Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Qupperneq 39
Skrýtið 39Helgarblað 15.–17. nóvember 2013
Freund var
enginn vinur
n Morðingi Bruni fannst eftir 30 ár n Var með höfuð fórnarlambs í rúminu
Í
raun hefði 9. janúar, 1979, átt að
verða hverjum öðrum degi líkur
hjá Entz-fjölskyldunni í borginni
Hagen við Ruhr í Þýskalandi. En
tilvera hjónanna Dietrichs og
Hildegarde og barna þeirra breytt-
ist til frambúðar þennan morgun.
Klukkan fjögur um nóttina vaknaði
Dietrich við gjallandi og ágengan
hringitón símans. Svefndrukkinn
tók hann upp tólið og ræskti sig
áður en hann kynnti sig.
Lögreglan var á hinum enda
línunnar: „Þú þarft að koma niður á
stöð – það varðar Brunhilde dóttur
þína.“
Dietrich varð orðlaus – honum
hafði verið gengið fram hjá herbergi
dóttur sinnar þegar hann fór nið-
ur á neðri hæðina til að svara sím-
anum. Hún var ekki í herbergi sínu
og rúmið var umbúið. „Slys,“ spurði
hann hikandi, en fékk ekki svar við
þeirri spurningu heldur vinsam-
lega ábendingu um að betra væri að
koma á stöðina.
Misindismaður í myrkri nætur
Dietrich og Hildegarde klæddu sig
í flýti og á leiðinni á lögreglustöð-
ina flugu ótal hugsanir í gegnum
huga þeirra. Eftir að hafa heyrt tíð-
indin vissu þau að þaðan í frá yrði
ekkert sem fyrr – Brunhilde – Bruni
–, 17 ára dóttir þeirra, hafði fundist
myrt og fátt annað vitað. Í myrkri
þessarar frostköldu janúarnætur
hafði óþekktur misindismaður ráð-
ist á hana þegar hún var á heimleið
eftir að hafa eytt kvöldinu með vin-
um sínum.
Brunhilde hafði verið lamin,
henni nauðgað og hún síðan myrt.
Meira heyrði Hildegarde ekki því
hún féll í ómegin við tíðindin.
Óhugnanleg aðkoma
Gangandi vegfarendur höfðu séð
fætur Brunhilde sem stóðu blóð-
ugir út undan bíl. Lík hennar var
í hryllilegu ásigkomulagi.
Morðinginn hafði rifið stórt gat
á kvið hennar og líffærin höfðu
verið rifin út með eggvopni.
Andlit hennar var svo illa far-
ið að ekki var unnt að bera
kennsl á hana með góðu móti.
Næstu vikurnar og í kjölfar
greftrunar Brunhilde varð ljóst að
Hildegarde myndi sennilega aldrei
komast yfir missinn. Hún ráfaði
eirðarlaus um húsið, nefndi nafn
dóttur sinnar í tíma og ótíma og grét
hljóðlega þegar hún lagaði til í her-
bergi hennar.
Dietrich var sömuleiðis ekki
samur, en hann þurfti að leggja
áherslu á að halda fjölskyldunni
saman og styðja við tvo bræður
Brunhilde. Dietrich fór til vinnu,
hélt húsinu við, skipulagði mat-
málstíma fjölskyldunnar og studdi
við eiginkonu sína sem best hann
gat, ásamt því að bera sína eigin
sorg.
Beið við símann
Dietrich lifði í voninni um að lög-
reglan fyndi morðingja Brunhilde
– að lögreglan myndi hringja líkt
og forðum en færandi betri tíðindi.
Það gerðist ekki og vikur urðu að
mánuðum og mánuðir að árum.
Hildegarde fékk pláss á um-
önnunarstofnun þar sem hún síð-
ar andaðist í svefni. Synirnir urðu
að mönnum og fluttu að heiman og
Dietrich sat einn við eldhúsborðið
og beið eftir símtali.
Tíu ár, tuttugu ár, þrjátíu ár liðu.
Dietrich var orðinn gráhærður, átt-
ræður, veikburða og hokinn og flutti
inn á dvalarheimili aldraðra og til-
einkaði sér þá rútínu sem þar var
tíðkuð.
Biðin langa á enda
Einn morgun fékk Dietrich símtal –
frá lögreglunni í Hagen. Eftir þrjá-
tíu ár hafði morðingi Brunhilde loks
fundist.
Reyndar hafði morðinginn, Diet-
er Karl Freund, verið á bak við lás og
slá frá árinu 1979, vegna morðs á 22
ára konu, Sabine, í mars sama ár og
hann myrti Brunhilde.
Eftir að hafa myrt Sabine hafði
hann sundurlimað líkið og var grip-
inn glóðvolgur þegar hann reyndi
að losa sig við líkamshlutana. Við
leit í íbúð Freund fann lögreglan
höfuð Sabine í rúmi Freund.
Á þeim tíma hafði hann ekki
minnst einu orði á Brunhilde og
ekkert fyrirfannst sem tengdi hann
við morðið á henni. Hann fékk aft-
ur á móti lífstíðardóm fyrir morðið
á Sabine.
DNA-tækni
Þrjátíu árum eftir morðið á Brun-
hilde ákvað staðfastur lögfræðing-
ur að kíkja nánar á mál Brunhilde
Entz. DNA-tækninni hafði þá fleygt
ört fram og lét lögfræðingurinn
rannsaka blóðug föt Brunhilde.
DNA-sýni sýndi svo ekki varð
um villst að morðingi Brunhilde
var enginn annar en Dieter Karl
Freund. Réttað var yfir Freund
vegna morðsins á Brunhilde og
fékk hann annan lífstíðardóm.
Dietrich Entz entist ekki líf til að
upplifa þau tímamót því rétt áður
en dómur var kveðinn upp yfir
Freund skildi Dietrich við, yfirbug-
aður af sorg og þjáningu, en án efa
léttari í sinni en hann hafði verið
um áratuga skeið. n
„Þú þarft
að koma
niður á stöð
– það varð-
ar Brunhilde
dóttur þína
Fórnarlambið Brunhilde Entz var myrt á hryllilegan hátt.
Morðingi
Brunhilde
fannst í
fangelsi
Dieter Karl
Freund fékk
lífstíðardóm
þrjátíu árum
eftir morðið.
Í fangelsi fyrir
samfarir við kýr
David Truscott er kominn í fang-
elsi eftir að hafa dvalið á bresku
geðsjúkrahúsi. David er 44 ára
og hefur þrisvar sinnum þurft að
dvelja í fangageymslum vegna
einkennilegrar kynlífshegðun-
ar. Hann á það til að velta sér upp
úr kúadellu og hafa kynmök við
kýrnar. David hefur viðurkennt
að hafa hótað bónda lífláti vegna
þess að hann hleypti honum ekki
inn á landareign sína.
Rassvél fyrir
læknanema
Rassvél fyrir læknanema er kom-
in á markað. Vélin er notuð sem
kennslutæki fyrir læknanema til
að æfa sig í að finna ristilkrabba-
mein. Dr. Benjamin Lok og dr.
Carla Pugh eru framleiðendur
vélarinnar, sem þeir nefna Patrick,
og segja þau að læknanemum
gefist tækifæri til að öðlast góða
reynslu í ristilskoðun með því að
nota tækið. Hægt er að varpa upp
á sjónvarpsskjá mynd af mann-
eskju sem er í ristilskoðun til að
gera verknaðinn enn þá raunveru-
legri. Vélin er notuð í háskólum í
Philadelphíu og Flórída.
Skírlífsbelti
fyrir karlmenn
Fyrirtækið CB-X er með skír-
lífsbelti fyrir karlmenn til sölu á
heimasíðu sinni. Þar segist fyr-
irtækið vera framúrskarandi á
heimsvísu þegar kemur að karl-
mannaskírlífsbeltum. Beltið
virkar þannig að það er sett utan
um getnaðarliminn og því er síð-
an lokað með lyklalás. Tilgangur
beltisins er að karlmaðurinn geti
ekki snert á sér kynfærin til þess
að uppfylla kynferðislegar lang-
anir sínar. Sá sem er með lykil-
inn stjórnar því hvenær karlmað-
urinn getur tekið beltið af sér.
Blaðamaðurinn Brian Moylan
prófaði að vera með belti í þrjá
daga og sagði það vera óhugn-
anlega tilfinningu að geta ekki
stjórnað því hvort hann snerti
kynfæri sín eða ekki.