Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Qupperneq 46
46 | Sport 18.–20. febrúar 2011 Helgarblað
E
inn albesti leikmaður knatt-
spyrnusögunnar, Ronaldo
Luís Nazário de Lima, betur
þekktur sem Ronaldo, lagði
skóna á hilluna í síðustu viku. Hann
batt þar með endahnútinn á sigur-
sælan feril en hann vann alla titla
sem í boði voru að undanskildum
Meistaradeildartitlinum. Ronaldo er
markahæsti leikmaður í sögu bras-
ilíska landsliðsins, hann er marka-
hæsti leikmaður í sögu HM, hann
er annar af aðeins tveimur til að
vera kjörinn besti knattspyrnumað-
ur heims þrisvar og þegar tímaritið
France Football setti saman besta
knattspyrnulið allra tíma var hann
framherji þess ásamt landa sínum
Pelé. Svona mætti lengi telja en það
er engum blöðum um það að fletta
að Ronaldo er einn sá besti, ef hrein-
lega ekki besti, framherji allra tíma.
Meiðsli settu þó strik í reikninginn
hjá þessum magnaða leikmanni og
er spennandi að hugsa til þess hvað
hefði gerst hefði hann haldist tiltölu-
lega heill allan sinn feril. Ronaldo
grét á blaðamannafundi í síðustu
viku þegar hann tilkynnti að hann
væri hættur enda knattspyrnan hans
líf og yndi.
Komst ekki að hjá
uppáhaldsliðinu
Ronaldo ólst upp sem stuðnings-
maður Flamengo en hann bjó í því
hverfi Rio de Janeiro sem hyllir svart-
an og rauðan lit þess liðs. Eftir að
hafa verið á mála hjá þremur ungl-
ingaliðum reyndi Ronaldo að komast
að hjá Flamengo sautján ára. Honum
var hafnað en hinn brasilíski Jairzin-
ho sem þá var stjóri Cruzeiro sá hvað
í þessum kraftmikla strák bjó og fékk
hann til liðs við sig. Það borgaði sig
líka heldur betur því Ronaldo skorði
44 mörk í 44 leikjum í öllum keppn-
um þetta eina ár sem hann lék með
liðinu. Cruzeiro vann brasilíska bik-
arinn þetta ár og varð héraðsmeistari
í Mineiro en þeir titlar skipta Brass-
ana miklu máli.
Það var því algjörlega viðbúið að
Ronaldo yrði keyptur til Evrópu og
var hollenska liðið PSV Eindhoven
svo heppið að krækja í kappann.
Hann kom til liðsins eftir heims-
meistaramótið 1994 þar sem Brasilía
varð meistari. Ronaldo lék ekkert
á mótinu, heldur horfði á Romario
og Bebeto sýna listir sínar. Það var
einmitt Romario sem ráðlagði Ron-
aldo að hefja feril sinn í Hollandi
en Romario lék með PSV í fimm ár.
Eins og með Cruzeiro fór Ronaldo
strax í gang og skoraði þrjátíu mörk
á sínu fyrsta tímabili. Eftir það lenti
hann í fyrstu erfiðu meiðslunum en
þau áttu svo sannarlega ekki eftir að
vera þau síðustu. Ronaldo komst í
gang undir lok keppnistímabilsins og
hélt áfram að skora, núna tólf mörk í
þrettán leikjum.
Hodgson fórnaði höndum
Stórliðin kölluðu en áður en ferli
Ronaldos lauk átti hann eftir að spila
með tveimur stærstu liðum Spánar
og Ítalíu. Ferillinn hófst fyrir alvöru
hjá Barcelona þar sem hann tók við af
n Ronaldo hættur í fótbolta 34 ára að aldri n Markaskorari
af guðs náð n Vann alla titla sem í boði voru nema einn
í máli og myndum
Markaskorari
Ótrúlegt ár Roy Hodg-
son gat ekki lýst hversu
ótrúlegur Ronaldo var
hjá Barcelona.
Kátt á hjalla Ronaldo vann Suður-Ameríkubikarinn með Brasilíu 1999.
Smá vesen Ronaldo komst í kast við lögin þegar kynskiptingar ásökuðu hann um ofbeldi.
Þrisvar bestur Aðeins Ronaldo og Zidane
hafa þrívegis verið kjörnir bestu knatt-
spyrnumenn heims.