Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Qupperneq 40
40 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Flestir kennarar og foreldrar
ættu að sjá þessa mynd“ „Athyglisverð leiksýning“
Disconnect
Leikstjóri: Henry Rubin
Stóru börnin
Leikstjóri: Rúnar
Guðbrandsson
Rau›arárstígur 14 · s. 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Rafskinna
9. – 24. nóvember
Vegna mikillar aðsóknar
framlengjum við sýningunni til
24. nóvember
Unnur Ýrr
Helgadóttir
Tímaflóð
Sýningar í Gal ler í Fold
AuGlýSinGAR 1933–1957
Hugsar um hverfulleikann
Um þessar mundir sendir tónlistarmaðurinn Rúnar Þórisson frá sér sína þriðju
sólóplötu; Sérhver vá. Rúnar þarf vart að kynna fyrir þeim sem fylgst hafa með og
þekkja íslenska tónlistarsögu, enda myndaði hann, ásamt Rafni Jónssyni trymbli,
hryggjarstykkið í einni vinsælustu hljómsveit landsins um langt skeið; Grafík.
F
yrri sólóplötur Rúnars eru
Ósögð orð og ekkert meir,
sem kom út 2005, og Fall,
sem kom út 2010, og fengu
báðar plöturnar ágætis við
tökur hjá þeim sem unna framsæk
inni og vandaðri tónlist. Rúnar gaf
sér tíma til að tylla sér niður og ræða
tilurð nýju plötunnar sem var hljóð
rituð og hljóðblönduð að miklu
leyti í Sundlauginni með Birgi Jóni
Birgissyni.
„Á tveimur fyrstu sólóplötunum
mínum sneiddi ég afar meðvitað
fram hjá stíl sem hugsanlega mætti
tengja við Grafík, en á núna leyfði ég
þeim áhrifum hins vegar að smjúga
inn ef svo bar undir,“ segir Rúnar og
bætir við að Grafík verði ávallt órjúf
anlegur hluti af tónlistarferli sínum.
„Grafík kom síðast saman 2011 og út
kom heimildarmynd og tvö ný lög. Ég
hóf vinnu við Sérhverja vá um sum
arið það ár. Því er kannski ekki að
undra að sá hljómur sem einkenndi
minn hljóðfæraleik með Grafík skjóti
upp kollinum á nýju plötunni.“
Hverfulleiki
Alla jafna hefur Rúnar leitað til
annarra til að sjá um söng en á Sér
hverri vá er þar breyting á, með
nokkrum undantekningum þó.
„Sumir textar eru einfaldlega þess
eðlis að það er nánast óviðeigandi
að annar en höfundurinn sjái um
flutninginn. Sumir textanna á plöt
unni eru svo persónulegir og tengj
ast mínum nánustu, lög eins og Á vit
engla og Sérhver vá.
Hverfulleikinn hefur orðið mér
hugleiknari eftir því sem árunum og
mínum nánustu hefur fjölgað; til
hugsunin um allt sem ég fæ engu um
ráðið og löngunin til að vera ávallt til
staðar fyrir fjölskylduna – sem ég veit
að er óraunhæf þrá.“
Rúnar segir að í þessu liggi drif
kraftur sköpunarinnar og að í því
samhengi sé innihald tónlistarinnar
sem og textanna honum mikilvægt.
„Það er rétt, þeir eru til sem hafa haft
á orði að textar mínir séu ljóðrænir,
en það er spurning hvort megi taka
svo djúpt í árinni að ég sé þess um
kominn að teljast ljóðskáld. Ég er
jú fyrst og fremst tónlistarmaður.
Textarnir skipta mig eigi að síð
ur verulega miklu máli og ég þarf,
satt best að segja, að hafa verulega
mikið fyrir þeim. En stundum þarf
ekki mörg orð til að segja það sem
segja þarf. “
Horfinn vinur
Rúnar telur að Sérhver vá sé hans
persónulegasta plata hingað til og
þá „sérstaklega með tilliti til text
anna.“ Á meðal þeirra sem koma
að flutningi og vinnu við nýja
diskinn er að finna dætur Rúnars,
Láru og Margréti, og tengda
syni hans, Arnar Þór sem forvann
grunnana með Rúnari og leikur á
trommur, og Birki Rafn, sem hef
ur hjálpað við upptökur og verið
ráðagóður, sem og þau öll hin. Þá
má ekki gleyma hlut Guðna Finns
sonar á plötunni en hann leikur á
bassa.
Rafn Jónsson trymbill og Rúnar
fylgdust að í tónlistinni og lífinu til
fjölda ára, en Rafn andaðist árið
2004.
„Þegar ég vinn við tónlist þá velti
ég nánast undantekningarlaust fyr
ir mér hvort Rabbi, ef honum hefði
orðið lengra lífs auðið, væri að vinna
að henni með mér – væri hann
með mér, væri ég einn, værum við
kannski enn saman í hljómsveit?“
segir Rúnar þegar talið berst að Raf
ni. „Eðlilega sakna ég þess oft að
hafa ekki þennan góða félaga mér
við hlið, en á móti kemur að ég nýt
stuðnings fjölskyldunnar, eins og
hún leggur sig.“
Stundum er skírskotað til listar
sem barna listamanna og því við
hæfi, að lokum, að kanna hvaða lög
Rúnari þykir vænst um. „Mér þykir
jafnt vænt um þau öll, en segjum
á þessu augnabliki þegar yfir vofir
Sérhver vá kysi ég að vera Fugl sem
mögulega gæti horfið Á vit engla,“
segir Rúnar og hverfur síðan á vit
daglegs amsturs. n
„Eðlilega
sakna ég
þess oft að hafa
ekki þennan
góða félaga mér
við hlið
Kolbeinn Þorsteinssson
kolbeinn@dv.is
Tónlist
„En stundum
þarf ekki
mörg orð til að
segja það sem
segja þarf
Kvikmyndir og fiskur
n Northern Wave í Grundarfirði
A
lþjóðlega stuttmyndahátíð
in Northern Wave verður
haldin í Grundarfirði í sjötta
sinn um næstu helgi.
Á hátíðinni er boðið upp á
stuttmyndir allt frá Úsbekistan til
Brasilíu og aldrei verið fjölbreytt
ara úrval þjóðerna á hátíðinni. Þetta
er frábær leið til að fá innsýn í ólíka
menningarheima, nánast eins og
að fara í heimsreisu um eina helgi í
samkomuhúsi Grundarfjarðar.
Tuttugu leikstjórar m.a. frá Rúss
landi, Úkraínu og Finlandi eru á leið
á hátíðina til að fylgja eftir sínum
myndum auk álíka margra íslenskra
leikstjóra og fjölda annarra gesta, en
gert er ráð fyrir að í kringum 150–
200 gestir sæki hátíðina árlega.
Keppt er um bestu íslensku stutt
myndina, besta íslenska tónlistar
myndbandið og bestu alþjóð
legu myndina. Auk þess er keppt
um besta fiskréttinn en á laugar
deginum verður hin vinsæla fisk
réttakeppni haldin í frystihúsi
Soffan íasar Cecilssonar hf. og þar
fá grundfirskir kokkar og grund
firskar fiskafurðir að láta ljós sitt
skína. Gestir veislunar fá að smakka
en Hrefna Rósa Sætran dæmir í
keppninni. n
Rúnar Telur Sérhverja vá sína persónu-
legustu plötu.