Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að
taka á móti pöntunum
í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is
Margrét valdaði
Pál Magnússon
n Þreifingar um starfslok útvarpsstjóra fóru fram í tíð síðustu stjórnar
M
argrét Frímannsdóttir,
fangelsisstjóri á Litla-
Hrauni og fyrrverandi
þingmaður Alþýðu-
bandalagsins og Samfylk-
ingarinnar, valdaði Pál Magnússon
útvarpsstjóra innan stjórnar stofn-
unarinnar í síðustu stjórnartíð. Þetta
herma traustar heimildir DV. Margrét
sat í stjórninni sem fulltrúi Samfylk-
ingarinnar en hún er að hluta til skip-
uð stjórnmálaflokkunum á Alþingi.
Nokkur styr hefur staðið um Pál
Magnússon útvarpsstjóra innan
stjórnar RÚV síðastliðin ár og verður
ekki sagt að hann sé allra. Páll er mik-
ill skapmaður og þykir nokkuð frekur
til valdsins. Á síðasta kjörtímabili fór
það svo að upp úr sauð í stjórninni og
áttu sér stað óformlegar samræður á
milli stjórnarmanna um möguleika
þess að finna annan einstakling til
að gegna þessu starfi. Síðan þá hafa
þessar þreifingar kvisast langt út fyrir
raðir stjórnarmanna og má segja að
altalað sé hvernig staðan var orðin.
Vildu Pál út
Þegar sú staða kom upp að
þreifingarnar um Pál áttu sér stað
á milli stjórnarmannanna, án þess
þó að nokkuð væri rætt um mál-
ið á fundum hennar, þá var það rætt
þeirra á meðal hver væri fylgjandi
því að fundinn væri nýr útvarpsstjóri
og hver ekki. Niðurstaðan í þeim
þreifingum mun hafa verið sú að
ekki yrði hróflað við Páli. Margrét Frí-
mannsdóttir mun hafa aftekið að Páll
færi frá stofnuninni og fékkst hennar
stuðningur því ekki fyrir starfslokum
hans.
Í stjórn RÚV á þessum tíma voru
Björg Eva Erlendsdóttir, sem var
stjórnarformaður, Magnús Geir
Þórðarson, Halldór Guðmundsson,
Margrét Frímannsdóttir og Magnús
Stefánsson.
Aðrir sagðir volgari
Aðrir stjórnarmenn eru hins vegar
sagðir hafa verið ekki eins kirfilega á
móti því að skipta um útvarpsstjóra.
DV hefur ekki heimildir fyrir því hverj-
ar skoðanir einstakra stjórnarmanna
voru á málinu en blaðið veit hins vegar
að Margrét Frímanns dóttir var mótfall-
in hugmyndinni.
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hvort sambærilegar umræður hafi átt
sér stað innan stjórnar RÚV á þessu
kjörtímabili en telja verður slíkt ólík-
legt. Páll var skipaður útvarpsstjóri í
ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins
árið 2005 og komu upp deilur á milli
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra um hvort Páll
ætti að fá starfið eða Þorsteinn Pálsson.
Ólíklegt verður því að teljast að hróflað
verði við Páli á meðan Sjálfstæðisflokk-
urinn er í ríkisstjórn þar sem sá flokk-
urinn skipaði hann á sínum tíma.
Valdabarátta
Talsverð valdabarátta hefur átt sér
stað innan RÚV á liðnum árum, líkt
og gengur og gerist í flestum stofn-
unum og fyrirtækjum. Páll Magnús-
son og Óðinn Jónsson fréttastjóri eru
til að mynda sagðir nánir samverka-
menn en ekki er útilokað að sú tengsl
hafi leikið hlutverk í völduninni á
Páli Magnússyni inni í stjórn. Taug
Óðins við Samfylkinguna hefur löng-
um verið kunn, bæði frá því hann var
þingfréttaritari og eins þegar honum
bauðst framkvæmdastjórastarf Sam-
fylkingarinnar á sínum tíma. Hann
valdi hins vegar að vera fréttastjóri
RÚV í stað þess að færa sig yfir á
hið pólitíska svið í gegnum fram-
kvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
Margrét Frímannsdóttir sat í stjórn
RÚV fyrir Samfylkinguna og liggur
einnig fyrir að nokkur taug er á milli
hennar og Óðins.
Atlögunni að Páli var þannig
hrundið á síðasta kjörtímabili og
verður að teljast ólíklegt að hann sitji
ekki áfram á þessu kjörtímabili. Ekki
náðist í Margréti Frímannsdóttur við
vinnslu fréttarinnar. Skilin voru eft-
ir skilaboð fyrir hana á Litla-Hrauni
en hún hringdi ekki til baka í blaða-
mann. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Áttu sér stað
óformlegar sam-
ræður á milli stjórnar-
manna um möguleika
þess að finna annan
einstakling til að gegna
þessu starfi.
Veik staða Staða Páls var orðin það veik í
tíð síðustu ríkisstjórnar að til tals kom innan
stjórnar RÚV að finna staðgengil hans.
Mynd Sigtryggur Ari
Valdaði Pál Margrét Frímannsdóttir valdaði Pál Magnússon í tíð síðustu stjórnar RÚV.
Stjórnarmenn
RÚV á síðasta
kjörtímabili
Björg Eva Erlendsdóttir, Margrét
Frímannsdóttir, Halldór Guðmundsson,
Magnús Geir Þórðarson og Magnús
Stefánsson.
Varamenn í stjórn: Ása Richards-
dóttir, Lárus Ýmir Óskarsson, Hlynur
Hallsson, Signý Ormarsdóttir og Þórey
Anna Matthíasdóttir.
Forstjórinn
fékk stórfé
3 Að minnsta kosti tveir af
háttsettum stjórn-
endum Landspít-
alans hafa fengið
starfslokagreiðsl-
ur eftir að þeir
hafa hætt að vinna
hjá spítalanum.
Þetta eru Magnús
Pétursson, fyrrver-
andi forstjóri Landspítalans, sem lét af
störfum hjá spítalanum á vordögum
2008, og Erna Einarsdóttir, fyrrver-
andi starfsmannastjóri spítalans, sem
hætti í sumar. Magnús fékk greiddan
mismun á launum sínum sem forstjóri
Landspítalans og launum sem ríkis-
sáttasemjari í um eitt og hálft ár eftir
að hann tók við síðara starfinu.
Harmleikur
á Hrauninu
2 Maðurinn sem lést á
Litla-Hrauni að-
faranótt laugar-
dags hét Steinar
Aubertsson og
var fæddur árið
1983. DV fjall-
aði um mál-
ið á mánudag
en samkvæmt
heimildum blaðsins lést hann eft-
ir að hafa tekið of stóran skammt af
eitur lyfjum. Mikil sorg ríkir innan
veggja fangelsisins vegna þessa enda
ekki oft sem svo voveiflegur atburður
gerist í þessu litla samfélagi. Steinar
hafði lengi háð harðvítuga baráttu við
fíknina og sat inni vegna eiturlyfja-
innflutnings frá Danmörku til Íslands.
Lúxuslíf í sigti
saksóknara
1 DV fjallaði á mánudag
um afdrif átta
útrásar víkinga
sem voru fyrir-
ferðarmiklir í
íslensku efna-
hagslífi og víð-
ar á árunum
fyrir hrun. Þar
var fjallað um
Björgólf Thor Björgólfsson, Jón Ás-
geir Jóhannesson, Hreiðar Má Sig-
urðsson, Pálma Haraldsson, Hannes
Smárason, Sigurð Einarsson, Ólaf
Ólafsson og Lýð Guðmundsson. Sex
af þeim átta viðskiptamönnum sem
fjallað var um í greininni hafa verið
ákærðir fyrir lögbrot og bíða niður-
stöðu í sínum málum.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
11. 11. 2013
13. 11. 2013 11. 11. 2013
mánudagur
og þriðjudagur
11.–12. nóvember 2013
128. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
Bókaðu tíma á vakahf.is
OPIÐ: Virka daga 8-18
Lau 10-14 í Skútuvogi
Skútuvogi 8, Reykjavík
Sími 567 6700
Harðskeljadekk og
vetrardekk fyrir
íslenskar aðstæður
n Sex ákærðir n Allir búa í útlöndum n Björgólfur Thor stendur best 8–10
Björgólfur Thor
Björgólfsson
n Aftur ríkastur
Jón Ágeir
Jóhannesson
n Heldur 365
Hreiðar Már
Hreiðarsson
n Í nauðvörn út af Al Thani
AuðmAnnA
Úttekt
n Stóru loforðin vekja ugg
Skjálfti
á meðal
stjórnarliða
2–3
Afdrif áttA
lúxuslíf í siGti sAKsÓKnArA
Pálmi
Haraldsson
n Missti öll fyrirtæki sín
Sigurður
Einarsson
n Segist vera öreigi
Lýður
Guðmundsson
n Ákærður tvisvar
Hannes
Smárason
n Lögsóttur eftir átta ár
Ólafur
Ólafsson
n Á grænni grein með Samskip
n DV gerir verðsamanburð
Þetta
kostar
á jóla-
hlaðborðið
14
Steinar Aubertsson
F. 10.05. 1983 D. 09.11. 2013
n Ellefu fangar hafa dáið 3
Harmleikur á
Litla-Hrauni
ÁKÆRÐUR ÁKÆRÐUR
Dæmdur
ÁKÆRÐURÁKÆRÐURÁK
ÆRÐUR
miðvikudagur
og fimmtudagur
13.–14. nóvember 2013
129. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
Forstjórinn
Fékk stórFé n Feitir starfslokasamningar n Guðlaugur samdi við Magnús
„Man ekki
hversu
margir mánuðir
Guðlaugur Þór
Ráðherrann var rausnarlegur
Hulda Gunnlaugsdóttir
Fékk ekki aukagreiðslur
Björn Zoëga
Hætti sjálfur og fékk ekkert
Erna Einarsdóttir
Fékk feitan starfslokasamning
LandspítaLinn örLátur
8
Ragnhildur
fylgdist með
deyjandi stúlku
Þetta var rosalega erfitt
3
Stórgræða
á gesta-
herberginu
Allt að 50 þúsundum fyrir nóttina 11
Strákarnir í
fínu leikformi
Lykilmenn á gulu spjaldi 14–15
Kanntu að keyra í hálku?
Ökukennsla og ökuskóli Goðanes 8-10 | 603 AkureyriSími: 461-7800 og 894-5985 www.ekill.is
23
Skatturinn
hundeltir
listmálara
n Dæmdur í Noregi og eltur af yfirvöldum
4
Borin út í
brjáluðu
veðri
Einstæð móðir grátbað um frest
Odd Nerdrum á milljarð á Íslandi
Magnús
Pétursson
Fékk greitt
umfram rétt sinn
Fréttir 3
Mánudagur 11. nóvember 2013
93,5 prósent fá ekki hælin 128 hælisleitendum synjað um hæli það sem af er ári
1 28 hælisleitendum var synjað um hæli hér á landi á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í yfirliti Útlendingastofn
unar yfir fjölda afgreiddra hælisum
sókna á tímabilinu 1. janúar til 30.
september 2013. Þar kemur jafn
framt fram að 137 umsóknir hafi ver
ið afgreiddar það sem af er ári, af
þeim fengu níu viðurkennda stöðu
flóttamanns eða dvalarleyfi af mann
úðarástæðum, eða 6,5 prósent um
sækjenda.
Þetta þýðir að 93,5 prósentum
hælisleitenda var synjað um hæli
hér á landi á fyrstu níu mánuðum
ársins, en það er töluvert hátt hlut
fall sé miðað við nágrannalöndin. Í
skýrslu sem Evrópustofnun grund
vallarmannréttinda vann um hælis
umsóknir í Danmörku árið 2009
kemur til að mynda fram að 29,5 pró
sent hælisleitenda hafi fengið hæli í
landinu.
Í niðurstöðum yfir ákvarðan
ir Útlendingastofnunar kemur fram
að langflestum hafi verið synjað þar
sem þeir þóttu ekki uppfylla skilyrði
til að teljast flóttamaður, á meðan
nokkrum fjölda var synjað á grund
velli Dyflinnarreglugerðarinnar,
sem kveður á um heimild til þess
að vísa hælisleitenda aftur til þess
Evrópuríkis sem hann kom fyrst til:
„Í 48 málum var umsókn synj
að þar sem annað aðildarríki Dyfl
innarreglugerðarinnar bar ábyrgð
á meðferð umsóknar um hæli. Í 80
málum var umsókn um hæli synj
að þar sem viðkomandi uppfyllti
ekki skilyrði til að teljast flóttamað
ur eða til annarra dvalarleyfa. Í 8
málum var viðkomandi veitt réttar
staða flóttamanns og einn aðili
fékk dvalarleyfi á grundvelli mann
úðarsjónarmiða.“ Þá kemur fram
að í byrjun október hafi alls 69 um
sóknir um hæli verið til vinnslu hjá
Útlendingastofnun, ellefu þeirra eru
frá árinu 2011. n
Skuldaniðurfellingarnar hræða sjálfstæðismenn„Það kemur ekki til
greina að prenta
peninga til að bjarga
Framsóknarflokknum.
fjármálaráðherra hefur líka ekki
talað í fullu samræmi við félaga
sinn Sigmund um skuldamálin og
aðgerðir vegna þeirra. Stefnt hef
ur verið að því að nýta rými sem
hugsanlega myndast í samning
um við kröfuhafa gömlu bankanna
til að fjármagna skuldalækkanirn
ar. Bjarni sagði hins vegar í ræðu á
þingi um miðjan október að ríkis
stjórnin myndi ekki horfa til þess
að nota fjármuni kröfuhafa til að
lækka verðtryggðar skuldir ís
lenskra heimila.
„Kemur ekki til greina“
Margar hugmyndir hafa verið
skoðaðar síðan nýja stjórnin tók
til valda um hvernig eigi að efna
skuldaloforðið. Sigmundur Davíð
viðurkenndi í viðtali í kvöldfrétt
um Ríkissjónvarpsins á fimmtu
dag að verkefnið væri orðið miklu
flóknara en þegar flokkurinn byrj
aði að tala um skuldaniðurfell
ingar. „Við vildum fara í þetta strax í
byrjun árs 2009. Síðan þá hefur svo
mikið gerst að þetta er orðið marg
falt, margfalt flóknara sjáum við,
en sem betur fer er þessum góða
sérfræðingahópi að takast að leysa
úr þeirri flækju,“ sagði hann í við
talinu.
Það er hins vegar alveg ljóst að
sjálfstæðismenn eru ekki bara til
í hvað sem er til að Framsókn nái
að standa við sitt. „Það kemur ekki
til greina að prenta peninga til að
bjarga Framsóknarflokknum,“
sagði áhrifamaður innan Sjálf
stæðisflokksins í samtali við DV.
Þolinmæði margra flokksmanna
virðist vera á þrotum. Heimildir
DV innan úr ríkisstjórninni eru á
þá leið að sem minnst sé reynt að
tala um skuldaniðurfellingar og
að þingmenn Sjálfstæðisflokks
ins horfi frekar til annarra hluta og
leyfi Sigmundi að kljást við eigin
vanda. n
Saman Bjarni var til
í skuldaniðurfellingar
til að mynda stjórn
með Sigmundi en
slíkt var forsenda
stjórnarsamstarfs.
Fáir fá hæli Einungis níu af þeim 137 hælisleitendum sem sóttu um hæli hér á landi það sem af er árinu 2013 fengu stöðu sína viðurkennda. Mynd Sigtryggur Ari
Harmleikur á
Litla-Hrauni
n Steinar Aubertsson látinn n 11 látist í íslenskum fangelsum
M
aðurinn sem lést á Litla
Hrauni aðfaranótt laugar
dags hét Steinar Auberts
son og var fæddur árið
1983. Samkvæmt heimild
um DV lést hann eftir að hafa tekið
of stóran skammt af eiturlyfjum. Mik
il sorg ríkir innan veggja fangelsisins vegna þessa enda ekki oft sem svo vo
veiflegur atburður gerist í þessu litla
samfélagi. Þá er fjölskylda Steinars harmi slegin og treystir sér ekki til að tjá sig um málið að svo stöddu.
Steinar hafði lengi háð harðvítuga baráttu við fíknina og sat inni vegna eiturlyfjainnflutnings frá Danmörku til Íslands. Steinar var handtekinn árið 2012 í Amsterdam en framseld
ur hingað til lands um haustið sama ár. Hann var síðan dæmdur í til 18 mánaða fangelsisvistar af Héraðs
dómi Reykjaness, hvers dóm Hæsti
réttur staðfesti fyrir skemmstu. And
látið er nú rannsakað af lögreglunni
á Selfossi en ekki er talið að það hafi
borið að með saknæmum hætti, eins
og áður greinir.
11 látist frá 1993
Alls hafa ellefu manns látist í fang
elsum landsins frá árinu 1993, sam
kvæmt tölum frá Fangelsismálastofn
un. Aðeins eitt þeirra dauðsfalla er talið hafa borið að með saknæmum
hætti og er það gjarnan kennt við Annþór Kristján Karlsson og Börk
Birgisson. Mennirnir tveir liggja und
ir grun um að hafa ráðið Sigurði Hólm
Sigurðssyni bana árið 2012. Málið er
nú rekið fyrir dómstólum. Hin and
látin hafa ýmist orðið sökum eitur
lyfjaneyslu, náttúrulegra orsaka eða vegna þess að fangar hafa svipt sig lífi. Fimm andlát hafa borið að með
þessum síðastgreinda hætti og er það, ásamt misnotkun eiturlyfja, mik
ið áhyggjuefni að mati Páls Winkel,
fangelsismálastjóra. Hann segir að fangelsismálayfirvöld vilji gera betur við fanga og bæta aðbúnað þeirra og
þjónustu en að það sé erfitt með tak
markaða fjármuni milli handanna.
Fjársvelti bitnar á föngum
„Þetta er tvennt: Annars vegar verð
um við að gera allt sem mögulegt er til þess að koma í veg fyrir að fíkni
efni komi inn í fangelsið. Það er erfitt hér alveg eins og það er erfitt í
öðrum fangelsum í öðrum löndum. Hitt er að við þurfum og myndum
vilja bjóða upp á aukna þjónustu
sérfræðinga, sálfræðinga og svo
framvegis en það er nú bara þannig að við höfum bara ákveðið fjármagn til þess að spila úr á hverju ári og við
þurfum að forgangsraða,“ segir Páll.
En er staðan þá ekki sú, að þið getið ekki veitt þá aðstoð sem er nauðsynleg fyrir sálarheill fanga? „Það sem ég er tilbúinn til að segja
er að ég myndi vilja veita frekari, betri þjónustu. Já, ég myndi vilja
það.“
Páll tekur þó fram að tala dauðs
falla í fangelsum á Íslandi sé ívið lægri hlutfallslega í samanburði við þau lönd sem við berum okkur
saman við, til dæmis hin Norður
löndin. n
Harðvítug barátta Steinar hafði lengi verið í viðjum fíknar.
Steinar Aubertsson
Fæddur 10.5 1983 Dáinn 9.11.2013
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
QuizUp
slær í gegn
Sigurganga QuizUp, spurninga-
leiksins sem íslenska leikjafyrir-
tækið Plain Vanilla hannaði,
virðist engan endi ætla að taka.
Forritið er nú vinsælasta smá-
forritið í App Store eftir að hafa
skotist á toppinn í Bretlandi og
Bandaríkjunum á miðvikudag og
fimmtudag.
Síðan leiknum var hleypt af
stokkunum á fimmtudaginn í síð-
ustu viku hefur fjöldi nýrra not-
enda verið að meðaltali ríflega 100
þúsund á dag og alls hafa nú um
800 þúsund manns halað leikn-
um niður.
Skömmu áður en QuizUp var
gefinn út fjárfesti bandaríski fjár-
festingarsjóðurinn Sequoia Capi-
tal í Plain Vanilla og leiddi fjár-
festingu nokkurra aðila upp á 2
milljónir dala, eða um 240 millj-
ónir íslenskra króna. Sequoia
Capital sérhæfir sig í því að finna
áhugaverð tæknifyrirtæki á frum-
stigi og var sjóðurinn einn af fyrstu
fjárfestunum í Apple.
Francisca
fékk tölvu
Fjölmargir lýstu yfir vilja sínum til
að gefa Franciscu Mwansa, starfs-
manni Bónuss á Granda, fartölvu
eftir að vinkona hennar, Alda Sig-
mundsdóttir, auglýsti eftir tölvu
handa henni á Facebook í vikunni.
Nú hefur vinnuveitandi
Franciscu, Bónus, fært henni tölvu
og birti mynd af Franciscu með
tölvuna á Facebook-síðu sinni á
fimmtudag.
Alda Sigmundsdóttir greindi
frá því á Facebook á miðvikudag
að Francisca gæti ekki haldið sam-
bandi við fjölskyldu sína í Zambíu
eins og hún vildi, vegna þess að
hvorki hún sjálf né ættingjar henn-
ar ytra eigi fartölvu. Francisca not-
ar laun sín til að framfleyta sjálfri
sér og aðstoða fjölskyldu sína í
Zambíu en hún aðstoðar meðal
annars systurson sinn við að sækja
menntun í heimavistarskóla.