Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Blaðsíða 73
Búnaðarskýrslur 1958—60
71*
því að það var gert skattfrjálst og undanþegið framtalsskyldu með lög-
um nr. 46/1954.
Aðrar eignir eru aðallega húsbúnaður, bátar, smíðaáhöld, en þó er
þar fleira talið. Þessar eignir voru fram taldar 33 430 þús. kr. í árslok
1960 og höfðu þá hækkað um 5 781 þús. frá þvi í árslok 1957. Þetta
eignaframtal er raunverulega lítið að marka, því að engri reglu er fylgt
um mat þessara eigna.
Skuldir framteljenda landbúnaðarafurða fóru mjög vaxandi árin
1958—60, svo sem eðlilegt er eins mikil og fjárfesting í landbúnaði var
þessi ár. í árslok 1960 voru skuldir þessar alls fram taldar 584 179
þús. kr. og höfðu þá aukizt síðan í árslok 1957 um 159 030 þús. kr.
Skuldum þessum er í búnaðarskýrslum skipt í 3 flokka: Skuldir við
Ræktunarsjóð og Byggingarsjóð, aðrar veðskuldir og allar aðrar skuldir.
I lok áranna 1954, 1957 og 1960 hafa þessar skuldir numið sem hér
segir (í þús. kr.):
Skuldir við
Ræktunarsjóð Aðrar Ailar aðrar
og Byggingasjðð veðskuldir akuldir Samtals
1954 ................... 118 404 23 593 97 042 239 039
1957 ................... 235 570 39 285 150 294 425 149
1960 ................... 329 576 41 075 213 528 584 179
Hækkun 1954-60 211 172 17 482 116 486 345 140
Eignir umfram skuldir (8d-nlld í töflu XVI) eru samkvæmt bún-
aðarskýrslum í árslok 1960 809 885 þús. kr., en voru í árslok 1957 719 283
þús. kr. Aukning eigna ætti samkv. þessu að vera 90 602 þús. kr. Þessi
eignaaukning er minni en sú aukning, er orðið hefur á verðmæti bú-
stofns, sem er 143 611 þús. kr. Þessar heildartölur um eignir framleið-
enda landbúnaðarafurða eru því fyrst og fremst vitnisburður um þá
ringulreið, sem komin er á verðgildismat þeirra.
18. Tekjur og eignir bænda 1960.
Farmers' income and assets 1960.
Töflurnar í töfludeild þessa heftis eru margar tvískiptar og merktar
A og B. Töflur merktar A sýna niðurstöður fyrir alla framteljendur
landbúnaðarafurða, en töflur merktar B fyrir bændur eina. Þar sem ekki
er um slíka skiptingu að ræða, eins og t. d. í töflum um jarðabætur,
varðar allt, eða a. m. k. því nær allt, er þær sýna, bændurna sérstak-
lega. Undantekning frá þessu er tafla III um kálrækt og gróðurhúsa-
afurðir, sem er aðeins að noklcru leyti byggð á búnaðarskýrslum skatta-
yfirvalda. En til er skipting milli bænda og búlausra á afurðum þess-
um í búnaðarskýrslum skattanefndanna, og er eftir þeirri skiptingu
farið í töflum XIII A og B um landbúnaðarframleiðsluna 1960.