Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 18
R
ými er fyrir tvo aðstoðarmenn
til viðbótar samkvæmt lög-
um án þess að ríkisstjórnin
þurfi sjálf að taka afstöðu til
þess. Ásmundur Einar Daða-
son hefði því nærri fyllt heimilaðan
aðstoðarmannakvóta sem kveðið er
á um í lögum hefði hann þegið laun.
Hann tók við starfi aðstoðarmanns
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
forsætisráðherra á þriðjudag í sjálf-
boðavinnu. Aðeins er heimild fyrir því
að ráðherrar ráði sér samtals sem nem-
ur tveimur aðstoðarmönnum á hvern
ráðherra með þeirri undantekningu að
ríkisstjórnin getur gefið viðbótarheim-
ild fyrir þremur aðstoðarmönnum til
viðbótar.
Þegar eru þrír aðstoðarmenn í for-
sætisráðuneytinu samkvæmt skilgrein-
ingu laga en einn þeirra hefur titilinn
upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar
og annar efnahagsráðgjafi forsætisráð-
herra. Ásmundur Einar er því fjórði að-
stoðarmaðurinn sem bætist við í teymi
Sigmundar Davíðs á kjörtímabilinu.
Mörg hundruð þúsund í laun
Ásmundur Einar afsalar sér rúmlega í
700 þúsunda króna launaávísun sem
hefði komið til viðbótar þingfararkaup-
inu. Launataxti aðstoðarmanna miðast
við laun skrifstofustjóra í ráðuneytum
en samkvæmt upplýsingum frá Kjara-
ráði eru mánaðarlaun þeirra 715.235
krónur. Árslaunin nema því 8.582.820
krónum.
Þegar nýtur Ásmundur Einar sömu
kjara og aðrir þingmenn. Með 630
þúsund krónur á mánuði í þingfarar-
kaup og 125 þúsund krónur greiddar
sem styrk vegna húsnæðis- og dvalar-
kostnaðar, þar sem hann er þingmað-
ur af landsbyggðinni. Þá fær hann líka
78.200 krónur greiddar mánaðarlega
í ferðakostnað og getur fengið endur-
greiddan kostnað sem hlýst af starfi
sínu að hámarki 1.014.000 króna á ári.
Kostnaðurinn getur meðal annars ver-
ið vegna styrkja og framlaga sem hann
veitir til stjórnmálaflokka. Fyrir það
þarf hann þó að framvísa reikningum.
Hann þarf svo ekki að greiða síma-
kostnað og getur fengið 40 þúsunda
króna styrk til farsímakaupa.
Treystir sér í verkið
Ásmundur Einar segist treysta sér vel
til að sinna þeim verkefnum sem fyrir
liggja í forsætisráðuneytinu. „For-
sætisráðherra metur það sem svo að
ég geti orðið að liði í þessu verkefni við
að aðstoða hann við að koma ákveðn-
um málum fram, meðal annars þess-
um hagræðingartillögum. Þá verð ég
að sjálfsögðu að liði í því,“ sagði þing-
maðurinn í samtali við DV á þriðjudag,
stuttu eftir að tilkynnt var um ráðn-
inguna. Hann hóf störf þegar í stað.
Ráðning Ásmundar Einars er
tímabundin en ekki var tilkynnt um
hvenær störfum hans í ráðuneytinu
muni ljúka. „Um tímabundna ráðn-
ingu er að ræða og mun Ásmundur
meðal annars halda utan um ýmis
verkefni sem forsætisráðherra vinnur
að, sjá um að samhæfa verkefni milli
ráðuneyta og fylgja eftir tillögum hag-
ræðingarhóps ríkisstjórnarinnar,“ sagði
í tilkynningunni. Samhliða þessu mun
hann líka halda áfram störfum í hag-
ræðingarhópnum en hann hefur gegnt
formennsku í honum undanfarið.
Siv líka tekin til starfa
Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi þing-
maður og ráðherra, hefur tekið til
starfa sem tímabundinn embættis-
maður. Hún er ráðin vegna verkefna
í tengslum við formennskuár Íslands
í Norður landaráði 2014. Hún starfar
í ráðuneyti Eyglóar Harðardóttur, fé-
lags- og húsnæðismálaráðherra, sem
er samstarfsráðherra Norðurlanda.
Í samtali við DV staðfestir Matthías
Imsland, aðstoðarmaður Eyglóar, að
Siv hafi ekki verið ráðin í ráðuneytið á
grundvelli laga um aðstoðarmenn líkt
og efnahagsráðgjafi forsætisráðherra
og upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar. Siv Greint var frá ráðningu Sivjar á
miðvikudag, daginn eftir að greint var
frá ráðningu Ásmundar.
Íslenskir ráðherrar hafa eins og
áður segir heimild til að ráða sér tvo
aðstoðarmenn hver án sérstakrar
ákvörðunar ríkisstjórnarinnar. Ráð-
herrarnir geta skipt kvótanum á milli
sín. Framsóknarflokkurinn hefur tekið
til sín stærstan hluta kvótans en aðeins
einn ráðherra flokksins hefur færri en
tvo aðstoðarmenn. Þau Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra, Ragnheiður
Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, og Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra eru öll aðeins með
einn aðstoðarmann.
Myndarlegur kostnaður
Allir ráðherrar hafa nýtt sér heimild
til að ráða sér aðstoðarmenn og flestir
hafa ráðið minnst fleiri en einn. Með
tilkomu Ásmundar Einars í forsætis-
ráðuneytið eru aðstoðarmenn ís-
lenskra ráðherra nú orðnir sautján.
Sextán þeirra eru á launum. Það þýð-
ir að launin sem þeir fá greidd nema
samtals 11.443.760 krónum á mánuði
eða 137.325.120krónum á ári. Það er
aðeins meira en gert var ráð fyrir að
almennur rekstur Þróunarsamvinnu-
stofnunar myndi kosta í fjárlögum
2013 og um það bil 70 prósent af þeirri
upphæð sem rukka á sjúklinga á Land-
spítalanum í legugjald á næsta ári.
Laun aðstoðarmannanna hafa
hækkað um 77.202 krónur síðan í mars
árið 2010, þegar launin voru rétt rúm-
lega 638 þúsund krónur. Síðasta hækk-
unin var í mars síðastliðnum þegar allir
launataxtar sem heyra undir Kjararáð
hækkuðu um 3,25 prósent. n
18 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Aðstoðarmenn fá
137 milljónir á ári
n Aðstoðarmannakvótinn að klárast n Einn af sautján starfar launalaust
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Forsætisráðherra
metur það sem
svo að ég geti orðið að
liði í þessu verkefni.
Aðstoðar-
mennirnir
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðum
ráðuneytanna eru aðstoðarmenn ráð-
herra samtals átján talsins. Einn starfar
þó í sjálfboðavinnu og eru því ekki nema
sautján á launum. Flestir ráðherranna
eru með fleiri en einn aðstoðarmenn;
einn er með fjóra, einn með þrjá, fjórir
með tvo og þrír með einn. Hér má sjá
yfirlit yfir aðstoðarmenn ráðherra.
n Svanhildur Hólm Valsdóttir,
aðstoðarmaður fjármála- og efnahags-
ráðherra
n Matthías Páll Imsland, aðstoðar-
maður félags- og húsnæðismálaráð-
herra
n Margrét Gísladóttir, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra
n Sunna Gunnars Marteinsdóttir,
aðstoðarmaður utanríkisráðherra
n Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðar-
maður innanríkisráðherra
n Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðar-
maður innanríkisráðherra
n Magnús Ragnarsson, aðstoðarmað-
ur mennta- og menningarmálaráðherra
n Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðar-
maður mennta- og menningarmála-
ráðherra
n Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir,
aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
n Ingvar Pétur Guðbjörnsson,
aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra
n Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar-
maður forsætisráðherra
n Sigurður Már Jónsson, upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar
n Benedikt Árnason, efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra
n Ásmundur Einar Daðason,
aðstoðarmaður forsætisráðherra
n Helga Sigurrós Valgeirsdóttir,
aðstoðarmaður sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra
n Benedikt Sigurðsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra
n Ingveldur Sæmundsdóttir,
aðstoðarmaður umhverfis- og auðlinda-
ráðherra
Launalaus Ásmundur
Einar starfar launalaust
í forsætisráðuneytinu
samhliða þingstörfum.
MynD RóBERT REynISSon
Fleiri aðstoðarmenn Fleiri ráðherrar nýta nú heimild til að hafa fleiri en einn aðstoðar-
mann. Nokkrir eru meira að segja með fleiri en tvo. MynD PRESSPHoToS.BIz
nýtur aðstoðar Sigmundur Davíð
nýtur nú aðstoðar þeirra Jóhannesar Þórs
Skúlasonar og Ásmundar Einars Daðasonar.
MynD ÞoRRI
Kemur ný inn Siv Friðleifsdóttir, fyrrver-
andi ráðherra, er tekin til starfa í ráðuneyti
Eyglóar Harðardóttur. MynD SIGTRyGGuR ARI
Í samanburði
B
yg
gð
aá
æ
tl
un
La
un
a
ðs
to
ða
rm
an
na
Ís
le
ns
k
fr
ið
ar
gæ
sl
a
Jö
fn
un
k
os
tn
að
ar
v
ið
d
re
ifi
ng
u
ra
fo
rk
u
M
en
nt
as
kó
lin
n
á
Ís
afi
rð
i
137,3
197,3
240,0
286,7 290,6Svona koma laun aðstoðarmanna á ársgrundvelli
út í samanburði við nokkra útgjaldaliði ríkisins í
fjárlagafrumvarpi næsta árs.