Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 44
44 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
SJÓNVARPSTILBOÐ
TILBOÐ 249.990
FULLT VERÐ kr. 329.990
ideas for life
Panasonic TXP42GT20 - Full HD 3D
42" Full HD 3-D THX NeoPlasma sjónvarp með 1920x1080p upplausn, THX, Vreal
Pro5 Engine - High Contrast Filter, 600Hz Intelligent Frame Creation, Infinite Black
5.000.000:1 (Native) skerpa, Pro 24p Smooth Film/Play Back, 0.001 msec svartíma,
x.v Colour, Progressive Scan, VIERA CAST nettengingu, Digital Cinema Colour 3D
Colour, Motion Pattern Noise Reduction 3D Comb Filter, C.A.T.S háskerpu HDTV
DVB-T stafrænn móttakari (MPEG4), kortalesari, 2 x USB tengi fyrir Wi-Fi/HDD
upptöku, 2x Scart (með RGB), 4 HDMI, innbyggður gervihnattamóttakari, PC tengi ofl.
SKERPA
5.000.000:1
PRO 5
600Hz
FULL
HD
1920x1080p
AVATAR
3D Blu-Ray
FYLGIR
MEÐ!
H
Hin bresku BAFTA-samtök
(British Academy of Film
and Television Arts) eru
hvað þekktust fyrir að veita
hvert ár verðlaun í ýmsum flokkum
fyrir framúrskarandi kvikmyndir og
sjónvarpsefni. BAFTA hefur allt frá
1998 einnig veitt verðlaun fyrir tölvu-
leiki og árið 2006 lýstu samtökin því
yfir að tölvuleikir myndu þaðan í frá
hafa sama vægi og kvikmyndir og
sjónvarpsefni. Afhending leikjaverð-
launanna hefur síðan verið haldin ár
hvert sem sérstök athöfn.
Vís til verðlauna
44 tilnefningar í hinum ýmsu flokk-
um fyrir Leikjaverðlaunin 2011 hafa
nú verið gerðar kunnar og er nokk-
uð ljóst að Assassin‘s Creed: Brother-
hood frá Ubisoft á hvað mesta mögu-
leika til verðlauna þegar upp verður
staðið en leikurinn hefur hlotið alls
sjö tilnefningar. Fast á eftir fylgja Call
of Duty: Black Ops og Heavy Rain
með sex tilnefningar hvor og síðan
Mass Effect 2 með fimm.
Athygli hefur vakið að leikurinn
sem hvað mest lof hlaut á síðasta ári;
Red Dead Redemption, fékk aðeins
eina tilnefningu og það í opinni vef-
kosningu í flokknum „GAME Award
of 2010“. Nokkuð ljóst þykir að Rock-
star, framleiðandi leiksins, sendi Red
Dead Redemption ekki inn til þátt-
töku fyrir verðlaunin í ár.
Brotherhood
Assassin‘s Creed: Brotherhood kom
á markað í nóvember síðastliðn-
um fyrir PlayStation 3 og Xbox 360
en Windows-útgáfa leiksins kemur
í verslanir í marsmánuði næstkom-
andi.
Brotherhood er beint framhald
hins geysivinsæla Assassin‘s Creed
II en báðar útgáfur eru með sögu-
legu ívafi, gerast á Ítalíu endurreisn-
artímabilsins þegar Borgia-ættin réð
þar lögum og lofum. Söguþráðurinn
byggir sem fyrr á átökum milli Laun-
morðingjanna (Assassins) og Templ-
aranna (Templars) en inn í söguna er
fléttað ýmsum sagnfræðilegum per-
sónum og staðreyndum.
Sjö tilnefningar
Óhætt er að segja að endurreisnar-
tímabilið á Ítalíu sé draumur hvers
leikjaframleiðanda. Allt umhverfi,
byggingarlist, búningar og saga, er
eins og óþrjótandi nægtabrunnur til
að vinna úr frábært efni.
Það kemur því ekki á óvart að í ár
sé Brotherhood tilnefndur í eftirfar-
andi flokkum; Leikjaspilun (Game-
play), Besti leikurinn, Listræn nálgun
(Artistic achievement), Fjölnotenda-
viðmót (Multiplayer), Tækninýjung-
ar (Technical Innovation), Hasar (Ac-
tion) og Hljóðvinnsla (Use of Audio).
Bannað innan 18 ára
Assassin‘s Creed er enginn barna-
leikur, ofbeldi og morð eru megin-
þemað, en jafnframt er hér á ferðinni
sjónræn veisla, endurreisnarævintýri
fyrir fullorðna, sem í leiðinni veitir
nokkra innsýn í sögusvið fimmtándu
aldar Evrópu. Við gerð leiksins var
reynt að halda til haga ýmsum sagn-
fræðilegum staðreyndum, ártölum
og nöfnum þannig að bakgrunnur
sögunnar yrði sem vandaðastur.
Assassin‘s Creed: Brotherhood er
hins vegar ekki til sölu fyrir einstak-
linga innan átján ára aldurs sökum
þess ofbeldis sem leikurinn byggir á.
Nokia Windows
á næsta ári
Nokia tilkynnti í síðustu viku að fyrirtækið
myndi leggja Symbian-stýrikerfið á
hilluna og ganga til samstarfs við Microsoft
varðandi snjallsímakerfi. Nokkuð ljóst er að
Nokia mun þó ekki nota núverandi Windows
Phone 7 kerfið heldur bíða þar til næsta stóra
uppfærsla kerfisins (7,5) kemur eða jafnvel
Phone 8 sem áætlað er að verði tilbúið á
næsta ári. Þetta eru ekki góðar fréttir, hvorki
fyrir Microsoft né Nokia. Microsoft stendur
þá frammi fyrir því að aðeins lítill hluti þeirra
síma sem verða á markaði þetta árið notist
við Phone 7 stýrikerfið. Nokia mun síðan
reynast erfitt að selja þá síma sem keyra á
Symbian því vara er ekki mjög söluvænleg
þegar ljóst er að kerfið sem hún notast við er
á leiðinni út. Talsmaður Microsoft sagði í vik-
unni að á árinu 2012 myndi Nokia Windows
símar fara að streyma í hillur verslana en gat
ekki gefið frekari upplýsingar.
GoogleTunes
á leiðinni
Á Heimsráðstefnu farsímaframleiðenda
í Barselóna sem lauk á fimmtudag kom
fram að Google er að öllum líkindum
með veftónlistarverslun í handraðanum
samfara uppfærslu á Android-stýrikerfi
sínu. Sanjay Jha, framkvæmdastjóri
Motorola Mobile, sagði á ráðstefnunni að
Motorola Xoom spjaldtölvan sem keyrir
á Honeycomb, nýjasta Android-stýri-
kerfinu, myndi nýta sér myndskeiðs- og
tónlistarþjónustu Honeycomb. Þess
hefur verið vænst um nokkurt skeið
að vef- og leitarrisinn komi á laggirnar
slíkri verslun en í fyrravor keypti Google
fyrirtækið Simplify Media og upplýsti við
það tækifæri að sú tækni sem Google
hefði eignast með kaupunum myndi
verða notuð við þróun forrits sem gerði
notendum kleift að nálgast tónlist og
kvikmyndir fyrir Android-tæki.
BAFTA-leikjaverðlaunahátíðin verður haldin 16. mars
næstkomandi. Assassin‘s Creed: Brotherhood
hefur hlotið tilnefningar í sjö flokkum og leikurinn
þykir hvað líklegastur til að vinna til verðlauna í ár.
Veisla fyrir augað Í leiknum má líta byggingarlist endurreisnartímabilsins í bland við
rústir Rómaveldis.
Assassin‘s Creed: Broth-
erhood Beint framhald af
Assassin‘s Creed II. Leikurinn hefur
hlotið frábærar viðtökur á síðustu
mánuðum.
Brotherhood
líklegur til verðlauna