Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Blaðsíða 56
Villidýrið á meðal vetrardekkjanna.
Skútuvogi 8 / Sími 567 6700 / vakahf@vakahf.is / vakahf.is
Vetradekk, fyrir íslenskar aðstæður,
á felgum tilbúin undir bílin á frábæru
tilboðsverði. Sendum út um allt land.
Dekkjaþjónusta BifreiðaflutningarVarahlutirBifreiðaverkstæði Úrvinnsla bíla Smurþjónusta
Reykt á bak
við rimla!
Stórverkefni
Baltasars
n Tökur á Everest-kvikmynd
Baltasars Kormáks munu að öllum
líkindum hefjast í Dólómíta-fjöll-
um á Ítalíu í upphafi næsta árs.
Þetta kemur fram á kvikmynda-
vefnum Deadline. Nokkur óvissa
hefur verið með gerð kvikmyndar-
innar en eitt framleiðslufyrirtæki
myndarinnar hætti við í seinasta
mánuði vegna ágreinings um
framleiðslukostnað, sem er áætl-
aður um átta milljarðar króna.
Þrátt fyrir það virð-
ist það ekki koma
að sök og munu
Working Titles,
Cross Creek og
Walden Media
framleiða kvik-
myndina fyrir
kvikmynda-
verið
Uni-
versal.
Segir Reykjavík
vera þorp
n Ferðavefur CNN fjallaði um í
vikunni hvernig skyldi bera sig að
í Reykjavík. Í þeim tilgangi ræddi
CNN meðal annars við Unnstein
Manuel Stefánsson, söngvara og
forsprakka hljómsveitarinnar
Retro Stefson, sem sagði Reykjavík
vera eins og þorp sem reynir að
vera borg. „Á einn bóginn finnst
mér gott að allir þekki hver ann-
an hér, en á sama tíma er það ekki
í uppáhaldi hjá mér,“
sagði Unnsteinn við
CNN. Ferðavefurinn
mælti því með að
þeir sem heimsæktu
Reykjavík reyndu
að venjast því sjá
sömu andlitun-
um bregða
fyrir aft-
ur og
aftur.
Hræsni bak við
hneykslun
n Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, veltir fyrir sér á Facebook-
síðu sinni viðbrögðum almennings
við þungum dóm sem íslenskar
stúlkur fengu í vikunni fyrir eitur-
lyfjasmygl. Hann spyr hvernig við-
brögð almennings væru ef tveir
pólskir karlmenn væru dæmdir á
Íslandi fyrir innflutning á kókaíni.
„Væri fólk hneykslað? Þætti yfir-
völdum það of þung refsing? Væru
það „vonbrigði“?“ spyr Helgi Hrafn.
„En ég get ekki annað en nefnt
hræsnina á bak við þessa hneyksl-
un, að láta eins og þetta sé voða-
lega slæmt þegar þetta kemur fyrir
Íslendinga erlendis,
þegar við ættum að
vita fullvel að þegar
útlendingar reyna
að smygla dópi til
Íslands, þá lítur
þjóðin jafnan á það
sem einhvers kon-
ar innrás,“
segir þing-
maðurinn.
H
áskóli Íslands hefur bannað
reykingar fyrir utan allar
byggingar skólans og reist sér-
stakt reykingaskýli sunnan við
Háskólatorg. Tóbaksfíkið háskólafólk,
sem DV hefur rætt við, er margt hvert
afar ósátt við ákvörðunina enda sé
skýlið pínulítið og þar að auki lokað af
með rammgerðum rimlum – eins og
klipptum út úr bandarískri bófamynd.
„Hér áður fyrr var reykingapásan
dýrðleg stund – hápunktur dagsins; að
geta slitið sig frá grámyglulegu talna-
vafstri háskólastarfsins, stigið út í frelsi
hinnar stóru og fallegu skólalóðar,
tekið upp Kent-sígaretturnar, tæmt
hugann og hugsað um ekkert annað
en bara næsta smók,“ segir ósáttur og
skáldlegur starfsmaður Háskóla Ís-
lands sem vill síður láta nafn síns getið
og bætir við: „Víðáttur skólalóðarinn-
ar voru í þessum skilningi mitt „For-
tress of Solitude“; vin í eyðimörk
hversdagsins.“ Starfsmaðurinn segir
skólayfirvöld hafi með ákvörðun sinni
stefnt andlegri heilsu hans í voða, fært
heilaga stund hans í hlekki og varpað
honum í fangelsi – bókstaflega.
„Fangaklefinn er pínulítill og yfir-
leitt fullur af fólki. Það er óumflýjan-
legt að lenda á spjalli við ókunn-
uga og stundum miður skemmtilega
nikótínfíkla sem skilja ekki mikilvægi
„stundarinnar“.“
Samkvæmt upplýsingum frá há-
skólanum er reykingafangelsið reist að
erlendri fyrirmynd og hefur þann til-
gang að vernda háskólafólk fyrir reykj-
armekki sem gjarnan myndast við inn-
ganga og læðist inn um opna glugga.
Til að stemma stigu við tóbaksstybb-
unni hafa skólayfirvöld í smáum skref-
um bannað reykingar á sífellt stækk-
andi svæði og nú er svo komið að eini
griðastaður reykingafólks er litli fanga-
klefinn við Suðurgötu. Samkvæmt
heimildum DV eru þó enn margir sem
láta ekki segjast og reykja í trássi við
bannið. Ekki er vitað hvort starfsmenn
skólans hafa heimild til fangelsa brot-
lega, ef gómaðir. n
baldure@dv.is
Háskóli Íslands „fangelsar“ reykingafólk
n Vin breytt í hálfgerðan fangaklefa n Mælist misjafnvel fyrir
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 15.–17. nóveMBer 2013 130. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.