Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Síða 30
Skúli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var í Vogaskóla, Héraðsskólanum í Reykjanesi,
stundaði nám við Menntaskólann á
Ísafirði og Ármúlaskóla, lauk kenn-
araprófi frá Kennaraháskóla Íslands
1992 og stundaði nám í sálfræði við
Háskóla Íslands í tvö ár.
Skúli starfaði í mörg ár á sambýli
fyrir einhverfa og á sambýli fyrir fjöl-
fatlaða. Þá starfaði hann um árabil við
Kleppsspítalann og á unglingageð-
deild. Hann kenndi við Einholtsskóla
í Reykjavík 1994–96 og síðan við Dal-
víkurskóla 1997–2001, við Grunnskól-
ann í Sandgerði 2001–2004, við Öldu-
túnsskóla í Hafnarfirði 2004–2008 en
hefur starfað hjá Námsmatsstofnun
síðan.
Skúli hefur sungið með ýmsum
kórum, s.s. Kór Menntaskólans á Ísa-
firði, Kór Fjölbrautaskólans í Ármúla,
Samkór Svarfdæla og í Karlakórnum
Víkingum á Suðurnesjum.
Fjölskylda
Skúli kvæntist 11.7. 1998 Lindu Björk
Holm, f. 18.6. 1961, sjúkraliða og við-
skiptafræðingi og forstöðumanni við
sambýli. Hún er dóttir Jóns H. Holm,
fyrrv. leigubifreiðarstjóra í Danmörku,
og Eddu Vilborgar Guðmundsdóttur,
forstöðukonu við sambýli í Reykjavík.
Börn Skúla og Lindu Bjarkar eru
Þórdís Edda Holm Skúladóttir, f. 20.4.
1992, nemi; Sturla Holm Skúlason, f.
26.6. 1995, nemi.
Systkini Skúla eru Sigurður Péturs-
son, f. 30.1. 1955, d. 1.1. 1983, prent-
ari, var búsettur í Reykjavík; Ásta Pét-
ursdóttir, f. 13.4. 1956, nú látin, var
búsett í Bandaríkjunum; Margrét Pét-
ursdóttir, f. 3.11. 1966, aðstoðarmað-
ur tannlæknis og vþm., búsett í Hafn-
arfirði.
Foreldrar Skúla: Pétur Sigurðs-
son, f. 2.7. 1928, d. 16.12. 1996, for-
stjóri Hrafnistu og alþm., og Sigríður
Sveinsdóttir, f. 1.7. 1931, skrifstofu-
maður.
Ætt
Pétur var sonur Sigurðar, kaup-
manns í Keflavík Péturssonar, sjó-
manns í Keflavík Jónssonar, frá Kata-
dal í Húnavatnssýslu Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg, systir
Þórðar, langafa Jóns Guðmundsson-
ar, oddvita á Reykjum í Mosfellssveit,
og langafa Vigdísar, móður Láru
Ragnarsdóttur, fyrrv. alþm. Þórður
var afi Erlendar Ó. Péturssonar, for-
manns KR, sem var móðurbróðir
Péturs Guðfinnssonar, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins. Ingi-
björg var dóttir Jóns, b. og skipa-
smiðs í Engey Péturssonar, b. í Engey
Guðmundssonar. Meðal barna Pét-
urs í Engey voru Guðrún, langamma
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra og Sveins, afa Bjarna Bene-
diktssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, Sigríður, langamma Péturs
Sigurgeirssonar biskups og Péturs
Sigurðssonar, fyrrv. forstjóra Land-
helgisgæslunnar, og Halldóra, lang-
amma Gunnars í Þórshamri, föður
Þorsteins, leikara og arkitekts.
Móðir Péturs var Birna Ingibjörg,
dóttir Hafliða, sjómanns í Reykja-
vík, bróður Bjarna vígslubiskups, afa
Guðrúnar Ágústsdóttur, fyrrv. for-
seta borgarstjórnar. Hafliði var son-
ur Jóns, tómthúsmanns í Mýrarholti
í Reykjavík Oddssonar, b. á Vind-
ási í Kjós Loftssonar. Móðir Jóns var
Kristín Þorsteinsdóttir, systir Kristín-
ar eldri, langömmu Þuríðar Pálsdótt-
ur óperusöngkonu og Jórunnar Viðar
tónskálds, móður Katrínar Fjeldsted,
læknis og fyrrv. borgarfulltrúa og
alþm. Móðir Hafliða var Ólöf, systir
Guðnýjar, ömmu Jóhannesar Zoega
hitaveitustjóra, föður Tómasar Zoega
yfirlæknis, Guðrúnar Zoega verk-
fræðings og Benedikts Jóhannesson-
ar forstjóra. Ólöf var dóttir Hafliða,
tómthúsmanns í Nýjabæ í Reykjavík
Nikulássonar og Guðfinnu Péturs-
dóttur, systur Jóns í Engey, afa Sigurð-
ar, föður Péturs.
Sigríður er dóttir Sveins, bróður
Fannýjar Kristínar, móður Ingvars
Gíslasonar, fyrrv. alþm. og ráðherra.
Sveinn var sonur Ingvars, alþm. á
Ekru Pálmasonar, b. á Ásum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu Sigurðssonar.
Móðir Pálma í Ásum, var Ingibjörg,
systir Elísabetar, langömmu Árna
Elfar, tónlistarmanns og myndlist-
armanns. Bróðir Ingibjargar var Er-
lendur, hreppstjóri í Tungunesi, afi
Sigurðar, skólameistara á Akureyri,
föður listmálaranna Steingríms og
Örlygs, föður Sigurðar myndlistar-
manns. Annar bróðir Ingibjargar
var Jón, alþm. í Stóra-Dal, faðir Þor-
leifs alþm. og Pálma, föður Jóns al-
þingisforseta, föður Pálma, fyrrv.
alþm. og ráðherra. Móðir Ingvars á
Ekru var Guðrún Björg Sveinsdótt-
ir. Móðir Sveins Ingvarssonar var
Margrét Guðmundína, dóttir Finns
Guðmunssonar og Önnu Margrétar
Guðmundsdóttur. Móðir Sigríðar var
Ásta Fjeldsted.
30 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
Guðni fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Vesturbænum. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1961, fyrrihluta-
prófi í verkfræði frá Háskóla Íslands
1964, lokaprófi í eðlisfræði (Dipl.
Phys.) með sérhæfingu í kjarneðlis-
fræði frá TU Karlsruhe 1968, dokt-
orsprófi frá sama skóla (Dr. rer.nat.)
1972, en ritgerðin fjallaði um hnignun
óhlaðinna miðeinda.
Guðni stundaði rannsóknir í ör-
eindaeðlisfræði við TU Karlsruhe
1969–72, þar af í eitt ár við CERN,
Kjarneðlisfræðistofnun Evrópu í Genf,
stundaði rannsóknarstörf í samvinnu
við rússneska vísindamenn í Serpu-
khov í Rússlandi 1973–74, var verk-
fræðingur hjá CERN við uppsetningu
tölvubúnaðar og gerð forrita til stjórn-
unar og gagnasöfnunar fyrir neutrino-
geisla frá prótónusynchroton (SPS)
1974–79, var síðan sérfræðingur á
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands
1979–82 en réðst þá til hugbúnaðar-
fyrirtækisins Tölvars ehf. Hann starf-
rækti það fyrirtæki lengi í samstarfi við
aðra en er nú einn eigenda. Starfssvið
Tölvars ehf. er einkum gagnagrunns-
forritun og rauntímakerfi, en við-
skiptavinir eru opinberir aðilar, verk-
fræðistofur og iðnfyrirtæki.
Guðni fékkst um árabil við stunda-
kennslu og prófdómarastörf í eðlis-
fræði við Háskóla Íslands og hefur
einnig setið í dómnefndum vegna
stöðuveitinga við skólann.
Guðni hefur starfað í Sjálfstæðis-
flokknum, var m.a. í allmörg ár í stjórn
Sjálfstæðisfélags Seltirninga og hefur
setið í nefndum og ráðum fyrir flokk-
inn á Seltjarnarnesi og í Reykjanes-
kjördæmi.
Fjölskylda
Guðni kvæntist 12.10. 1963 Þóru Th.
Hallgrímsson, f. 9.10. 1943, en hún er
dóttir Thors G. Hallgrímssonar, fram-
kvæmdastjóra í Reykjavík, og k.h.,
Ólafíu Guðlaugar Jónsdóttur. Þóra
hefur starfað lengi að ferðamálum,
var. m.a. í mörg sumur leiðsögumað-
ur erlendra ferðamanna um Ísland.
Börn Guðna og Þóru eru Þóra, f.
24.3. 1964, BA í ensku og frönsku, en
eiginmaður hennar er Vilhelm Stein-
sen, löggiltur dómtúlkur og skjala-
þýðandi, og eiga þau hjón og reka
Þýðingarstofuna í Reykjavík en börn
þeirra eru Ásta Kristensa, f. 1.3. 1994,
Una Kamilla, f. 17.12. 1996, og Garð-
ar Thor, f. 10.5. 1998; Gunnar, f. 3.2.
1968, PhD í rafmagnsverkfræði frá
DTU í Kaupmannahöfn en kona hans
er Sigríður Hilda Radomirsdóttir, raf-
magnsverkfræðingur og framhalds-
skólakennari í Kaupmannahöfn og er
sonur þeirra Egill Milan, f. 23.6. 1998;
Kjartan, f. 13.11. 1972, slagverksleikari
og tónlistarkennari, en dóttir hans og
Karenar Maríu Jónsdóttur, sviðsstjóra
við Listaháskóla Íslands, er Gígja, f.
7.11. 2000.
Bræður Guðna eru Benedikt
Gunnar Sigurðsson, f. 22.1. 1945, fyrr-
verandi starfsmaður Landsvirkjun-
ar, kvæntur Áslaugu Þorleifsdóttur
húsmóður og eiga þau tvö börn, Ástu
Sigríði og Sigurð Gunnar; Ingibergur
Sigurðsson, f. 17.5. 1947, vörubifreið-
arstjóri á Þrótti, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðna: Sigurður Bene-
diktsson, f. 22.9. 1908, d. 4.11. 1976,
bifreiðarstjóri í Reykjavík, og kona
hans, Ásta Guðnadóttir, f. 12.9. 1915,
d. 1.2.2008, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Benedikts, sjó-
manns og verkamanns í Reykjavík,
bróður Kristbjargar, móður Marteins,
verkfræðings á Selfossi, föður Björns,
verkfræðings og arkitekts. Krist-
björg var einnig móðir Erlends, fyrrv.
sýslumanns og bæjarfógeta á Seyð-
isfirði, föður Jóns lögmanns. Bene-
dikt var einnig bróðir Þóru, móður-
ömmu Ingjalds Hannibalssonar. Þá
var Benedikt bróðir Soffíu, ömmu
Georgs Ólafssonar, fyrrverandi for-
stöðumanns Samkeppnisráðs. Bene-
dikt var sonur Péturs, b. í Miðdal í Kjós
Árnasonar, b. í Hagakoti, bróður Guð-
mundar, langafa Guðmundar, föður
Einars Más rithöfundar. Árni var son-
ur Árna, b. á Vatnsenda Pétursson-
ar, vefara á Vatnsenda Jónssonar, b.
á Rauðará Ólafssonar. Móðir Péturs í
Miðdal var Guðný Magnúsdóttir, b. á
Stærribæ í Grímsnesi Bjarnasonar, b.
í Efstadal Jónssonar. Móðir Bendikts
var Margrét, dóttir Benjamíns Jóns-
sonar, b. í Miðdal og Flóakoti í Kjós, og
Kristínar Þorkelsdóttur, b. í Prestshús-
um í Húnavatnssýslu Þorlákssonar.
Móðir Sigurðar var Guðrún Þór-
arinsdóttir, b. á Harðbala í Kjós, Ingj-
aldssonar, b. í Eyjum og á Eyjahóli,
Ingjaldssonar og Guðrúnar Gríms-
dóttur. Móðir Hólmfríðar var Jón, b.
í Bæ, Ólafsson og Hólmfríður Þórð-
ardóttir.
Ásta, móðir Guðna, var dóttir
Guðna, kolakaupmanns í Reykjavík
Einarssonar, b. að Hömrum í Eystri-
hreppi Jónssonar, b. að Minna-Hofi
Gíslasonar. Móðir Einars var Guðný
Einarsdóttir, b. að Svínavatni í Gríms-
nesi, langafa Sigurðar Hlíðars yfir-
dýralæknis. Móðir Guðna kolakaup-
manns var Guðrún Björnsdóttir, b. á
Hjallanesi á Landi Björnssonar, b. þar
Gíslasonar.
Móðir Ástu var Jóna Ása Eiríks-
dóttir, stýrimanns í Reykjavík Eiríks-
sonar.
Guðni Georg Sigurðsson
Eðlisfræðingur
85
ára
85
ára
Skúli Pétursson
Kennari og starfsmaður Námsmatsstofnunar
70 ára á föstudag
50 ára á laugardag
Viggó fæddist á Húsavík og ólst þar upp hjá móður sinni og þremur systkinum. Hann fór
fjórtán ára til Reykjavíkur, var vinnu-
maður og kúskur á Blikastöðum í
Mosfellsbæ og hóf sautján ára störf
við matvöruverslun Sláturfélags Suð-
urlands við Laugaveg 42 þar sem
hann var verslunarstjóri um árabil.
Viggó stofnaði, ásamt vini sín-
um, verslanirnar Hlíðakjör og Litla-
kjör sem þeir ráku saman í fyrstu.
Viggó og fjölskylda hans ráku síð-
an þessar verslanir í mörg ár. Hann
stofnaði einnig, ásamt öðrum, kjöt-
iðnaðarstöðina Kjötver hf. og var
framkvæmdastjóri og stjórnarfor-
maður hennar fyrstu tíu árin. Þá
stofnaði hann og rak heildverslunina
Sæfell sf. sem stundaði inn- og út-
flutning. Viggó hætti smásölurekstri
1973.
Viggó stofnaði Jógastöðina Heilsu-
bót, Hátúni 6a, 1974, og veitti hennar
forstöðu í fjórtán ár er nýir eigendur
tóku við. Hann lauk síðan löngum og
annasömum starfsferli sem fulltrúi
hjá Verðlagsstofnun.
Viggó var formaður Félags kjöt-
verslana í Reykjavík um skeið og var
frumkvöðull að og framkvæmdastjóri
við stofnun og rekstur Innkaupa-
sambands matvöruverslana, IMA,
sem var starfrækt um langt árabil.
Þá stundaði hann hestamennsku og
jarðrækt á jörð sinni á Snæfellsnesi.
Fjölskylda
Viggó kvæntist 20.3. 1954 Kolbrúnu
Guðmundsdóttur, f. 21.12. 1932,
snyrtisérfræðingi og sjúkraliða. Hún
er dóttir Guðmundar Halldórssonar,
framkvæmdastjóra Brúar og forseta
Landssambands iðnaðarmanna, og
k.h., Jóhönnu Lovísu Jónsdóttur hús-
móður.
Börn Viggós frá fyrra hjónabandi
og Hjördísar Georgsdóttur, eru Kol-
brún María Viggósdóttir, f. 11.2. 1950,
framkvæmdastjóri í Hafnarfirði; Ben-
óný Bergmann, f. 10.5. 1951, rafeinda-
virki í Reykjavík.
Börn Viggós og Kolbrúnar eru
Egill, f. 1.10. 1953, guðfræðingur og
fyrrv. sjúkraflutningamaður, búsettur
í Hveragerði; Jóhanna Lovísa, f. 22.10.
1954, d. 15.4. 2010, var frumumeina-
tæknir í Reykjavík; Sigurður Viðar, f.
15.7. 1958, húsasmíðameistari í Nor-
egi.
Sonur Kolbrúnar og uppeldisson-
ur Viggós er Guðmundur Björnsson,
f. 29.4. 1951, sölustjóri hjá Skeljungi.
Systkini Viggós: Gunnar Berg-
mann, f. 15.10. 1922, nú látinn, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða gufuskipa-
félagsins; Vigfús, f. 18.1. 1924, nú
látinn, leigubifreiðarstjóri í Reykjavík;
Áslaug Bergmann, f. 21.6. 1927, hús-
móðir í Hastings í Minnesota í Banda-
ríkjunum.
Foreldrar Viggós voru Jónína M.
Gunnarsdóttir, húsmóðir og fyrir-
vinna fjöldskyldunnar, af Buchsætt,
búsett á Húsavík en síðustu ár sín í
Reykjavík, og Sigurður Vigfússon frá
Kálfárvöllum í Staðarsveit, forstöðu-
maður trúfélagsins ZION, heimatrú-
boðs leikmanna og útgefandi kristi-
legs vikurits.
Viggó M. Sigurðsson
Fyrrv. framkvæmdastjóri
85 ára á sunnudag