Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Síða 8
8 Fréttir 25.–27. maí 2012 Helgarblað Herrafataverslun á floti n Fjórir ofnar sprungu svo tjón varð hjá JMJ M aður gæti hafa lent í því verra,“ segir Ragnar Sverr- isson, kaupmaður í herra- fataversluninni JMJ, en mikið tjón varð í húsnæði verslunar- innar við Gránufélagsgötu á Akureyri á miðvikudagsmorgun þegar fjórir ofnar sprungu á annarri hæð hússins og heitt vatn flæddi um gólf á hæðinni niður á jarðhæð. „Hefði þetta verið eldur og reykur þá hefði fimmtíu milljóna króna lag- er farið fyrir lítið,“ segir Ragnar sem segir gólfefni og veggi vera skemmda en það sé hægt að bæta. Hann ber höfuðið hátt þrátt fyrir þetta óhapp. „Þunglyndi fer mér allavega ekki,“ seg- ir Ragnar sem finnst ábyrgðarleysi hjá vinum sínum í Norðurorku að hleypa vatni á kerfið klukkan sjö í gær á marg- földum þrýstingi án nokkurs eftirlits. „Öryggislokið í kjallaranum spýt- ist upp og fjórir stórir ofnar upp á annarri hæð rifnuðu eins og bréf. Nú er ég ekki að segja þetta til að bögga vini mína í Norðurorku heldur að benda á þetta til að tryggja að það komi ekki fyrir aftur,“ segir Ragnar. Starfsmenn Norðurorku unnu að viðgerð á lögnum í Gránufélagsgötu og telur Ragnar þá ekki hafa gætt að þrýstingnum þegar vatninu var hleypt aftur á. „Þetta er ekkert eðli- legt að svona skuli gerast. Þeir hafa verið að flýta sér heim til að horfa á Eurovision,“ segir Ragnar og hlær en tjónið blasti við klukkan átta í morg- un. Í húsnæðinu við Gránufélagsgötu á Akureyri eru tvær herrafataversl- anir, bókhaldsskrifstofa, húðflúrstofa og saumastofa. Á floti Mikið tjón varð í versluninni vegna vatnsleka. MYND: ÓlaFur aNDri ragNarssoN Þ að er búið að taka saman alla atburðarás hjá okkur. Við erum auðvitað með eftirlits- myndavélar og erum með allt tímaskráð þegar þetta atvik átti sér stað á fimmtudaginn og það er auðvitað farið yfir það strax bæði með starfsmönnum og öllum sem að málinu koma. Það er niður- staða þeirra, hvort sem það var lög- reglan, læknar eða sjúkraflutninga- lið, að það hafi verið brugðist hárrétt við á sínum tíma,“ segir Margrét Frí- mannsdóttir, fangelsisstýra á Litla- Hrauni, um það hörmulega atvik sem átti sér stað í fangelsinu í síðustu viku þegar fangi lést af völdum bar- smíða af hendi samfanga sinna að því er talið er. annþór og Börkur á sama gangi Þetta mun vera í fyrsta skipti sem fangi er myrtur hér á landi og er málið nú rannsakað af lögreglunni á Selfossi, tæknideild lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu og réttar- meinafræðingi. Mennirnir tveir sem grunaðir eru um verknaðinn heita Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson. Þeir eru báðir þekktir of- beldismenn og höfðu nýlega verið fluttir á Litla-Hraun vegna rofs á skil- orði en þeir eru ákærðir fyrir að hafa í sameiningu gerst sekir um þrjár stór- felldar líkamsárásir á undanförnum mánuðum. Aðspurð hvers vegna Annþór og Börkur hafi verið hafðir á sama fang- elsisgangi, í ljósi ofbeldissögu þeirra, segir Margrét: „Það var bara tekin ákvörðun um það. Við erum auð- vitað ekki með nema sjö deildir í fangelsinu, þar af eru tvær deildir fyr- ir þá sem eru að koma inn. Fangels- ið er eins og alltaf yfirfullt, en það er hins vegar alltaf tekin ákvörðun hér á morgunfundum um hvar menn eru staðsettir í hús. Ef það koma ábend- ingar um að einhverjum stafi ógn af samfanga sem er á sömu deild, þá er tekið á því. Þeir [Annþór og Börkur] voru fyrst í einangrun og komu síðan inn í það sem við köllum hús númer 3 og voru vistaðir á þessum gangi. Það var og er talið rétt.“ Frábært ef hægt væri að að- skilja fanga Hún segir ekkert hafa komið fram sem benti til þess að Annþór og Börk- ur gætu ekki verið á sama fangelsis- gangi. Aðspurð hvort ekki hafi verið talin ástæða til að skilja þá að segir Margrét að „… það væri náttúrulega ósköp eðlilegt og frábært ef við hefð- um aðstæður til þess í fangelsunum í landinu að aðskilja menn sem væri talið óæskilegt að væru of mikið sam- an. Það væru auðvitað þær aðstæður sem við vildum gjarnan búa við og höfum oft bent á að þörf væri að taka á, en því miður höfum við bara ekki þessar aðstæður. Við reynum að bregðast við þeg- ar við höfum möguleika og aðskilj- um þá sem þarf að aðskilja. Við erum með deild þar sem menn sem verða fyrir miklu aðkasti geta fundið sér skjól en þetta eru bara þær aðstæður sem við búum við í fangelsunum og þetta er ekkert nýtt. Það hefur verið talað um þetta í mörg ár.“ spila úr því sem þeir hafa Margrét segir engar sérstakar regl- ur vera um að fangar sem hafa brot- ið af sér í sameiningu eða tilheyra sama gengi séu ekki á sama fang- elsisgangi. „Það hafa ekki verið sett- ar neinar reglur um vistun meðlima gengja eða hvernig skuli staðið að fangelsun þeirra. Þar verðum við einfaldlega að spila úr því sem við höfum. Fangelsi landsins eru ekki mörg og þau eru ekki mörg sem eru þess burðug að vera með menn sem hafa verið í alvarlegum ofbeldis- glæpum.“ Harðari afbrot og meiri neysla Samkvæmt heimildum DV hafa Ann- þór og Börkur ógnað öðrum föngum síðan þeir komu í fangelsið. Margrét segir að engar tilkynningar hafi borist starfsmönnum fangelsisins þess efnis. Hún segist aðspurð vissulega hafa áhyggjur af ástandi fangelsis- mála og öryggi eins og staðan er í dag. „Áhyggjurnar höfum við haft árum saman. Fangelsismálastofnun hefur verið að berjast fyrir byggingu nýs fangelsis í mörg ár. Nú fyrst erum við að sjá að það eigi eitthvað að ger- ast. Auðvitað höfum við áhyggjur dagsdaglega. Það eru harðari afbrot, meiri neysla og menn koma veikari inn. Við þurfum einnig að vista alla sakhæfa geðsjúka fanga. Þetta er sá veruleiki sem við búum við frá degi til dags.“ Eftirbátar Norðurlandanna Starfsmenn eru að sögn Margrétar mjög meðvitaðir um ástandið og reglulega er fundað og farið yfir mál- in. „Það er fylgst mjög vel með. Við erum með eftirlitskerfi og við feng- um nýlega fjárveitingu til að efla eft- irlit og öryggismál í fangelsinu sem á að nýta á þessu ári. En það segir sig sjálft að við uppfyllum ekki staðla eins og til dæmis Norðurlöndin eru með fyrir það sem þeir kalla ofbeld- isfulla, hættulega einstaklinga. Við erum ekki með sama öryggi.“ Margrét segir aukafjárveitinguna meðal annars fara í að bæta aðkom- una að fangelsinu og endurnýja kall- kerfi og gera myndavélakerfi skilvirk- ara. Hvort brugðist verði sérstaklega við og öryggi eflt vegna dauðfalls Sig- urðar Hólm segir Margrét: „Við erum með mjög gott eftirlit á öllum göng- um en það er ekki heimilt að vera inni á klefum með eftirlit.“ Margrét segir sorg ríkja á Litla- Hrauni vegna atburðarins og að fangar og starfsfólk fái stuðning frá fagfólki til að vinna úr honum. „Það er auðvitað sorg og þetta er mjög al- varlegt tilvik en sem betur fer hefur þetta aldrei gerst áður. Menn eru að vinna úr því en bæði hefur sálfræð- ingur Fangelsismálastofnunar ver- ið hér að störfum sem og fangelsis- presturinn og boðið upp á viðtöl.“ Neita sök Það var fimmtudaginn 17. maí síð- astliðinn sem Sigurður Hólm Sig- urðsson lést í fangaklefa sínum. Sigurður hafði einungis dvalið í klef- anum í sólarhring þegar hann lést. Eftir að DV sagði fyrst allra frá and- látinu voru viðbrögð lögreglunnar á þá vegu að ekki væri grunur um að dauða hans hefði borið að með sak- næmum hætti. Tilkynnt var um að Sigurður hefði átt í öndunarerfiðleikum þegar hann óskaði eftir aðstoð fangavarða um áttaleytið á fimmtudaginn. Sam- kvæmt heimildum DV hafði hann legið í rúminu en neyðarbjalla er á vegg andspænis rúminu í fangaklef- anum. Nokkrar mínútur eiga að hafa liðið frá því að Sigurður hringdi bjöll- unni og þar til hann var úrskurðaður látinn. Við krufningu líksins kom í ljós að hann lést vegna innvortis blæðinga og vaknaði þá grunur um að honum hefði verið ráðinn bani. Farið var yfir upptökur úr eftir- litismyndarvélum á fangelsisgang- inum og kom þá í ljós að Annþór og Börkur höfðu farið inn í fangaklefa Sigurðar skömmu fyrir andlát hans. Annþór og Börkur þvertaka fyrir að hafa beitt hann ofbeldi og héldu því fram við yfirheyrslur á miðvikudag að þeir hefðu eingöngu verið að að- stoða Sigurð þar sem hann hefði ver- ið veiklulegur. n Erfitt að aðskilja hættulega fanga n Margrét Frímannsdóttir áhyggjufull Erfiðar aðstæður Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstýra á Litla-Hrauni, segir ekki sama öryggi í íslenskum fangelsum og á hinum Norðurlöndunum. „Sá veruleiki sem við búum við“ „Það eru harðari af- brot, meiri neysla og menn koma veikari inn. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.