Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 42
Þ
að er að vaxa kvennalistakerl
ing inni í mér,“ segir Kristrún
Lind Birgisdóttir og glottir.
Á skrifstofu DV situr kjarna
kona sem hefur komið víða
við. Kristrún er í stuttu pólitísku
húsmæðraorlofi á Íslandi þessa dag
ana. Hún elur manninn almennt í
Hong Kong þar sem hún rekur einu
ljósmæðraþjónustu borgarinnar. En
hvernig endar kona sem 28 ára gömul
var orðin skólastjóri og fór svo að að
stoða ráðherra, í Hong Kong? Jú, það
var ástin sem leiddi hana þangað.
„Við maðurinn minn kynntumst
á blindu stefnumóti,“ segir Kristrún.
Vinkona Kristrúnar hafði komið á
fundi þeirra tveggja og sannfærði
Kristrúnu um að þetta væri ekkert
mál. Hún taldi að maðurinn, Bjarki
Viðar Garðarsson, væri örugglega ekk
ert fyrir hana. Stefnumótið átti að vera
nokkuð sársaukalaust og taka fljótt af.
„Hún sagði við mig: Þetta er ekkert
mál. Hann býr í Hong Kong – svo er
hann líka leiðinlegur,“ segir Kristrún
og hlær. Spá vinkonunnar gekk þó
ekki eftir og ári síðar, vorið 2007, var
Kristrún flutt til Kína.
Landsbankaævintýri
Þegar Kristrún flutti til Kína hóf hún
störf sem skrifstofustjóri Landsbank
ans í Kína. „Já, mitt fyrsta verkefni var
að innrétta húsnæði bankans í Hong
Kong og Singapúr og skipuleggja
veislu fyrir opnun bankans,“ segir
hún, en sú veisla átti eftir að vera mik
ið rædd og umdeild, sérstaklega í kjöl
far bankahrunsins. „Þetta var kannski
svolítið 2007,“ segir Kristrún og bætir
við: „En þetta var líka ekki bara það.
Þeir voru ótrúlega vel tengdir þessir
strákar og þetta var margt mjög smart.
En svo misheppnaðist þetta einfald
lega og við vitum öll hvernig þetta fór.“
Uppbygging fyrirtækis
Eftir að Landsbankaævintýrinu lauk
tóku við margs konar verkefni í Hong
Kong.
Þegar Kristrún eignaðist sitt fyrsta
barn var það mágkona hennar, Hulda
Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir, sem
hugsaði um móður og barn. Hulda
er vel þekkt í Hong Kong fyrir að hafa
rekið litla ljósmæðraþjónustu síðast
liðin 12 ár og það lá alltaf í loftinu að
Kristrún myndi á einhverjum tíma
punkti taka þátt í uppbyggingu fyrir
tækisins.
„Fyrir tæpum þremur árum kom
ég inn í fyrirtækið. Þá hafði Hulda
byggt upp sitt orðspor en fyrirtækið
var enn frekar lítið. Við ákváðum að ég
kæmi inn, færi að reka fyrirtækið og að
það myndi stækka,“ segir Kristrún.
Orðsporið er gulls ígildi
Fyrirtækið, Annerley, sinnir móður
og barni fyrir og eftir meðgöngu. Í því
felst mæðravernd, foreldranámskeið,
heimaþjónusta og – fyrir þá sem kjósa
– heimafæðingar. Í Hong Kong fara allt
að áttatíu prósent kvenna í keisara
skurð, nánast alveg öfugt við það sem
gengur og gerist á Íslandi þar sem
keisaraskurður er mun sjaldgæfari. „Í
Hong Kong eru heimaþjónustur ekki
hluti af eftirfylgninni eftir fæðingar, og
algengt að nýbakaðir foreldrar sæki
allt til lækna,“ segir Kristrún. „Það er
engin sambærileg þjónusta í borginni
eins og sú sem við bjóðum upp á,
þetta er í raun alveg einstakt.“
Ljósmæðurnar koma yfirleitt ekki
að sjálfri fæðingunni nema þegar
um er að ræða heimafæðingu. Þær
Kristrún og Hulda sjá það fyrir sér í
framtíðinni að opna fæðingarheimili
og veita þannig enn víðtækari þjón
ustu. Eins og er státar fyrirtækið af
fimmtán starfsmönnum og fer starf
semin vaxandi. Fyrirtækið nýtur þess
að orðstír Huldu sem ljósmóður fleyt
ir þeim langt. „Orðsporið skiptir öllu
máli,“ segir Kristrún. Nýverið gengu
tvær íslenskar ljósmæður til liðs við
fyrirtækið og segir Kristrún það vel
koma til greina að fjölga íslenskum
starfsmönnum.
Berja sér á brjóst
Kristrún lýsir Hong Kong sem miklu
karlaveldi. En inni í Kristrúnu vex og
dafnar kvennalistakona þrátt fyrir að
Kristrún sé gallhörð sjálfstæðiskona.
„Femínisti er eitt, en kvennalistakona
er annað,“ segir Kristrún og útskýrir.
„Við konur þurfum að vera ábyrgari
fyrir okkar stöðu sjálfar. Við erum okk
ar versti óvinur í viðskiptum og póli
tík,“ segir hún.
Kristrún segir að prinsessuvæðing
kvenna sé komin út á hættulega braut
og eitthvað þurfi að gera í málinu. „Ég
veit ekki hvaðan þetta kemur en mér
finnst eins og það hafi orðið bakslag.
Ég held að við þurfum allar að finna
kvennalistakerlinguna í okkur og
berja okkur á brjóst,“ segir hún og tek
ur dæmi af sjálfri sér og Huldu. „Við
Hulda erum bara drullugott teymi.
Við, sem viðskiptakonur í Hong Kong,
þurfum að hvetja hvor aðra áfram
daglega. Við konur, sem viljum frama,
þurfum bara að segja það við okkur á
hverjum einasta degi hvað við erum
framúrskarandi og hvað við erum vel
til þess fallnar að gera þetta. Enginn
gerir þessa hluti fyrir okkur. Við verð
um sjálfar að sækja það sem við vilj
um,“ segir hún. „Það þarf að segja
þetta upphátt og kalla það hátt,“ bætir
hún ákveðin við.
Pólitískt húsmæðraorlof
Kristrún lætur líka til sín taka. Póli
tíska húsmæðraorlofið verður nýtt í
prófkjörsbaráttu og er Kristrún hér
á landi til að aðstoða vinkonu sína,
Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, við að
komast í oddvitasæti í prófkjöri Sjálf
stæðisflokksins í Reykjavík á laugar
dag. „Mér finnst mín kona hafa stað
ið sig ákaflega vel,“ segir hún aðspurð
hvort hún geti spáð prófkjörsúrslitun
um á laugardag. Kristrún segir að bar
áttan hafi komið henni á óvart. Hún
segir að fólk þurfi að hugsa vel um það
hverjir eru að eyða skattfénu þess og
taka ábyrgð á því. „Það þýðir ekkert
að leyfa stjórnmálamönnunum að fá
frítt spil með peningana – allir þurfa
að taka virkan þátt og skipta sér af því
hverjir veljast til forystu.“
Hún kveðst verða vör við mikið
áhugaleysi á stjórnmálum en segir
einnig að sér finnist konur ekki treysta
öðrum konum nægilega vel fyrir
stjórntaumunum. Það finnst henni
ákaflega sorglegt. „Ég finn fyrir því að
það eru konur, sem eru ekki að standa
með konum og styðja þær til frama.
Það þarf að gera breytingar og mér
finnst lykilatriði að Sjálfstæðisflokk
urinn setji konu í framlínuna á laugar
daginn,“ segir hún. „Það að konum
finnist að konur eigi ekki erindi í for
stjórasæti eða fyrsta sæti á lista, það er
alvarlegt vandamál karla og kvenna,“
segir hún. Það er eitthvað sem þarf að
breyta. „Þetta er mikið mein, sem við
erum því miður enn að kljást við. Við
þurfum að standa upp og sýna það í
verki að við getum þetta,“ segir hún.
Þurfa að skúra út
Það angrar hana mikið að flokkurinn
hennar, Sjálfstæðisflokkurinn, skuli
ekki hafa tekið betur á málunum inn
an flokksins eftir hrun. Hún slær ekkert
af þegar hún ræðir þörf á tiltekt innan
flokksins. „Hjartað mitt slær með Sjálf
stæðisflokknum. En eftir hrunið náði
flokkurinn ekki að nýta tækifærið og
taka til og breyta. Það voru stór mistök
að taka ekki til í ásýnd flokksins, taka
til inni í flokknum og byrja upp á nýtt,“
segir hún og bendir á að fyrirtæki þurfi
reglulega að gera þetta, fara í endur
skoðun og skipulag. „Það er ekki of
seint, en það þarf að skúra og skrúbba
rækilega. Þetta verður kannski ekki
auðvelt, en þetta þarf að gera.“
Stendur á bak við tjöldin
„Innan flokksins eru einangraðar klík
ur sem vilja bara koma sínu fólki að,“
segir hún og segir að flokkurinn hefði
til dæmis átt að íhuga opið prófkjör í
Reykjavík og sjá hvað óflokksbundnir
sjálfstæðismenn hefðu um málin að
segja. Þá telur hún bráðnauðsynlegt
að flokkurinn fái til sín ungt fólk og
unga fólkið þurfi nauðsynlega að láta
til sín taka.
„Kannski þarf Sjálfstæðisflokk
urinn líka að finna kvennalistakerl
inguna í sér,“ segir hún.
Pólitíkin gerir mikið fyrir
Kristrúnu, en vegna anna og verkefna
hefur hún ekki getað sinnt henni eins
mikið og hún myndi gjarnan vilja. „Ég
hef aldrei verið í framlínunni sjálf, en
hef verið á bak við tjöldin að hjálpa til,“
segir hún kankvís.
Það besta af báðum heimum
Kristrún og Bjarki eiga tvö ung börn
sem bæði eru fædd í Hong Kong. Þar
búa þau í 65 fermetra íbúð og for
eldrarnir vinna mikið. Með góðu
skipulagi, góðri hjálp og lagni tekst
þeim að halda jafnvægi milli vinnu
og fjölskyldunnar segir Kristrún, lífið
í Hong Kong sé talsvert frábrugðið
því sem Íslendingar eiga að venjast,
varðandi leikskóla og menntun
barna. Tvær konur búa á heimili fjöl
skyldunnar, í aðliggjandi íbúð. Þær
sinna börnunum og heimilinu yfir
daginn og fjölskyldan kallar þær
hjálpara. Þegar Kristrún og Bjarki
koma heim að loknum vinnudegi geta
þau átt gæðastundir með börnun
um en þurfa ekki að eiga við hið dag
lega amstur, eins og innkaup eða þrif
heimilisins. Þess í stað eiga þau nota
legar stundir með börnunum, þar sem
ekkert annað kemst að nema börn
in. „Þær sjá um allt. Vinnudagurinn
er rosalega langur og ef maður ætlar
sér að reka fyrirtæki þá verður þetta
að vera svona,“ segir hún og segir að
ef báðir foreldrar ætli sér að vinna úti
henti þetta best enda er þetta algengt
í Hong Kong. „Maður getur ekki feng
ið 100 prósent af báðu, en við vitum
hvað hentar okkur og þetta gengur
upp,“ segir hún.
Kristrún segir að Íslendingar gætu
lært mikið af þessu og segir að allt of
mikið sé lagt á fjölskyldur þar sem for
eldar ætli sér að vinna fulla vinnu og
sinna börnunum og fjölskyldunni.
„Fólk á Íslandi er alltaf á hlaupum,
enda þarf það að sjá um allt. Ég næ að
gera þetta þannig að þetta gengur upp
fyrir mig og lífsgæðin okkar eru góð,“
segir hún.
Mikilvægt að börn alist upp í þorpi
Blaðamaður hváir þegar Kristrún
segir að sér finnist mikilvægt að börn
in sín alist upp í þorpi, enda hafa þau
búið allt sitt líf í Hong Kong, einni
stærstu og þéttbýlustu borg heims.
„Mér finnst mikilvægt að þau læri að
stafla stólum,“ segir Kristrún og brosir
þegar hún er beðin um að útskýra
þetta nánar.
„Mér finnst ég oft heyra það að
fólk hefur jafnvel tvær háskólagráður
en enga reynslu. Ég held að fólk vanti
reynslu, sem fæst ekki nema fólk hafi
tækifæri á að búa á litlum stað, þar
sem það fær bæði vigt og ábyrgðartilf
inningu með því að taka þátt í bæjar
lífinu. Þetta er einstök reynsla,“ segir
hún og segir að sum reynsla fáist ein
faldlega ekki á vinnumarkaðinum eða
í skóla. „Ég ólst sjálf upp á landsbyggð
inni og ég vandist því að þurfa að
bjarga mér sjálf og taka ábyrgð,“ seg
ir hún og tekur dæmi um að taka þátt
í að skipuleggja sam komur þar sem
fólk sameinast um að setja upp og
taka niður stóla og borð eftir samkom
ur. „Þessi reynsla kemur sér vel. Þú
lærir ýmislegt á því að stafla stólum,“
segir hún að lokum. n
42 Lífsstíll 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Kristrún í karlaveldi
Kristrún Lind
Birgisdóttir segir
konur þurfa að kalla hátt
og berja sér á brjóst. Blint
stefnumót leiddi hana
til í Hong Kong, þar sem
atvinnurekstur á nú hug
hennar allan. Innra með
henni býr kvennalistakona
sem vill að Sjálfstæð-
isflokkurinn, hennar lið,
hugsi sinn gang og skúri
út, Kristrún ræddi við Ástu
Sigrúnu Magnúsdóttur um
lífið í Hong Kong, pólitík-
ina og mikilvægi þess að
láta í sér heyra.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Viðtal
Vill að konur hafi hátt Kristrún
segir mikilvægt að konur láti vaða og
skapi sín eigin tækifæri. Ekki má koma
bakslag í jafnréttisbáráttuna.
Umdeild Þessi mynd vakti mikið umtal, sérstaklega eftir hrun þar sem hún þótti lýsa óráðsíu
áranna fyrir hrun.
„Ég held að við
þurfum allar
að finna kvennalista-
kerlinguna í okkur