Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 14
14 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Eldhústæki
Gram er gæðamerki sem uppfyllir kröfur
þínar í dag og til framtíðar.
Um áratuga skeið hefur Gram þróað
gæðavörur fyrir íslensk eldhús.
Þú getur fengið Gram eldhústæki úr
ryðfríu stáli eða hvítu, frístandandi eða
innbyggð.
– glæsileiki, gæði og tímalaus hönnun
Líttu við og skoðaðu úrvalið!
FÖNIX Raftækjaverslun • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • Fax 562 3735 • fonix@fonix.is • www.fonix.is
S
egja má að sannkallað
kattarfár ríki í blokk í
Breiðholtinu. Í blokkinni eru
sex íbúðir og þar býr meðal
annarra heyrnarlaust par frá
Litháen með börnin sín og kött, en
nágrannar þeirra vilja köttinn burt.
Kötturinn er fjölskyldunni mikið yndi
en þau finna sig knúin til þess að
finna honum annað heimili. Hjónin
hafa átt köttinn í rúm þrjú ár en hafa
búið í íbúðinni, sem þau eiga, frá því
í febrúar.
Kötturinn veldur tveimur íbúðar-
eigendum nokkrum ama, þó sérstak-
lega einum. Ef marka má bréfaskriftir
hans er kötturinn ekki velkominn í
blokkina og vill hann að kötturinn fari
hið snarasta, eigi síðar en fyrsta des-
ember næstkomandi.
Mátti áður hafa kött
Það er af sem áður var, en áður hafa
kettir verið í blokkinni án þess að
íbúar amist við þeim. Samkvæmt lög-
um um fjöleignarhús þarf kötturinn
leyfi fjögurra íbúða í blokkinni til að
mega vera það. Allir húsfundir hafa
snúist um köttinn að undanförnu og
stöðugar bréfaskriftir og kvartanir
hafa valdið eigendum kattarins miklu
hugarangri. „Ég hef grátið yfir þessu,“
segir konan, eigandi kattarins, og segir
málið mjög erfitt enda sé áreitið mikið.
„Við höfum reynt að finna honum nýtt
heimili en ekkert gengur,“ segir hún.
Parið á nýfætt barn, tæplega mánaðar
gamalt. Kötturinn er þriggja ára og
mikil kelirófa. Síðustu mánuðina
hefur kötturinn aðeins verið inni-
köttur og fer ekkert út.
Hann var vanur að fara út en hefur
ekki gert það síðustu mánuði. Það er
von þeirra hjóna að þau fái að hafa
köttinn, en gangi það ekki upp verði
hann að fá annað heimili.
„Mér finnst þetta ekki fallegt,“ segir
nágranni hjónanna og stuðningskona.
Hún átti sjálf kött í blokkinni sem
enginn gerði athugasemdir við. Hún
þurfti að láta hann frá sér vegna of-
næmis fyrir skemmstu. Hún hefur tek-
ið að sér að aðstoða hjónin og passaði
köttinn í sumar þegar þau fóru utan.
Þá varð hún vör við þá miklu andúð
sem kötturinn og fjölskyldan sætir
enda beindist hún þá að henni.
Tók myndir inn um glugga
Steininn tók úr á dögunum þegar
að fólkið fékk sendar myndir, tekn-
ar úr garði hússins og inn í þeirra
íbúð. Þar sést kötturinn sitja í glugga
íbúðarinnar. Þessu fylgdi bréf þar
sem farið var yfir reglugerðir um það
hvernig kattarhaldi skal háttað í fjöl-
býlishúsi. Þar segir að næstu skref séu:
„að unnið verði að því að eigendum
katta verði gert að fara að lögum um
fjöleignarhús og næstu skref athuguð
í samráði við lögfræðing,“ og fólkinu
gefið tækifæri til að ljúka málinu fyrir
fyrsta des.
„Er þetta ekki fallegt?“
Í kjölfar þeirra bréfaskrifta fékk fjöl-
skyldan svo bréf þar sem nágranni
hennar benti á að þau ættu að íhuga
það vel og vandlega að flytja í sveit með
allt sitt hafurtask. Með fylgdi hlekkur á
húsnæði auglýstu á fasteignavef þar
sem nágranninn dásamaði húsnæðið
og sagði: „Er þetta ekki fallegt?“
Konan segir málið allt hafa tekið
mikið á þau og ekki hjálpi til að það
standi yfir á meðan að hún er með
nýfætt barn í höndunum. Ekkert til-
lit sé tekið til þess að þau hafi reynt
að losa sig við köttinn og hafa þau
nú sett af stað undirskriftasöfnun til
þess að reyna að halda honum. Fólk-
inu er mjög í mun að koma kettinum
á gott heimili og segjast í samtali við
DV vonast til þess að einhver vilji taka
hann að sér. n
Kattarfár í Breiðholti
n Vilja losna við kött heyrnarlausra foreldra n Nágrannar hóta lögfræðingum
Þurfa
samþykkið
Samþykki tveggja þriðju hluta eigenda
í fjölbýlishúsi með sameiginlegum
inngangi og stigagangi þarf fyrir hunda-
og kattahaldi. Ekki þarf samþykki
sameigenda þegar íbúð hefur hvorki
sameiginlegan inngang eða stiga-
gang. A er sem áður var, en þá þurfti
samþykki allra í slíkum tilvikum. Þegar
þessi breyting var gerð á lögum um
fjöleignarhús árið 2011, þótti það mikil
réttarbót fyrir dýraeigendur. Það var
hins vegar ekki svo gagnvart þeim sem
eru andvígir dýrahaldi í fjölbýli. Áður
dugði að einn væri því mótfallinn og
var hægt að banna katta- og hunda-
hald á þeim forsendum. Ef banna á öll
gæludýr, ekki bara hunda og ketti, þarf
það að byggjast á þinglýstu samþykki
allra eigenda, að því er fram kemur
á vef Húseigendafélagsins, enda er
rétturinn til séreignarinnar mjög sterkur
og takmarkað vald er til þess að ganga
á hann. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Finnst þetta erfitt
„Ég hef grátið yfir
þessu,“ segir konan,
eigandi kattarins.
Mynd SigTyggur Ari
Fylgist vel með Hér má sjá myndina sem
tekin var inn um glugga hjónanna.