Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 37
Fókus | 37Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
Árni Pétur Guðjónsson frumsýnir einleikinn Svikarinn í Tjarnarbíói:
Æðir um á hælum og stuttum kjól
Lab Loki frumsýnir Svikarann í
Tjarnarbíói laugardaginn 19. febrú-
ar. Verkið er einleikur, fluttur af
Árna Pétri Guðjónssyni, en Rúnar
Guðbrandsson leikstýrir.
Leikgerðin er unnin upp úr verki
franska rithöfundarins Jean Ge-
net og byggir mjög á leikverki hans
Vinnukonunum (Les Bonnes).
Mikið mæðir á aðalleikaranum
Árna Pétri sem leikur þrjár konur í
verkinu og þarf að æða um sviðið á
háum hælum, undirfötum og stutt-
um kjólum í miklu melódrama.
Árni segir verkið sem leikgerðin
byggir á, Vinnukonurnar, hafa ver-
ið fært upp í Hlaðvarpanum fyrir
fimmtán árum.
„Verkið Vinnukonurnar fjall-
ar um tvær vinnukonur hjá fínni
frú í París. Þeirra aðalskemmtun er
að sviðsetja morðið á frúnni þegar
hún bregður sér frá. Þá voru auðvit-
að konur í öllum aðalhlutverkum.
Tvær í hlutverki vinnukvennanna
og ein í hlutverki frúarinnar. Við
förum með þetta um víðan völl og
í óreiðunni er ég, leikarinn, þunga-
miðjan. Leikarinn er í raun sá sem
leikið er á, sá sem kúgar og er kúg-
aður, sá sem svíkur og er svikinn.
Ég er einn á sviðinu og þetta eru
heilmikil hátök, hlaupandi um á
háum hælum og æðandi um í kjól-
um. Skórnir eru númer 43, svo pönt-
uðum við sérstaka skó frá Ameríku,
svona dónaskó úr gleri sem ég reyni
fimi mína á. Það er kannski vert að
taka það fram að þetta er ekki drag-
sjó,“ segir Árni og hlær. „Mér gengur
alveg ótrúlega vel að djöflast um á
sviðinu í alltof litlum kjólum.“
Verkið segir Árni snúast að miklu
leyti um leikritið inni í leikritinu og
persóna höfundar Vinnukvenn-
anna, Jean Genet, kemur mikið við
sögu. „Genet var mikill lygari og
þjófur sem skrifaði svo merkilega
bók í fangelsinu sem varð til þess
að hann varð náðaður. Leikarinn
lýgur líka á sviðinu og áhorfand-
inn verður að vera vakandi til að
greina hvað er í gangi í glímu hans
við verkið.“
Hvað er að gerast?
n Hera, Egill Ólafs og Stefán
Hilmarsson í Hofi
Tónleikar með lögum Sigfúsar Halldórs-
sonar. Ótrúlega mörg laga Sigfúsar hafa
tekið sér bólfestu í þjóðarsálinni og eru það
mikil verðmæti fyrir fámenna þjóð að eiga
tónskáld sem býr til lög sem þjóðin syngur
án fyrirhafnar.
Hljómsveitarstjóri er Björn Thoroddsen og
söngvarar eru Egill Ólafsson, Hera Björk
Þórhallsdóttir og Stefán Hilmarsson. Aðrir
í hljómsveitinni eru Jóhann Hjörleifsson
trommur, Jón Rafnsson kontrabassi og
Pálmi Sigurhjartarson píanó.
n Lights on the Highway í Hofi
Lights on the Highway verða með tónleika í
Hömrum, minni sal Hofs, laugardagskvöldið
19. febrúar kl. 22.
Hljómsveitin hefur starfað frá árinu 2004
en meðlimir hljómsveitarinnar eru þeir
Kristófer Jensson, Agnar Eldberg, Karl Daði
Lúðvíksson, Stefán Örn Gunnlaugsson og
Þórhallur Stefánsson.
n Heilsuveisla í Súlnasal
Heilsuveisla verður haldin í Súlnasal Hótel
Sögu, Reykjavík, dagana 19.–20. febrúar.
Þar verða matreiðslumenn og aðrir sem
hafa þekkingu á mataróþoli, líkamlegu
og andlegu heilbrigði. Meðal þeirra sem
koma fram eru Yesmin Olsson og Edda
Björgvinsdóttir. Aðalumræðan verður um
grænan lífsstíl og hvernig má auka vellíðan
og stilla líkama og sál af með náttúrulegum
aðferðum. Aðgangseyrir er 4.500 krónur.
n Kærleiksvikan tekur enda
Kærleiksvikan sem haldin hefur verið í Mos-
fellsbæ liðna viku tekur enda á sunnudag
með guðsþjónustu í Lágafellskirkju þar
sem Jógvan Hansen syngur um ástina og
kærleikann.
n Sirkus Sóley – aukasýning
Sirkus Íslands setur upp aukasýningu á
sunnudag í Tjarnarbíói en margir þurftu
frá að hverfa þegar sirkusinn hélt sýningu
í janúar.
n Skoppa og Skrítla og Ballið á
Bessastöðum
Það er leikandi fjör í leikhúsunum um þessar
mundir. Ballið á Bessastöðum og Skoppa og
Skrítla eru á fjölum leikhúsanna og báðar
sýningarnar eru skemmtilegar fjölskyldu-
sýningar.
18
feb
Föstudagur
19
feb
Laugardagur
20
feb
Sunnudagur„Lögin fjalla oft
um erfiðleika
hvunndagsins, fátækt-
ina, verkamannalífið,
brostnar vonir, ástina
og ástarsorgina.
Heillast af
söngstílnum og
sögunum Selma
er kántrídrottning
Íslands og breiðir út
kántríboðskapinn
með Miðnætur-
kúrekunum.
Árni fer hamförum á
sviðinu Svikarinn verður
á fjölum Tjarnarbíós.