Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Qupperneq 20
Áramótablað 28. desember 201320 Fréttir Innlent
Bjargaði
lífi í sundi
7. október „Ég ætlaði alls ekki að
synda, en svo ákvað ég að taka
nokkrar ferðir,“ sagði Gunnar Áki
Kjartansson sem bjargaði sundgesti
frá drukknun í Suðurbæjarlaug í
Hafnarfirði. Hann sótti manninn á
botn laugarinnar og kom honum upp
á bakkann. Þá kom pólskur maður að
og aðstoðaði Gunnar við að hnoða
lífi í manninn. Sá pólski lét sig svo
hverfa án þess að nokkur næði að
skrá niður upplýsingar um hann.
Jón Gnarr hættir
30. október Borgarstjóri Reykjavík-
ur, Jón Gnarr, tilkynnti í útvarps-
þættinum Tvíhöfða að hann myndi
ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Þá
ætlar hann ekki að halda áfram í
stjórnmálum. „Mér líkar ekki þessi
kúltúr, mig langar að gera eitthvað
sem er meira uppbyggilegt og
skapandi og meiri gleði,“ sagði
Jón meðal annars. Hann
sagðist þó ekki vera búinn
að ákveða hvað það yrði.
Seldi silfrið
15. nóvember „Þegar búið var að
loka á mig hjá bankanum og ég var
búinn að fá frest hjá sýslumanni tók
ég þessa ákvörðun,“ sagði Ólympíu-
verðlaunahafinn Sigfús Sigurðsson.
Sú ákvörðun var að selja verðlauna-
peninginn sem hann fékk fyrir að
hafna í öðru sæti á Ólympíuleikun-
um í Peking árið 2008 með hand-
boltalandsliðinu.
Sigfús fékk
gríðarlegan
stuðning úr
öllum áttum
en HSÍ
endurheimti
peninginn og
tók í sína
vörslu. QuizUp slær met
16. nóvember Íslenska
smáforritið QuizUp sló
sannarlega í gegn í
haust, en það er
gefið út af
leikjaframleið-
andanum
Plain Vanilla.
Á aðeins átta
dögum voru
notendur þess orðnir meira en
milljón talsins en yfirleitt tekur það
einhverja mánuði að ná svo
miklum fjölda. Í kjölfarið hafa
fjárfestar sýnt fyrirtækinu mikinn
áhuga en hingað til hefur öllum
tilboðum verið hafnað. Forritið er
eitt það vinsælasta á Bandaríkja-
markaði smáforritaverslunar
Apple, App Store, en stefnt er að
útgáfu þess fyrir stýrikerfi Google,
Android, eftir áramót.
Nýr peningaseðill Í október var 10.000 króna seðill settur í umferð, í fyrsta sinn í 18 ár sem nýr seðill er gefinn út. Hann er
tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni og verkum hans, en á bakhlið er að finna teikningu Jónasar af fjallinu Skjaldbreið og ljóðlínur með rithönd
Jónasar úr fyrsta erindi kvæðisins Fjallið Skjaldbreið. Á framhlið er mynd af Jónasi og ljóðlínur úr kvæðinu Ferðalok.
24. október
Eldur í Fernanda Eldur kom upp í flutningaskipinu Fernanda og óskaði skipstjóri þess eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar þegar ljóst var að rýma þyrfti skipið. Öllum skipverjum var bjargað en áfram loguðu eldar í skipinu og
varðskipið Þór reyndi að slökkva eldinn úti á rúmsjó. Það gekk hins vegar illa og ákveðið var að draga skipið til Hafnarfjarðarhafnar. Þar átti að reyna slökkvistörf en mun meiri reykur og hiti var í skipinu en talið var. Þegar reykurinn var farinn að
menga stóran hluta Hafnarfjarðar var ákveðið að fara með skipið út á sjó þar sem áfram var reynt að slökkva eldinn. Eftir gríðarlega erfitt starf slökkviliðsmanna tókst að ráða niðurlögum eldsins, en þá var enn talsverð olía í skipinu.
30. október