vill frægasta fórn-
arlamb hins svokallaða Stokkhólms-
heilkennis. Hearst var rænt árið 1974
af bandarísku byltingarsamtökunum
SLA (Symbionese Liberation Army)
en heillaðist síðar af málstað þeirra
og gekk til liðs við samtökin. Hún að-
stoðaði samtökin síðan við fjölmarga
glæpi, aðallega bankarán.
Dershowitz mistókst reyndar að
fá Hearst sýknaða af glæpum sínum,
rétt eins og honum mistókst að fá
bandaríska hnefaleikakappann Mike
Tyson sýknaðan af nauðgun. Tyson
var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir
að nauðga Desiree Washington árið
1992, en var hins vegar sleppt eftir að
hafa setið inni í þrjú ár.
Dershowitz tókst hins vegar að
ná sigri í máli Claus von Bülow, sem
var sakaður um að hafa reynt að
myrða eiginkonu sína, Sunny, árið
1982. Von Bülow var gefið að sök að
hafa sprautað eiginkonu sína með
óeðlilega miklu magni af insúlíni,
sem skildi hana eftir í dauðadái. Var
hann sakfelldur árið 1982, þar sem
óvéfengjanlegar sannanir lágu fyrir
um að hann hefði vissulega spraut-
að Sunny með insúlíni. Dershowitz
tók málið að sér og tókst að sýna
fram á að sönnunargögnin sem not-
uð voru gegn von Bülow hefði verið
aflað með ólöglegum hætti. Von Bül-
ow var í kjölfarið sýknaður af öllum
ákærum, en Sunny náði aldrei aftur
meðvitund og lést árið 2008 eftir 26
ár í dauðadái.
Stuðningsmaður Ísrael
Dershowitz er gyðingur og hefur löng-
um stutt málstað Ísraels á alþjóðavett-
vangi. Það kann því að skjóta skökku
við að hann skuli taka að sér mál Ass-
ange, en mikið af þeim skjölum sem
hafa verið birt á Wikileaks hafa kom-
ið ísraelskum stjórnvöldum einkar
illa. Þá hefur Assange jafnframt verið
sakaður um að hafa orðið sér úti um
heimildarmann í Rússlandi sem er
þekktur gyðingahatari sem neitar því
að helför gyðinga í heimstyrjöldinni
síðari hafi átt sér stað.
Styður pyntingar
Dershowitz vakti mikla athygli árið
2002 þegar hann gaf út grein í banda-
ríska dagblaðinu San Francisco
Chronicle þar sem hann lagði í raun
blessun sína yfir pyntingar, reyndist
leika grunur á yfirvofandi hryðjuverk-
um. Greinin bar titilinn „Viltu pynt-
ingar? Fáðu réttarheimild,“ þar sem
hann færði rök fyrir því að stjórnvöld-
um ætti að vera heimilt að beita pynt-
ingum í hvert skipti sem svokallað „tif-
andi tímasprengjuástand“ myndaðist.
Gagnrýnendur voru fljótir að benda á
brotalamir í málflutningi Dershowitz,
en leiða mál líkur að því að hann hafi
skrifað grein sína í miklu tilfinninga-
uppnámi í kjölfar árásanna á tvíbura-
turnanna í New York þann 11. sept-
ember árið 2001.
Elskar erfið mál
Sú staðreynd að Dershowitz hafi sam-
þykkt að ganga til liðs við lögfræði-
teymi Julian Assange undirstrikar enn
og aftur þá ástríðu sem hann er hald-
inn þegar erfið mál eiga í hlut. Um
Dershowitz hefur verið sagt að hann
taki mál í rauninni ekki að sér nema
allir aðrir telji þau „óvinnanleg.“ Þrátt
fyrir það hefur hann til að mynda haft
betur í 13 af 15 morðmálum sem hann
hefur tekið að sér, en frægasta málið
var tvímælalaust réttarhöldin yfir O.J.
Simpson.
Ljóst er að úrskurðurinn í máli O.J.
Simpson kom flestum í Bandaríkjun-
um, og í heiminum, í opna skjöldu.
Sennilega þó ekki Dershowitz. Hann
hefur látið hafa eftir sér að: „málsvörn
skjólstæðings sem er bæði sekur og
fyrirlitlegur, þar sem sigurlíkur eru
nánast engar, er bæði áskorun og ein
helsta köllun sem til er í minni starfs-
stétt.“
Fari svo að Assange verði framseld-
ur til Svíþjóðar, og þá jafnvel til Banda-
ríkjanna, ætti hann að geta andað að-
eins léttar – viti hann af Dershowitz í
sínu horni.
n Alan Dershowitz er einn frægasti
málafærslumaður 20. aldar n Hann hefur
samþykkt að ganga til liðs við lögfræði-
teymi Julians Assange n Elskar erfið mál,
sérstaklega ef skjólstæðingar eru sekir
ASSANGE RÆÐUR
STJÖRNULÖGFRÆÐING
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Alan Dershowitz Hann
elskar erfið mál og kærir
sig kollóttan um sekt eða
sakleysi skjólstæðinga sinna.
Julian Assange Hann bætist nú í hóp þekktra skjólstæðinga Dershowitz.
„Málsvörn skjólstæð-
ings sem er bæði
sekur og fyrirlitlegur, er bæði
áskorun og ein helsta köllun
sem til er í minni starfsstétt.
Skjólstæðingar
Dershowitz
HARRY
REEMS
Ákærður fyrir
að dreifa klámi
eftir að hann lék
í Deep Throat.
PATTY
HEARST
Ákærð fyrir
aðild að banka-
ránum og
hryðjuverkum
með SLA.
CLAUS
VON
BÜLOW
Ákærður fyrir
morðtilraun
á Sunny,
eiginkonu sinni.
MIKE
TYSON
Ákærður
fyrir nauðgun
á Desiree
Washington.
O.J.
SIMPSON
Ákærður
fyrir morð á
fyrrverandi
eiginkonu sinni
og elskhuga
hennar.
Sýknaður
Sýknaður
Sýknaður
Sekur
Sek