Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
„Ekkert án okkar, um okkur“
n Fötluðu fólki ekki boðið að borðinu
E
kki ætti að fjalla um málefni
fatlaðs fólks án aðkomu þess
sjálfs að málinu. „Ekkert án
okkar, um okkur,“ segir Freyja
Haraldsdóttir, varaþingmaður
Bjartrar framtíðar og framkvæmda-
stýra NPA-miðstöðvarinnar. Hún
lagði á mánudag fram fyrirspurn til
félags- og húsnæðismálaráðherra,
Eyglóar Harðardóttur, um það með
hvaða hætti Eygló ætli sér að bæta
réttarstöðu fatlaðs fólks þegar kem-
ur að samráði við hópinn. Freyja
vildi fá upplýsingar um það hvernig
megi með markvissum aðgerðum
auka náið samráð við fatlað fólk
sjálft, virka þátttöku þess og aðkomu
að allri ákvarðanatöku frá upphafi
ferils til enda, á öllum stigum stjórn-
sýslunnar, í málum sem það varðar.
Freyja fjallar um málið á heima-
síðu sinni og bendir á að reynslan
sýni að fatlað fólk komi almennt
aðeins að stefnumótun eða laga-
setningu á lokastigum málsins.
Hópurinn sé í miklum minnihluta
á mælendaskrá þar sem rætt sé um
málefni hans og sjaldnast fái fatl-
að fólk sæti í nefndum eða ráðum
og stefnumótun og framkvæmd er
varðar líf þess. Hér skjóti skökku
við, enda séu fáir sem hafi jafn góða
innsýn inn í aðstæður hópsins, eins
og hann sjálfur. „Fulltrúar heildar-
samtaka fatlaðs fólks hafa skil-
greinda samráðsstöðu í lögum um
málefni fatlaðs fólks, sem er vel, en
þeim samtökum er hins vegar oft
stýrt af ófötluðu fólki sem sendir ít-
rekað ófatlaða fulltrúa að borðinu,“
segir hún.
Eygló segist ætla að beita sér fyrir
valdeflingu og notendasamráði og
huga að því hvernig hægt sé að bæta
úr því. „Um er að ræða mjög fjöl-
breyttan hóp og því er mikilvægt að
huga að því þegar við skipuleggjum
verkefni, hugum að starfshópum,
nefndum og þingum og öðru sem
snertir þetta,“ segir Eygló. Freyja
bendir hins vegar á að þetta sé lög-
bundin skylda stjórnvalda og vill
skýrari svör frá ráðherranum. n
astasigrun@dv.is
Sunnudaginn 17. nóvember
verður safnaramarkaður í
Síðumúla 17 (2. hæð)
kl. 13 - 16
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent • Frímerki
Póstkort o.fl. • Sala - Kaup - Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG
ÍSLANDS
www.mynt.is
Safnaramarkaður
17. nóvember
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Skýr svör Freyja vill að fatlað
fólk fái aðgang að stefnumótun
er varðar líf þess. Mynd Sigtryggur Ari
Mætti ekki
Hannes Smárason, fyrrverandi
stjórnarformaður FL Group, mætti
ekki þegar ákæra embættis sér-
staks saksóknara á hendur honum
var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur á fimmtudag, þrátt fyrir að
bera skylda til að mæta.
Hannes er ákærður fyrir fjár-
drátt, en til vara fyrir umboðs-
svik. Er honum gefið að sök að
hafa í apríl 2005 millifært tæpa
þrjá milljarða króna af reikningi
FL Group í Bandaríkjunum yfir á
nýstofnaðan reikning FL Group í
Lúxemborg. Þremur dögum síð-
ar millifærði Hannes upphæðina
yfir á reikning Fons, félags Pálma
Haraldssonar, í sama banka. Málið
tengist svokallaðri Sterling-fléttu.
Í ákærunni kemur fram að
millifærsla þessi hafi verið án vit-
undar annarra stjórnarmanna FL
Group og hvorki forstjóri né fjár-
málastjóri FL Group hafi vitað
af henni eða samþykkt. Gögn
ákæruvaldsins sýna að Hannes
hélt millifærslunni leyndri fyrir
samstarfsfólki sínu hjá fyrirtækinu
og enginn hafi haft aðgang að um-
ræddum bankareikningi FL Group
nema Hannes fyrr en tveimur
mánuðum síðar. Fram að þeim
tíma var millifærslan upp á 2.875
milljarða króna ekki færð í bók-
hald FL Group.
Enn fremur kemur fram að það
sé Hannesi ekki til bóta að fjár-
munirnir hafi skilað sér aftur til
félagsins. Ljóst megi vera að það
hafi aðeins gerst í kjölfar þess að
aðrir stjórnarmenn í FL Group
fengu veður af málinu og Hannes
því nauðbeygður að krefjast
endurgreiðslu frá Fons.
Fram kemur að til vara er ákært
fyrir umboðssvik. Hannes hafi
sem stjórnarformaður misnotað
aðstöðu sína og valdið mikilli fjár-
tjónshættu fyrir FL Group með
gjörðum sínum.
Fram kom fyrir dómi að Hann-
es búi á Spáni og legið hafi fyrir að
hann myndi ekki mæta. Verjandi
Hannesar fór fram á frest og fékk.
Málið verður tekið fyrir 9. janúar.
Fluttu í tíu sinnum
stærra húsnæði
n Skrifstofa þjóðgarðsvarðar stækkar við sig í miðjum niðurskurði
S
krifstofa þjóðgarðsvarðarins
á Þingvöllum var í september
flutt inn í stærra húsnæði, í
Austurstræti, en hún hefur
verið í. Nýja skrifstofuhús-
næðið er tæpir 140 fermetrar og er
leigt af fasteignafélaginu Reitum fyrir
300 þúsund krónur á mánuði að sögn
þjóðgarðsvarðar, Ólafs Arnar Haralds-
sonar. Húsnæðið er í Austurstræti 12.
Stífur niðurskurður hefur verið
boðaður af nýrri ríkisstjórn og reif-
aði hagræðingarhópur ríkisstjórnar-
innar tillögur um niðurskurð hjá hinu
opinbera í síðustu viku. Tillögurnar
ganga meðal annars út á samein-
ingu ríkisstofnana og samræmingu í
rekstri þeirra og að aðhald verði sýnt
í hvítvetna í rekstri þeirra. Ef marka
má orð Ólafs Arnar þá var hins vegar
nauðsynlegt fyrir skrifstofu þjóð-
garðsvarðar að stækka við sig húsa-
kynnin.
Þrír á tólf fermetrum
Áður hafði skrifstofa þjóðgarðsvarð-
ar verið í 12 fermetra herbergi í
Austur stræti en það húsnæði var á
vegum Alþingis. Ólafur Örn segir að
þrír starfsmenn hafi deilt þessu 12
fermetra rými. „Já, það er mikill á
munur á þessu. Í fyrra húsnæðinu
vorum við samtals þrjú í tólf fermetr-
um. Við vorum líka inni á þingmönn-
um í fyrra húsnæðinu. Þingið þarf á
fjögurra ára fresti að færa þingmenn
sína til. Þetta var óhagræði fyrir þing-
ið og vildi það því allt fyrir okkur
gera,“ segir Ólafur Örn en fyrra hús-
næði skrifstofu þjóðgarðsvarðar var
í sama húsnæði og skrifstofur þing-
manna.
Ólafur Örn segir að fyrra hús næðið
hafi verið svo lítið að starfsmenn
þjóðgarðsins hafi ekki getað tekið
á móti gestum á fundum og annað
slíkt. „Það er eðlilegt að við séum með
okkar fundarherbergi og getum sest
niður í okkar húsakynnum. Það er
ómögulegt að við séum alltaf á ein-
hverjum þvælingi. Það er mjög mikill
vöxtur í okkar starfsemi og við gátum
ekki tekið á móti nokkrum manni,
gátum ekki einu sinni tekið viðtöl við
fólk sem var að sækja um störf heldur
þurftum alltaf að fara út í bæ til þess,“
segir Ólafur Örn.
Kostnaður upp á 3,6 milljónir
Kostnaðurinn við nýja húsnæðið er
um 3,6 milljónir króna á árinu en áður
en þjóðgarðsvörður flutti inn í það
hýsti skrifstofan ræðismann Færeyja.
DV hefur heimildir fyrir því að ræðis-
manninum hafi þótt leigan fullhá.
Ólafur Örn segir hins vegar að ekki hafi
þurft aukafjárveitingu til að standa
straum af leigukostnaðinum. „Nei,
nei við þurfum þess ekki.“ Aðspurður
hvort hann viti til þess að ræðismaður
Færeyja hafi farið út úr húsnæðinu
vegna verðsins á því segist Ólafur Örn
ekki vita það. Hann segist hafa kann-
að fermetraverðið á svæðinu áður en
gengið var frá leigusamningnum: „Ég
veit ekki betur en að þetta sé eðlilegt
leiguverð, markaðsverð.“
Flutningurinn á skrifstofunni var
tekinn fyrir af Þingvallanefnd eftir
kosningarnar í vor en var ekki mikið
ræddur. Í Þingvallanefndinni sitja
fulltrúar stjórnmálaflokka á Alþingi.
„Það er mikilvægt að við séum nálægt
þinginu þar sem við heyrum und-
ir þessa þingnefnd og undir Alþingi,“
segir Ólafur Örn en skrifstofan heyrir
undir forsætisráðuneytið. Ólafur Örn
segir að flutningurinn hafi átt sér stað
í samvinnu við ráðuneytið.
Með flutningi skrifstofunnar í
nýtt húsnæði hefur nú verið fund-
inn framtíðarstaður fyrir skrifstofu
þjóðgarðsvarðar. Skrifstofa þjóð-
garðsvarðar stækkar við sig á meðan
margir aðrir opinberir aðilar draga
saman seglin. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þetta var óhag-
ræði fyrir þingið og
vildi það því allt fyrir
okkur gera.
Þrjú í tólf fermetrum Ólafur Örn
Haralds son segir að áður hafi þrír starfs-
menn skrifstofunnar verið á 12 fermetrum.
Í stærra húsnæði Skrifstofa
þjóðgarðsvarðar Þingvalla
flutti fyrir skömmu í stærra
húsnæði í Austurstræti.