Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Blaðsíða 64
Áramótablað 28. desember 201364 Fólk Viðtal yfirlestur og hjálpa fólki við að setja saman texta.“ Sjálfur fær hann mikla hjálp við sínar bækur, þótt hann hafi atvinnu af því að lesa yfir annarra manna handrit. „Þegar maður er að skrifa er maður kannski með heila veröld í hausnum, hundrað manns sem allir eru að banka og eitthvað að skvaldra og hver með sitt, og mað- ur er með athyglina á þeim atburð- um sem þurfa að komast á blað. Þá er eitt og annað sem getur far- ið forgörðum, persónur geta breytt um nöfn og tímastundir raskast og ýmis legt.“ Áður en hann hófst handa með síðustu bók var hann búinn að ákveða hvernig sagan yrði og hvern- ig hún myndi enda. „Ég þurfti bara að skrifa hana - en hún var alsköp- uð í hausnum á mér, þegar til. Það er svo skrýtið að stundum koma sögur alskapaðar til mín. Það er eins og litlir englar sitji á skýi og semji sögur, hendi þeim svo niður til jarðarinnar, og svo lenda þær hipsumhaps í heilabúum höfunda sem þurfa bara að ná þeim út úr sér. Sagan er tilbúin áður en þú veist það sjálfur. Þetta er mjög sérstakt og skemmtilegt ferli. Það er mjög gam- an að skrifa, ég gæti ekki verið án þess, það er alveg óhugsandi. Stundum veit ég ekkert hvað ger- ist næst. En þegar maður er kominn með fyrstu blaðsíðuna þá er mað- ur búinn að skapa heiminn, opna hólfin fyrir þessa sögu. Síðan get ég farið aftur inn í það hólf hvar og hvenær sem er. Ég get setið heima og verið að kjafta við fjölskylduna og verið að semja. Mér finnst óþarfi að búa til eitthvert vesen í kringum það eða setja mig í flóknar stellingar,“ segir hann og spyr: „Eru miðlar ekki svona? Þeir geta bara opnað hólf og lokað því aftur. Allt sem ég skrifa er þannig, ég opna hólf og það streym- ir fram.“ Gátu ekki eignast barn Kristján Kristjánsson tónlistarmað- ur er mættur í hús og Guðmundur Andri veifar honum. KK býr í Karfa- voginum þar sem æskuheimili Guð- mundar er. „Mér þykir alltaf vænt um fólkið í Karfavogi. Ég hef sér- staka tengingu við það.“ Talandi um fjölskylduna. Guð- mundur Andri á eiginkonu, Ingi- björgu Eyþórsdóttur, og tvær dæt- ur sem hann ættleiddi frá Indlandi, þær Svandísi Roshni og Sólrúnu Lizu. „Við vorum barnlaus og gátum ekki eignast barn saman. Eftir nokk- ur ár ákváðum við að fara þessu leið, hætta að reyna og hjálpa munaðar- lausum börnum að komast á legg frekar en að láta þetta snúast um ástina á eigin genum. Um leið og við áttuðum okkur á þessum möguleika stukkum við á það og vorum svo lánsöm að það var eins og forsjónin stæði með okkur í bæði skiptin. Við sóttum Svandísi til Kolkata árið 1995. Hún var bara nokkurra mánaða og var á barna- heimili. Við fengum hana í gegnum félagið Íslenska ættleiðingu. Það var síðan árið 2000 sem við ættleiddum Sólrúnu. Mér skilst að þetta sé allt orðið erfiðara núna. Það er miður, því þörfin er svo sannarlega til stað- ar. Þótt það séu ekki mannréttindi að eignast barn þá eru það mann- réttindi hvers barns að eignast for- eldra. Fólk talar stundum eins og það séu réttindi fólks að eignast börn en náttúran er ekki alltaf sann- gjörn. Fólk getur ekki alltaf fengið allt sem það þráir. Það er eðli lífsins og það er veruleikinn sem ég bjó við um tíma.“ Mesta ævintýr lífsins Hann sá framtíðina samt aldrei fyr- ir sér án barna. „Við fórum frekar snemma í ferlinu að hugsa um ætt- leiðingu. Ættleiðingin gekk síðan hratt fyrir sig í bæði skiptin, aðeins hægar þó í seinna skiptið.“ Eftir að þau hjónin höfðu skráð sig hjá Íslenskri ættleiðingu fengu þau fljótlega fyrirspurn hvort þau vildu ættleiða þetta barn. „Við fór- um að skoða myndir af barninu og aftur á meðan við vorum að bíða. Úti fór svo af stað ákveðið lögform- legt ferli. Þegar það var afstaðið fór- um við út að sækja barnið. Það er ekkert sem lýsir þeirri til- finningu að halda á barni í fyrsta sinn og vita að þetta er barnið þitt. Það er stórkostlegasta stund ævinn- ar. Í mínu tilviki eru þessar stundir tvær,“ segir hann og brosir hlýlega. „Það að eignast þessar tvær stelpur er mesta ævintýri lífs míns og hef- ur gefið mér mikla birtu. Það hefur gefið mér mjög mikið á öllum svið- um og er það sem hefur breytt mér hvað mest.“ Ferðin út hafði líka mikil áhrif á hann. Hann var ekki sami maðurinn þegar hann sneri aftur heim. „Þegar ég steig út úr vélinni úti skall ég á hitavegg og ákveðin lykt lá í loftinu. Þegar maður kom svo út blasti við manni mannmergðin. Þá hugsaði ég með mér, já, þetta er Jörðin. Nú er ég kominn til Jarðarinnar og þetta er mannkynið. Ég áttaði mig á því að við erum ekki beinlínis á Jörðinni hér í fyrsta heiminum heldur nokkrum metrum fyrir ofan hana. Þarna fann ég allt í einu lyktina af Jörðinni, sem var sérstök blanda. Og sá fólkið sem býr við þessi kjör sem meirihluti mannkynsins býr við. Ég fékk það eins og hnefa í hausinn, ör- birgðina andspænis allsnægtunum. Í kjölfarið liðu nokkur ár þar til ég þoldi að heyra frásagnir af kjara- samningum hér á Íslandi. Ég gat ekki heyrt þetta, að fólk væri hér í allsnægtunum að heimta hærra kaup,“ segir hann og hlær. „Það breytti sýn minni til allra hluta að koma til Indlands.“ Stundin sem breytti öllu Eftir viku í Dehlí héldu þau til Kolkata. Þar fóru þau daglega í heimsókn á barnaheimilið þar sem dóttir hans dvaldi. „Barnaheim- ilið var mjög fallegt. Þar var mik- il örbirgð og mikil þrengsli og það vantaði margt. En það var mjög vel hugsað um börnin og það var gert mjög fallega. Þær höfðu greini- lega báðar fengið gott atlæti fyrstu mánuðina.” Í seinna skiptið varð hann eftir heima með eldri stelpuna sem var fimm ára á meðan konan fór út að sækja dóttur þeirra. „Við biðum voða spennt og það var ekkert nema tilhlökkun og gaman. Mig minnir að ég hafi málað gólfið í þvottahúsinu á meðan,“ segir hann hlæjandi . „Í bæði skiptin er stærsta minn- ingin þegar ég fékk þetta litla líf í faðminn í fyrsta sinn. Ég var búinn að horfa svo lengi á þær á mynd- um og kynnast þeim þannig. Síðan fékk ég þetta líf í faðminn og mér var ætlað að vernda og hjálpa þessu lífi að þroskast og verða til. Það er sterkasta tilfinningin og hún er yf- irþyrmandi, þessi stund sem breyt- ir öllu, stundin þegar maður finnur ábyrgðina og finnur hvað ábyrgðin er létt og góð.“ Fyrstu árin var meiri samgangur við félagið Íslenska ættleiðingu en fjölskyldan er enn í vinahóp sem samanstendur af fólki sem hefur gert það. Smám saman hafa tengslin við Indland þó minnkað. „Þegar þær voru yngri skoðuðum við myndir frá Indlandi með þeim og myndbönd. En nú eru stelpurnar orðnar svo gamlar að þær ráða því sjálfar hvað þær gera. Það fylgir þeim náttúlega alla tíð löngunin til að vilja vita hvað- an þær koma. Við höfum alltaf lagt áherslu á að þær þekki sína sögu. Í svona ættleiðingarferli mætist margs konar missir, sorg blóðmóð- ur, sorg barnsins sem er aðskilið frá móður sinni og sorg kjörfor- eldra sem trega börnin sem þau eignuðust ekki. Úr þessum trega býr maður til kærleika og ást. En þú verður að horfast í augu við tregann, vinna með hann og mæta honum. Þú getur ekki látið eins og hann sé ekki þarna. Það hefur ekkert upp á sig. Þess vegna er mikilvægt að tala um þetta og tala um þetta við börn- in áður en þau eru komin með skilning á því. Þannig að þau muni aldrei stundina sem þeim var sagður sannleikurinn, heldur hafi þau bara alltaf vitað þetta.“ Hún var svo falleg Mest af öllu langar hann til að vera vinur dætra sinna. „Svo þær geti leitað til mín með allt og við getum talað um alla hluti og átt sálufélag saman. Og að það sé gaman saman. Annars reyni ég að þvælast ekki um of fyrir þeim eða fylla þær af óupp- fylltum draumum mínum. Ég ætlast ekki til að þær klári þá,“ segir hann sem dreymdi um að verða konsert- píanisti eða djasspíanisti. „Mér fannst það svo flott og held að það hefði átt vel við mig. En ég nennti ekki að læra nógu lengi á píanó.“ Tónlistin hefur þó haft mik- il áhrif á hann í gegnum tíðina. Í kór kynntist hann Ingibjörgu, þegar þau voru ekki orðin hálfþrí- tug. Þau felldu hugi saman og hafa verið saman síðan. „Þetta var ekki flóknara en svo.“ Aðspurður hvernig hjónabandið haldi segist hann ekki hafa hug- mynd um það. „Ég hugsa ekki mikið út í það. Við eigum skap saman og okkur líður vel saman, erum frekar samtaka og getum talað saman. Að sumu leyti erum við lík, en ekki að öllu leyti, til allrar hamingju. Hún er miklu gáfaðri og betri en ég. Hún er svo falleg, kemur vel fyrir sig orði og hefur sterka réttlætiskennd. Hún er samkvæm sjálfri sér og mjög heil manneskja. En ég veit svo sem ekki hvort það sé það eða bara einhver efnafræði sem gerir það að verkum að við löðumst að hvort öðru. En þetta er ágætt, ég er ekki hrifinn af miklum sviptingum og veseni.“ Myndi vilja sofa meira út Í raun er hann latur, eða svo segir hann. „Ef ég ætti að lýsa mér þá myndi ég nota það orð og segja að ég væri latur. Ég er ekki svona bíl- skúrskarl sem er að smíða úti í bíl- skúr, enda skrópaði ég alltaf í smíði sem krakki. Ég geri ekki mikið í höndunum. Ég er ekki græjukall, kann ekki að hnýta flugur eða og er enginn útivistarmaður heldur. Ég er líka alveg laus við alla bóhem- drauma, allt of latur fyrir þannig lífs- stíl. Ég myndi aldrei endast á löngu fylleríi. Ég er bara frekar heimakær. En ég bý sem sagt með sjálfum mér alla daga og mér líður ágætlega með sjálfum mér. Ég held að það sé mikilvægt að kunna vel við sjálfan sig til að komast af í þessu lífi. Ég hef alltaf átt auðvelt með að vera einn og uni mér alltaf. Mér leiðist aldrei og þekki ekki þá tilfinningu, veit ekki hvað það er. Þannig að ég held að ég sé bara þægilegur í umgengni og ágætisná- ungi. Það er allavega lítið vesen sem fylgir mér,“ segir hann. Letin hrjáir hann líka yfir há- tíðarnar. „Mér finnst aðeins nóg um,“ útskýrir hann. „Ég myndi vilja hafa aðeins minna vesen. Líkamsstarfsemin er frekar hæg, sérstaklega á þessum árstíma. Ég myndi gjarna vilja sofa meira út og slaka aðeins betur á. Með árun- um finn ég meira fyrir myrkrinu. Ég myndi vilja liggja meira í leti,“ segir hann hreinskilinn. Að lokum segist hann vera lítið gefinn fyrir svona tímamót. „En mamma sló alltaf upp veislu fyrir mig á gamlársdag. Bakaði köku og bauð vinum mínum heim á milli tvö og þrjú. Síðan hélt ég að allt þetta havarí væri út af mér,“ segir hann hlæjandi. „En nei, ég er lítið fyr- ir áfanga. Ég læt bara hverjum degi nægja sína tjáningu. Eru það ekki fín lokaorð?“ spyr hann og segist vera orðinn súrefnis- og andlaus inni í þessu litla rými, svo við látum þetta gott heita. n „Fólk getur ekki alltaf feng- ið allt sem það þráir. Það er eðli lífsins og það er veruleikinn sem ég bjó við um tíma. Betri rithöfundur Stærsta áfall bernsk- unnar var að falla í stærðfræði og á milli bekkja en Guðmundur Andri veltir því upp að hann væri kannski betri höfundur hefði hann lent í áfalli. Umbreyttist í París Guðmund- ur Andri segir að það hafi mótað föður sinn að koma til Parísar um miðja síðustu öld. Þar hafi listamaðurinn orðið til. Feðgarnir Guðmundur Andri segir að faðir hans hafi verið mikil sól þegar hann sneri geislum sínum að fólki og setti það aldrei fyrir sig að svara fyrir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.