Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Blaðsíða 34
34 Eurovísir 25.–27. maí 2012 Helgarblað SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Syngdu með! Lag og texti: Greta Salóme Never forget She ś singing softly in the night, praying for the morning light. She dreams of how they used to be at dawn they will be free Memories they haunt his mind. Save him from the endless night. She whispers warm and tenderly: Please come back to me. And when the golden sun arises far across the sea. The dawn will break as darkness fades forever we’ll be free Never forget what I did, what I said when I gave you all my heart and soul. Morning will come and I know we´ll be one ćause I still believe that you´ll remember me! She mourns beneath the moonlit sky, remembering when they said goodbye. Where’s the one he used to know? It seems so long ago. And when the golden sun arises far across the sea The dawn will break as darkness fades forever we’ll be free Never forget what I did, what I said when I gave you all my heart and soul. Morning will come and I know we´ll be one ćause I still believe that you´ll remember me! ooooh Never forget what I did, what I said when I gave you all my heart and soul. Morning will come and I know we´ll be one ćause I still believe that you´ll remember me! Oh I still believe that you´ll remember me! Oh I still believe that you´ll remember me! Tilgangslausar staðreyndir um E urovision keppnin í ár er sú 57. í röðinni. Eftir margra áratuga keppni og yfir 1.100 lög frá hinum ýmsu löndum Evrópu hefur orðið til stór og mikill gagnabanki um allt sem við­ kemur þessari vinsælu keppni. Gall­ harðir aðdáendur keppninnar láta það ekki flækjast fyrir sér að svara spurningum á borð við: Hversu mörg stig fékk Lúxemborg árið 1980? (56). Hvaða land endaði í síðasta sæti árið 1972? (Malta með 48 stig). Eða hversu oft fékk Holland 12 stig í keppninni 1996? (Einu sinni, frá Austurríki). Færri vita hins vegar hvaða lag var það hundraðasta sem keppti í keppninni frá upphafi og hvaða hljómsveitarstjóri það er sem hefur oftast tekið þátt. Skoðaðu eftirfarandi upplýsing­ ar og gerstu sérfræðingur í Euro­ vision­keppninni áður en fjörið byrj­ ar á laugardaginn svo þú getir heldur betur slegið um þig og sýnt hvað þú ert klár. Um það bil 120 milljónir manna horfa á Eurovision-keppnina á ári hverju. Írski hljómsveitarstjórinn Noel Kelehan stjórnaði flutningi á fimm sigurlögum í keppninni (árin 1980, 1987, 1992, 1993 og 1996). Í heildina stjórnaði Kelehan flutningi á 29 lögum í Eurovision-keppninni, þar af 24 írskum. Kelehan lagði sprotann á hilluna árið 1999. Eftir að hann hætti lagðist hlut- verk hljómsveitarstjóra niður í keppninni. Hollenski hljómsveitarstjórinn Dolf van der Linde stjórnaði hljómsveitinni fyrir sjö lönd. Belgíu, Þýskaland, Írland, Lúxemborg, Holland, Svíþjóð og Sviss. Johnny Logan vann keppnina þrisvar. Árin 1980 og 1987 söng hann vinningslagið. Árið 1992 samdi hann vinningslagið Why Me? sem Linda Martins söng. Pólland á metið sem besti nýliðinn en landið tók þátt í fyrsta skiptið árið 1994 þegar Edyta Gorniak lenti í öðru sæti með lagið To Nie Ja. Noregur hefur oftast endað í síðasta sæti keppninnar, alls tíu sinnum. Þetta voru árin 1963, 1969, 1974, 1976, 1978, 1981, 1990, 1997, 2001 og 2004. Norðmenn hafa hins vegar sigrað þrisvar, 1985, 1995 og 2009. Írland hefur oftast unnið en Írar hafa hampað sigri alls sjö sinnum, Lúxemborg, Frakkland og Bretland hafa staðið uppi sem sigurvegarar fimm sinnum. Svíþjóð og Hol- land fjórum sinnum. A ldrei hafa jafn margir mætt á keppnina og árið 2001 þegar næstum 38 þúsund manns mættu á Parken í Kaupmannahöfn til að verða vitni að fyrsta sigri Eistlands. Metfjöldi þátttökulanda var árin 2008 og 2011 en þá tóku alls 43 lönd þátt í Eurovision. H in þýska Lena, sigurvegari keppninnar 2010, var sú þriðja til að reyna að halda titlinum á sínum heimavelli. Þýski lagahöfundurinn Ralph Siegel tók 18 sinnum þátt í Eurovision. Aðeins þrjár konur stjórnuðu hljóm-sveitinni í keppninni. Þetta voru þær Nurit Nirsch, sem stjórnaði flutningi laga Ísraels árin 1973 og 1978, Monica Dominique, sem stjórnaði flutningi Svía árið 1973, og Anita Kerr, sem stjórnaði flutningi á lagi Sviss árið 1985. F lest vinningslögin hafa verið sungin á ensku eða 24 lög. Franska er einnig vinsæl en sigurlögin hafa 14 sinnum verið sungin á frönsku. Sex mismunandi kerfi hafa verið notuð í gegnum áratugina til að úrskurða um sigur í keppninni. Enginn flytjandi hefur öðlast jafn mikla velgengni í kjölfar keppninnar og ABBA . Sænska sveitin sigraði í Eurovision árið 1974. Lagið Nel Blu Dipinto Di Blu eða Volare hefur oftast verið tekið upp af hinum ýmsu tónlistarmönnum. Domenico Modugno flutti lagið en frægar stjörnur á borð við Dean Martin, Cliff Richard og David Bowie hafa síðan gefið út sína útgáfu af laginu. Marokkó hefur einu sinni tekið þátt í keppninni. Það var árið 1980. Yfir þúsund lög hafa þegar tekið þátt í Eurovision. Írska lagið hans Brians Kennedy, árið 2006, var þúsundasta lagið. Framlag Kýpur árið 2003 var 900. lagið. Lag Lydiu, No Quiero Escuchar, árið 1999 var 800. lagið í Eurovision-keppninni. Hundraðasta lagið í Eurovision var sungið af Esther Ofarim fyrir Sviss. Tvöhundr- aðasta lagið var De Troubadour hans Lennys Kuhr árið 1969. Malta færði okkur 300. lagið árið 1975 og Frakkar sungu He, He M‘sieurs Dames árið 1980 en það lag var lag númer 400 í keppninni frá upphafi. Framlag Lúxemborgar árið 1986, L‘amour De Ma Vie, var 500. lagið í keppninni. Portúgalar áttu 600. lagið árið 1990 þegar þeir fluttu A Sempre Slguem og Pólverjar fluttu lag númer 700, To Nie Ja, árið 1994. Lag númer 1.100 var flutt árið 2008.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.