Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Page 20
Áramótablað 28. desember 201320 Fréttir Innlent Bjargaði lífi í sundi 7. október „Ég ætlaði alls ekki að synda, en svo ákvað ég að taka nokkrar ferðir,“ sagði Gunnar Áki Kjartansson sem bjargaði sundgesti frá drukknun í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Hann sótti manninn á botn laugarinnar og kom honum upp á bakkann. Þá kom pólskur maður að og aðstoðaði Gunnar við að hnoða lífi í manninn. Sá pólski lét sig svo hverfa án þess að nokkur næði að skrá niður upplýsingar um hann. Jón Gnarr hættir 30. október Borgarstjóri Reykjavík- ur, Jón Gnarr, tilkynnti í útvarps- þættinum Tvíhöfða að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Þá ætlar hann ekki að halda áfram í stjórnmálum. „Mér líkar ekki þessi kúltúr, mig langar að gera eitthvað sem er meira uppbyggilegt og skapandi og meiri gleði,“ sagði Jón meðal annars. Hann sagðist þó ekki vera búinn að ákveða hvað það yrði. Seldi silfrið 15. nóvember „Þegar búið var að loka á mig hjá bankanum og ég var búinn að fá frest hjá sýslumanni tók ég þessa ákvörðun,“ sagði Ólympíu- verðlaunahafinn Sigfús Sigurðsson. Sú ákvörðun var að selja verðlauna- peninginn sem hann fékk fyrir að hafna í öðru sæti á Ólympíuleikun- um í Peking árið 2008 með hand- boltalandsliðinu. Sigfús fékk gríðarlegan stuðning úr öllum áttum en HSÍ endurheimti peninginn og tók í sína vörslu. QuizUp slær met 16. nóvember Íslenska smáforritið QuizUp sló sannarlega í gegn í haust, en það er gefið út af leikjaframleið- andanum Plain Vanilla. Á aðeins átta dögum voru notendur þess orðnir meira en milljón talsins en yfirleitt tekur það einhverja mánuði að ná svo miklum fjölda. Í kjölfarið hafa fjárfestar sýnt fyrirtækinu mikinn áhuga en hingað til hefur öllum tilboðum verið hafnað. Forritið er eitt það vinsælasta á Bandaríkja- markaði smáforritaverslunar Apple, App Store, en stefnt er að útgáfu þess fyrir stýrikerfi Google, Android, eftir áramót. Nýr peningaseðill Í október var 10.000 króna seðill settur í umferð, í fyrsta sinn í 18 ár sem nýr seðill er gefinn út. Hann er tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni og verkum hans, en á bakhlið er að finna teikningu Jónasar af fjallinu Skjaldbreið og ljóðlínur með rithönd Jónasar úr fyrsta erindi kvæðisins Fjallið Skjaldbreið. Á framhlið er mynd af Jónasi og ljóðlínur úr kvæðinu Ferðalok. 24. október Eldur í Fernanda Eldur kom upp í flutningaskipinu Fernanda og óskaði skipstjóri þess eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar þegar ljóst var að rýma þyrfti skipið. Öllum skipverjum var bjargað en áfram loguðu eldar í skipinu og varðskipið Þór reyndi að slökkva eldinn úti á rúmsjó. Það gekk hins vegar illa og ákveðið var að draga skipið til Hafnarfjarðarhafnar. Þar átti að reyna slökkvistörf en mun meiri reykur og hiti var í skipinu en talið var. Þegar reykurinn var farinn að menga stóran hluta Hafnarfjarðar var ákveðið að fara með skipið út á sjó þar sem áfram var reynt að slökkva eldinn. Eftir gríðarlega erfitt starf slökkviliðsmanna tókst að ráða niðurlögum eldsins, en þá var enn talsverð olía í skipinu. 30. október

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.