Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Page 56
Betra er að vakna með flær en níu tær! Icesave í afmælisgjöf n Eins og alþjóð veit ákvað Alþingi á miðvikudag að samþykkja ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Gárungar hafa bent á dagsetninguna sem frumvarpið var samþykkt, 16. febrúar 2011. Þennan dag árið 1899 var íþróttastórveldið KR stofnað og þeir fögnuðu því 112 ára afmæli sínu sama dag og Ice- save-samningurinn var samþykktur. Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi aðaleigandi Landsbank- ans, er meðal dyggustu stuðningsmanna KR og eins og frægt er orðið lagði hann félaginu til fjármagn á blómaskeiði íslensku útrásarinnar. Landsbankinn gerði slíkt hið sama. Því má kannski segja að Björgólfur hafi fengið óvænta afmælisgjöf – óbeint. Gosslagur í Egilshöll n Ölgerðin er ekki alveg sátt við breytingarnar í Egilshöllinni en nýverið opnuðu Sambíóin glæsilegt kvikmyndahús þar. Ölgerðin er með risasamning við Egilshöllina enda ber hún nafn hennar og má þar aðeins selja vörur frá Ölgerðinni, drykki á borð við Pepsi og Appel- sín. Nú þegar gengið er inn í Egilshöllina eru þar miðasala og sjoppur Sambíóanna. Sambíóin eru með samning við Vífilfell og sést því ekkert annað en Coca-Cola og fleiri drykkir frá Vífilfelli þegar gengið er inn um dyrnar. Er þó líklega lítið sem Ölgerðin getur gert þar sem nýbyggingin sem hýsir Sambíóin er í öðru húsnúmeri en aðrir hlutar Egilshallarinnar. Kæran dregin til baka n Ljóst er að Valur leikur til úrslita í bikarkeppni HSÍ en Framarar drógu kæru sína eftir tapið í undanúrslitum gegn Val til baka á fimmtudag. Framarar sögðust vera með skothelt mál í höndunum þar sem Markús Máni Michaelsson átti að hafa verið ólöglegur í leiknum. Samningur hans var sendur til HSÍ 58 mínútum áður en leikurinn hófst en enginn var við störf á skrifstofu HSÍ því það var sunnudagur. Framarar sendu frá sér yfirslýsingu í gær þess efnis að þeir vildu ekki vinna titla fyrir dómstólum og sendu Valsmönnum pillur. Þeim var svarað af formanni Vals, Sveini Stefánssyni, sem sagði: „Um leið og handknattleiks- deild Vals fagnar þeirri ákvörðun er lýst vanþóknun á vinnubrögðum handknattleiks- deildar Fram í máli þessu. „Sá sem sefur með hundum vaknar með flær segir máltæki eitt allgott,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaða- maður og rithöfundur, sem bloggað hefur á Eyjunni undanfarin misseri við góðan orðstír. Páll hefur nú sagt skilið við Eyjuna eftir að Vefpressan, sem meðal annars á Pressuna, keypti vefinn. Páll Ásgeir vandar Birni Inga Hrafnssyni, stjórnarformanni Vef- pressunnar, ekki kveðjurnar og seg- ir hann hafa starfað ötullega að eigin hag um árabil á kostnað Reykvíkinga. „Aftar í fylkingunni glittir svo í kámug trýnin á fyrrum útrásarvíking- um bakvið slæður eignarhaldsfélaga. Ég geri fastlega ráð fyrir því að nýr og stærri vettvangur geri þeim komp- ánum kleift að verja þá sem lögðu Ísland í rúst, af meiri atorku en áður og ná til enn fleiri auðsveipra sálna sem vilja trúa því að glæpamenn séu rangindum beittir,“ segir Páll Ásgeir í síðustu bloggfærslu sinni á Eyjunni. Páll Ásgeir er ekki eini penn- inn sem segir skilið við Eyjuna eftir eigendaskiptin. Áður höfðu Bald- ur McQueen og grínistinn Þorsteinn Guðmundsson sagt skilið við Eyjuna. Páll Ásgeir er meðal vinsælustu bloggara landsins en hann byrjaði að blogga árið 2004. Hann hóf að blogga á Eyjunni árið 2009. „Með vísan til orðatiltækisins í upphafi pistilsins læt ég þessu sam- starfi lokið. Ég óska þeim sem eft- ir verða velfarnaðar í störfum því hér er margt sómafólk vel penna- fært með heilbrigða sýn á samfélag- ið. Það verður hver og einn að finna sína aðferð til að losna við óbragðið úr munninum. Ég er farinn.“ Páll Ásgeir Ásgeirsson segir skilið við Eyjuna eftir eigendaskipti: Vill ekki vakna með flær Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 18.–20. FEBRÚAR 2011 21. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR. Bless, bless „Ég er farinn,“ segir Páll Ásgeir í síðasta pistli sínum á Eyjunni. einfaldlega betri kostur © IL V A Ís la n d 2 0 11 EAGLE. Rúmgrind 180x200, svartlökk.fura. Steypujárn í fótum. Án dýnu. 79.900,- NÝJAR VÖ RUR TOWER. Stóll lakkaður. Ýmsir litir. Verð 6.900,- /stk. Einnig til í hvítu. ARDENNE. Borðst.borð 90x180 cm. Verð 84.900,- BORGATA. Stóll m.fléttaðri setur. H95 cm. Verð 19.900,- /stk. SHAKE. Glerskál margl. doppur Ø16,5 cm. Verð 2.995,- /stk. WOODIE. Babúska pastel. Viður. 2 gerðir. Verð 1.995,-/stk CLOCK. Klukka m/stillimynd. Gler. Ø43 cm. Verð 11.995,- CINCINATTI. Snagi grein svört. 30x5x36 cm. Verð 7.900,- PAMELA. Kanna 2L creme. Verð 2.695,- RENNES. Frál. borð eik málmur. 80x35x150 cm. Verð 79.900,- TODDLER. Sílófónn tré/málmur. 3+ ára. Viður. Verð 2.495,- LOVE. Glerskál. Ýmsir litir. Ø12 cm. Verð 1.395,- /stk. FLAX. Skemill m/geymslu. H51 cm. Verð 8.900,- /stk. ELIZABETH. Junior stóll. Glær. H63 cm. Verð 7.900,- /stk. Einnig til í hvítu og glæru. SAIGON. Karfa fléttuð. 18x30 cm. Verð 1.195,- 21x37 cm. Verð 2.495,- 26x45 cm. Verð 3.495,- DEAUVILLE. Snagi svart/zink m.postulínshnúð. Verð 1.995,- /stk. RAW. Ljós svart. Ø40 cm. Verð 28.995,- ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 www.ILVA.is sendum um allt land Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða Tortilla m/osti og skinku (borið fram með salati) 690,- kaffi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.