Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 28
Sandkorn
U
m allt land er fólk í nauðum
vegna bágs fjárhags sem á
sér rót í stökkbreyttum lán
um. Hrunið varð til þess að
fjölmargar fjölskyldur og
einstaklingar töpuðu aleigu sinni.
Fólk sem átti að hluta húsnæði sitt
var skyndilega orðið örsnautt og hafði
misst allt sitt.
Lausnir á vanda almennings hafa
verið fáar og snautlegar. Í besta falli
var fólki boðið að lækka stökkbreyttar
íbúðaskuldir sínar niður í það að
skulda 10 prósent fram yfir eignir.
Og sá sem býr við slíka skuldastöðu
á minna en ekki neitt og er örsnauð
ur. Þúsundir fjölskyldna sem töldu sig
búa við sæmilega eignastöðu eru nú
það sem kallast öreigar.
Allt frá hruni hafa lygamerðir
stjórnmálanna lofað fólki úrlausn.
Stjórnmálamenn hafa beinlínis gert
út á óhamingju fólks. Súrefni stjórn
málamannsins er atkvæði og þeir hafa
sótt þau með gylliboðum til hinna
skuldugu. Þið munið hana Jóhönnu.
Samfylkingin hamraði stöðugt á því
að skjaldborg yrði slegin um heimil
in. Flokkurinn komst til valda í kjölfar
búsáhaldabyltingarinnar. Þjóðin trúði
því að mannúð yrði nú ofar græðgi
útrásarinnar. Árum saman talaði Jó
hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
um að leysa vanda hinna skuldugu
fórnarlamba hrunsins. En efndirnar
voru sáralitlar þótt vissulega hafi ein
hverja munað um þá líkn að fá að
skulda „aðeins“ 10 prósent umfram
eignir í stað þess að vera í enn dýpri
skuldagryfju. Þjóðin hafnaði síð
an Jóhönnu í kjölfar þess að Fram
sóknarflokkur Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar lofaði enn stærri
skjaldborg og stórfelldum niður
fellingum skulda fyrir alla.
Svikin myndgerast í atburði eins
og þeim sem átti sér stað í Keflavík á
mánudagsmorguninn þegar vamm
laus, einstæð móðir, var borin út úr
húsi sínu vegna skulda sem hún réð
ekki við. Fulltrúar hins níðingslega
valds komu í umboði íslenska ríkis
ins og skiptu um lása. „Það eina sem
við báðum um var að fá að vera í hús
inu til mánaðamóta,“ sagði móðirin
við blaðamann DV sem lýsti hinni
hörmulegu atburðarás þegar fjögurra
manna fjölskylda var rekin út í óveðr
ið. Kerfið gladdist og í forsætisráðu
neytinu halda menn áfram að endur
nýja og slá í loforðin. Nú ætla þeira að
setja heimsmet í skuldaniðurfelling
um. Skepnuskapurinn blasir við öll
um. Það stefnir í heimsmet í útburði.
Og það ljótasta er að lofa fólki í sárri
neyð einhverju sem ekki er staðið við.
Einstæða móðirin í Keflavík sem
nú er heimilislaus er ein úr hópi
þeirra þúsunda sem búa við þessa
eymd. Framundan eru enn fleiri upp
boð og enn fleiri harmleikir. Bannið
við nauðungaruppboðum hefur
runnið sitt skeið og köld krumla
bankanna læsir sig um háls hinna
fátæku. Stóru bankarnir skila millj
arðahagnaði. Blóð hinna fátæku er
notað til að efla efnahag þeirra. Vandi
stjórnvalda er sá að lygaþvælan um
niðurfellingu skulda dugir ekki þeim
sem þegar hafa misst allt. Örbirgðin
býður ekki upp á afslátt. 20 prósent
af núlli eru ekkert. En við skulum öll
vera þess minnug að hinir fátæku og
snauðu hafa eftir sem áður atkvæðis
rétt. Þeirra tími kemur í kjörklefanum.
Þjóðin verður að rísa gegn þessum
óþverra sem birtist í Keflavík og við
gengst um allt land. n
Sigmundur heitur
n Nokkur spenna er í loftinu
varðandi það hver verði nýr
dagskrárstjóri Ríkisútvarps
ins. Það mun koma í hlut Páls
Magnússonar útvarpsstjóra að
ráða í stöðuna. Alls sóttu 15
manns um og er þar mikið
mannval. Margir veðja á að
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
fyrrverandi alþingismaður,
hreppi hnossið en hann er
hokinn af stjórnunarreynslu
í fjölmiðlum. Hið kaldrana
lega er að ráðningin fer fram
í skugga blóðugs niðurskurð
ar og væntanlega uppsagna
fjölda starfsmanna.
Leki þingmanns
n Björn Bjarnason, fyrrverandi
alþingismaður, er lítt hrifinn
af því að hluti tillagna hag
ræðingarhóps ríkisstjórnar
innar hafi lekið út áður en
þær voru birtar í heild sinni.
„„Leki“ um efni tillagna
nefndarinnar á trúnaðarstigi
bendir til að ekki hafi ríkt al
gjör heilindi í þingmanna
hópnum …“ skrifar Björn á
heimasíðu sína. Hugsan
lega er hann
þarna að
sneiða að
pólitískum
böðli sínum,
Guðlaugi Þór
Þórðarsyni al
þingismanni,
sem á sínum tíma felldi Björn
í prófkjöri.
Styrmir vildi
landsdóm
n Mikið hatur ríkir ennþá í
garð þeirra þingmanna sem
samþykktu að ákæra Geir H.
Haarde, fyrrverandi forsætis
ráðherra, og koma honum
fyrir landsdóm með þekktum
afleiðingum. Á meðal þeirra
sem samherjar leggja hvað
mesta fæð á
er Steingrímur
J. Sigfússon,
þingmaður
VG, sem
studdi ein
dregið að Geir
yrði saksóttur.
Það virðist gleymt að Styrm-
ir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri, hvatti til þess í bók
sinni, Umsátrið um Ísland,
að landsdómur yrði kallað
ur saman. Morgunblaðið ýtti
síðan undir þá kröfu.
Framsókn rokkar
n Framsóknarflokkurinn
fer á kostum þessa dagana
í ráðningu aðstoðarmanna.
Stærsta skorið í þeim efn
um á Eygló Harðardóttir
velferðarráðherra sem fékk
Siv Friðleifsdóttur, fyrrver
andi ráðherra til margra
ára, til aðstoðar. Frumleg
asta ráðningin er þó hjá Sig
mundi Davíð Gunnlaugs
syni sem gerði Ásmund
Einar Daðason þingmann
að launalausum aðstoðar
manni sínum eða kannski
aðstoðar ráðherra.
Þetta eru ósannar
aðdróttanir
Var rosalega
erfitt
Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdarstjóri Thule. – RÚV Ragnhildur Steinunn um nýja heimildamynd. – DV
Blóð hinna fátæku„Fulltrúar hins
níðingslega
valds komu í umboði
íslenska ríkisins
F
jármálaráðherra, Bjarni Bene
diktsson, sendi okkur for
mönnum stjórnarandstöðu
flokkanna bréf í lok síðustu
viku þar sem ráðherrann greindi
okkur frá því að tekin hefði verið
ákvörðun um að boða til hlutahafa
funda í nokkrum af stærri félögum
og fyrirtækjum í eigu ríkisins og
kjósa nýjar stjórnir. Boða á til funda
í næstu viku og halda fundi um það
bil viku síðar. Um er að ræða félög
in Landsvirkjun, Rarik, Isavia og Ís
landspóst, sem öll eru skipuð fimm
stjórnarmönnum. Óskar ráðherra
svo eftir því að minnihlutinn skili
tilnefningum um sína fulltrúa.
Nú er það svo að skipunartími
þeirra stjórna sem nú sitja er hreint
ekki runninn út. Síðasti aðalfundur
Íslandspósts var í febrúar, síðasti
aðalfundur í Rarik í mars, í Lands
virkjun í apríl og í Isavia í maí. Venj
an hefur verið sú að slíkur skipunar
tími klárist og ný ríkisstjórn ráði
meirihlutaskipan á næsta aðal
fundi. Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, sendi ráðherr
anum bréf og óskaði skýringa fyrir
hönd stjórnarandstöðunnar og ekki
vanþörf á.
Á fimmtudaginn var innti ég fjár
málaráðherrann eftir skýringum á
bréfinu og hverju þetta óðagot sætti.
Fjármálaráðherrann vitnaði í ýmis
fordæmi – nefndi meðal annars
stjórn Lánasjóðsins sem undirrituð
skipti út árið 2009 – en um hana
gilda raunar allt önnur lög. Í lögum
um Lánasjóð íslenskra námsmanna
segir að skipunartími fulltrúa ráð
herra skuli takmarkaður við emb
ættistíma þeirra ráðherra sem skip
uðu þá. Í lögum um Landsvirkjun
segir hins vegar að stjórn fyrirtæk
isins skuli skipuð á aðalfundi fyrir
tækisins sem skuli haldinn fyrir lok
apríl ár hvert. Fjármálaráðherra gat
því í raun ekki nefnt nein fordæmi
máli sínu til stuðnings.
Það er ekki laust við að sú hugs
un sæki að manni að þetta ofríki og
þessi flýtir kunni að tengjast þeim
fregnum sem bárust í vikunni af
haustfundi Landsvirkjunar þar sem
iðnaðarráðherrann sagðist vera ansi
óþreyjufull eftir að tiltekin verk
efni yrðu að veruleika, á borð við ál
ver í Helguvík – og það ætti að vera
stefna Landsvirkjunar að nýta orku
auðlindir landsins til atvinnuupp
byggingar og aukins hagvaxtar, og
kvað hún árangurinn í þeim efnum
„algjörlega óviðunandi“.
Í máli forstjóra Landsvirkjunar á
sama fundi kom hins vegar fram að
hlutverk Landsvirkjunar væri að há
marka arð af þeim orkuauð lindum
sem fyrirtækinu er trúað fyrir á
sjálfbæran og hagkvæman hátt, og
er það í takt við samþykkta eigenda
stefnu fyrirtækisins. Það skapaði þó
von í mínu hjarta að fjármálaráð
herra fullvissaði þingmenn um að
eigendastefnan væri í fullu gildi.
Það er sannarlega ekki til marks
um nýja tíma ef pólitíkin á aftur
að verða allsráðandi við fram
kvæmdastjórn opinberra félaga – en
síðasti forstjóri Landsvirkjunar var
innanbúðarmaður úr Sjálfstæðis
flokknum – ólíkt þeim forstjóra
sem nú situr sem ekki er tengdur
neinum pólitískum flokki. En þetta
þarf ekki að koma á óvart hjá ríkis
stjórn sem er föst í bakkgír – fyrstu
verk hennar snúast öll um að snúa
hjólum tímans til baka, fara aftur í
flokkspólitíska skipan í stjórn Ríkis
útvarpsins, afturkalla þau lög sem
henni eru ekki að skapi, hverfa aftur
til fortíðar. Vonandi er flýtirinn við
að skipta um stjórn í Landsvirkjun
ekki til marks um enn eitt aftur
hvarfið. n
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon
Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og
vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
28 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
MynD StEFán KARlSSon
Kjallari
Katrín Jakobsdóttir
þingkona og formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs
„En þetta þarf
ekki að koma á
óvart hjá ríkisstjórn
sem er föst í bakkgír
Hverju sætir óðagotið?
MynD Atli MáR GylFASon