Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 45
Lífsstíll 45Helgarblað 15.–17. nóvember 2013
Venjulegir líkamar óvenjulegir
n Lýtaaðgerðir gerðar að normi n Kynningar á lýtalækningum á gráu svæði
dálki virðist helst fjallað um aðgerð-
ir sem eru eingöngu hugsaðar í fegr-
unarskyni en hafa ekki beinan lækn-
isfræðilegan tilgang. Svo virðist sem
enginn greinarmunur sé gerður á
þessu tvennu í þessum dálki. Þar sem
þessar aðgerðir eru oft og tíðum um-
fangsmiklar og ekki lausar við áhættu
og ávinningurinn fremur óljós hljóta
margir að spyrja sig hvort kostnaður-
inn og áhættan sé þess virði og hvort
eðlilegt þyki að ræða þessar aðgerðir
á þessum vettvangi.“
Réttur til að gera það
sem það vill
Gabríela segist ekki
hrifin af því að ver-
ið sé að mæla
opinberlega
með aðgerðum
á fólki sem er í
raun heilbrigt
og þarf ekki á
aðgerð að halda.
„Ég er samt
ekki að mælast
til þess að fegr-
unaraðgerðir verði
bannaðar. Auðvitað
hefur fólk rétt til að
gera það sem það vill
og ég skil líka full-
komlega að fólk skuli
sækjast í svona lausnir
þegar þrýstingurinn
frá samfélaginu um að
líta út á ákveðinn hátt
er svona gríðarlegur.
En það verður að hafa í
huga að þegar fegrunar-
aðgerðir eru gerðar að
einhvers konar normi, þá
fara venjulegir líkamar að
virðast óvenjulegir. Þetta
er það sem hefur verið
að gerast smátt og smátt
í vestrænum samfélögum
undanfarna áratugi. Hér
áður fyrr þótti ekkert óeðli-
legt að vera með lítil eða
lafandi brjóst, til dæmis. Í
þessum dálki virðist ekk-
ert vera eðlilegra en að
láta laga allt sem hugs-
anlega gæti litið betur
út. Ég hef áhyggjur af
því hvaða áhrif þessi
skilaboð hafa á
samfélagið.“ n
Skapabarmaaðgerðir
275.000 krónur
n Aðgerðin fer þannig fram að hluti af innri skapabörmum er fjarlægður og minnka
þá innri skapabarmarnir töluvert og markmið aðgerðarinnar er sá að ytri skapa
barmar hylji algjörlega þá innri.
Eftir aðgerð
Fljótlega eftir aðgerð fær sjúklingurinn að fara heim. Hann hittir lækni í eftirskoðun að
viku liðinni til að ganga úr skugga að allt sé með felldu. Þvottur á kynfærum er ráðlagður
daglega á meðan skurðir gróa sem venjulega tekur 10–14 daga. Konum er ráðlagt að hafa
ekki samfarir fyrr en öll sár eru gróin – eftir ca. 2–3 vikur. Saumarnir eyðast af sjálfum sér og er
því saumataka óþörf.
Áhætta
Helstu áhættuþættir við aðgerðir sem slíkar eru blæðingar, en þá getur blætt töluvert úr sárinu eða
að það myndist blóðgúll sem stundum þarf að tæma í annarri aðgerð. Verkir eru algengir við samfarir
fyrstu vikur eftir að skurðir hafa gróið en slíkir verkir hverfa oftast á skömmum tíma.
Andlitslyfting
600.000 krónur
n Andlitslyfting getur tekið allt að fimm klukkustundum. Ef aðgerðir á
augnlokum er framkvæmd í leiðinni tekur aðgerðin enn lengri tíma. Eftir
aðgerðina er fylgst með sjúklingnum á sérstöku vöknunarherbergi
í allt að þrjár klukkustundir. Ef allt gengur að óskum fer sjúk
lingur heim aðeins nokkrum klukkustundum eftir aðgerð.
Eftir aðgerðina
Yfirleitt fylgja andlitslyftingu
litlir verkir – en bólgur og mar
geta verið áberandi í viku
tíma eða svo. Æskilegt er að
halda sig að mestu heima
fyrstu dagana eftir aðgerð.
Saumar eru fjarlægðir í
tveimur áföngum. Annars
vegar á fimmta til sjötta
degi og hins vegar á tíunda
til tólfta degi efir aðgerð. Það
tekur allt að þremur mánuðum
að jafna sig að fullu eftir slíka
aðgerð.
Svuntuaðgerð
600.000 krónur
n Eftir að kona hefur gengið með barn getur
húðin verið ansi slöpp á eftir. Í flestum tilfellum
gengur húðin til baka í fyrra horf en þó nokkur
dæmi eru um að húðin gangi aldrei til baka.
Karlmenn gangast einnig undir slíka að
gerð. Einstaklingur sem hefur til dæmis
grennst mikið á skömmum tíma gæti
viljað fara í svuntuaðgerð svo dæmi
sé tekið af þeim sem sækja í þessar
aðgerðir.
Hversu langan tíma
tekur aðgerðin?
Kviðaðgerðir geta verið
misumfangsmiklar eftir einstak
lingum en að öllu jöfnu tekur að
gerðin um tvo og hálfan til fjóra
tíma. Skurður er oftast gerður frá
mjaðmabeini að mjaðmabeini og
er hann það neðarlega að undir
föt ættu að hylja skurðinn sem
er ansi langur. Eftir aðgerðina
er fylgst með sjúklingi í vöknun
í eina til þrjár klukkustundir en
eftir það er viðkomandi fluttur á
sjúkrastofu þar sem hann dvelur í
nokkra daga.
Batahorfur
Eftir jafn umfangsmikla aðgerð og
kviðaðgerð er getur tekið marga
mánuði að ná fullum bata. Kvið
aðgerð er ekki megrunaraðgerð og er
ráðlagt að sjúklingurinn sé í kjörþyngd
þegar hann gengst undir slíka aðgerð.
Dofi getur verið á kviðnum um ókomna
tíð eftir slíka aðgerð.
Væntingar
Í nokkra daga eftir aðgerðina verður kviðurinn
bólginn og töluverðir verkir og óþægindi eru
til staðar. Mikilvægt er að sjúklingurinn byrji að
hreyfa sig og ganga eins fljótt og unnt er jafnvel
þótt að hann geti ekki verið í alveg uppréttri
stellingu fyrstu dagana. Árangur kviðaðgerðar er
oftast góður, einkum og sér í lagi ef sjúklingurinn er
með slaka kviðvöðva og verulega umframhúð.
Fyllingarefni
200.000 krónur
n Hægt er að sprauta inn fyllingarefni sem eyðist úr líkamanum á nokkrum
mánuðum án deyfingar og er það stundum gert. Lýtalæknirinn sprautar inn
efninu sem jafnast í húðina með afar fíngerðri nál undir þær hrukkur sem
meðhöndla á. Síðan jafnar hann út efnið með fingrunum. Þar sem viðkom
andi er vakandi getur hann fylgst með því sem gert er í spegli og tekið þátt í
að ákvarða hversu mikið efni er notað á hverjum stað, ekki síst í varir.
Varðandi varanlega fyllingarefnið er eins farið að nema efninu er komið
fyrir dýpra í húðinni og sýklalyf eru gefin í forvarnarskyni.
Væntingar
Roði og þroti á hinum meðhöndluðu svæðum er algengur, en hverfur oftast
á nokkrum dögum.
Árangur
Líkaminn eyðir efninu og áhrif meðferðarinnar fjara út á vissum tíma.
Endingin er einstaklingsbundin og getur varað frá nokkrum mánuðum upp í
rúmt ár. Ef viðkomandi líkar breytingin sem verður við ísetningu fyllingar
efnis sem eyðist er hægt að láta sprauta með varanlegu fyllingarefni.
Varanlega fyllingarefninu er venjulega komið fyrir í tveimur eða jafnvel
fleiri áföngum til að komast hjá því að of mikið efni sé sett í varirnar. Þá þarf
viðkomandi jafnframt að hafa gert sér vel grein fyrir þeim breytingum hann
vill ná fram, því eftir á er erfitt að taka út eða minnka magn fyllingarefnisins
nema með skurðaðgerð.
Brjóstastækkun
500.000 krónur
n Brjóstastækkun er ein algengasta
lýtaaðgerð í heiminum. Eins og með
skurðaðgerðir almennt, þá fylgir henni
ákveðin áhætta og vandamál geta komið
upp. Þeir einstaklingar sem hyggja á slíka
aðgerð eru hvattir til þess að fara vandlega
yfir alla mögulega áhættu og ræða það við
lýtalækni sinn.
Batahorfur
Yfirleitt er hægt að snúa til vinnu fáeinum dögum eftir
aðgerð þó að tegund og eðli vinnunnar skipti hér nokkru
máli. Brjóstin geta verið viðkvæm fyrstu vikurnar eftir
aðgerð og þola illa snertingu.
Væntingar
Fyrir flestar konur sem taka ígrundaða ákvörðun um að fara í
brjóstastækkun getur árangurinn orðið góður. Hafa ber í huga
að brjóstin munu virðast stærri og stinnari fyrst eftir aðgerð – en
síðan munu þau falla neðar og verða mýkri með tímanum.
mynd SHuttERStock