Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Qupperneq 17
Fréttir 17Helgarblað 15.–17. nóvember 2013
Ríkislögreglustjóri í samstarfi
við dularfullt hulduapparat
GRPO eigi í nánu samstarfi við grein-
ingardeildina sem ber heitið National
Security Unit (NSU) á ensku: „GRPO
maintains liaison with the NSU.“ Í
enskri orðabók er „liaison“ skilgreint
sem samskipti og náið samstarf á
milli einstaklinga eða stofnana. Í ís-
lenskri orðabók er „liaison“ skilgreint
sem „samband; samhæfing; samstarf,
einkum milli hinna ýmsu deilda í her,
stjórnarráði, fyrirtækjum.“
Þessi samhæfing á milli GRPO
og greiningardeildarinnar þýðir því
að aðilarnir hafa með sér náið sam-
starf og eru í beinum samskiptum.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis-
ráðherra Íslands, leiddi líkur að því
í samtali við RÚV á dögunum að hið
nána samstarf sem Ísland hefði átt við
NSA, samkvæmt spænska fjölmiðl-
inum El Mundo, hefði einungis verið
hernaðar legs eðlis. Í greinargerð van
Voorst er ekkert sem bendir til þess að
samstarf greiningardeildarinnar við
GRPO sé einungis af hernaðarlegum
toga.
Viðkvæm samskipti
Erfiðlega hefur reynst að fá staðfest
hvað GRPO stendur fyrir og ljóst er að
mikil leynd hvílir yfir þessu apparati.
DV bar upplýsingarnar undir fyrrver-
andi embættismann heimavarnaráðu-
neytis Bandaríkjanna en hann leið-
ir líkur að því að í þessu tilfelli standi
GRPO fyrir tengiliði bandarískra
njósna- og leyniþjónustustofnana við
greiningardeild ríkislögreglustjóra.
Í skriflegu svari sem hann sendi
á DV segir hann að CIA sjái vanalega
um að halda úti tengiliðum sem hafi
það hlutverk að vera í nánu tengsla-
samstarfi við leyniþjónustur einstaka
ríkja. Þessi samskipti séu eðli málsins
samkvæmt afar viðkvæm og því sé ekki
ólíklegt að GRPO sé dulnefni yfir þessa
tengiliði: „Skrifstofa hnattrænna rann-
sókna og áætlana (GRPO) er líklega
dulnefni yfir leyniþjónustustofnun.“
Enginn vilji nefna „CIA“ eða „NSA“ á
nafn í skjölum sem ekki eru skráð „top
secret“. „Vegna þess hve þessi tengsl
eru einstaklega viðkvæm, er einung-
is hægt að ræða um þau í leynilegum
skjölum undir skammstöfun, jafnvel
dulkóðun.“
Upplýsingar CIA til NSA
Þessi heimildarmaður DV, sem hefur
þekkingu á innra starfi leyniþjón-
ustustofnana Bandaríkjanna, leggur
þó áherslu á að erfitt sé að sannreyna
þetta enda bendi allt til þess að mik-
il leynd hvíli yfir því hvaða aðilar séu
þarna að baki, þar sem skammstöf-
unin vísi í apparat, Global Research
Planning Office, sem eigi sér ekki
opin bera tilvist. Þá tekur hann fram að
upplýsingum sem þessir aðilar afli geti
auðveldlega verið komið til annarra
bandarískra leyniþjónustustofnana.
Þannig sé ekkert sem komi í veg fyrir
að upplýsingar sem CIA afli endi í
gagnagrunnum NSA. Enda hafi dæm-
in sýnt að starfsmenn CIA eru stund-
um á mála hjá NSA, eins og í tilfelli Ed-
wards Snowden.
Þessi fyrrverandi embættismaður
heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna
vísar í fleiri leyniskjöl Wikileaks sem
benda til þess að GRPO séu aðil-
ar á vegum njósna- og leyniþjón-
Gagnagrunnur greiningardeildar
Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur víðtækar heimildir til söfnunar persónuupplýsinga.
Í
reglugerð númer 404 frá árinu
2007 um greiningardeild ríkis-
lögreglustjóra kemur fram að
hlutverk greiningardeildarinnar
sé meðal annars að: „Safna upp-
lýsingum, úrvinnsla, greining og
skipti á upplýsingum í því skyni að
koma í veg fyrir eða draga úr líkum
á afbrotum.“ Þá skuli greiningar-
deildin „taka þátt í undirbúningi
aðgerða til stuðnings lögreglunni í
landinu og afla upplýsinga í málum
er tengjast öryggi ríkisins.“ Í 7. grein
sömu reglugerðar segir að ríkis-
lögreglustjóri skuli setja sér verk-
lagsreglur um miðlægan gagna-
grunn samkvæmt fyrstu málsgrein
6. greinar sömu reglugerðar en þar
segir: „Greiningardeild ríkislög-
reglustjóra fer með alþjóðlegt sam-
starf við öryggisstofnanir annarra
landa.“ Greiningardeildin hefur
því heimild til þess að deila þeim
upplýsingum sem hún safnar í
gagnagrunn, með erlendum leyni-
þjónustustofnunum.
DV bað um afrit af þeim verk-
lagsreglum sem greiningar-
deildin átti að setja sér um mið-
lægan gagnagrunn samkvæmt
fyrrgreindri reglugerð. Í svari frá
Jóni F. Bjartmarz hjá greiningar-
deildinni kom fram að heimild til
skráningar í miðlægan grunn væri
að finna í reglugerð númer 322
frá árinu 2001. Þar er hins vegar
hvergi minnst á miðlægan gagna-
grunn en í 6. grein þeirrar reglu-
gerðar er sérstaklega fjallað um
miðlun persónuupplýsinga. Þar
kemur fram að greiningardeildin
hafi heimild til þess að miðla
persónuupplýsingum til annarra
stjórnvalda og erlendra lögreglu-
yfirvalda „samkvæmt lagaheimild
eða samkvæmt heimild Persónu-
verndar eða ef miðlun upplýsinga
er nauðsynleg til að koma í veg
fyrir alvarlega og aðsteðjandi
hættu.“ Þá kemur fram að grein-
ingardeildinni sé heimilt að miðla
persónuupplýsingum til erlendra
lögregluyfirvalda án þess að fá
heimild fyrir því hjá Persónuvernd,
ef það ríki sem fær upplýsingarn-
ar veiti „fullnægjandi persónuupp-
lýsingavernd.“
Á vef Persónuverndar má finna
upplýsingar um hvernig upplýs-
inga er aflað í gagnagrunninn:
„Annars vegar upplýsingar úr nú-
verandi lögreglukerfum úr dag-
bók, málaskrá og upplýsinga-
skýrslur úr svokölluðu LÖKE kerfi
svo og aðrar óstaðfestar upplýs-
ingar sem berast lögreglu eða hún
aflar. Einnig upplýsingar úr opin-
berum skrám eftir atvikum vegna
einstakra rannsóknagreininga.“ Þá
kemur fram að haldin sé skrá yfir
upplýsingar um einstaklinga, hópa,
félög, fyrirtæki eða annað „sem
tengist“ hinum ýmsu brotaflokkum
sem taldir eru upp. Þá kemur fram
að gagnagrunninum verði skipt í
undirflokka svo sem „öfgahópa“,
„öryggisógnir“ og annað samsvar-
andi. n
ustustofnana. Þar á meðal í skjöl frá
heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna
sem kólumb íska vikublaðið Semana
fjallaði um árið 2011. Í skjölunum er
vísað í heimildir GRPO-tengiliða sem
fullyrða að núverandi utanríkisráð-
herra Ekvador, Ricardo Patiño, hafi
beðið kólumbísku skæruliðahreyf-
inguna FARC um fjárhagslegan stuðn-
ing í kosningasjóð forseta landsins,
Rafael Correa: „Tvær aðskildar GRPO-
heimildir, önnur mjög trúverðug, hafa
fullyrt að Patiño hafi safnað fé í kosn-
ingasjóð Correa.“
Engin svör
DV hefur borið upplýsingarnar úr
greinargerð van Voorst undir fleiri
heimildarmenn sem þekkja til njósna-
starfs Bandaríkjanna, og eru þeir
sama sinnis. Þá benda upplýsingar úr
öðrum skjölum sem finna má á vef-
síðu Wikileaks til þess sama. Vitnað er
í GRPO-tengiliði í skjölum sem tengj-
ast upplýsingasöfnun í hinum ýmsu
löndum heims, en þeir virðast eiga
það sammerkt að búa yfir mikilvæg-
um upplýsingum og þá er oft vísað til
þess að þeir geti aflað frekari upplýs-
inga ef þörf þyki.
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins átti fund með sendiherra
Bandaríkjanna í lok síðasta mánað-
ar þar sem þess var formlega farið á
leit að bandarísk stjórnvöld upplýstu
hvort, og þá hverjar, eftirlitsaðgerðir
með, eða dulin upplýsingaöflun um,
íslenska borgara hefði átt sér stað á
liðnum árum. Engin svör hafa ennþá
borist frá bandarískum stjórnvöldum.
Þá kom fram á vefsíðu utanríkisráðu-
neytisins að íslensk stjórnvöld hefðu
á síðustu misserum ítrekað komið því
á framfæri við bandarísk stjórnvöld
að njósnir á Íslandi eða um íslenska
ráðamenn og eða borgara væru með
öllu ósamrýmanlegar íslenskum lög-
um og því „góða og nána sambandi
sem ríkt hefur milli þjóðanna.“
Greiningardeild ríkislögreglustjóra
hefur ekki verið krafin svara, en full-
trúi hennar mun væntanlega svara
spurningum stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar á næstunni. n
„Líklega dulnefni yfir
leyniþjónustustofnun
Ríkislögreglustjóri
Haraldur Johannessen er
ríkislöreglustjóri. Greiningar-
deild ríkislögreglustjóra á í
nánu samstarfi við GRPO en
mikil leynd hvílir yfir því hvaða
aðilar það eru.
n Virðist vera á vegum njósnastofnana n Kannast ekki við aðila sem eru sagðir í samstarfi við greiningardeildina í leyniskjölum Wikileaks