Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Síða 36
Grikkland
Eleftheria Eleftheriou
Aphrodisiac
n Eleftheriou, 23 ára, öðlaðist frægð í
heimalandi sínu eftir að hafa tekið þátt í X
Factor árið 2010. Þótt hún hafi ekki unnið
hæfileikakeppnina hefur hún átt mikilli
velgengni að fagna og túrað með sumu
frægasta tónlistarfólki Grikklands.
Rússland
Buranovskiye Babushki
Party For Everybody
n Ömmurnar frá Udmurtia sigruðu stjörnur
á borð við fyrrverandi Eurovision-farann
Dima Bilan. Elsti meðlimur hópsins verður
77 ára í haust. Hópurinn vakti fyrst athygli
árið 2008 en ömmurnar syngja lög þekktra
hljómsveita á borð við Bítlana og Queen.
Ungverjaland
Compact Disco
Sound Of Our Hearts
n Bandið Compact Disco samanstendur af
fjórum meðlimum sem hafa spilað saman
frá árinu 2005 en um eina vinsælustu hljóm-
sveit Ungverjalands er að ræða. Fyrsta
platan þeirra kom út árið 2005.
Moldóva
Pasha Parfeny
Lutar
n Tónlist hefur alltaf verið hluti af lífi
Pasha. Tónlistarmaðurinn, sem er 34 ára,
var í hljómsveitinni Sunstroke Project sem
tók þátt í forkeppninni árið 2009 með lagið
You Should Like.
Írland
Jedward
Waterline
n Tvíburunum í Jedward gekk svo vel í fyrra
að nú mæta þeir aftur til leiks. Lagið Lipstick
sveif upp vinsældarlistana í Belgíu, Svíþjóð,
Þýskalandi og Austurríki en velgengnin
varð til þess að bræðurnir voru fengnir til að
spila á tónleikum sem haldnir voru vegna
heimsóknar Baracks Obama til Írlands.
Bretland
Engelbert Humperdinck
Love Will Set You Free
n Engelbert Humperdinck hefur verið
stórt nafn innan tónlistarbransans í yfir 40
ár. Hann hefur selt yfir 150 milljón plötur
víðsvegar um heiminn. Humperdinck hefur
fjórum sinnum verið tilnefndur til Grammy-
verðlaunanna og á 63 gull og 24 platínu-
plötur í safni sínu.
Frakkland
Anggun
Echo (You And I)
n Anggun hefur selt yfir tvær milljónir
hljómplatna í Evrópu. Hún var þegar orðin
stjarna í Asíu þegar hún ákvað að yfirgefa
heimalandið og flytja til Evrópu. Hún hefur
unnið með tónlistarframleiðandanum sem
kom Céline Dion á kortið og sungið með
Peter Gabriel, Pras (úr The Fugees), Julio
Iglesias og Michael Bolton.
Ítalía
Nina Zilli
L‘Amore È Femmina (Out of Love)
n Nina hefur ferðast um allan heiminn til
að elta drauma sína um frægð og frama
í tónlistarbransanum. Hún ólst upp í litlu
þorpi í Val Trebbia. Hún hefur fengið fjölda
verðlauna fyrir sína fyrstu plötu sem kom
út í fyrra.
Aserbaídsjan
Sabina Babayeva
When The Music Dies
n Sabina stígur á svið fyrir gestgjafina.
Sabina fæddist árið 1979 í Baku. Mamma
hennar er píanóleikari og kynnti dóttur sinni
snemma fyrir tónlist. Sabina er menntaður
lögfræðingur.
Spánn
Pastora Soler
Quédate Conmigo (Stay With Me)
n Pastora fæddist árið 1978 og hefur unnið
fyrir sér sem söngkona í 18 ár. Hún hefur
gefið út níu plötur og fengið þrjár platínu-
og fjórar gullpötur. Hún hefur unnið með
listamönnum á borð við Alejandro Sanz,
Armando Manzanero, Raphael og Miguel
Poveda.
36 Eurovísir 25.–27. maí 2012 Helgarblað
Albanía
Rona Nishliu
Suus
n Nishliu er þekkt poppsöngkona og djass-
tónlistarkona í Albaníu, Kosovo, Makedóníu
og Svartfjallalandi. Hennar sterkustu eigin-
leikar eru breitt raddsvið og sterk túlkun.
Nishliu hefur látið að sér kveða í mannúðar-
málum á heimaslóðunum.
Rúmenía
Mandinga
Zaleilah
n Hljómsveitarmeðlimir Mandinga eru sjö
talsins en aðeins sex þeirra munu stíga á
svið í Bakú. Sveitin hefur spilað í tíu ár og er
fræg í heimalandi sínu. Hljómsveitin hefur
gefið frá sér fjórar plötur en sú fimmta er á
leiðinni.
Kýpur
Ivi Adamou
La La Love
n Hin 18 ára Ivi Adamou vakti fyrst athygli
þegar hún tók þátt í gríska X Factor. Eftir
keppnina sendi hún frá sér plötuna Kalokeri
Stin Kardia en platan San Ena Oniro kom
út í fyrra.
Danmörk
Soluna Samay
Should‘ve Known Better
n Samay, 21 árs, hafði unnið fyrir sér sem
götutónlistarmaður á strætum Kaup-
mannahafnar og annarra stórborga Evrópu.
Soluna er fædd og uppalin í Gvatemala en
flutti til Danmerkur með fjölskyldu sinni
þegar hún var tíu ára.
Svíum spáð sigri
n Íslendingum, Rússum, Rúmenum og dívum frá Kýpur og Ítalíu einnig spáð góðu gengi
S
öngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva verður haldin
í 57. skiptið í maí í Bakú í
Aserbaídsjan. Gestgjafarnir
að þessu sinni eru Aserar
en það voru Ell og Nikki, með lagið
Running Scared, sem heilluðu Evr-
ópubúa í fyrra. Söngvakeppnin er
ein af elstu sjónvarpsviðburðum sög-
unnar. Fyrsta keppnin var haldin 24.
maí árið 1956. Enn þann dag í dag er
keppnin eitt vinsælasta sjónvarpsefni
Evrópu. Greta Salóme og Jónsi flytja
lagið Never Forget fyrir Íslands hönd
og verða sjöundu í röðinni.
Ísland
Greta Salóme og Jónsi
Never Forget
n Jónsi snýr aftur í keppnina átta árum
eftir að hafa tekið þátt fyrir Íslands hönd í
Istanbúl með laginu Heaven. Með honum í
ár er hin 26 ára hæfileikaríka Greta Salóme
sem spilar á fiðlu en hún samdi lag og texta.