Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Side 8
S
túlkurnar sem dæmdar voru
í sjö og sjö hálfs árs fangelsi
fyrir kókaínsmygl í Tékklandi
heita Aðalsteina Líf Kjartans-
dóttir og Gunnhildur Svava
Guðmundsdóttir. Báðar eru þær
nítján ára.
Þær sitja nú hvor í sínu fangelsinu
í Prag, höfuðborg Tékklands, önnur í
Pankrác og hin í Ruzyne-fangelsinu.
Gunnhildur og Aðalsteina voru
handteknar við komuna til Tékklands
þann 7. nóvember í fyrra. Þær voru
dæmdar á miðvikudag en þá höfðu
þær þegar setið rúmt ár í gæsluvarð-
haldi. Aðalsteina fékk sjö ára dóm og
Gunnhildur sjö og hálft ár. Samtals
voru þær með um þrjú kíló af kókaíni
vandlega falið í ferðatöskum sínum.
„Algjört sjokk“
Búist hafði verið við að dómurinn
gæti orðið þungur en ekki jafn þung-
ur og raun ber vitni. „Það var al-
gjört sjokk má segja. Það var eins og
þær sögðu bara þegar þær heyrðu
dóminn: Nú get ég dáið,“ sagði Þórir
Gunnarsson, fyrrverandi ræðismaður
Íslands í Tékklandi, í samtali við DV.is
stuttu eftir að dómur var kveðinn upp.
Foreldrar Aðalsteinu voru viðstaddir
dómuppkvaðninguna ásamt Þóri
en enginn úr fjölskyldu Gunnhildar.
Faðir hennar hefur þó tvisvar sinnum
heimsótt hana meðan á fangelsisdvöl
hennar hefur staðið. Lífið í fangelsinu
er nokkuð einmanalegt en stúlkurnar
eru þó í bréfasambandi við ættingja
og vini og munu líklega afplána í
sama fangelsi innan skamms. „Þær
hafa lítið sem ekkert fengið að hittast
vegna rannsóknarhagsmuna og hafa
verið hvor í sínu fangelsinu. Þær
eru mjög góðar vinkonur og það er
kannski viss huggun í því að bráðum
verða þær í sama fangelsi og geta þá
tekist á við þetta saman,“ segir heim-
ildarmaður DV sem vill ekki koma
fram undir nafni.
Dómurinn kom aðstandendum
stúlknanna í opna skjöldu en ekki
hafði verið búist við svo löngum
dómi. Þórir sem hefur verið þeim
Aðal steinu og Gunnhildi innan hand-
ar meðan á fangelsisdvölinni stendur,
gagnrýnir niðurstöðu dómsins og
segir hana afar harða. „Hún er mjög
ákveðin og hörð miðað við aðra dóma
og aldur stúlknanna. Auðvitað vitum
við að þær eru sekar en þetta er miklu
verra en við áttum von á,“ segir Þórir.
„Það er ótrúlegt hvernig dómarinn
tók á málinu.“
Grunaði að eitthvað misjafnt
væri í gangi
Þær Aðalsteina og Gunnhildur voru
góðar vinkonur þegar þær voru litlar
stelpur en svo slitnaði upp úr sam-
bandinu þegar þær fluttust í sitt-
hvort hverfið. Þær kynntust svo aftur
á unglingsárum. Þegar Gunnhildur
var nokkurra ára gömul flutti móðir
hennar frá Íslandi og Gunnhildur varð
eftir hjá föður sínum. Hann flutti svo
úr landi og hún varð eftir á Íslandi og
bjó meðal annars á fósturheimilum.
Nokkrum sinnum á unglingsárum
þeirra var auglýst eftir þeim í fjölmiðl-
um eftir að þær skiluðu sér ekki heim.
Þegar stelpurnar fóru út þá sögðu
þær vinum og ættingjum að þær
væru að fara út að heimsækja föður
Gunnhildar sem búsettur er í Svíþjóð.
Þær sögðust ætla að fara út í stutt frí
en fljótlega kom þó í ljós að svo var
ekki. Fréttist af þeim bæði á Spáni
og svo í Brasilíu. Ættingjar þeirra
höfðu áhyggjur af ferðalaginu og fór
að gruna að eitthvað misjafnt væri
í gangi. Þær munu þó hafa fullviss-
að fjölskyldur sínar um að um ekk-
ert slíkt væri að ræða og voru í sam-
bandi við fjölskyldumeðlimi og vini
nokkrum dögum fyrir handtökuna.
Raunin var hins vegar önnur og eins
og áður segir voru þær síðan hand-
teknar í Prag. Þá höfðu þær flogið
frá Sao Paulo í Brasilíu til München í
Þýskalandi.
Kanna tengsl við þekkta
smyglara
Þýsku tollvörðunum þótti stúlkurnar
grunsamlegar en létu þær sleppa í
gegn til að komast að hvert þær væru
að fara og voru þær undir eftirliti. Þær
voru svo handteknar á flugvellinum
en þá beið þeirra bílstjóri fyrir utan.
Kókaín fannst vandlega falið í farangri
þeirra og þótti fulljóst að þær hefðu
ekki staðið einar að því að fela efnin
enda komst dómurinn að því á mið-
vikudag að þær hefðu verið burðardýr
fyrir einhverja aðra.
Samkvæmt heimildum DV stóð
til að þær færu til Kaupmannahafnar
með efnin. Í fréttaflutningi RÚV af
málinu kom fram að verið sé að rann-
saka hvort smyglið teygi anga sína til
Íslands, Danmerkur og Brasilíu. Tékk-
neska lögreglan rannsakaði meðal
annars hvort stúlkurnar hafi verið á
leið til Kaupmannahafnar að hitta tvo
menn sem sitja nú í gæsluvarðhaldi
í Kaupmannahöfn, annar íslenskur
ríkisborgari og hinn pólskur búsettur
á Íslandi. Þeir voru handteknir í nóv-
ember í fyrra með 41 þúsund e-töfl-
ur, hálft kíló af kókaíni og 3,3 milljónir
íslenskra króna í reiðufé. Einnig er
rannsakað hvort málið tengist Sverri
Þór Gunnarssyni, eða Svedda tönn
eins og hann er gjarnan kallaður,
margdæmum fíkniefnasmyglara, sem
situr nú í fangelsi í Brasilíu en hann
hlaut 22 ára dóm í nóvember í fyrra
fyrir að skipuleggja smygl á 50 þús-
und e-töflum.
Vilja fá þær framseldar heim
Össur Skarphéðinsson, þáverandi
utanríkisráðherra, sagði stuttu eftir
handtöku stúlknanna að utanríkis-
ráðuneytið myndi gera allt í þess valdi
til þess að hjálpa stúlkunum og fá þær
framseldar til Íslands til að afplána
dóm sinn hér. Það er þó ekki fram-
salssamningur í gildi milli landanna.
Í samtali við mbl.is á fimmtudag segir
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráð-
herra að íslenska ríkið muni beita sér
fyrir því að fá þær framseldar heim
þegar niðurstaða fáist af næsta dóm-
stigi.
„Ég get fullyrt það að íslensk
stjórnvöld, hvort sem það er utan-
ríkisþjónustan eða innanríkisráðu-
neytið, munum gera allt sem mögu-
lega getum til þess þá að stúlkurnar
geti þá verið hér heima til að afplána
sinn dóm sem þær kunna að fá,“ sagði
Gunnar Bragi í samtali við mbl.is.
Eins og áður sagði hefur dómnum
verið áfrýjað en það getur tekið allt að
tveimur árum frá því að ákæra var birt
þeim þangað til málið verður tekið
fyrir á ný. Þangað til munu þær dvelj-
ast í fangelsi ytra. n
8 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Rau›arárstíg 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.isGALLERÍ FOLD
Gallerí Fold býður þér að koma með listmuni
til verðmats, laugardaginn 16. nóvember kl. 11–16
Verðmatsdagur
í Gallerí Fold
Átt þú verðmæti sem þú vilt selja?
Stærsta uppboð ársins fer fram í desember og
munu sérfræðingar gallerísins verðmeta listmuni
þína með sölu í huga.
n Dópsmyglið endaði með ósköpum n Tengist hugsanlega þekktum brotamönnum
SorgarSaga í tékklandi
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Það var algjört
sjokk má segja.
Það var eins og þær
sögðu bara þegar þær
heyrðu dóminn: Nú get ég
dáið.
Séð inn í klefa Hefðbundinn fangaklefi í
fangelsinu Ruzyne.
Fangaklefi Hefðbundinn fangaklefi í
gæsluvarðhaldsfangelsinu Ruzyne er með
koju, hillu og skrifborði.
Heimsóknarherbergið Hér fá fangar
heimsóknir í fangelsinu Ruzyne.
Pankrác Hér sést inngangurinn inn í
fangelsið Pankrác.
Pankrác Útisvæðið í fangelsinu Pankrác er
afgirt með háum girðingum og gaddavír.
Aðalsteina og Gunnhildur
Þær Aðalsteina og Gunnhildur hafa
setið í fangelsi í Tékklandi í ár. Á
miðvikudag voru þær dæmdar í sjö
og sjö og hálfs árs fangelsi.