Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 54
54 Fólk 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Þriðja barn
Regínu á leiðinni
Söngkonan Regína Ósk gengur
með sitt þriðja barn og er komin
þrjá mánuði á leið. Í samtali við
Séð og heyrt segir hún að með
gangan hafi gengið vel hingað til.
Hún finni aðeins til þreytu og smá
ógleði. Fyrir á Regína tvær stúlk
ur sem eru að sögn hennar afar
spenntar fyrir að fá lítið systkini.
Regína hefur í nógu að snúast
en hún mun syngja mikið um
hátíðarnar og útskrifast í verk
efnastjórnun í Háskólanum í
Reykjavík næsta vor.
Alskeggjaður
skemmtikraftur
Leikarinn vinsæli Pétur Jóhann
Sigfússon hefur spókað sig um
miðbæ Reykjavíkur með fjall
myndarlegt alskegg. Þessi mikli
skemmtikraftur hefur greini
lega ákveðið að fylgja þeirri karl
mannstísku sem ræður ríkjum
hér á landi um þessar mundir, en
víkingalegt útlit karlmanna vakti
mikla athygli erlendra ferða
manna í sumar. Pétur Jóhann hóf
störf hjá framleiðslu fyrirtækinu
Stórveldinu í september, en hann
hefur verið valinn fyndnasti
maður Íslands og sló eftirminni
lega í gegn sem Ólafur Ragnar í
Nætur vaktinni. Á þessu ári hljóp
skemmtikrafturinn hálft maraþon
og var fylgst með hverju skrefi í
undirbúningi hans fyrir það.
Landsliðs-
menn klipptir
á hótelinu
Íslenska landsliðið leikur í kvöld
gegn Króatíu í fyrri leik liðanna
um sæti á HM í Brasilíu. Leikurinn
verður sýndur í beinni útsendingu
á RÚV og er búist við því að lands
menn verði límdir við sjónvarps
skjáinn meðan á leik stendur.
Eðlilegt er að leikmenn liðsins
vilji líta vel út á vellinum og þess
vegna kom hárgreiðslumaður upp
á hótelið til þess að klippa þá sem
vildu. Kolbeinn Sigþórsson, fram
herji Ajax, var meðal þeirra sem
nýttu sér þjónustu hárgreiðslu
mannsins og mun því verða hár
prúður í framlínunni á Laugar
dalsvellinum í kvöld.
F
áir Íslendingar ef nokkur var
jafn mikið dáður og Hemmi
Gunn og þegar hann lést lét
þjóðin sterkt í ljós væntum
þykju sína.
Í jarðarförinni var kistan klöppuð
upp, kistan var sum sé látin síga, hífð
upp aftur undir lófaklappi viðstaddra
og síðan látin síga aftur niður. Þjóð
in hafði sterka mynd af Hemma sem
hlýjum og hláturmildum manni og
hann setti sterkan svip á þjóðlífið. Í
gær, fimmtudag fögnuðu höfund
ur og aðstandendur Hemma nýút
kominni ævisögu hans, Hemmi
Gunn, sonur þjóðar.
Hugrakkt uppgjör
Þar sem Hemmi lést áður en
bókin var fullkláruð þurfti höf
undurinn, Orri Páll Ormars
son, að leita til aðstandenda
til að klára bókina. Hann hafði
ætlað sér að ræða við Hemma
um mikilvæg málefni. Bakkus
sem hann háði harða bar
áttu við. Hemmi hafði sagt við
Orra að hann hefði verið edrú
síðan árið 2003. Það reyndist
fjarri sanni og líklega lá það
þungt á Hemma. Í lok bókar
innar skrifar Orri sérstakan
eftirmála þar sem hann gerir
upp drykkju Hemma á hugrakk
an hátt.
Veruleikinn var annar
„Í endaðan apríl 2013, fáeinum
dögum eftir að hann kvaddi hlust
endur og samstarfsmenn á Bylgj
unni, hélt Hermann Gunnarsson
í langþráð frí til Pattaya í Taílandi.
Þangað fór hann vanalega í frí síð
ustu árin, einu sinni til tvisvar á ári.
Hemmi unni Taílandi, landi og
þjóð. Um það efast ekki nokkur
maður. Þangað fór hann til að njóta
lífsins og slaka á, alltént voru það
skýringarnar sem hann gaf vinum
sínum og vandamönnum. Veruleik
inn var annar. Taílandsferðir hans
snerust fyrst og síðast um eitt – neyslu
áfengis. Í Pattaya gat Hemmi Gunn
drukkið í ró og næði.“
Svo hefst eftirmáli bókar Orra.
Kallaður Mr. Rambo
Orri segir af venjum Hemma í
Taílandi og flestir dagarnir voru eins.
Hann hafi fengið sér bjór á hótelinu
og sinnt daglegum verkum svo sem
að senda og svara tölvupósti og upp
færa stöðu sína á Facebook. Hann
segir hann hafa gætt þess að gera
þetta snemma dags svo engan grun
aði að ekki væri allt með felldu. Eftir
því sem leið á daginn drakk hann
meira og naut vinsælda á hótelinu.
„Sjálfur var hann vinsæll á
hótelinu og nágrenni en menn þekktu
hann hvorki undir nafninu Hermann
Gunnarsson né Hemmi Gunn – held
ur Mr. Rambo. Skýringin á því er sú
að fyrir mörgum árum hafði Hemmi
skartað forláta hárbandi í Pattaya og
einhver æringi af þeim sökum skellt
þessu vígalega nafni á hann, Mr.
Rambo. Eftir það var hann aldrei kall
aður annað.“
Veiktist á barnum
„Um kvöldið skipti Hemmi yfir í sterk
ari drykki,“ segir Orri frá og segir dag
ana í Taílandi hafa liðið svona dag
eftir dag, viku eftir viku. Taílandsferð
irnar hafi staðið í fjórar til sex vikur.
„Seinustu dagana áður en hann
flaug heim dró Hemmi úr drykkunni.
Svaf vel á leiðinni og gekk inn í sitt
annað líf heima á Íslandi, líf án
áfengis.
„… Síðasti sólarhringurinn í lífi
Hemma Gunn var með hefðbundnu
sniði. Hann fór með góðvini sínum
Guðjóni á barinn. Aðeins voru tveir
dagar í heimför. Laust fyrir tíu veiktist
Hemmi, þar sem hann sat í stól sín
um við borð á barnum. Enginn að
dragandi var að því. Guðjón skynj
aði strax að ekki væri allt með felldu.
Hemmi hallaði sér fram í stólnum en
sýndi engin viðbrögð. Andlitið var líf
laust.“ n
Breyskur og
blíður Hemmi
n Hugrakkt uppgjör ævisagnaritara n Vinir og vandamenn fögnuðu
Hemmi heiðraður Börn
Hemma, ættingjar, vinir og
velunnarar mættu í útgáfuhóf
á Reykjavík Restaurant.
MyndiR sigtRygguR aRi