Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Blaðsíða 46
46 Lífsstíll 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
ANTIKÚTSALA
AFSLÁTTUR
20-50%
30-50%
af húsgögnum
50%
af bókum
20%
af smáhlutum
HAFNARFIRÐI
552 8222 - 867 5117
antikbud@gmail.com
5 bestu sætuefnin
n Skiptu út næringarlausum sykri fyrir næringarríkan
N
otkun sætuefna í matvælum
hefur aukist samfara auk-
inni vitund um skaðleg áhrif
mikillar neyslu á hvítum
sykri.
Umfjöllun um sykraðar mjólkur-
vörur og óhollan gervisykur sýnir að
þörf er á fleiri valkostum fyrir þá sem
hugsa um heilsuna. Þeir sem vilja
áfram sæta líf sitt geta notað nátt-
úruleg sætuefni sem innihalda mun
meira af næringarefnum en hvítur
sykur og hafa ekki möguleg skaðleg
áhrif eins og gervisætuefnin. Allt er
þó best í hófi.
1. Melassi
Síróp sem verður til við vinnslu á
sykri. Á ensku nefnt molasses. Get-
ur verið frá því að vera gullinbrúnt til
þess að vera nærri svart. Gefur púð-
ursykri lit og bragð. Oft notað sem
sætuefni yfir pönnukökur og slíkt.
Þykir ómissandi í pipar og engi-
ferkökur.
Prófaðu: Að nota örlítið af
melassa á bakað grænmeti, svo sem
gulrætur, ofan á súrmjólkina og í
smákökubaksturinn.
2. Döðlur
Döðlur eru náttúrulega sætar og þess
vegna góður kostur til þess að sæta
eftirrétti. Í döðlum er B6-vítamín,
A-vítamín, pótassíum og kalk. Notið
döðlur í búðinga, kökur og konfekt.
Prófaðu: Að hræra saman döðlur
og banana í matvinnsluvél, settu
klaka út í og útkoman er ljúffengur
en hollur ísréttur.
3. Hunang
Hunang hefur
bakteríudrepandi
eigin leika og er
uppspretta and-
oxunarefna. Því dekkra
því meiri andoxunareiginlegar. Það
er best hrátt eða eins lítið unnið
og mögulegt er. Notið hunang í te,
jógúrt, kökur og ofan á brauð.
Prófaðu: Að hella örlitlu af hun-
angi yfir grillað brauð með osti.
4. Hlynsíróp
Hlynsírópi má ekki
rugla saman við
venjulegt síróp sem
er næringarsnauð-
ur sykur. Hlynsíróp
er unnið úr safanum úr berki hlyn-
trés, og er bæði næringarríkt og ljúf-
fengt á bragðið. Í því er kalk og sink
og ríbóflavín sem stuðlar að góðum
efnaskiptum.
Hlynsíróp er gott að nota í heima-
lagaðan ís, á pönnukökur, út á hafra-
grautinn, jógúrtina og í kökur.
Prófaðu: Hlynsíróp í kalda drykki
og kokkteila með klaka. Hentar mjög
vel með trönuberjasafa og í mintu-
drykki hvers lags.
5. Stevía
Stevía er kaloríusnautt sætuefni sem
er hundrað sinnum sætara en syk-
ur en unnið á náttúrulegan hátt úr
suðuramerískri jurt. Stevía er í raun
eina örugga sætuefnið á markaði og
það má nota í allan bakstur, te og
kaffi, út í bústið á morgnana og fleira.
Prófaðu: Að sæta hreint skyr með
stevíu og vanillu. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Oddrún Helga Símonardóttir
er þriggja barna móðir með
óslökkvandi áhuga á heilsu og
hollu mataræði. Hún heldur úti
heimasíðunni heilsumamman.
is, þar sem er að finna fjölda upp-
skrifta að hollum og góðum mat og
sælgæti. Oddrún gefur lesendum
uppskrift að næringarríku sælgæti.
Súkkulaði með karamellu
fyllingu
Súkkulaði: Bræðið 200 gr af 70%
súkkulaði (eða 56%).
Karamella:
n 0,5 dl smjör
n 0,5 dl hlynsíróp
n 1 dl rjómi
n 0,5 tsk. af vanillukornum
n Örlítið salt
Millilag: 1 dl af gróft söxuðum
möndlum eða öðrum hnetum
að eigin vali (mjög gott að hafa
pekanhnetur)
Aðferð: Súkkulaði er sett í mót og
sett í frysti á meðan karamellan er
löguð. Þegar súkkulaðið kólnar er
karamellunni hellt yfir, hún hefur
þá fengið að kólna aðeins. Þessu er
aftur stungið í frysti og að síðustu
eru settar hnetur yfir.
Uppskrift að næringarríku sælgæti