Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 39
Lífsstíll | 39Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
Kaka ársins
2011 valin
Kaka ársins 2011 hefur verið valin en það var
Sigurður M. Guðjónsson hjá Bernhöftsbakaríi
sem bar sigur úr býtum í keppninni í ár. Það er
Landssamband bakarameistara sem stendur
fyrir keppninni ár hvert en kakan er svo seld í
öllum bakaríum félagsmanna. Salan hefst á
sunnudaginn, á sjálfan konudaginn.
Í ár bárust alls 16 kökur í keppnina en
sigurkakan er samsett úr mörgum lögum.
Þar á meðal eru franskur kexbotn, skyrfrauð,
hindberjamauk og möndlubotn. Kakan er
hjúpuð með hvítum súkkulaðihjúp og skreytt
með makkarónukökum. Keppnin um köku
ársins fer þannig fram að keppendur skila inn
tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja
úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera
bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem
flestum í geð. Dómarar í keppninni voru María
Hallbjörnsdóttir, gjaldkeri hjá Samtökum
iðnaðarins, Árni Þór Árnason, matreiðslu-
maður hjá Mjólkursamsölunni, og Ásthildur
Guðmundsdóttir kennari við bakaradeild
Hótel- og matvælaskólans.
Sigurður mun í dag, föstudag klukkan 12.30
afhenda Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráð-
herra kökuna í virðingarskyni fyrir framlag
hennar til iðnaðarins í landinu. Athöfnin
fer fram á Hrafnistu í Reykjavík og verður
gestum að sjálfsögðu boðið að smakka.
Eftirminnileg
brúðartertaÍ öllum alvörubrúðkaup-um verður að vera kaka sem hjónin skera saman. Oftast er boðið upp á
venjulegar þriggja til
fjögurra hæða marsípan-
sprengjur en svo má
auðvitað gera köku sem
allir muna eftir. DV tekur
saman nokkrar ótrúlegar
brúðkaupskökur.
Fyrir reiðu hjónin Kannski ekki nákvæm-
lega það sem brúðkaup snúast um en þessi
kaka er þó full af svörtum húmor – og rjóma.
Fyrir hrollvekjuaðdáendur Öll
pör sem elska hryllingsmyndir og vita
ekkert betra en að kúra á jólunum og
horfa á Nightmare Before Christmas
þurfa að hafa svona köku.
Fyrir ungu pörin Allir strákar elska Lego
og þegar daman er líka Lego-aðdáandi þá er
ekkert annað hægt en að hlaða í eina svona fyrir
brúðkaupsdaginn.
Fyrir tölvuleikjaspilarana Þegar pör eru
að kynnast á netinu í World of Warcraft eða
álíka leikjum er ekki annað hægt en að hafa
brúðkaupstertuna í anda besta tölvuleiks allra
tíma: Mario Bros.
Fyrir ferðalangana Mörg pör hafa
gaman af því að fara í ævintýra- og
safarí-ferðir. Þá er nú um að gera hafa
kökuna í anda sebrahesta.
Fyrir verkfræðingana Kynntust þið í
verkfæði eða arkítektúr? Þá verðið þið að
vera með byggingarlistaverk sem ykkar
brúðkaupsköku. Annað er ekki hægt.
Fyrir smalana Jú, það eru til kökur fyrir
alla. Bændahjón og smalar geta boðið upp
á þessa dýrindisköku sem er bæði krúttleg
og fín.