Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 19
Erlent | 19Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
25% afsláttur
af hvítum háglans innréttingum
Sérhæfum okkur
í innréttingum
fyrir heimili á
lágmarksverði
Varnarmálaráðherra Þýskalands,
Karl-Theodor zu Guttenberg, virð-
ist hafa stundað grófan ritstuld við
gerð doktorsritgerðar í lögfræði sem
hann skilaði árið 2006. Þýska dag-
blaðið Süddeutsche Zeitung greindi
frá þessu á miðvikudag. Málið hef-
ur vakið mikla athygli í Þýskalandi
en Guttenberg hefur undanfarin tvö
ár verið vinsælasti stjórnmálamað-
ur Þýskalands samkvæmt skoðana-
könnunum. Ritgerð Guttenbergs
fjallaði um stjórnarskrár Bandaríkj-
anna og Evrópusambandsins og var
henni skilað til háskólans í Bayreuth
og hlaut hann ágætiseinkunn fyr-
ir verkið. Nú er hins vegar ljóst að
maðkur var í mysunni, en háskóla-
ráð Bayreuth-háskóla hefur nú tekið
málið til rannsóknar.
Hefði verið heiður
Klara Obermüller, 70 ára bókmennta-
fræðingur frá Sviss, er á meðal þeirra
sem hafa stigið fram og bent á að
Gutt enberg hafi tekið frá henni efni
án þess að geta heimilda. „Mér finnst
þetta bæði neyðarlegt og hræðilegt, en
ætli maður verði ekki að reikna með
að slíkt geti gerst nú til dags,“ sagði
Obermüller. „Það hefði verið lítið mál
fyrir hann að setja tilvísunarnúmer við
textann og benda á hvaðan hann var
tekinn í neðanmálsgrein. Hefði hann
gert það, hefði mér fundist heiður af.“
Textinn sem Guttenberg tók
ófrjálsri hendi birtist fyrst í grein
Obermüller í svissneska blaðinu Neue
Zürcher Zeitung (NZZ) árið 2003.
Obermüller sagði að hún myndi þrátt
fyrir allt ekki fara fram á neinar skaða-
bætur, en ritstjóri NZZ, Felix Müller,
sagði að hann myndi í það minnsta
sækjast eftir afsökunarbeiðni frá Gutt-
enberg.
Fjöldi annarra dæma
Tilfelli Obermüller verður að telj-
ast grafalvarlegt þar sem Gutten-
berg minnist ekki á hana einu orði
í heimildaskrá. Það sama gildir um
ritstuld frá Wilfred Marxer, rann-
sóknarstjóra Liechtenstein-stofn-
unarinnar í lögfræði. Guttenberg
tók orðrétt fjölda kafla úr ritgerð
Marxer um ríkisatkvæðagreiðslur í
Bandaríkjunum. „Hann hefði auð-
veldlega geta umorðað þessa kafla
og gert þá að sínum,“ sagði Marxer.
Aðrir höfundar eru nefndir á
nafn í heimildaskrá Guttenbergs,
en fjöldi þeirra hefur kvartað yfir
því að varnarmálaráðherrann hafi
engu að síður ekki farið rétt að við
heimildaskráningu. Hann hafi til
að mynda getið heimilda á einum
stað, en nýtt sömu heimild ann-
ars staðar án þess að geta hennar.
Stjórnmálafræðingurinn Barbara
Zehpfennig er einn þessara höf-
unda. „Þetta er klárt brot á reglum
fræðimanna.“
Málið til rannsóknar
Leiðbeinandi Guttenbergs við ritgerð-
ina, Peter Päberle, kom skjólstæðingi
sínum til varnar og sagði verk hans
einfaldlega fyrsta flokks. Segja frétta-
skýrendur í Þýskalandi að frægð Gutt-
enbergs og vinsældir gætu hjálpað
honum við að verjast ásökunum um
ritstuld. Mál hans er þrátt fyrir það
til rannsóknar í háskólanum í Bayr-
euth og einnig í Sambandi þýskra há-
skóla (Deutsche Hochschulverband).
Talsmaður sambandsins sagði á mið-
vikudag að „frægð eigi ekki að vera
varnarskjöldur.“ Nái háskólaráð Bayr-
euth-háskóla að sanna að um ritstuld
hafi verið að ræða, verður Guttenberg
að taka afleiðingunum. Hann verður
væntanlega sviptur doktorsgráðunni.
Varnarmálaráðherra Þýskalands, Karl-Theodor zu Guttenberg, er sak-
aður um ritstuld n Hefur verið vinsælasti stjórnmálamaður Þýskalands
undanfarin tvö ár n Verður líklega sviptur doktorsgráðu í lögfræði
RITSTULDUR
RÁÐHERRA
„Þetta
er klárt
brot á reglum
fræðimanna.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Karl-Theodor Freiherr zu
Guttenberg. Varnarmála-
ráðherra Þýskalands er af
aðalsættum og er vinsælasti
stjórnmálamaður Þýskalands.
Það kann nú að breytast.