Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Qupperneq 20
20 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Sjö milljarðar runnu
til skattaskjóla
n Þremenningarnir Hannes, Jón Ásgeir og Pálmi unnu saman í FL Group-fléttunni
Á
kæran gegn Hannesi Smára-
syni í fjárdráttarmáli sérstaks
saksóknara gegn honum,
sem þingfest var á fimmtu-
daginn, opinberaði aðkomu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að
þriggja milljarða millifærslunni frá
FL Group sem ákært er fyrir. Þessi
aðkoma Jóns Ásgeirs setur millifær-
slumálið í alveg nýtt samhengi þar
sem hann hafði mikla persónulega
hagsmuni í málinu. Þetta var ekki
vitað áður en ákæra sérstaks sak-
sóknara gegn Hannesi var gerð opin-
ber um síðustu helgi.
Ástæðan fyrir því af hverju þetta
er vitað er sú að í ákærunni kemur
fram að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi
verið í ábyrgð fyrir endurgreiðslu á
láni upp á 3 milljarða sem Fons tók
hjá FL Group um sumarið 2005 til að
endurgreiða FL Group þessa upp-
hæð sem Hannes hafði látið milli-
færa til Lúxemborgar í apríl þetta
sama ár. Ástæðan fyrir endurgreiðsl-
unni var sú að verðandi forstjóri, og
stjórn, FL Group þrýsti á Hannes að
endurgreiða fjármunina og sagði
að annars yrði málið kært til lög-
reglunnar.
Þetta þýðir, og getur bara þýtt,
að Jón Ásgeir hafði einhverja hags-
muni í millifærslumálinu. Hverj-
ir nákvæmlega þeir hagsmunir voru
liggur ekki fyrir en ljóst er að þeir
voru einhverjir: Menn gangast ekki í
persónulegar ábyrgðir upp á 3 millj-
arða króna að ástæðulausu.
Orðaleikir Jóns Ásgeirs
Eftir að ákæra sérstaks saksóknara
var gerð opinber sendi Jón Ásgeir frá
sér fréttatilkynningu með orðaleikj-
um. „Ég var aldrei í ábyrgð fyrir FL
Group eða Hannes Smárason vegna
viðskipta með Sterling.“ Þetta er al-
veg rétt hjá Jóni Ásgeiri enda tóku
þessir aðilar ekki lánið frá Kaupþingi
í Lúxemborg sem notað var til að
endurgreiða FL Group um sumarið
2005 heldur Fons.
Fons hafði tekið við peningunum
frá FL Group í apríl og því var rök-
rétt að Fons endurgreiddi peningana
þegar málið var komið í óefni fyrir
þremenningana Hannes, Pálma og
Jón Ásgeir. Fons var auk þess sá aðili
sem átti veðhæfa og verðmæta eign:
Danska flugfélagið Sterling sem fé-
lagið hafði keypt með peningunum
frá FL Group, líkt og ákæra sérstaks
saksóknara sýnir. Þannig var það, að
öllum líkindum, Fons sem endur-
greiddi Kaupþingi í Lúxemborg lán-
ið, eða átti að gera það. Við höfum
engar heimildir fyrir því hvort eða
hvernig lánið var greitt upp en við
vitum hins vegar að hvorki Hannes
né Jón Ásgeir hafa verið settir í
persónulegt gjaldþrot út af láninu og
þar af leiðandi er líklegt að það hafi
verið endurgreitt.
Hafa líklega ætlað að þrauka
Hannes Smárason og félagar hafa að
öllum líkum litið svo á að þeir gætu
leynt millifærslunni út úr FL Group
þar til um haustið 2005 þegar FL
Group keypti Sterling aftur fyrir 15
milljarða króna. Þá hefðu þeir getað
látið Fons greiða FL Group aftur með
söluhagnaðinum sem varð til í við-
skiptunum, eða væntanlega. 11 millj-
arða króna munur var á verði Sterl-
ing þegar FL Group keypti flugfélagið
af Fons í október 2008 og þegar Fons
keypti félagið í apríl 2005. Þeir hafa
ætlað að þrauka með endurgreiðsl-
una þar til um haustið þegar Fons
seldi Sterling aftur til FL Group.
Þrýstingurinn frá verðandi for-
stjóra FL Group setti hins vegar strik
í reikninginn og urðu Hannes og við-
skiptafélagar hans að redda þrem-
ur milljörðum króna til að endur-
greiða FL Group. Hversu eðlilegt er
það annars að Fons hafi átt að greiða
Kaupþingi í Lúxemborg þrjá millj-
arða króna ef félagið hefur ekki feng-
ið þessa peninga frá FL Group? Svar-
ið við því er auðvitað, líkt og fram
kemur í ákærunni þar sem þetta er
staðfest í fyrsta sinn, að það var Fons
sem fékk peningana frá FL Group.
11 milljarða bókfærður
hagnaður
Í október 2011, þegar FL Group
keypti Sterling af Fons fyrir 15 millj-
arða, lá því fyrir að félagið myndi
græða 11 milljarða króna á viðskipt-
um sem FL Group hafði sjálft fjár-
magnað. Fons þurfti svo, væntanlega,
að endurgreiða Kaupþingi í Lúx þrjá
milljarða. Svo þurfti Fons einnig að
endurgreiða annan milljarð sem fé-
lagið hafði fengið að láni til að fjár-
magna Sterling-viðskiptin, hugsan-
lega var sá milljarður fenginn frá
Kaupþingi í Lúxemborg.
Eftir stóðu um 11 milljarðar króna
inni í Fons sem orðið höfðu til vegna
viðskipta sem Fons hafði alfarið fjár-
magnað með lánveitingum og að
stærstu leyti með lánveitingum frá
almenningshlutafélagi sem Hannes
Smárason stjórnaði. Eigendur Fons
gátu því gert það við þann arð sem þá
lysti og eftir atvikum greitt hann út út
úr félaginu.
7 milljarðar greiddir út
Árið 2007 lánaði Fons þrjá millj-
arða króna til skúffufélags í Panama
sem lítið er vitað um og heitir Pace
Associates. Starfsmenn þrotabús
Fons hafa vakið athygli á því að þetta
lán var afskrifað í bókum Fons fyr-
ir efnahagshrunið árið 2008. Þetta
lán fór í gegnum Landsbankann í
Lúxem borg. Ekki er vitað hvert þessir
peningar fóru og er ljóst að eigendur
Fons hafa ekki talið að félagið myndi
fá peningana til baka. Þess vegna var
það afskrifað.
Sama ár greiddi Fons út fjögurra
milljarða króna arð til eigenda sinna.
Þeir fjármunir voru teknir að láni
hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Þrota-
bú Fons tapaði dómsmáli gegn fé-
lagi Pálma Haraldssonar í Lúxem-
borg þar sem krafist var riftunar á
arðgreiðslunni. Sá dómur byggði á
því að Fons hefði verið gjaldfært fé-
lag, eignir hefðu verið miklu meiri
en skuldirnar í lok árs 2006, og þar af
leiðandi hefði verið heimilt að greiða
út arðinn.
Þessar tvær upphæðir nema sam-
tals rúmlega sjö milljörðum króna.
Sú upphæð er nokkurn veginn jafn
há og bókfærður hagnaður Fons
af viðskiptunum með Sterling árið
2005.
Jón Ásgeir bendlaður við lán
Í nóvember í fyrra var fréttamaðurinn
Svavar Halldórsson, þáverandi
starfsmaður RÚV, dæmdur fyrir
meiðyrði vegna fréttar sem hann
birti í kvöldfréttum RÚV um Pace-
fléttuna. Inntakið í þeirri frétt var það
að Hannes Smárason, Pálmi Har-
aldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson
hafi eignast þrjá milljarða króna sem
Fons lánaði Pace árið 2007 og afskrif-
aði síðan.
Orðrétt sagði Svavar: „Það hafa
yfir völd hér á landi líka gert, eins og
við höfum áður greint frá, og þau telja
sig komin á slóð peninganna enda
hafa þau undir höndum gögn sem
benda til þess að þeir Pálmi, Jón Ásge-
ir Jóhannesson og Hannes Smárason,
hafi skipulagt Panama-fléttuna fyrir-
fram. Það er að koma peningunum út
til Panama en síðan hafi féð ratað aft-
ur eftir krókaleiðum í vasa þremenn-
inganna.“ Jón Ásgeir stefndi Svavari
fyrir þessi ummæli og var fréttamað-
urinn dæmdur fyrir meiðyrði.
Tvö mál
Nú hefur ákæra frá sérstökum sak-
sóknara sýnt fram á að Jón Ásgeir,
Pálmi og Hannes störfuðu saman í
öðru máli tengdu Fons sem einnig
snerist um þriggja milljarða milli-
færslu sem Jón Ásgeir var í persónu-
legum ábyrgðum fyrir. Fyrir liggur að
þrír milljarðar króna frá Fons runnu
til Pace og fyrir liggur að Svavar Hall-
dórsson taldi sig hafa öruggar heim-
ildir fyrir því að Pálmi, Hannes og Jón
Ásgeir hefðu haft fjárhagslega hags-
muni af starfsemi Pace.
Sjálfur sagði Svavar um dóminn
yfir sér: „Ég er með gögn sem sýna
fram á öll efnisatriði fréttarinn-
ar. Sérstakur saksóknari gaf út sérs-
taka yfir lýsingu um að málið væri til
rannsóknar hjá honum. Þetta mál
snýst hins vegar nákvæmlega um
hver rannsóknarkenningin er hjá
yfir völdum, málið er til rannsókn-
ar á fleiri en einum stað. Mér var lífs-
ins ómögulegt að færa sönnur á það
öðruvísi en að upplýsa um heimildar-
menn.“
Í þessu samhengi er óneitanlega
áhugavert, í meira lagi, að sömu þrír
aðilar hafi komið að millifærslunni
frá FL Group til Fons sem bjó til ellefu
milljarða króna hagnað fyrir Fons
sem síðan var tekinn út úr félaginu
og rataði meðal annars til félags sem
þremenningarnir hafa verið bendl-
aðir við. Þetta er hugsanlega ein leið
sem getur útskýrt af hverju Jón Ásgeir
var í persónulegri ábyrgð fyrir þremur
milljörðum af skuldum Fons. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Tapaði Svavar Halldórsson tapaði dóms-
máli gegn Jóni Ásgeiri í fyrra þar sem hann
tengdi hann við Pace-fléttuna.
Mynd SigTryggur Ari
„Gögn sem benda
til þess að þeir
Pálmi, Jón Ásgeir
Jóhannesson og Hannes
Smárason, hafi skipulagt
Panama-fléttuna fyrir-
fram.
Tvisvar tengdir Jón
Ásgeir Jóhannesson,
Hannes Smárason og
Pálmi Haraldsson hafa
tvisvar verið tengdir við
millifærslur út úr Fons.
ragnhildur geirsdóttir Knúði á um endurgreiðslu á þremur milljörðum til FL Group.