Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 36
H
ver er ég? Ég heiti Kolbeinn
Sigþórsson, er 23 ára fót
boltamaður í Hollandi þar
sem ég spila með Ajax. Það
er það sem ég er: Fótbolta
maður. Fótbolti hefur alltaf verið
númer eitt í mínu lífi. Ég hef alla tíð
ætlað mér að verða fótboltamaður.
Alveg síðan ég var tveggja ára hefur
boltinn verið í kringum mig og ég hef
aldrei sparkað honum frá mér.“
Við sitjum á hótelbarnum á Hótel
Hilton. Þeir eru hérna landsliðsstrák
arnir að undirbúa sig fyrir einn mikil
vægasta leik liðsins fram til þessa,
umspil um sæti á HM. Þeir spila tvo
leiki við Króatíu, sá fyrri fer fram á
Laugardalsvelli, sá seinni í Zagreb.
Hér höfum við króað Kolbein af
með það að markmiði að komast
að því hver hann er – þessi strákur á
bak við búninginn, sem hann klæð
ist reyndar núna og spyr hvort okkur
sé ekki sama, hann nenni ekki í önn
ur föt á meðan hann haldi til hér. Við
höfum smá stund til þess að spjalla
saman, síðan þarf hann að fara á
næstu æfingu.
Ekkert betra en að skora
Kolbeinn er framherji og markaskor
ari af guðsnáð, markahæsti maður
inn í Ajax, og þekkir ekki betri til
finningu en að horfa á eftir boltanum
í netið. „Ég held að þetta sé tilfinning
sem framherjar finna bara því það er
svo mikil pressa á þeim að skora. Ég
er markaskorari og vil skora, það gerir
mig glaðan. Þegar mómentið er sterkt
getur því fylgt alsælutilfinning sem
hellist yfir í smástund.“
Sigurinn er sætur, en stærsta stund
lífsins var án vafa þegar hann heyrði
að íslenska liðið kæmist áfram. „Það
var draumur sem rættist. Það hef
ur aldrei gerst áður að Ísland komist
svona langt og það er afar ánægjulegt
að eiga hlut í því. Eitthvað sem allir í
liðinu eru stoltir af.
Við vorum heppnir að lenda í riðli
þar sem við áttum séns og kláruðum
það. Fyrir mótið vorum við ekki
„rankaðir“ hátt en við höfum sýnt það
og sannað að við getum strítt hvaða
liði sem er, hvenær sem er.“
En það er ekki nóg að komast
áfram. Hann hungrar í meira og getur
ekki hugsað sér að tapa næstu leikj
um. Hann er kominn til að vinna, full
ur sjálfstrausts og þegar ég spyr hvort
taugarnar segi ekki til sín, hvort hann
sofi á næturnar endurtekur hann
spurninguna og svarar með léttum
hlátri. „Ég er búinn að vera í þessum
bransa lengi þótt ég sé bara 23 ára
og já, ég sef á næturnar. Ég er orðinn
vanur þessu.“
Brjálaður í hverjum leik
Hann var í landsliðinu með öllum
yngri flokkunum og hefur alltaf verið
sigursæll. „Ég hef ekki tapað mörgum
landsleikjum frá því að ég byrjaði. Það
er svolítið sérstakt að vera frá litla Ís
landi og sækja stig, eða vinna leiki.
Frá því að ég byrjaði með U 17 lands
liðinu hefur eiginlega alltaf gengið
mjög vel. Við höfum alltaf komist á
stórmót nema með U 19 landsliðinu
en þá var ég meiddur og náði bara að
spila tvo leiki.“
Með U 17 landsliðinu komst
íslenska liðið í fyrsta sinn á
Evrópumótið og aftur með U 21 árs
landsliðinu. „Og nú eigum við séns á
að komast á heimsmeistaramót með
landsliðinu. Þannig að það er ekki
annað hægt en að líða vel með ár
angurinn. Ef við náum að komast á
HM yrði það klárlega stærsta afrekið
á ferlinum. Það er ekkert sem ég þrái
heitar og ég mun leggja allt í sölurnar.
Við erum komnir það langt núna að
við viljum alls ekki detta út. Við erum
komnir það nálægt HMsæti að það er
óhugsandi að ná því ekki.“
Það er jafn ömurlegt að tapa og
það er gaman að vinna og Kolbeinn
hefur aldrei átt auðvelt með að taka
tapi. Og þótt hann sé almennt léttur
og kátur segist hann taka tryllinginn
á vellinum á öllum leikjum. Það kem
ur jafnvel fyrir að skapið stríði honum
utan vallar. „Ég held að ég verði brjál
aður í hverjum einasta leik. Það þarf
ekki annað til en að ég fái ekki bolt
ann þegar ég er frír til að ég detti í
brjálaða pakkann,“ segir hann og
hlær. „Mamma segir stundum að ég
eigi erfitt með skapið, en aðallega
þegar ég er svangur. Ef ég er eitthvað
pirraður þá gefur hún mér að borða
og þá verð ég ferskur.“
Hann er samt skárri núna en þegar
hann var yngri. „Ég er að læra að taka
tapi. Þú verður að kunna það og ég
er að verða aðeins betri í því. Oftast
tekst mér að eyða því út á leikdegi og
hreinsa það burt næsta dag. En auð
vitað er það misjafnt hvað það tekur
langan tíma að jafna sig en það tekur
allavega ekki eins langan tíma núna
og áður. Núna verðum við bara að
tryggja að það gerist ekki.“
Aðspurður hvort hann hafi alltaf
trú á því sem hann er að gera segir
hann: „Mér finnst þú mjög sálræn. Þú
ert eitthvað þvílíkt að pæla. Ég er ekki
mikill pælari, ef ég á að segja eins og
er. Ef maður pælir of mikið í hlutun
um þá ruglar það mann í ríminu. Ég
reyni að hafa lífið einfalt og gera það
vel sem ég á að gera.“
Með fiðring í maganum
Allt í kringum okkur vinna iðnaðar
menn að því að gera staðinn upp með
tilheyrandi látum. Kolbeinn lætur
það ekki trufla sig þegar þeir bora sig
í gegnum steypuna. „Við erum búnir
að vera hérna í þrjá daga og sofum létt
á daginn á meðan þeir vinna. Þetta
truflar mig ekkert.“
Kolbeinn er óttalaus gagnvart
Króötunum, það er enginn í hópi
þeirra sem hann hræðist. „En þú
verður alltaf að bera virðingu fyrir
góðum fótboltamönnum og passa
upp á að þeir fái ekki að sýna sig of
mikið. Sérstaklega í svona leikjum. Þá
verðum við að passa að sterkustu leik
mennirnir þeirra fá ekki boltann of
mikið. Þetta verður erfitt verkefni þar
sem þeir eru með sterkt og reynslu
mikið lið sem er skipað mönnum sem
eru að spila með bestu liðum Evrópu.
Ég held að þeir séu búnir að vera
í 10. sæti á styrkleikalistanum í tíu ár
á meðan íslenska liðið hefur verið
í kringum 100. sæti. Við erum samt
ósigraðir í fjórum leikjum og það
verður erfitt fyrir þá að sigra okkur.
Við förum inn í þessa leiki til þess að
vinna.
Við höfum reynsluna og höfum
spilað mikið saman. Þetta er mög
samstíga hópur, það er mikill húmor
í hópnum og létt yfir öllu. Ef einhver
segir eitthvað sem hann hefði betur
látið ósagt er hann skotinn til grafar.
Með þurfa að passa upp á það sem
þeir segja,“ segir Kolbeinn sem var
látinn halda tveggja mínútna ræðu í
busavígslunni. Það tókst ekki og því
fékk hann selbita í nefið frá öllum
leikmönnum liðsins.
En að öllu gamni slepptu þá
vita menn hvert þeir stefna. „Við
höfum náð góðum árangri saman og
þekkjum hvern annan vel. Ég held að
sjálfsöryggið skíni í gegn og ég myndi
segja að það sé ákveðið vinningsspirit
í þessum hópi.
Þegar þú gengur inn á völlinn
finnur þú fyrir spennu. Spennustig
ið fer auðvitað eftir því hversu stór
leikurinn er og hvað það er mikið
undir. Það er oft sagt að það sé gott
að vera með spennu í líkamanum
þegar þú ferð inn á. Ég fæ alltaf fiðr
ing í magann fyrir stóra leiki og sér
staklega núna. En mér finnst það
gott. Þá legg ég mig allan fram og
spila betur.“
Stefnir hærrra
Rétt áður en hann gengur inn á völl
inn fara skilaboðin að streyma inn.
En hugurinn er ekki hjá áhorfendum,
heldur á vellinum. „Ég er ekkert að
pæla í því hverjir eru á vellinum. Ég
hef engan tíma til þess á meðan ég er
að einbeita mér að leiknum. En mér
finnst auðvitað gott að finna stuðn
inginn, þegar fólk og fjölmiðlar hafa
sýnt okkur áhuga. Það er gott.“
Áreitið og áhugi fjölmiðla truflar
ekkert. Hann er vanur því að fylgst sé
með honum. Það hefur verið þannig
síðan hann var pjakkur. „Ég hef alltaf
verið talinn mjög efnilegur. Sjálfur hef
ég líka sett pressu á mig því ég ætl
aði mér að verða atvinnumaður. Það
er það sem ég hef alltaf viljað. Í dag
hef ég náð þeim markmiðum sem ég
hef sett mér en ég vil ná enn lengra
og vonast til að halda áfram á sömu
braut.
Mig langar að eiga gott líf og mig
langar að taka næstu skref í fótboltan
um. Ég er í hollensku deildinni sem er
ekki talin ein af þeim stærstu. Þannig
að ég stefni hærra og vil komast til
Englands, Þýskalands, Ítalíu eða
Spánar. Vonandi gerist það á næstu
árum. En ég geri bara eitt í einu. Núna
verð ég að einbeita mér að því sem ég
er að gera með Ajax. Ef ég geri vel þar
get ég vonandi tekið stökkið síðar.“
Ólíkt flestum íslenskum karl
mönnum á Kolbeinn sér ekkert
draumalið. Hann horfir sjaldan á
enska boltann, eða fótbolta yfirhöfuð,
og á sér ekkert uppáhaldslið. „Að því
sögðu verð ég að viðurkenna að ég
hélt með Arsenal í nokkur ár en það
var aðallega af því að mér var þrisvar
boðið út til þeirra.“
Fór ungur út í óvissuna
Sextán ára var hann alfarinn. Áður
hafði hann lokið einni önn í MK og
var aðallega feginn að ná. „Það átti
ekki við mig að vera í skóla,“ útskýrir
hann, „en ég var mjög stoltur af því að
ná önninni. Þannig að ég þekki það al
veg að mistakast. Það hefur ekki alltaf
allt gengið vel hjá mér. Á miðri vor
önn ákvað ég að hætta í skóla og ein
beita mér að fótboltanum til að kom
ast í atvinnumennskuna. Mér finnst
best að einbeita mér að því sem ég er
góður í og fjölskyldan studdi mig í því.
Bróðir minn fór út í atvinnumennsku
og spilaði með KR hér heima. For
eldrar mínir hafa stutt vel við bakið
á okkur bræðrum. Þannig að það var
ekki erfitt að velja fótbolta.
Það var kominn tími til þess að
fara. Á þessum tíma var mikill áhugi
á mér og ég var með of góð tilboð
til þess að halda áfram á Íslandi. En
það var ekkert auðvelt að fara einn út
svona ungur. Ég var auðvitað að fara
út í óvissuna en systir mín kom með
mér og var úti í hálft ár á meðan ég var
að venjast þessu. Eftir það vandist ég
því fljótt að búa einn og fylgja þessari
rútínu. Þetta snýst allt um rútínuna.“
Kolbeinn ákvað að fara til
Hollands þar sem ungir leikmenn fá
frekar tækifæri heldur en í Bretlandi.
„Í Bretlandi er meira um að menn
týnist í stórum klúbbum og erfiðari
deild þar sem menn eru keyptir fyrir
háar fjárhæðir og verða að fá að spila.
Þannig að þótt það væri freistandi að
fara þangað og erfitt að neita góðum
tilboðum frá góðum liðum þar ákvað
ég að fara til Hollands. Það var skyn
samlegasta skrefið því þar er lögð
áhersla á að byggja upp unga leik
menn og sinna þeim sem fótbolta
mönnum. Ég mæli með því að ungir
leikmenn fari þessa leið, því ferillinn
spannar tíu til tuttugu ár ef vel gengur.
Þetta er ekki spurning um að ná há
tindinum áður en þú verður tvítugur.“
Peningarnir aukaatriði
Hvað með lífsstílinn sem fylgir at
vinnumennsku í fótbolta þar sem
peningar flæða. Kolbeinn vill ekki
gefa upp hvað hann er með í laun
en hann segist reyna að halda sér á
jörðinni. „Það er kannski ekki hægt að
segja að við Íslendingar séum snill
ingar í viðskiptum en maður reynir
að bæta ofan á það sem maður hefur
þegar unnið sér inn. Ég reyni að vera
skynsamur og halda því sem ég hef
án þess að taka neinar áhættur. Ég
hef séð leikmenn sem ég hef verið
að spila með missa fótanna. Þeir geta
ekki tekist á við stöðuna sem þeir eru í
og lifa hærra en þeir ráða við. Um leið
missa þeir fókusinn, en það skiptir
öllu máli að halda fókus og vera með
báðar fætur á jörðinni. Ef þú hefur
það gott þá skiptir annað ekki máli.“
Ástríðan fyrir boltanum er reyndar
ekki eins mikil í Hollandi og til dæmis
í Bretlandi. Fólk þekkir Kolbein úti á
götu en það lætur hann í friði. „Þetta
er ekki eins og í Bretlandi þar sem
ástríðan er meiri og menn eru heitari
fyrir boltanum. Það væri samt gaman
að fá að spila þar.
En ég er ekki að þessu fyrir pen
inga og frægð og sækist ekki eftir
athygli. Mér finnst það algjört auka
atriði. Á meðan þér líður vel þá ert
þú í góðum málum. Ég er hamingju
samur og ánægður með lífið.“
Nýtur lífsins í Hollandi
Og lífið er gott í Hollandi. „Mér líður
vel í Amsterdam. Það er gott að búa
þar og það er stutt í allt, til Íslands og
annað. Ég kem alltaf heim til þess að
spila með landsliðinu í ágúst, sept
ember, október og núna í nóvember,
en það hefur ekki gerst áður. Síðan
fáum við vetrarfrí í tvær vikur yfir jólin
og þá kem ég heim. Á sumrin fáum
við mánaðarfrí og þá kem ég líka til
Íslands.“
Kolbeinn talar hollensku reip
rennandi og býr í miðbænum, líkt
og margir liðsfélagar hans, en hann
er ekki mikið í menningarlífinu í
Amsterdam. Þótt hann búi innan um
öll söfnin hefur hann aldrei stigið fæti
inn í þau á þeim sex árum sem hann
hefur verið í Hollandi. „Ég og liðs
félagi minn vorum einmitt að tala
um það um daginn að það væri snið
Brjálast í
hverjum leik
36 Fólk 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Kolbeinn Sigþórsson er einn fremsti knattspyrnu
maður landsins. Draumurinn rættist þegar landsliðið
komst í umspil fyrir HM 2014 en hann er hungraður í
meira og spilar til þess að vinna. Hann segir frá lífinu
í boltanum þar sem það er hvorki draumur um pen
inga né frægð sem drífur hann áfram heldur ástríða
fyrir leiknum. Á meðan honum líður vel er allt ann
að aukaatriði og hann sækist ekki eftir athygli. Hann
segir einnig frá kærustunni sem hann kynntist á
Facebook og því af hverju hann gæti allt eins endað
starfsferilinn á því að skúra fyrir Bakarameistarann.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Viðtal
„Hún pókaði
mig og ég
pókaði til baka